Morgunblaðið - 11.11.1961, Side 3

Morgunblaðið - 11.11.1961, Side 3
Laupsrctagui' 11. nóv. 1961 MORGVNBLAÐIÐ 3 1»ESSAR myndir tók ÞorSur Jónsson fréttaritari Mbl. á Skagaströnd af þeim Gunnari Pálmasyni og Sigurði Árna- syni formanni hans (Gunnar er í ljósum stakk). Eins og skýrt var frá í blaðinu í frétt og samtali við þá félaga féll Gunnar útbyrðis af vélbátnum Vísi er hann var í róðri að- faranótt 7. nóv. Gunnar svaml aði í sjónum í 25 mínútur, en varð ekki meint af volkinu, þótt ekki sé hann nema 17 ára að aldri. Þeir félagar luku við róðurinn og hér eru þeir að koma úr öðrum róðrinum frá því að slysið skeði. ..(iríma * sýnir ..Læstar dyr‘6 eftir Sartre ■ Tiarnarbíói HÓPUR áhugamanna um. leik list er að hleypa af stokkun- um nýstárlegu fyrirtæki, sem á vonandi eftir að verða fast- ur þáttur i menningarlífi höf- uðstaðarins. Þessi hópur eða leikklúbbur hefur hlotið nafn- ið „Grima“, og samanstendur af sex áhugamönnum: leik- urunum Kristbjörgu Kjeld og Erlingi Gíslasyni, leikstjóran- um Þorvarði Helgasyni, leik- tjaldamálaranum M a g n ú s i Pálssyni, Guðmundi Steins- syni rithöfundi og Vigdísi Finnbogadóttur, sem er eins konar framkvæmdastjóri fyr- irtækisins. „Gríma“ hefur í heil tvö ár leitað fyrir sér í bænum um húsnæði til að setja á svið leikrit, sem væru í senn ný- stárleg, listræn og lærdóms- rík, bæði fyrir leikara og leik húsgesti. Var leitað til bæjar- yfirvaldanna og jafnvel reynt að fá einhverja nothæfa skúra til leiksýninga, en allt kom fyrir ekki. í vor, þegar frétt- ist að Tjarnarbíó mundi losna, var allri orku hópsins einbeitt að því að fá það til afnota, og hefur borgarstjóri fallizt á, að „Gríma“ megi æfa og sýna leikrit sin i Tjarnarbíói þang- að tíl því verður endanlega ráðstafað. Er það trú hópsins, að gera megi Tjarnarbíó að mjög skemmtilegu smáleik- húsi. Ekki spillir það fyrir, að undir leiksviðinu og ba-k við það eru mjög hentugir bún- ingsklefar. Fyrsta leikrit Sartres „Gríma“ hyggst byrja starf- semi sína með því að taka til sýningar fyrsta leikhúsverk hins kunna franska höfundar Jean-Paul Sartres, „Læstar dyr“ (Huis clos). Er þetta langur einþáttungur, sem tek- ur um hálfan annan tíma, og á margan hátt mjög nýstár- legur. Fyrir sýninguna mun Þorsteinn Ö. Stephensen á- samt leikendum flytja eins konar formála um höfundinn og verk hans. Leikendur í „Læstar dyr“ eru fjórir. Haraldur Björns- son hefur sýnt hópnum þá velvild að taka að sér eitt hlutverkið, en aðrir leikendur eru Kristbjörg Kjeld, Helga Löve og Erlingur Gíslason. Leikstjóri er Þorvarður Helga son, en Magnús Pálsson hefur gert leiktjöld. Leikritið var þýtt af Þuríði Kvaran og Vig- dísi Finnbogadóttur. Allt í sjálfboðavinnu Allur undirbúningur þess- arar leiksýningar hefur verið unnin í sjálfboðavinnu, og hefur hópurinn unnið allt með eigin höndum. Hefur sviðið í Tjarnarbíói verið stækkað til muna með því að smíða palla framan við það. Þá hafa einnig verið sett upp svört tjöld á baksviðinu. Forráðamenn „Grímu“ köll- uðu fréttamenn á sinn fund í gær og tjáðu þeim, að þeir hefðu mætt miklum skilningi hjá þeim sem leitað var til, ekki sízt hjá borgarstjóra og þjóðleikhússtjóra, sem lánaði ýmsa leikmuni og leyfði Kristbjörgu Kjeld að leika í „Læstar dyr“, þó hún sé á föstum samningi hjá Þjóðleik húsinu. íslenzk leikrit lesin á sviði Þá gátu þeir þess eiimig, að ætlun „Grímu“ væri að taka fyrir árlega verk íslenzkra leikskálda og lesa þau á sviði, einu sinni eða oftar, und- ir leiðsögn leikstjóra, þannig að höfundarnir geti betur séð kosti og galla verka sinna og rætt um þau við leikhúsfólk. Mundi þetta geta orðið ung- um höfunöum mjög lærdóms- ríkt, og eru þeir hvattir .til að koma verkum sínum á framfæri við „Grímu. Fram til þessa hefur verið mjög lít- ið gert af því að kynna og fjalla um leikhúsverk ungra höfunda, en hér skapas' heppi legur vettvangur til að þróa íslenzka leikritun. Listamiðstöð í Tjarnarbíói Það er von „Grímu“, að Tjarnarbíói verði þannig ráð- stafað, að hún geti