Morgunblaðið - 29.08.1961, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.08.1961, Blaðsíða 14
14 MORCVTSHLAÐIÐ Þriðjudagur 29. ágúst 1961 ÓLAFUR R BJÖRNSSON bifreiðar stj óri, Vesturbraut 23, Hafnarfirði, andaðist 27 ágúst í St. Jósepsspítala, Hafnarfirði. Pálína Pálsdóttir, Páll R. Ölafsson, Emilía Þórðardóttir, Emanuel Morthens, Þorbjög Ó. Morthens. Konan min SIGRlÐUR HALLDÓRSDÓTTIR andaðist í sjúkrahúsinu Sólheimum 26. þ.m. Gnðjón Guðmundsson, Eyri, Ingólfsfirði. Móðir okkar RANNVEIG BJARNADÓTTIR frá Efstu-Grund, andaðist 25. þ.m. í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund. Aðalsteinn Sveinbjömsson, Sveinbjöm Sveinbjömsson. Móðir okkar GUÐRÚN JÓNSDÓITIR Bókhlöðustíg 6a, andaðist í Landakotsspítala, aðfaranótt 27. þ.m. Jarðar- förin auglýst síðar. Dæturnai. Konan mín, dóttir okkar og systir GERÐUR GUNNARSDÓTTIR andaðist 25. þ.m. á St. Jósepsspítala. Útförin fer fram miðvikudaginn 30. þ.m. kl. 3 e.h. frá Fossvogskirkju. Blóm afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins Sverrir Bjamason, foreldrar og systbini. Fóstra mín SOFFÍA G. GlSLADÓTTIR verður jarðsungin miðvikudaginn 30. ágúst kl. 1,30 e.h. frá Fossvogskirkju. Þeim, sem vildu minnast hennar er bent á minningar- gjafasjóð Hallgrímskirkju. Anna Sigurðardóttir. Þakka hjartanlega allan þann vináttuvott, sem mér var auðsýndur á áttræðisafmæli mínu. Sérstaklega vil ég þakka þann velvilja, sem lýsir sér í eftirfarandi yfir- lýsingu. „Við sóknarbörn þín og vinir sendum þér áttræðum innilegar árnaðaróskir og biðjum þig að þyggja af okkur málverk af sjálfum þér eftir Örlyg Sigurðsson, sem lítinn vott þakklætis okkar. Megi mynd þín geymast komandi kynslóðum svo, sem hún er greypt í hugum vorum“. Sigurjón Jónsson. Hjartanlegar þakkir til allra, sem sýndu samúð og vin- áttu við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu ÓLAlFU G. JÓNSDÓTTUR Efri Brúnarvöllum Skeiðum. Sérstaklega þökkum við hjónunum Sigríði Jónsdóttur og Ólafi Gestssyni og fjölskyldu þeirra fyrir órofna tryggð við hina vandlátu. Kristbjörg Jóhannsdóttir, Jón 1. Jóhannsson, Hjalti Þór Hannesson, Jóhann Hjaltason. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför mannsins míns og föður BALDVINS S. BALDVINSSONAR kjötiðnaðarmanns, Hólmgarði 14. Laufey Þórðardóttir, Jón Sævar Baldvinsson. Innilegar þakkir flyt ég öllum þeim, er á ýmsan hátt glöddu mig á 70 ára afmæli mínu hinn 21. þ.m. og gerðu mér daginn ógleymanlegan Guð blessi ykkur öll. Bolungarvík 22. ágúst 1961 Salóme Sigurðardóttir. Þeim fækkar úðum... Minningaro/B Á TÆPUM mánuði hafa stór skörð verið höggvin í minn ágæta og gamla vinahóp. Ekki færri en sex hafa kvatt þennan heim er settu svip á Eskifjörð í æsku minni, hver á sinn hátt Minningar mínar um þau öll eru vafðar sérstökum ljóma. Ekki þó þannig að fjarlægðin geri fjöllin blá eins og svo oft vill henda, heldur er þetta raunveruleiki sem maður kannske sér ekki eins skýr an og þegar leiðum lýkur. Nú þegar ævisaga þessara samferða- manna minna í bernsku er að fullu skráð í þessari tilveru orna ég mér við yl minninganna og óneitanlega hefði verið gaman að rifja upp frá góðri samfylgd, hjálp og vinsemd liðinna ára. Þess gefst ekki kostur nú enda of langt mál en það var ekki til- gangur minn með þessum línum heldur hitt að minnast þessara kvmningja Og vina minna og þakka þeim það sem þeir gáfu mér í veganesti út í lífið. Kynni mín við þau hvert á sínu sviði eru þakkarefni og það að verð- ugu. Auðbergur Benediktsson tré- smíðameistari var fæddur 14. 6. 