Morgunblaðið - 11.11.1961, Síða 10

Morgunblaðið - 11.11.1961, Síða 10
10 MORGVNLLAÐlb Laugardagur 11. nóv. 1961 *] Hefur unnið fjölþætt líknarstarf Margir halda að alþjóðlegt samstarf sé fyrst og fremst fólgið í eilífum fundahöldum, sem lítinn eða engan árangur beri. Sem betur fer er þetta efcki rétt, þótt oft sjáist litlar eftirtekjur af þingum og fund- um. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna er gleðilegur vottur þess, hverju heiðarlegt og ein laegt alþjóðlegt samstarf get- ur áorkað. Barnahljálpin hefur veiitt 106 þjóðum og löndum fjöi- þætta aðstoð. Um það bil 25 millj. dollara, eða rúmum 1000 millj. íslenzkra kr. á ári, er að meðaltali varið til marg- víslegrar líknarstarfsemi á víðs vegar um heim. Hún hef- ur veitt 45 löndum hjálp til að verjast malaríunni og er gert ráð fyrir að með hennar hjálp verði hægt að vernda 66 millj. manna fyrir þessum sjúk- dómi á árinu 1961. Af þessunx mannfjölda eru um 33 millj. mæður og börn. Barnahjálpin hefur aðstoð- að 85 lönd við herferð gegn berklaveiki, en úr henni deyja árlega um 5 milljónir manna, þar á meðal fjöldi barna. Hún hefur einnig lagt fraim lið í baráttunni gegn holsveik- inni, sem talið er að sé að fær- ast í aukana. Er nú álitið aS 12—16 milljónir manna séu haldnir þessum ægilega sjúk- dómi. eftir Sigurð Bjarnason vegum hennar. Þessa fjár er aflað á frjálsum grundvelli með framlögum 87 rikis- stjórna og nokkurra stofnana og einstaklinga. A hverjum tíma eru sending ar frá Barnahljáp SÞ á leið- inni til hjálparþurfandi þjóða, landleiðis, á sjó eða í lofti. A þessu ári munu um 57 milljón- ir bama og mæðra í öllum heimsálfum njóta þessarar hjálpar. Barnahjálpin vinnur nú að framkvæmd heilbrigðisráð- stafana í fjölmörgum löndum. Barnahjálp S.Þ. Ijósglæta í myrkri Tvö þúsund milljónir barna fæðast næstu 15 ár Emergeney Fund) var stofn- uð í desember árið 1946. Hún verður því 15 ára gömul í næsta mánuði. Var hlutverk hennar upprunalega að hjálpa börnum í þeim löndum, sem orðið höfðu fyrir barði styrj- aldareyðileggingarinnar. Var kröftunum fyrstu þrjú árin einbeitt að þvi að líkna börnum í 14 Evrópulöndum, þar sem styrjaldareyðilegging in og upplausnin var mest. Einnig var slík hjálp veitt börnum í Kína. Arið 1950 framlengdi Alls- herjarþingið starf Barnahjálp arinnar um þrjú ár og fól henni að hefjast handa um að- stoð við börn í hinum van- þróuðu löndum. Árið 1953 samþykkti Alls- herjarþingið að halda starf- semi Barnahjálparinnar á- fram um óákveðinn tíma. Byggðist sú ákvörðun á hinni brýnu þörf á áframhaldandi starfsemi hennar. Eru þær m.a. fólgnar í aðstoð við barnshafandi konur, með- ferð ungbarna, stofnun heilsu- verndarstöðva og hjálpar- stöðva. Útveguð hafa verið tæki til 6400 heilsuverndar- stöðva og 12300 hjálparstöðva. Þá hefur verið veitt aðstoð til þess að fólk gæti tryggt sér óspillt drykkjarvatn, stuðlað að aukinni framleiðslu nauð- synlegra matvæla og birgðir matvæla sendar til fjölda landa, þar sem börn hafa bú- ið við hungur og harðrétti. Mjólk og lýsi, m.a. frá Islandi, hefur