Morgunblaðið - 29.08.1961, Qupperneq 22
22
MORCVIVBTAÐIÐ
Þriðjudagur 29. ágúst 1961
fþróttáskóli
í Reykjahlíð
ínÝLoKIÐ er í Reykjahlíð síðasta
íþróttanámskeiði félaganna Hösk-
uldar G. Karlssonar og Vilhjálms
Einarssonar, sem báðir eru vel-
þekktir fyrir þátttöku í íþróttum,
Vilhjálmur í þrístökkinu og
Höskuldur gamall landsliðsmað-
ur í 100 metra hlaupi. 300 kaup-
staðabörn hafa notið góðs af
starfi þeirra félaganna í sumar
og komizt burt úr þrengslum,
amstri og ryki, sem alltaf fylgir
sumri kaupstaðanna, en hafa í
staðinn teygað að sér heilnæmt
f jallaloft og leikið sér I íþróttum
undir sijórn færustu manna.
C Flutt í Reykjadal
Blaðamaður fór á vit þeirra fé-
lagði leið sína inn Reykjahlíð,
sem nú hefur verið breytt í
íþróttaskóla. Þeir félagarnir hafa
þarna fest kaup á geysimikilli
eign, Reykjahlíð, sem Stefán heit
inn Þorláksson byggði fyrir
nokkrum árum, en arfleiddi Mos
fellskirkju að .Segjast þeir fé-
lagar hafa mætt einstakri lipurð
og greiðvikni forráðamanna kirkj
unnar við kaupin.
Við innkeyrsluna sér maður ný
byggða hlöðu og þar segja þeir
félagar grundvöllinn að sundlaug.
í gólfi hlöðunnar er kvos, sem
hægt er að nota sem sundlaug,
en afrennslisvatn frá gróðurhús-
um í nágrenninu má nota í laug-
ina og frárennsli mun hægt að fá.
Við lítum á húsakynnin, 270
ferm. -f 70 ferm. óinnréttaður
svefnskáli allt hið myndarlegasta,
harðviðarklætt í hólf og gólf og
hinn veglegasti bautasteinn
byggjandanum, sem fyrir dauða
sinn lagði svo fyrir að húsin yrðu
notuð sem íþrótta og æskulýðs-
heimili.
Úti fyrir ráða félagarnir yfir
4,3 ha. svæði, sem þeir eiga von-
andi eftir að fylla af ýmsum gerð-
um af íþróttavöllum, knatt-
spyrnu- og handknattleiksvöll-
um o. s. frv., en sem stendur hef-
ur rennislétt túnið fyrir austan
heimilið verið notað undir íþrótt-
ir. Sund hefur og verið iðkað í
nágrenni Reykjahlíðar.
Skildu
jöfn
— eftir framlengdan
leik
Á laugardag léku Þróttur og
Vestmamraeyingar til úrslita í
íslandsmóti 2. flokks á Melavell-
inum.
Leikurinn var hinn skemmti-
legasti, mjög fjörugur, enda
gerðu áhorfendur allt sem í
þeirra valdi stóð til að hvetja lið
sín. Meðal um 1200 áhorfenda
munu hafa verið um 500 Vest-
mannaeyingar, sem lögðu leið
sína í bæinn gagngert til að sjá
leikinn. — Áhugi það!
Þróttarar voru mjög ágengir
fyrstu 20 mínúturnar og skora
úr vítaspyrnu, en Vestmannaey-
ingar svara og ná yfirhöndinni
er um 5 mínútur eru til hálfleiks-
loka. Síðari hálfleikinn höfðu
Þróttarar mun betur og sýndu
þá litlu knattspymu, sem sást,
jöfnuðu metin með laglegu skoti
og hefðu með réttu átt sigur skil
inn. Framlenging leiksins reynd-
ist ekki næg til að útkljá mótið
og mun nýr úrslitaleikur fara
fram á laugardaginn kern»»- á
Melavellinum.
• Hvað um framtíðina?
— Það er spurning sem vakn-
ar er við spjöllum við félagana
yfir kaffibolla.
— Við munum væntanlega
halda áfram næsta sumar með
svipuðu sniði og við gerðum í
sumar bæði í Reykholti og hér í
Reykjadal. Veturinn aftur á móti
Framhald á bls. 23.