1884 að Sléttaleiti í Suðursveit. Foreldrar hans voru Benedikt Einarssón og Ragnhildur Þor- steinsdóttir. Hana man ég vel sem gamla konu í æsku minni. Kom oft í heimsókn til hennar. Gleymi seint hennar hlýja hand- taki og heilræðum, versum og ævintýrum sem hún sagði okkur bömunum. Ósköp fannst mér autt og tómt þar heima eftir að hún var farin en hjá Auðbergi dvaldi hún seinustu æviárin. Auð bergur var snemma lagvirkur og fékk áhuga á smíðum. Hann sagði mér að hann hefði verið ákveð- inn að læra trésmíði hjá valin- kunnum meistara í Reykjavík og verið tilbúinn til farar en örlögin sneru því þannig að lærdómur hans varð á Eskifirði. Þangað sótti hann sína lífsgæfu. Kvænt- ist þar 1911 tveim árum eftir að hann kom þangað, Guðrúnu Sveinsdóttur frá Hátúni, góðum lífsförunaut. Þau eignuðust 3 börn sem lifa. Auðbergur varð bekktur um Austfirði fyrir sína smíð. Hann smíðaði og gerði upp marga báta Og þóttu þeir hinir ágætustu. Einnig byggði hann mörg hús og meðan hann gat viku verkfærin ekki úr hendi hans. Bón átti hann erfitt að neita. Dagfar hans allt bar þess vott hve efniviðurinn og upp- eldi var gott. Trúhneigður var hann Og vann kirkju Og kristin- dómi það sem hann mátti. Krist- ur var hans persónulegi frelsari og með honum gat hann mætt hverri þraut. Við vorum um skeið saman í kristilegum sam- tökum á Eskifirði og áttum þar marga einlæga og góða stund. 1957 var ég seinast á ferð á Eski- firði. Auðvitað heimsótti ég Auð- berg vin minn. Hönd hans var þá farin að láta sig enda búinn margan naglann að reka og vinna sín verk með prýði. En andlega var hann hinn síungi bardaga- maður, lifandi fyrir því sem gæti Orðið samferðamönnum til verulegs gagns. Hann skildi vel þessi orð: Leitið fyrst Guðríkis og hans réttlætis og þá mun allt þetta veitast yður að auki. Mörgu góðu kom hann til leið- ar. öllu góðu vildi hann veita lið Og hlúa að þeim gróðri sem hann taldi öruggastan til lífsham ingju. Honum fylgja því margar hlýjar kveðjur. Sigríður Jónsdóttir var fædd að Rannveigarstöðum í Álfta- firði 17. sept 1887. Foreldrar hennar voru hjónin Kristín Pét- ursdóttir og Jón Jónsson yngri frá Papey. í Álftafirði ólst hún upp. Sem ung stúlka kom Sigríð- ur að Karlsskála við Reyðar- fjörð sem þá var mesta myndar- býli við fjörðinn og þó víðar væri leitað. Þaðan giftist hún Sigurjóni Einarssyni og bjuggu þau allan sinn búskap á Eski- firði. Þeim varð 7 barna auðið. 4 eru á lífi. Frú Sigríður var aðlaðandi kona, dugleg að hverju sem hún gekk. Félagslynd var hún og var lengi framarlega í kvenfélaginu heima og svo slysavarnarfélaginu. Heimili hennar og Sigurjóns var gæfuríkt. Skap Sigríðar gleymist seint þeim sem með henni störf- uðu. Léttlyndi fékk hún í vöggu- gjöf og hún kunni vel að meta það. .Hún var góð kona. Hún átti marga og góða vini. f sorg og mótlæti var hún sterk. Gat því oft miðlað öðrum þegar syrti í álinn hjá þeim. Vissulega geymist hennar góða minning í hugum samferðamannanna. Margrét Pálsdóttir á Brekku andaðist 17. ágúst s.l. Hún hafði um árabil átt við sjúkleik að stríða. Margt búin að erfiða um dagana, skila góðu og miklu dags verkL Hún var fædd að Arn- gerðarkoti í Mosfellssveit 9. febr. 1878 en til Eskifjarðar kom hún árið 1899 og giftist þar ágætuim dugnaðarmanni Jónasi sem um fjölda ára var rafstöðvarstjóri heima og gegndi því starfi af ein stakri trúmennsku. Eskifjörðiu: var annar bærinn á landinu sem reisti rafstöð og þótti það mikið mannvirki í þá daga og hin mesta furða. Á ég margar Og góðar minningar um Jónas, tilsvör hans góðlátlega glettni og sömuleiðis um órofa tryggð hans og hversu hann reyndist alltaf traustur að hverju sem hann gekk. Margrét og Jónas eignuðust 11 börn og ólu upp tvö fósturbörn svo það gefur að skilja að míkið hefir þurft til að halda svo stóru heim- ili uppi. Alltaf var snyrtimennsk- an hin sama. Margrét vann sín störf af alúð og trúmennsku eign- aðist marga vini sem seint gleyma henni og öllum góðum málum lagði hún lið. í sjón var Margrét hin gjörfilegasta. Hún var ekki margmál um hlutina en tekið var eftir því sem hún lagði til málanna og hún fylgdi vel á eftir þegar hún vissi sig vera i þjónustu góðra athafna. Hann er stór hópurinn sem saknar þessarar góðu konu og blessar minningu hennar. Finnbogi Þorleifsson fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður and- aðist 13. 