Morgunblaðið - 29.08.1961, Side 10
ro
MORGVNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 29. ágúst 1961
Vélfluga dró svifflugu Þórhalls á loft af flugvellinum.
Svifflugan og þotan
vúktu mesta athygli
Þúsundir sáu flugsýninguna
á sunnudaginn
ÞÚSUNDIR Reykvíkinga
streymdu út á flugvöll eftir há-
degi á sunnudaginn til þess að
horfa á flugsýningu Flugmála-
félags íslands. Þúsundir höföu
og safnazt saman uppi á Öskju-
hlíðinni, enda er útsýnið þaðan
hið bezta yfir flugvallarsvæðið.
Og á Hringbrautinni, allt frá
Miklatorgi vestur að Gamla
garði, var samfelld röð bíla og
fylgdist fólk þaðan með sýn-
ingunni, sem heppnaðist ágæt-
lega, enda var veðrið hið ákjós-
anlegasta.
SVIFFLUG Þórhalls Filippus-
sonar vakti einna mesta at-
hygli á flugsýningunni á
sunnudaginn. Lék hann ótrú-
legustu listir og var honum
óspart klappað lof í lófa, þeg-
ar hann lenti.
Þórhallur er þrítugur, en
lærði svifflug 13 ára að aldri.
Síðan hefur hann flogið mjög
mikið og er fræknastur ís-
★ ♦ ★
Sýningin var haldin í tilefni
25 ára afmælis Flugmálafélags-
ins og hófst hún með því að
Baldvin Jónsson, form. félagsins,
bauð gesti velkomna. Ingólfur
Jónsson, flugmálaráðherra, flutti
því næst ræðu. Árnaði hann fé-
laginu alls hins bezta og þakk-
aði því unnin störf. Gat ráð-
herra þess, að þetta væri sjö-
unda flugsýningin á Islandi. Sú
fyrsta hefði verið haldin á Sand
skeiði 1938 og var þá sýnd þar
ein íslenzk flugvél. Mikil breyt-
ing hefði nú orðið á flugflota
okkar, enda væri íslendingum
lífsnauðsynlegt að efla og auka
flugflotann sem kostur væri.
Eyþjóðir verða að kappkosta
lenzkra svifflugmanna.
í fyrra lauk hann fyrri hluta
hins svonefnda gull-C prófs.
Flaug hann tilskilda 300 km.
og 155 km betur í einum
áfanga, eða mólli Köln og
Flensburg i Þýzkalandi.
Síðari hlutanum lauk hann
í sumar, en sú raunin er að
hækka flugið af eigin ram-
leik um 3000 metra. Sleppti
hann þá vélflugunni í 300 m
hæð og fór upp í 5100 m. Þá
skorti hann ekki nema 200 m
til þess að fá „demant" í gull-
Cið. En hann treysti sér ekki
hærra þar sem hann hafði
ekki súrefnistæki, því þarna
uppi í 15—16.000 feta hæð er
loftið orðið æði þunnt. Þetta
afrek vann Þórhallur yfir
Sandskeiðinu og var ekki
nema tæpa klukkustund á
flugi.
Hann reynir sjálfsagt við
fyrsta demantinn bráðlega aft
ur, en til þess að ná hæstu
gráðu í svifflugi þarf hann tvo
„demanta" í viðbót: Fljúga
300 km eftir fyrirfram ákveð-
inni leið og fljúga síðan 500
km í einum áfanga.
Fyrri raunina er hægt að
leysa hér á landi, t.d. frá Sand
skeiði til Hornafjarðar. Síðari
raunina er ekki hægt að leysa
hér nema fljúga í þríhyrning
og þá þarf það mikinn mann-
afla og útbúnað til þess að
bera vitni svo að allt sé lög-
legt, og óvíst er, að Þórhallur
geti fengið síðasta „demant-
inn“ hér heima.
Myndin var tekin á sunnu-
daginn, þegar Þórhallur steig
út úr flugunni að sýningu
sinni lokinni.
(Ljósm. Mbl. KM).
innar, sem einna mesta athygli
vakti. Þórhallur Filippusson
sýndi listir í svifflugu. Eins
hreyfils flugvél dró fluguna á
loft og allhátt yfir flugvellinum
sleppti Þórhallur strengnum.