verið úthlutað í skól- um, heilsuverndarstöðvum, sjúkrahúsum og víðs vegar þar sem neyðin hefur sorfið að. Gefin hafa verið tæki til þurrmjólkurframleiðslu og mjólkurhreinsunarstöðva. Þá hafa verið send fjörefni til úthlutunar meðal barna í fjölmörgum löndum. Barálttan við sjúkdómana Barnahjálpin hefur ekki að- eins reynt að seðja hungur milljóna sveltandi barna. Hún hefur lagt fram drjúgan skerf til baráttunnar gegn skæðum sjúkdómum, sem á þau herja Yfir 7 milljónir barna, sem haldin hafa verið sérstakri teg und blindu (Trachoma) hafa notið læknismeðferðar á veg- um Barnahjálparinnar. 421 framkvæmdaáætlun Barnahjálpin vinnur nú að 421 framkvæmdaáætlun á sviði mannúðar- og líknamála í 105 löndum. Eru flest þeirra í Afríku, Asíu og Suður-Ame- ríku, en aðeins örfá í Evrópu. Takmark hennar er eins og áður er sagt fyrst og fremst að líkna niæðrum og börn- um, vhina bug á hungrinu, sóðaskapnum og sjúkdómun- um, sem hundruð milljóna mæðra og barna búa við og þjást af. Aðrar alþjóðlegar stofnanir og einstakar þjóðir vinna að því að hjálpa hinum vanþró- uðu löndum til þess að byggja upp bjargræðisvegi sina, auka þjóðartekjurnar og útrýma fátæktinni. En það er önnur saga og víðtækari. Hin gífurlega fjölgun mann kynsins er einnig annað vanda mál, sem miklum áhyggjum veldur meðal margra þjóða, ekki síst hinna fátækustu og frumstæðustu. En þrátt fyrfr það greinir menn ek'ki á um það, að dýrasta verðmæti hvers þjóðfélags sé maðurinn sjálfur, hið hjálparvana ung- barn, í senn hin óráðna gáta og ókomna tímans von. Mikil- vægasta verkefni allra kyn- slóða er að hlúa að því, vernda það og skapa Því þroskavæn- lega og hamingjusama fram- tíð. Þess vegna er Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna ein merk asta stofnun þeirra og ljós- glæta í því myrkri öryggisleys is og uplausnar, sem ríkir í heiminum í dag. Kosningaúrslitin Úrslitanna í borgarstjóra- kosningunum í New York og ríkisstjórakosningunum í New Jersey var beðið með mikilli eftirvæntingu. Þessar kosning ar fóru eins og lesendur Mbl. vita fram í gær og voru at- kvæðin talin í gærkvöldi óg í nótt. Það varð fljótlega ljóst að Wagner borgarstjóri mundi vinna mikinn sigur í New York. Hann hafði greinilega forystu alla artkvæðatalning- una og fékk samtals rúmlega 1,2 millj. atkvæða. Louis J. Lefkowitz, frambjóðandi Repu blikana hlaut rúmlega 836 þús. New York, 8. nóvember. 1 HEIMINUM eru í dag taldar vera um 1000 millj. barna. Af þeim búa um 550 millj., eða rúmur helming ur í efnahagslega vanþró- uðum löndum. Sextíu af hundraði þessara barna eiga heima í löndum þar sem meðaltekjur á mann á ári eru lægri en 100 dollar ar eða 4300 ísl. krónur. — Þessi börn eru fædd í heim- inn við hinar frumstæðustu aðstæður, skort á hreinlæti, allar tegundir sjúkdóma herja á þau, svo sem malar- ia, berklar, blinda og holds veiki, þau búa við hungur og harðrétti, vanþekkingu og hverskonar vesöld. Gíf- urlegur fjöldi barna deyr af völdum skorts og sjúk- dóma. Þetta eru upplýsingar úr skýrslum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þar