Morgunblaðið - 28.11.1961, Blaðsíða 10
10
MORCUmiT 4 r>1Ð
Þriðjudagur 28. nóv. 1961
Signal heldur
munni yóar hreinum
x-a<G •/»c
Rússlandsferö
Halvards Lange
„Get ekki undirskrifað allt er M'ikojan sagði“
Osló, 23. nóv.
SIÐAN Krúsjeff beindi orðum
sínum til Finnlands og skand-
inavisku landanna yfirleitt, fyrir
rúmum þrem vikum, finnst Norð
mönnum taugastríðið ágerast og
ný sókn vera hafin norður á bóg
inn. Og það vill svo til, að ein-
mitt um sama leyti sem „boð-
skapurinn frá Moskva“ var kunn
gerður, höfðu tvær heimsóknir
sem Noreg snertu, verið ráðnar.
Halvard Lange utanríkisráðherra
hafði verið boðinn til Rússlands.
Og Strauss, hervarnaráðherra
Vestur-Þýzkalands hafði verið
boðinn til Noregs.
Ýmsir Norðmenn hafa óskað
þess undanfarna daga, að hvorug
þessara heimsókna hefði þurft að
fara fram. En þegar orð var haft á
því opinberlega, að Lange utan-
ríkisráðherra ætti að aíþakka
heimboðið til Rússlands, svaraði
hann um hæl: „Eg álít, að eftir
það sem gerst hefur, eigi ég enn-
þá meira erindi til Rússlands en
áður. Þá get ég gert grein fyrir
því, sem allir Norðmenn vilja: —
Frið !
Heimsókn vesturþýzka her-
varnaráðherrans var annars
eðlis. Fyrir nokkru var norski
hervarnaráðherrann, Guðmund
Harlem, í Bonn, til þess að ræða
við Strauss um vopnakaup frá
Noregi og fallbyssubátakaup til
Noregs, en atvikin höguðu því
svo, að þeir gátu ekki hitzt í
þeirri ferð, sagði Strauss í við-
tali við blaðamenn á laugardag-
inn var, tveim tímum áður en
hann flaug suður til Bonn. „Við
gerðum árið 1958 samning við
Norðmenn um kaup á hergögn-
um frá Noregi, og síðan höfum
við sumpart keypt, eða eigum í
pöntun, hergögn og ýmsan útbún-
að fyrir samtals 240 milljón
mörk, eða kringum 430 milljón
norskar krónur. — Það er fyrst
og fremst um ýmislegt viðvíkj-
andi framkvæmdum á þeSsum
samningi, sem ég hef verið að
tala við hervarnaráðherrann ykk
ar,“ sagði hann, — þegar hann
var spurður um, hvort Rússum
stafaði hætta af árás í Eystra-
salti, hló hann og svaraði: „Dan-
mörk og Þýzkaland eiga til sam-
ans 260 strandvarnaskip, en
Sovjetsambandið og Pólland 960
skip, þar á meðal beitiskip og
kringum 112 kafbáta, en af þeim
eiga Danir tólf og Þýzkaland
engan." — Við komu Strauss til
Bergen hafði slæðingur af fólki
safnast úti á fliigvellinum til þess
að „bjóða hann óvelkominn" og
eins á Fornebu við Osló, þegar
hann kom þangað. Fóru því þeir,
sem tóku á móti honum, „leyni-
götur“ með hann "þegar hann
kom í þessar tvær borgir Noregs,
sem hann heimsótti.
Nú víkur sögunni að Halvard
Lange. Hann lenti í Moskvu í
krapaveðri á sunnud. var, og
Gromyko og hans næstæðstu
menn tóku á móti honum. Var
undirbúningsfundur þeirra ákveð
inn kl. 8 morguninn eftir, en aðal
samtalsfundur þeirra á þriðju-
dag. Um þá fundi hafa aðeins
verið gefnar út stuttar tilkynn-
ingar um, að allt hafi farið fram
með fullri vinsemd milli þeirra,
og að þeir Gromyko og Lange
„hafi gert grein fyrir sjónarmið-
um sínum í fullri einlægni og
hreinskilni", eins og það er orð-
að á símskeytamáli. Lange var
Þetta sýnir
nauðsynina á
þvf, að Signal
innihaldi hvort
tveggja í senn
ríkulegt magn
hreinsunar-og
rotvamarefna í
hverju rauðu striki
Ferskur og hreinn andardráttur er
hverjum manni nauðsynlegur. Það
er þess vegna, að Signal tannkremið
inniheldur hreinsandi munnskol-
unarefni—sem gerir munn yðar
hreinan. Munnskolunarefnið er í
hinum rauðu rákum Signals —
rákum, sem innihalda Hexachloro-
phene hreinsunarefni. Signal gerir
meira en að halda tönnum yðar
mjallahvítum, það heldur einnig
munni yöar hreinum.
boðinn í Bolsj o-leikhúsið á mánu
dagskvöldið og fékk að sjá óper-
una „Faust" prýðilega sungna og
leikna, og þriðjudag hélt Gromy-
kó honum veizlu, en ekkert hef-
ur verið hermt opinberlega af
ræðum þar.