haldið á- fram starfsemi sinni þar. Hafa forráðamenri hópsins haft samband og samvinnu við klúbba áhugamanna í öðrum listgreinum, þ.e.a.s. tónlist, kvikmyndalist og bók- menntum, og hafa þessir fjór- ir aðilar boðið Æskulýðsráði þjónusta sína og samstarf. Hefur verið samin áætlun um þessa starfsemi alla, þar sem gert er ráð fyrir að Tjarnar- bíó verði eins konar lista- eða menningarmiðstöð bæjarins. Mundi starf klúbbanna þá verða tvíþætt, annars vegar fyrir unglinga og hins vegar fyrir ullorðna. Frumsýning á mánudagskvöld Frumsýningin á „Læstar dyr“ verður í Tjarnarbíói á mánudagskvöld kl. 8.30, og verða aðgöngumiðar seldir þar eftir kl. 2 á morgun og eftir kl, 5 á mánudag. Þetta verk Sartres er fyrst og fremst kynning á existensial- ismanum, en Sartre er sem kunnugt er einn helzti læri- meistari þeirrar stefnu í heim speki og bókmenntum. Haraldur Björnsson í hlutverki sínu í „Læstar dyr“. STAKSTEIMR Hvað \ crður um Molotov? Athygli manna beinis, nú mjög að örlögum Molotovs. eftir aS hann hefur verið úthrópaður sem einn af ábyrgðarmönnum glæpa- ferils Stalins. Ástæðan til þess að meira er um örlög hans rætt en annarra þeirra, sem Krúsjeff taldi sér nauðsynlegt að ryðja úr vegi. er sú, að hann dvelur utan járntjaldsins. Kreml getur með- höndlað þá, sem í Rússlandi búa, á hvem þann veg, sem bezt lík- ar. en erfiðleikum getur valdið að kúga Molotov. þar sem hann dvelur í Vínarborg. Nú er að vísu talið að hann sitji þar í stofufangelsi. þar sem rússneskir blóðhundar gæta hans. En meðan hann ekki hverfur austur fyrir tjald, stendur hann betur að vígi í baráttunni við menn Krúsjeffs, því að þeir eiga á hættu alþjóðlegt hneyksli, ef hann kynni að reyna að heiðast hælis sem pólitískur flóttamaður, Hin „ábyrga forysta“ Tryggvi Emilsson ritar grein i Moskvumálgagnið i gær. Þar kemst hann m.a. að orði á þessa leið: „En Dagsbrún hélt út verkfall- ið af miklum þunga ábyrgrar forystu og réttlætisvitundar og gekk með sigur af hólmi oe er sá áfangi einn merkasti þáttur- inn í baráttu alþýðunnar fyrir lífskjömm sínum og réttinda- málum." Greinarhöfundur er hér að ræða um það. þegar Dagsbrúnar- forystan neitaði 1% hærri laun- um verkamönnum til handa til þess að geta fengið hluta þeirrar hækkunar i sjóði, sem hún ein réði yfir. Menn hefðu haldið að forkólfarnir í Dagsbrún vildu helzt að þessi frammistaða þeirra félli í gleymsku og dá, því að hún afhjúpaði berlega að beir líta ekki á verkföll sém tæki til kjarabóta fyrir verkamenn. held ur sem pólitískt tæki i þágu heimskommúnismans. Greiðslurn ar voru boðnar fram, en verka- mönnum var haldið í verkfalli vikum saman til þess að sýna, hverjir réðu. En að lokum urðu svo þessir svokölluðu leiðtogar verkamanna að samþykkja það. sem þeim allan tímann stóð til boða. Svara ekki enn Morgunblðið verður að vekja athygli á því, að enn hefur Tim inn ekki fengizt til að svara því, hvort hann vildi hafa samstöðu með Bretum og Rússum um að lögbinda 12 milna landhelgi, en báðar þær þjóðir mundu sjálf- sagt standa að slíkri alþjóðasam- þykkt og raunar margar fleiri. Rússar hafa alltaf staðið gegn því að nokkur heimild væri til friðunar utan 12 milna og Bretar sjá nú, að það bezta sem þeir gætu fengið, væri lögbinding 12 mílna fiskveiðilögsögu. Islending ar vildu standa að slíkri sam- þykkt á tveimur Genfarráðstefn- um. en náðu 12 mílna fiskveiði- landlielgi án þess að slík lög öðl- uðust gildi. Landhelgissamningur inn varð þannig miklu hagkvæm ari heldur en það sem við börð- umst fyrir á Genfarráðstefnun- um. Ef Framsóknarmenn halda áfram að þegja, er ekki nema um tvennt að ræða, annaðhvort vilja þeir hafa samstöðu með þeim sem andvígir eru því sjónarmiði íslands að halda opnum dyrum til frekari útfærslu, eða þá að þeir verða að taka aftur öll stór- yrðin um Iandráð og nauðung- arsamninga í sambandi við sam- komulagið við Breta. Það nægir því ekki að neiti. að svara. ÞaS verður minnt á þetta mál frekar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.