er þess einnig getið að á ár- unum 1960 til 1975, næsta einum og hálfum áratug, muni tvö þúsund millj. — tvær billjónir — barna fæðast í heiminum. Af þeim muni yfir 80 af hundr aði fæðast í hinum vanþró- uðu löndum. Megi af því marka, hversu hrikalegt vandamál hér sé við að etja. Barnahjálpin 15 ára anna^^UNICEF, (United Nati- Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur s.l. 15 ár bjargað milljónum barna frá hungri og gef- ons Internatieonal Childrens ið þeim von um þroskavænlegt líf. atkvæði, Gerosa, frambjóð- andi óháðra kjósenda 311 þús. atkvæði og Battista, frambjóð andi óháðra skattgreiSenda tæplega 21 þús. atk .. !. Tveir aðrir framibju^-nclaf’ jafnaðarmanna og sósíalista fengu, annar rúm 7 þús. at- kvæði og hinn um 3 þús. Wagner borgarstj. hefur 397 þús. atkvœða meirihluta yfir Lefkowitz, aðal andstæðing sinn. I borgarstjórakosningun- um 1957 hlaut hann hins vegar 918 þús. atkvæða meirihluta framyfir framibjóðanda Repu- blikana. Er því auðsætt að að- staða Demokrata hefur veikst verulega í New York borg en Republikanar unnið á. En New York er áfram eitt höfuð vígi Demokrataflokksins. Það var Republikönum nokk ur huggun að þeir fengu kos- inn forseta borgarráðsins í Bronx, sem er einn bæjarhluti New York borgar. Hlaut fram bjóðandi Repuiblikana þar 217 þús. atkvæði en Demokrata 208 þúsund. Einnig’ unnu Repufolikanar töluvert á í borgarstjórakosn- ingum í Pennsylvaniu. , . . en milljónir svelta ennþ '> 1 New Jersey var háð hörð barátta milli þeirra James P. Mitchell, fyrrverandi verka- málaráðherra Eisenhowers- stjórnarinnar og Riohard J. Hughes frambjóðandi Demo- krata. Enda þótt Demokratar hefðu unnið tvennar síðustu ríkisstjórakosningar þar, var. þó talið fremur líklegt að Mitchell mundi ná þar kosn- ingu. Hann var miiklu þekkt- ari maður en Hughes og vin- sæll af öllum almenningi. En niðurstaðan varð sú að Hughes náði kosningu með um 40 þús. atkvæða meirihluta. Þegar þetta er ritað eru loka- úrslit ekki kunn í nokkrum sveitahéruðum New Jersey. En Hughes hefur hlotið 1.074.- 312 atkvæði én Mitchell 1.032,- 223 atkvæði. Þessi kosningaúrslit í New Jersey hafa valdið Republik- önum miklum vonbrigðum. Þeir höfðu gert sér ákveðna von um sigur þar og hugðust nota hann til upphafs mikillar sóknar í þingkosningunum á næsta ári. Þeir hafa að vísu síð ur en svo tapað þar fylgi. Um heildarúrslit þeirra kosn inga, sem hafa farið má segja, að Demokratar hafi nokkurn- veginn haldið þar velli. Repu- blikanar hafa unnið töluvert á í einstökum borgum en ekki náð megintakmörkum sínum, að fá ríkisstjóra kosinn í New Jersey og borgarstjóra í New York. Óhætt er að fullyrða að á- hrifa Kennedys forseta hafi gætt töluvert í báðum þess- um kosningum. Hann tók nokkurn þátt í kosningabarátt unni, kom og flutti kosninga- ræður til stuðnings þeim Wagner og Hughes. Sigrar þeirra verða því taldir heilla- vænlegt tákn fyrir stjórnar- stefnu Kennedys, sein ennþá er að vísu aðeins lítillega tek- ið að reyna á. S.Bj.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.