Morgunblaðið - 16.08.1961, Page 18
22
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvik'uÆagur 16. ágúst 1961
Lakara liðið vann
á Akureyri
Akranes vann heimaliðið 1:0
MENN f jölmenntu á völlinn á Ak
ureyri á sunnudaginn, en þar
léku íslandsmeistararnir af Akra
nesi við heimaliðið. Leikurinn
allur var heldur lélegur, einkum
af hálfu íslandsmeistaranna, sem
þó fóru með ósanngjarnan sigur
af hólmi, 1:0. Sigur Akureyrar
3—4:1 hefði verið nær sanni.
• Sigurmarkið
f>að var ekki fyrr en eftir 76
mínútna basl að Akurnesingum
tókst að skora markið, sem færir
-þeim bæði sigur yfir Akureyring-
um og gerir þá jafnframt jafn-
háa KR-ingum að stigum, eða
15 stig eftir 9 leiki.
Það var Jóhannes Þórðarson h.
útherji, sem verður að teljast
frumkvöðullinn að því marki. Jó-
hannes komst upp að markteig,
lenti í hálfgerðum hrakningum
með knöttinn í viðureign sinni
við bakvörð ög miðvörð Akureyr-
inga, en fékk þó þvælt knettin-
um til Þórðar Jónssonar, sem var
í allgóðu færi við vítapunkt og
skoraði örugglega án þess að Ein-
ar Helgason, markvörður, fengi
að gert.
• Akureyringar óheppnir
Ekki verður annað sagt en að
Akureyringar hafi verið óheppn-
ir, þó áttu þeir ekki nein sérlega
opin færi, frekar en Akurnesing-
ar, en hvað eftir annað lá við að
þeir skoruðu, en oft varði Helgi
Daníelsson með góðum úthlaup-
um.
Akureyringar héldu uppi
pressu á Akranesmarkið fyrstu 15
til 20 mínúturnar Og áttu mun
meira í fyrr ihálfleiknum. Seinni
hálfleikurinn var hins vegar
nokkuð jafnari, þótt Akureyring-
ar ættu sömuleiðis meira í þeim
hálfleik.
• Akranessheppni
Það er ekki einleikið hvernig
Akurnesingar sigla í gegn um all
ar hættur í 1. deildarkeppninni.
Hvað eftir annað hafa þeir sigr-
að, eftir að hafa sýnt heldur lé-
lega leiki og auk þess átt mun
minna í leiknum en andstæðing-
arnir. Og árangurinn: Akurnes-
ingar munu leika hreinan úrslita
leik við KR 10. september n.k.
þar eð bæði liðin hafa nú 15 stig
að 9 leikjum loknum.
f liði Akraness bar á hinum
skeggprúða fyrirliða, markverð-
inum Helga Daníelssyni, sem er
greinilega í framför í markinu og
á eflaust eftir að ná sínum gamla
styrk. Átti Helgi oft mjög
skemtileg tilþrif Og bjargaði hann
liðinu frá tapi. Bakverðirnir áttu
báðir nokkuð góð tilþrif, einkum
Helgi, sem alltaf er harður í horn
að taka. Hinn ungi miðvörður,
Gunnar Gunnarsson, er enn ekki
orðinn harðnaður í stöðunni og á
margt ólært. Sveinn Teitsson átti
sæmilegan leik sem framvörður.
Framlína Akraness má muna fífil
sinn fegri. í henni mátti telja tvo
leikmenn, sem gá‘u hreyft sig
svo nokkru næmi, það voru þeir
Ingvar og Þórður Jónsson, hinir
voru mjög iaufir og silalegir.
• Akui'eyringa vantaði neistann
Það var líkast því að Akureyr-
inga vantaði „neistann", til að
ikveikja í „sprengiefninu" sem
liðið vissulega átti til. Akureyr-
ingar sýndu oft mjög þokkaleg
tilþrif og fyrst í leiknum jafnvel
mjög skemmtileg. En það er ekki
nóg að „spila góða knattspyrnu',
það eru mörkin sem telja, og með
því að skora ekki og fá eitt
heldur lélegt mark á sig voru
bæði stigin rokin út í veður og
vind.
í liði Akureyringa voru beztu
menn þeir Haukur Jakobsson og
Jón Stefánsson. Haukur átti nú
sinn bezta leik í langan tíma í
stöðu framvarðar og Jón átti
mjög líkan leik því sem hann oft
ast sýnir þ. e. mjög jákvæðan
miðvarðarleik. Einai Helgason
sýndi öryggi í markinu í þau fáu
skipti sem nokkuð reyndi á hann.
Bakverðirnir eru allt of lausir í
stöðum sínum og getur af þeim
stafað hætta fyrir liðið. V. bak-
vörður sótti t. d. allt of mikið
fram í framherjastöðuna og skildi
eftir sig stórt gat á varnarveggn-
um. Framlínan sýndi ekki þann
leik sem af svo góðum einstak-
lingum má búast. Steingrímur
í stöðu útherja er að öllum lík-
indum misráðið, hann ætti að
njóta sín betur sem miðherji.