Vesturbæingar unnu f ót- og körfu-
bolta - Austurbæingar í handbolta
SUNNUDAGURINN var dagui
íþróttanna hjá Reykjavíkurkynn
ingunni. Fóru fram sýningar við
Melaskólann í fimleikum og
glimu, knattleikir fóru fram á
Melavelli og kepptu Austur- og
Vesturbæingar í handknattleik,
körfuknattleik og knattspyrnu
og loks kepptu frjálsíþróttamenn
í nokkrum greinum á Laugar-
dalsvelli. Var þessi Reykjavík-
urþáttur íþrótta vel heppnaður
og margir fylgdust með.
Úrslit í frjálsíþróttakeppninni
í Laugardalnum:
Stangarstökk
Valbjörn Þorláksson ....... 4,30
Heiðar Georgsson........... 3,90
Valgarður Sigurðsson ÍR .. 3,60
I 100 m hlaup
Valbjörn Þorláksson ...... 11,1
lfar Teitsson KR.......... 11,2
I Þórhallur Sigtryggsson KR 11,6
★ Handknattleikur
Á Melavelli hófst keppni
með handknattleik og körfu-
knatlleik. Handknattleikskeppn-
in var heldur daufleg, enda vant
aði ýmsa af góðum mönnum.
Austurbæingar voru með sam-
antínt lið úr mörgum félögum
gegn kjarna KR-liðsins í Vestur-
bænum. En Austurbæingar sigr-
uðu örugglega með 6 gegn 4
(3—1 í hálfleik).
ic Körfuknattleikur
1 körfuknattleiknum var
keppnin jafnari og lengst af
tvísýn mjög. Vesturbæingar með
Enska knattspyrnan
3. UMFERÐ ensku deildarkeppn-
innar fór fram sl. laugardag og
urðu úrslit þessi:
1. deild
Aston Villa — Chelsea .......... 3:1
Burnley — Bolton ............'.. 3:1
Cardiff — Blackpool............. 3:2
Fulham — Everton ............... 2:1
:4
Leicester — W.B.A...............
Wolverhampton — West Ham.
2. deild
Plymouth — Luton ....
Preston — Newcastle
Sunderland — Stoke ......... 2:1
Skoska bikarkeppnin hélt einn-
ig áfram sl. laugardag og urðu
úrslit m.a. þessi:
Airdrieonians — Dundee ...... 0:5
Kilmamock — St. Mirren ....... 6:1
Glasgow Rangers — Third Lanark 5:0
Staðan í ensku deildarkeppn-
inni að þremur umferðum lokn-
um er þessi:
1:0 1. deild (efstu og neðstu lióin)
6:1 Sheffield W. 3 3 0 0 11:3 6
2:0 Manchester City 3 3 0 0 11:6 6
5:1 Manchester U. 3 2 1 0 10:4 5
4:3 N. Forest 3 2 1 0 6:3 5
3:2
Ipswich 3 0 1 2 5:8 1
Chelsea 3 0 1 2 5:8 1
2:2 Bolton 3 0 1 2 3:7 1
4:1 Blackburn 3 0 1 2 2:8 1
2:2
1:3 2. deild (efstu og neðstu liðin)
1:0 Liverpool 3 3 0 0 10:0 6
2:0 Newcastle 3 2 1 0 2:0 5
5:0 Huddersfild 3 2 1 0 7:2 5
0:3
0:1 Middlesbrough 2 0 0 2 3:6 0
4:0 Bristol Rovers 3 0 0 3 0:8 0
f 3. deild hafa Reading, Chryst
al Palace og Peterborough öll 6
stig eftir þrjá leiki.
Þorstein Hallgrímsson sem aðal-
skyttu voru þó öruggari á körfu
skotum, en Austurbæingar náðu
hins vegar betra spili þó þeir
fengju ekki árangur að sama
skapi. Vesturbæingar höfðu allt-
af forystu en sigruðu með 4
stiga mun, 28 — 24 stig.
Var góður rómur gerðar að
báðum þessum leikum.
i( Knattpyrna
Þá komu knattpsyrnumenn
til leiks. Vesturbæingar höfðu
KR-liðsmenn að meginuppistöðu
en Austurbæjarliðið var sund-
urleitara. Framan af veitti þó
Austurbæingum sízt verr, en
smám saman náðu KR-ingarnir
tökum á leiknum fyrir Vestur-
bæ. Fyrri hálfleikur var þó
marklaus. En í upphafi þess síð-
ari skoraði Vesturbær tvívegis
— skoraði Guðmundur Óskars-
son fyrra markið laglega með
góðu skoti. En hið síðarnefnda
skoraði Ellert Schram eftir góða
fyrirgjöf og spil á hægri kanti.