8. 1961. Fæddur var hann á Eyri í Reyðarfirði sonur hjón- anna Helgu Finnbogadóttur og Þorleifs Jónssonar sem þar bjuggu. Þorleif man ég vel og andaðist hann í hárri elli á Eski- firði. Finnbogi var fæddur 19. 11. 1889 og því tæplega 72 ára er hann lézt. Árið 1915 giftist hann Dórótheu Kristjánsdóttur og flutt ist til Eskifjarðar þar sem hann litlu síðar hóf útgerð. Gerði hann fyrst út vélbátinn Svan og síðar Svöluna. Var hann einnig skip- stjóri á bátunum. Hann var dugn aðar maður og ósérhlífinn, gæt- inn og athugull. Vel sótti hann sjóinn og var jafnan farsæll. Ég minnist ekki annars en að aldrei hafi neitt komið fyrir hann á sjó- mannsferli hans hvorki að menn hafi meiðst eða hann misst mann út af bát. Veðurglöggur var hann Og það sem mér fannst alltaf ein kenna hann manna mest var hversu skapgerð hans var góð og kom það honum vel að haldi því seinustu 11 árin hafði hann átt við mikla vanheilsu að stríða. Það var ekki langt síðan við mætt umst á götu í Reykjavík. Var hann þrátt fyrir allt með bros á vör og lét gamanyrði fjúka. ViS rifjuðum margt upp og skemmt- um Okkur vel við það. Útgerð hætti Finhbogi nokkru fyrir árið 1940 Og fluttist þá til Akureyrar sem var hans heimastaður síðan. En þó svo væri þá var alltaf talað um Eskifjörð. Þar átti hann raun- verulega heima og ef talað var um hvernig liði heima þá var auð vitað átt við Eskifjörð. Tryggðin var slik. Mér fannst Eskifjörður svipminni eftir að Finnbogi fór þaðan. Jarðneskar leifar hans verða líka lagðar í mold á Eski- firði og fer vel á því. Dóróthea og Finnbogi eignuðust 6 börn sem öll eru á lífi. Finnboga verður jafnan minnst með virðingu. Margir sakna hans. Jóhann Þorvaldsson skipstjórl Og útgerðarmaður andaðist 27. júlí. Hann fæddist á Eskifirði 9. júní 1882. Þar ólst hann upp, Kvæntist árið 1905 Halldóm Helgadóttur sem lifir mann sinn. Þeirra hjónaband varð farsælt og Oft kom ég á þeirra heimili og þær stundir gleymast mér ekkl, Þau hjón hófu sinn búskap í Þórs- höfn sem er rétt fyrir utan Kol- múla í Reyðarfirði en fluttu síðan inn til Eskifjarðar þar sem bú þeirra stóð æ síðan. Börn eignuð- ust þau 5 og lifir nú aðeins einn sonur Víkingur sýsluskrifari | Stykkishólmi. Tvö börn þeirra dóu uppkomin, hin mannvænleg- ustu en þau áttu við langvinna vanheilsu að búa, Þórlaug andað- ist árið 1942 en Ingvar fyrir skömmu. Við hann voru miklar vonir bundnar enda eitt efnileg- asta mannefni sem ég man eftir fyrir austan. Fjögur voru fóstur- börn þeirra að meira og minna leyti. Tvö þeirra eru látin. Eins og af Frh. á bls. 17. Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem sýndu mér vinarhug og færðu mér gjafir á afmæli mínu þann 24. þ.m. Sigríðiir Einarsdóttir, Sólvallag. 55. Hjartans þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur hlýhug með heimsóknum, stórgjöfum og símskeytum á sjötugsafmælum okkar 23. ágúst og 9. júní 1961. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg V. Filippusdóttir, Magnns Jónsson, Hellum, Landssveit Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför GUÐBJARGAR GUÐRÚNAR BJÖRNSDÓTTUR Fyrir hönd aðstandendcu Sigurbjörn Einarsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.