Jakob með allt Of litla þjálfun að
baki væri betri sem útherji, en
sú staða virðist helzt notuð sem
„hvíldarheimili" hjá liðunúm
okkar og það mátti greinilega sjá
í þessum leik. Innherjarnir báð-
ir, þeir Skúli og Kári, voru nokk-
uð góðir, en Kári er enn full
unggæðislegur og einleikur meira
en hófi gegnir.
Áhorfendur voru margir á Ak-
ureyri sem fyrr segir enda veður
hið fegursta og hlýtt í veðri.
Dómari var Baldur ÞórðarsOn,
Þrótti, og dæmdi hann vel. Sem
aðstoðarmenn hafði hann tvo ný-
skólaða línuverði, þá Einar
Hjartarson, Val og Guðmund Guð
mundsson, Fram, en þeir sóttu
nýverið dómaranámskeið í Bret-
landi. — Jbp —
Bikarkeppnin hafin
Breiðablik ógnaði
Rússlandsförum
- en Fram fann leiðina og vann 4:2
BIKARKEPPNI KSÍ hófst á | Leikur liðanna var mjög lé-
mánudagskvöldið með leik Breiða legur allan leikinn og vart hægt
bliks úr Kópavogi og Rússlands-
fara Fram (b-lið).
Tékkar
unnu Norð-
menn
TÉKKAR og Norðmenn háðu
landskeppni í frjálsum íþróttum
á mánudag og í gær. Tékkar unnu
með yfirburðum 118 stig gegn 93.
Aðstæður voru mjög slæmar.
Rigndi mjög mikið í gær fyrir
og á meðan á keppni stóð og voru
allar brautir undir vatni á Bislet.
Þetta kom í veg fyrir að „topp-
árangur" næðist og aðeins voru
3673 áhorfendur.
Norðmenn unnu tvöfaldan sig-
ur í langstökki, en Tékkar í hindr
unarhlaupi, kúluvarpi og kringlu-
kasti. Tékkar sigruðu í 200 m
hlaupi, 1500 m og boðhlaupinu en
þar misstu Norðmenn keflið og
veittu enga keppni.
ísfirðingar hafa
engum leik tapað
TÆPLEGA 50 manna hópur
knattspyrnumanna gisti ísafjörð
um síðustu helgi. Voru það tvö
lið úr 3. flokki Fram og meist-
araflokkur úr Keflavík. Á föstu
dag, laugardag og sunnudag
léku þessi lið við ísfirska knatt-
spyrnumenn og urðu úrslit sem
hér segir:
Föstudagur: 3. fl. A-lið Fram
— Isafjörður 2:2. — 3. fl. B-lið
Fram — ísafjörður 4:0.
Laugardagur: 3. fl. A Fram
— ísafjörður 3:1. — 3. fl. B
Fram — ísafjörður 3:0.
Meistaraflokkar Keflavíkinga
og Isfirðinga kepptu á laugar-
dag og var leikurinn jafn í fyrri
hálfleik 1:1 og voru bæði mörk-
in skoruð úr vítaspyrnu. Isfirð-
ingar áttu öllu meira í síðari
hálfleik og fór leikurinn að
mestu fram á vallarhelming
Keflvíkinga. Keflvíkingar urðu
þó fyrri til að skora mark og
tókst ísfirðingum ekki að jafna
fyrr en á síðustu mínútu leiks-
ins, þrátt fyrir mörg tækifæri
og mikla „pressu“ á Keflvík-
inga. Á sunnudag fór fram ann
ar leikur og voru þá lið beggja
mikið breytt. M. a. komu 5
nýir mann inn á fyrir ísafjörð
og Keflvíkingar settu alla sína
að fá heila brú í hann. Fram
arar urðu fyrri til að skora, en
markið skoraði Dagbjartur Gríms
son á 5. mínútu mjög laglega.
Breiðabliksmenn taka nú við
Og Guðmundur J. Magnússon mið
herji skorar tvö mörk fyrr en
varir og leikar standa þannig 2:1
fyrir Breiðablik þar til tæpar 20
mínútur eru til leiksloka að Fram
tekst að finna leið að marki Kópa
vogsmanna og skora þeir nú 3
mörk á fáum mínútum (Baldur
Scheving, Björgvin Árnason og
Dagbjartur Grímsson).
Framarar voru í þessum leik
betra liðið en var megnið af leik
tímanum ógnað af hinu götótta
Breiðabliksliði, en það verður að
teljast heldur lélegt af liði, sem
telur alls 7 menn, sem nýlega
hafa leikið í meistaraflokki, og
nökkra menn, sem brátt munu
sýna listir sínar í Rússlandi.
Mesta athygli í leik þessum
vakti hinn ungi markvörður
Breiðabliks, sem oft bj.argaði
meistaralega.
Ólafur Hannesson, KR dæmdi
leikinn og gerði það vel að vanda.
