Morgunblaðið - 11.11.1961, Síða 1

Morgunblaðið - 11.11.1961, Síða 1
24 siður 48. árgangnr 256. tbl. — Laugardagur 11. nóvember 1961 Prentsmiðja Morgi'nblaðsins ÞETTA er kjarni kommún- istaleiðtoganna. Myndin var tekin af þeim þar sem þeir stóðu í röð á grafhýsi Lenins og virtu fyrir sér fylkingar hermanna ganga yfir Rauða torgið 7. nóvember. Talið frá vinstri: Blas Roca, kommún- istaleiðtogi frá Kúbu, Ho Chi Minh, forseti Norður-Vietnam, Krúsjeff, Janos Kadar, Brezh nev forseti Sovétríkjanna, Kozlov, fyrsti aðstoðarforsæt- isráðherra og Suslov, einn -af helztu ráðamönnum í Kreml. Sendir Moskvu tóninn Belgrad, 10. nóv. SAMKVÆMT fregnum frá Tir- ana, höfuðborg Albaníu, er þar alit með kyrrum kjörum og lög- regluvörður slendur ekki lengur um rússneska sendiráðið í borg- inni. I ræðu, sem kommúnista- iforinginn Hodja, flutti í bæn- um Stalin í dag, sagði hann, að Albamir stæðu frammi fyrir þeirri hættu að land þeirra yrði umkringt kapitaliskum löndum. Heimsvaldasinnar og endurskoð- unarmenn væru að reyna að koma í veg fyrir að albanska þjóði nyti góðs af sigrum sínum. 0L0T0V til Moskvu vildu leyna brottför hans frá Vín Vínarborg, 10. nðv. MOLOTOV er á leið til Moskvu. Hann birtist í kvöld ásamt konu sinni á járnbraut arstöð í Vínarborg, fór inn um hliðarinngang og gekk þegar beint að lestinni, sem skömmu síðar hélt áleiðis til Moskvu. Hann yrti ekki á neinn á járnbrautarstöðinni, fór beint upp í lestina og lokaði á eftir sér. • I stofufangclsi Fyrr í dag hafði hann gengið úr greipum íréttamanna, ef svo mætti segja, en þeir hafa staðið vörð um íbúð hans ásamt austur- rískum lógregluþjónum í hart nær hálían mánuð. Fullyrt er, að hann hafx verið í stofufangelsi í íbúð sinni og þessar tvær vikur sást haixn aðeins einu sinni utan dyra. Það vax á föstudaginn að Rændu farþegavél LISSABON, 10. nóv. — Galvao lét enn til sín heyra í dag. — Þúsundum flugmiða rigndi yfir Lissabon skömmu eftir hádegi og á þá voru letruð hvatningar- orð til fólks um að taka ekki þátt í kosningunum á sunnu- daginn. „Við erum nú í stríði — hjálpið okkur til að velta einræðisherranum“, stóð þar — og Galvao skrifaði undir. í>að var hann, sem rændi far- þegaskipinu Santa Maria ekki alls fyrir löngu — og það voru tnenn hans, sem rændu portú- galskri Constellation-farþegavél yfir Lissabon í dag er hún var »ð koma frá Casablanca. Þeir voru sex meðal farþega f flugvélinni og þegar flugvélin byrjaði að lækka flugið yfir Lissabon risu menn Galvaos á fætur, ógnuðu með byssum og flugmönnunum skipuðu þeir að fljúga nokkra hringi yfir mið- borginni. Þá var flugmiðunum kastað út. Flugturninn hafði samband við vélina, en eina 6varið, sem fékkst, var: „Við lendum ekki“. Síðan var vélinni snúið til Tangier og þar beið Galvao á flugvellinum. Lögreglan tók sex- menningana þar í sína vörzlu ©g hafa þeir beðizt hælis sem pólitiskir flóttamenn í Marokkó. Stjórnarandstæðingar hafa dregið frambjóðendur sína í væntanlegum þingkosningum til baka og skora á menn að sitja heima. hann fór 1 bíl til rússneska sendi ráosins í Vin, stóð þar við í stundarfjórðung, og hélt síðan til íbúðar sinnar aftur. • Ct um bakdyrnar Eftir hádegið í dag gekk hann aftur út i bifreið, sem beið hans við útidyr heimilis hans. Ok hann til sendiráösxns og fylgdi skari fréttamanna. Biðu þeir fram und- ir kvöld án árangurs, en þá kom sendiráðsfulltrúi út í dyragætt- ina og sagði, að tilgangslaust væri að bíða lengur. Molotov værí kominn aftur til íbúðar sinnar. Hann hefði farið út um bakdyrn- ar. • Hvar var Molotov? En allmargir fréttamenn höfðu líka beðið viö heimili Molotovs til þess að vera vissir um að missa ekki af honum, enda þótt hann færx úr rússneska sendiráðinu án þess að r.okkur yrði hans var. Þessir menn höfðu ekki örðið var- ir við Moiotov. Hann var ekki heima — og hann var ekki sagð- ur i rússneska sendiráðinu. Þetta var nokkrum klukku- stundum áður en lestin fór til Moskvu. — Molotov var formað- ur rússnesku sendinefndarinnar hjá Alþjóða kjarnorkumálastofn- uninni. Ekki hefur verið tilkynnt opinberlega að hann hafi verið leystur frá þeim störfum. De Gaulle segir