Fór hann nú hverja bakfalls-
lykkjima á fætur annarri og
lék hinar ótrúlegustu listir, svo
að undrunarkliður fór um á-
horfendaskarann. Var það greini
legt, að þarna var mikill kunn-
áttumaður á ferðinni. Lækkaði
hann smám saman flugið og í
lokin steypti hann flugunni yfir
áhorfendahópinn framan við
flugturninn, hækkaði flugið síð-
an, tók krappa beygja og sett-
ist fallega nokkra metra fram-
an við áhorfendaröðina. —
Reyndur svifflugmaður, sem
horfði á, sagði, að lending Þór-
halls hefði bezt sýnt kunnáttu
hans miklu betur en allar bylt-
urnar í loftinu.
★ ♦ ★
Næsta atriði var einnig mjög
skemmtilegt. Ungur flugmaður,
Þórður Finnbjörnsson, sýndi
ýmsar listir á lítilli kennslu-
flugvél. Flaug hann lágt yfir
flugvallarsvæðinu, bylti sér á
alla lund, gerði bakfallslykkju
og fór í spinn. Var þetta mjög
faglega gert og skemmtilega,
enda fylgdust áhorfendur með
af brennandi áhuga. Þórður er
nýbyrjaður hjá Loftleiðum,
fyrst sem siglingafræðingur, nú
2. flugmaður.
★ ♦ ★
Síðan var sýnt hvernig sv'
fluga er dregin á loft með
vindu. Flugbátur Landhelgis-
gæzlunnar, Rán, flaug lágt yfir
og dró merkjaflögg og skaut
blysum — og síðan kom þyril-
vængja frá varnarliðinu.
Sýning hennar vakti óskipta
athygli, enda sýndu flugmenn-
irnir mikla leikni. Þeir flugu í
allar áttir, ef svo mætti segja,
meira að segja aftur á bak —
og þótti mörgum mikið um. Að
lokum var sýnt hvernig mað-
ur er dreginn upp í þyrlu, þeg-
ar um björgun er að ræða. Það
voru sams konar þyrlur með
sama útbúnað, sem dró banda-
rísku geimfarana upp úr geim-
förunum eftir að þau lentu í
sjónum.
★ ♦ ★
Næsta atriði sýningarinnar
var einnig varnarliðsins. Tvær
könnunarvélar, Neptune og
Constellation ,flugu lágt yfir
flugvöllinn með miklum gný.
Sú fyrri er tveggja hreyfla, en
hefur auk þess tvo þrýstilofts-
hreyfla. Var hraði Neptune mik-
ill og hávaðinn eftir því. Báðar
þessar flugvélar eru í rauninni
fljúgandi ratsjárstöðvar og sagði
kynnir sýningarinnar, að sú
stærri, Constellation, hefði
hvorki meira né minna en 31
manna áhöfn.
Síðasta atriðið var hópflug
orrustuþotu frá varnarliðinu.
Þær voru sex saman og flugu í
hnapp lágt yfir völlinn. Fyrir-
liðinn tók sig síðan út úr og
kom lágt inn yfir völlinn á „full
um hraða“, eða um 1000 km
hraða, að því er kynnirinn
Framh. á bls. 17
Agnar Kofoed-Hansen, flug-
málastjóri, var sjálfur við
stýri flugvélar flugmála-
stjórnarinnar í hópfluginu.
Þarna stígur hann út úr
vélinni.
signngar og göðar samgongur
við umheiminn, sagði ráðherra.
Við höfum byggt okkur mynd-
arlegan kaupskipaflota, en nú,
á öld hraðans, nægir hann okk-
ur ekki. Við verðum að leggja
á leiðir loftsins — og það höf-
um við líka gert.
★ ♦ ★
Sagðist ráðherrann vænta
þess ,að þessi sýning yrði til
þess að glæða áhuga manna enn
meira á fluginu, einkum pilt-
anna. Margir þeirra mundu
sjálfsagt stíga á stokk og
strengja þess heit að ganga í
þjónustu flugsins, þegar þeir
yxu úr grasi. Að svo mæltu setti
Ingólfur Ji son 7. flugýning-
una á Isiandi.
★ ♦ ★
Hófst sýningin með hópflugi
eins og tveggja hreyfla flug-
véla. Voru þær nær 20 talsins,
bæði í eigu einstaklinga og fé-
laga. Fyrstur fór Björn Páls-
son á sjúkravélinni, þá komu
fleiri tveggja hreyfla vélar, en
hægfleygustu kennsluvélarnar
ráku lestina.
★ ♦ ★
Þá hófst sá þáttur sýnmgar-
Þyrlan vakti óskipta athygli, ekki sízt „björgunin“.