Áhorfendur voru fáir, enda var
leikurinn annað hvort illa eða
alls ekki auglýstur. — jib
St. Mirren
oj Dundee
sigruðu
SKOSKA bikarkeppnin hófst s.l.
laugardag. Kunningjar okkar frá
varamenn inn á. Leikurinn var því í sumar St. Mirren og
all fjörugur og nokkuð jafn i
fyrri hálfleik og var staðan 2:1
fyrir Keflavík í leikhléi. Þriðja
markinu bættu Keflvíkingar við
strax í síðari hálfleik og tóku
eftir það leikinn algerlega í
sínar hendur. Léku þeir mjög
vel og áttu mörg og hættuleg
skot á mark. Er örfáar mín.
voru til leiksloka tóku ísfirð-
ingar fjörkipp og tókst að skora
tvö mörk og lauk leiknum með
jafntefli 3:3.
ísfirðingar hafa í sumar leik
ið 10 léiki við önnur lið. Hafa
þeir unnið 7, gert þrjú jafn-
tefli en engum leik tapað. Lið-
ið hefur skorað 33 mörk en
fengið á sig 17.
Dundee stóðu sig vel og sigruðu
bæði liðin. St. Mirren sigraði
Kilmarnock 1:0 og er það góð-
ur árangur, því Kilmarnock varð
í öðru sæti í deildarkeppninni á
síðasta keppnistímabili. Dundee
sigraði Airdrie með 2:0. — Tott-
enham sigraði enska landsliðið
s. 1. laugardag 3:2. í hálfleik
var staðan 1 : 1. Mörk Totten-
ham settu Smith og Allen, sem
skoraði tvö. Fyrir enska landslið
ið skoruðu Haynes og Byrne.
Leikurinn var mikill sigur fyrir
Tottenham, en aftur á móti eru
Englendingar mjög áhyggjufullir
vegna landsliðsins. Byrne, Jimmy
Robson og Bobby Robson áttu
allir heldur lélegan leik.
HANDKNATTLEIKSSTÚLK-
UR Víkings eru nú á leið með
Heklu til Norðurlanda en ferð
in er farin til að reyna sig í
handknattleik við ýmis nor- /
ræn lið. Víkingsstúlkurnar 1
mynda nú eitt sterkasta I
kvennalið landsins og verður
því fróðlegt að fá samanburð
á getu þeirra og norrænna
liða.
Víkingsstúlkurnar halda
fyrst til Bergen og keppa þar.
Síðan dveljast þær vikutima
í Osló og nágrenni á vegum
Grefsen og leika nokkra leiki.
Þá halda þær til Gautaborgar
og taka þar þátt i hraðkeppni
og koma síðan heim um Kaup
mannahöfn með Heklu að
þremur vikum liðnum.
Myndin er af stúlkunum
ásamt þjálfara og fararstjóra.
Jóhann Hannesson
Framh. af bls. 6.
á þennan fallega ás, sem liggur
alveg við borgina og er á þriðja
hundrað metra yfir hafið. Hafði
þá norskum verkfræðingi kpmið
til hugar að betra væri að leggja
veginn innan í ásnum, til þess að
engu þyrfti að spilla í hlíðum
hans. Þetta tókst með miklum á-
gætum og liggur vegurinn eins
og gornaur innan í ásnum og heit
ir líka „Spiralen" þ.e. gormur
inn. Geta nú bongarbúar ekið I
strætisvögnum innan í „gormin
um“ og stigið út úr vögnunum
í 213 m hæð. Þar taka svo við
gangbrautir um fallegan sikóg,
sem er uppi á ásnum. Gaimall
kennari minn, Tómas Vigeland,
fór með mig upp á ásinn og sýndi
mér bæði gorminn og hið fagra
land, sem blasir við af ásbrún-
inni. Borgarbúar í Drammen eru’
mjög hróðugir af þessu sérkenni
lega mannvirki og sumir segja að
„gormurinn" hafi í raun og veru
ekki kostað neitt, af því að allt
grjótið, sem kom úr þessum
miklu berggöngum, var notað til
vegagerðar og þurfti því að
sprengja það úr föstu ber gi hvort
sem var, þar eð allt lausagrjót
var löngu uppurið.
IV. VEÐRIÐ
Sumarið er yfirleitt hlýrra hér
en heima og gætir þess undir
eins og sólar nýtur. En þegar rign
ing er, þá er munurinn ekki mik
ill, nema hve miklu minna hér
ber á vindum. í Vestur-Noregi
var hey hrakið og stóðu pollar
í túnum á Jaðri þegar ég fór þar
um. Hér austanfjalls hefir yfir-
leitt viðrað betur og er útlit fyrir
meðalár ef ekki verða miklar
rigningar á kornskurðartímanum,
Skólarinr hér í Osló hefjast upp
úr miðjum ágúst (barnaskólar
17. ágúst) og háskólanám hefst
fyrstu dagana í september. Svo
börnin og ungmennin njóta sum
arsins ekki eins lengi og heima.
Skólatíminn er e.t.v. full langur
hér, en heldur í styttra lagi við
ýmsa skóla heima.
Hér með kærar kveðjur til
bænda.
Jóhann Hannesson