Voru Vesturbæingar vel að sigri
komnir í þessum leik, þó leik-
urinn og knattspyman væri
aldrei rismikil. Það örlaði á
samleik hjá Vesturbæ en Aust-
urbæingar voru heillum horfnir
og því lakari sem lengur leið.
fþróttamenn
í „þjálfun66
Vínarborg, 28. ágúst.
FREMSTU íþróttamenn Bulgariu
verða sendir til Rússlands til „sér
stakrar þjálfunar" í kennisetning
um kommúnismans. Það er
búlgarska dagblaðið Rabotnis-
hesko Delo, sem skýrir frá þessu
í dag.
FYRRA mark Vesturbæjar..
Gúðmundur Óskarsson (lengst'
t.v.) skorar með góðu skoti |
sem Björgvin réði ekki við.
— Ljósm. Mbl. K.M.
Frant sótti 12
mörk til Búss
ltrnds —
og lét ekkert í staðinn
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ Fram
hefur nú lokið keppnisferð sinni
í Sovétríkjunum og eru leik-
menn á heimleið. Fram lék alls
þrjá leiki. Tapaði það hinum
fyrsta gegn Eistlandsmeisturun-
um í Riga með 0 gegn 3. í öðrum
leiknum mættu þeir Spartak og
var leikið í Vilna. Fram tapaði
þeim leik með 0 gegn 5. f síðasta
leiknum sem fram fór nú um
helgina mætti Fram liði frá
Minsk. Enn tapaði Fram, nú með
0 gegn 4.
Alls hafa Framarar fengið á
sig 12 mörk í keppnisförinni, en
skorað ekkert!
Bikarkeppni
Um helgina fóru fram tveir
leikir í Bikarkeppni KSÍ. Á laug
ardagskvöldið léku Víkingur og
nrýliðarnir í 1. deild, Isafjörður.
ísfirðingum reyndist létt að sigra,
skoruðu alls 8 sinnum, en þrjú
taldi dómarinn vafasöm og unnu
þeir því 5 : 0.
Á sunnudagskvöldi léku Þrótt-
ur og Akranes (b-liðin) og var
þetta annar leikur liðanna, sá
fyrri fór 3 :3 á Akranesi. Þrótt-
arar tóku snemma völdin í sín-
ar hendur og skoruðu 3 mörk á
15 mín. Eftir það var eins og ein-
hver höfgi færðist yfir liðið og
Akurnesingar verða mun ágeng-
eri og Donni, eina landsliðsstjarn-
an, sem lék með liðinu skorar
fyrra mark Akurnesinga. í síðari
hálfleik skoraði Donni aftur, þá
úr vítaspyrnu, eftir að Bill hafði
hrint honum ólöglega innan víta-
teigs.
Þróttarliðið var greinilega
betra liðið, en hefði ekki átt að
hætta þrátt fyrir yfirbuAlina,
****
******
Þrír ísl. milliríkjadómarar
ÍSLENDINGAR eiga nú þrjá
millirikjadómara í knatt-
spyrnu. Nú nýverið hefur KSÍ
að fengnum tillögum dómara-
nefndar KSÍ tilkynnt þrjá
milliríkjadómara íslenzka til
alþjóða knattspyrnusambands
ins. Þeir menn er hljóta til-
nefningu landssambanda sinna
hljóta sjálfkrafa viðurkenn-
ingu alþjóðasambandsins og er
staðfesting FIFA nánast forms
atriði.
Einar Hjartarson form. dóm
aranefndar KSÍ skýrði blaðinu
frá því, að dómararnir þrír er
valdir hafa verið til þessa
sæmdarheitis i röðum dómara
séu Haukur Óskarsson, Hann-
es Þ. Sigurðsson og Guðbjörn
Jónsson. Haukur var sá eini
þeirra þremenninga er hafði
réttindin áður, en tilnefningar
fara fram árlega á alþjóða-
dómurum.
Allir þessir þrír eiga Iangt
starf að baki sem dómarar og
hafa allir hlotið lof og viður-
kenningar fyrir öryggi í dóm-
arastörfum. Þeir hafa og kennt
öðrum dómuium, einkum hef-
ur Hanr.es fengizt mikið við
það.
Það er ánægjuefni að fsl.
dómarar fái viðurkenningu
fyrir störf sín. Milliríkjadórn-
ari verður enginn nema sá er
á langt og mikið starf að baki
sein dómari, en það er eftir-
sóknarvert fyrir hvern dómara
að fá slíka viðurkenningu sem
felst í því að vera tilnefndur
milliríkjadómari.