1 gær hélt Lánge svo veizlu í
norska sendiráðinu, og var þar
margt manna/ Af stjórnarinnar
hálfu voru þar Gromykó og Mik-
ojan varaforsætisráðherra, sem
báðir tóku til máls, eftir að
Lange -hafði í ræðu sinni gert
ítarlegá grein fyrir afstöðu
Noregs. Gromyko þakkaði ræð-
una, en á eftir tók Mikojan til
máls — utan dagskrár, sem kall-
að er, — og drap þar fyrst á, að
Noregur hefði gert sáttmála sem
væri beint gegn Sovjetsamband-
inu, „þrátt fyrir það, að sovjet-
hermenn björguðu Norður-
Noregi í lok síðustu heimsstyrj-
aldar, og þrátt fyrir að sovjet-
hermenn, sem voru stríðsfangar
í Noregi, bundust varanlegum
vináttuböndum við norskar kon-
ur og menn. ...... Við vonum
að Noregur láti rödd sýna heyr-
ast í viðleitninni á því, að varan-
legur friðarsamningur verði und-
irritaður," sagði hann, og minnti
um leið á, að bæði Lange og
Gerhardsen forsætisráðherra
muni hafa fengið að finna þýzku
hernaðarstefnuna sjálfir, meðan
þeir sátu í fangabúðum í Þýzka-
landi.
Lange tók aftur til máls eftir
ræðu Mikojans, og sagði, að hann
gæti ekki undirskrifað allt, sem
varaforsætisráðherrann hefði
sagt um hættuna, sem stafaði af
Vestur-Þýzkalandi' og samvinnu
norræna ríkja við það. Vék hann
svo að þeim ummælum Miko-
jans, sem ekki eru hermd hér
að framan, um að Noregur héldi
að sér höndunum, og vagri óvirk-
ur í starfseminni fyrir frið í ver-
öldinni, sagði að Noregur væri
ekki sekur um afskiftaleysi um
t.d. afvopnunai'málin. — „Við
höfum fulla ábyrgð á því, sem
við gerum, og eftir því, sem geta
okkar leyfir, munum vér ýta á
eftir — í rétta átt,“ sagði Lange.
Að því er snerti hættuna, sem
Rússar teldu stafa af Vestur-
Þýzkalandi benti hann á, að Norð
menn væru alls ekki eins
svartsýnir og Rússar, á nýja
stríðshættu af hálfu Vestur-
Þýzkalands, og ítrekaði þau orð
fyrri ræðu sinni, að Norðmenn
vilja frið í veröldinni, og munu
aldrei taka þátt í árásarstyrjöld".
Og hann lagði áherslu á það í
fyrri ræð usinni, að Norðmenn
hefðu gerzt aðilar að Atlants-
-hafsbandalaginu einmitt vegng
„Læstar dyr“ í
næstsíðasta sinn
GRÍMA sýnir í kvöld kl. 8,30
í Tjamarbíói „Læstar dyr“
eftir Jean Paul Sartre. For-
mála flytur Þorsteinn Ö.
Stephensen með aðftoð leik-
enda.
Leikendur eru Kristbjörg
Kjeld, Helga Löve, Haraldur
Björnsson og Erlingur Gísla-
son.
Þetta verður næst síðasta
sýning á leiknum, sem hefur
fengið mjög góða dóma leik-
húsgesta og gagnrýnenda.
þess, að þeir hefðu álitið það
bezta ráðið til þess að afstýra
nýrri heimsstyrjöld.
1 dag er umræðum Langes við
Gromyko lokið og hann er lagð-
ur af stað til Uzbekistan í kýnnis
för. Fær hann þá kanske nokk-
urra daga hvílr’ frá ræðum um
alheimsmálin. En ferðin er alls
ekki búin, né alheimsstjórnmála-
þrefið. Svo stóð til, að hann hitti
Krúsjeff að máli í þessari ferð,
en Krúsjeff hafði alls ekki tíma
til að tala við hann neinn þess-
ara tíu daga, sem áætlunin hafði
verið gerð um fyrir heimsókn
Langes. En loks hefur það ráð-
izt, að Krúsjeff hefur tíma til að
tala við Lange laugardaginn 2.
des. Þess vegna bíður Lange i
Rússlandi þangað til, þó að það
kómi honum illa, því að áformað
var að stjórnin norska og ráðu-
nautar hennar byrjuðu undir-
búningsfundi undir væntanle"a
þátttöku Noregs 1 Efnahagsbandá
laginu þ. 3. desember, en aðal-
umræður um það mál hefjast \
Stórþinginu 8. des. — Lange
hafði ætlað sér að koma við I
Finnlandi að lokinni tíu-dasa
ferðinni í Rússlandi, en nú verð-
ur hann að biða eftir Krúsjeff
þá daga, sem hann ætlaði að
nota til Finnlandsheimsóknar-
innar og viðtalsins við Kekkon-
en.
Fólk hugsar margt um þessa
nýju ,,taugasókn“, sem stefnt var
á Norðurlönd með ræðunni í
Moskvu 30. október. En norsku
blöðin skrifa yfirleitt rólega um
málið, að því er stríðshættuna
snertir. En þau eru talsvert
áhyggjufull útaf því, hvort Kekk
onen Finnlandsforseti hafi þurft
að gera . einhverskonar „Kópa-
vogssamninga“ í Síberíuferð
sinni til Novosibirsk.
Skúli Skúlason.
Til sölu
lítið notaður „A.tlas“ trérennibekkur ásamt tilheyr-
andi verkfærum. Lítill „Dunlap“ trérennibekkur
einnig lítil „Dunlap“ bandsög, mjög litið notað.
G. Þorsteinsson & Johnson
Grjótagötu 7, Rvík — Sími 24250.