af sér þegar hann hefur friðað Alsír Marseille, 10. nóv. DE G A U L L E ætlar að segja a£ sér forsetaemb- ætti, þegar hann er búinn að friða Alsír og finna endanlega lausn Alsír- málsins. Stjórnmálamenn í Marseille greindu frá þessu eftir fund, sem þeir áttu með forsetanum, en hann er nú i heimsókn hér. Ennfremur á de Gaulle að hafa sagt, aí þing yrði rofið og efnt yrði til nýrra kosn- inga eftir að þjóðaratkvæða- greiðslan um sjálfsákvörðun- arrétt Alsír hefði farið fram. Bjóst hann jafnvel við því, að atkvæðagreiðslan færi fram snemma næsta vor. Þegar de Gaulle kom til Marseille báru hafnarverka- menn fram kröfur um hærri laun og frið í Alsír. — Þeir gerðu og klukkustundarverk- fall meðan de Gaulle heim- sótti hafnarhverfið i— og er þetta í fyrsta sinn, að de Gaulle eru veittar slíkar við- tökur Suður-Frakklandi. ] Rússneski fór með sendiherrann Kar ja lainen HELSINKI, 10. nóv. — Er for- sætisráðherrar Norðurlanda voru á leið til Helsinki í dag til sam- eiginlegs fundar sat finnski ntan ríkisráðherrann, Karjalajnen, í járnbrautarlestinni á leið til Moskvu til að ræða við Gromyko og fá úr því skorið hvers Rússar krefðust nú af Finnum. Og það voru fleiri tignir menn í lestinni. Rússneski sendiherr- ann í Helsinki, Zakharov, var þar lika. Sendiherrann birtist á járn- brautarstöðinni skömmu áður en lestin lagði af stað og fréttin flaug eins og eldur í sinu um allt landið. Hvað er á seyði, hugs uðu menn. Sendiherrann er kall- aður heim til Moskvu til þess að gefa upplýsingar. íslenzki forsætisráðherrann, Bjarni Benediktsson, var fyrstur gesta til Helsinki í dag. Síðar komu ráðherrar Danmerkur, Sví- Leifur var norrænn — segir Helge Ingstad í viðtali við l\lbl. I MBL. símaði í gær frétta- ritara sínum í Osló, Skúla Skúlasyni, og bað hann leggja nokkrar spurningar fyrir Helge Ingstad. — Fór Skúli til fundar við Ing- stad og símaði eftirfarandi í gærkvöldi: Ég spurði Helge Ingstad að því hvað það væri, sem hann hefði helzt stuðzt við í leitinni að bústað Leifs Ei- ríkssonar. „Ég get ekki nefnt sér- staka kafla í fornsögunum, en með því að safna saman ýmsum upplýsingum um Vín Iandsfarana komst ég að þeirri niðurstöðu, sem ég hef áður gert grein fyrir í bók- inni „Landið undir leiðar- stjörnunni“, sagði Ingstad. ;,í sumar fylgdi ég ná- kvæmlega þeirri kenningu minni — og hún stóðst“. Var Leifur Eiríksson íslend ingur eða Norðmaður? spurði ég Ingstad. „Ég nota alltaf orðið NORRÆNN um Vínlandsfar- ana. En auðvitað var það frá Islandi sem þessir landkönn- uðir fóru og vitneskju okkar um fund Ameríku getum við einungis þakkað íslendingum. Hins vegar er það ekki innan míns verkahrings að ákvarða hvort Leifur hafi verið íslenzkur eða norskur“. Loks spurði ég hann álits á þeirri staðhæfingu Danans Meldgárds, að hann hefði fundið það út árið 1956 hvar Leifsbúðir hefðu verið. Ingstad brosti og svaraði: „Dönsk blöð hafa skrifað mikið um þetta, en ég var einmitt að fá staðfestingu á því, að Meldgárd hefði ald- rei stigið fæti á Lance aux Meodows“. þjóðar og Norcgs. I fyrramálið aka þeir til Hanko, 160 km fyrir vestan Helsinki, en þar mtm fundur þeirra standa til sunnu- dagskvölds. Fundarstaðurinn er í bæ yzt á Hanko-skaganum, e*i þar var áður rússnesk flotastöð. (Sjá nánar um fund forsætisráð- herranna á bls. 2). Samkomu- lag um nýja stjórn ■ Bonn Bonn, 10. nóv. KRISTILEGIR demokratar og frjálsir dcmokratar hafa endan- lega náð samkomulagi um mynd- un rikisstjórnar undir forsæti Adenauers. Verða 13 kristilegir og 5 frjálsir demokratar í nýju stjórniiuai, sem lögð verður fyrir Liibke forseta til samþykkis á mánudag, en á þriðjudag verður ráðherralistinn lagður fyrir þingið. I samkomuiagi þessu er gert ráð fyrir stoínun nýs ráðuneytis, sem á að hafa efnahagslega sam- vinnu með höndum. Walter Scheel frá frjálsum demokrötum mun veita því forstöðu. — Haft er fyrir satt, að Erhard verði á- fram fjárxrjéiaráðherra, Franz Josef Strauss varnarmálaráðherra en arftakx von Brentano í em- bætti utanrikisráðherrá vérður Gerhard Schröder frá kristileg- um demokrötum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.