Morgunblaðið - 21.12.1961, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. des. 1961
Ályktanir fra
aðalfundi LflJ
r*
r A aðalfundi L.Í.Ú., sem nýlega
er lokið, voru gerðar margar
élyktanir um ýmis 'hagsmunamál
útrvegsins og verðiur !hér á eftir
getið þeirra helztu.
Hlutatr y ggingar sj óður
og landhelgismál
Fundurinn skoraði á Aiþingi
að breyta ákvæðinu um að allur
tekjuauki skuli renna í nýja deild
Hlutatryggingarsjóðs í frumvarpi
því sem nú liggur fyrir alþingi,
þannig að tekjuauki sá, er Hluta-
tryggingarsjóður fær, gangi til
þeirra greiiia sjávarútvegsins, er
þær eru runnar frá og hafi hver
deild aðskilinn fját'hag frá öðr-
um deildum - Hiutatryggingar-
sjóðs.
Um landbelgismálið var að
gefnu tilefni gefin yfirlýsing um
að þkkj megi koma til mála að
veita aukinn rétt til togveiða inn
an landhelgi íslands.
Starfsgrundvöllur
fiskiskipaflotans
Taldi fundurinn m.a. vegna
mikils verðfalls, sem orðið hefur
á þorska-, síldar- og hvallýsi það
miklum erfiðleikum bundið fyrir
sjávarútveginn að taka á sig
hækkun útflutningsgjalda, sem
nemur samtals 4.35% enda þótt
gjöld þessi séu ætlun til eflingar
og stuðnings sjávarútvegsins.
Vegna hins stóraukna kostnaðar
við útbúnað síldveiðiflotans, sem
útgerðarmenn bera og vegna afla
leysis togaranna taldi fundurinn
nauðsynlegt að gerðar yerði eftir
farandi ráðstafanir:
1. Gjaldi því, sem ætlað er
til nýs tryggingarkerfis fiski-
skipa skv. bráðabirgðak. nr.
80/1961 um nýtt gengi íslenzku
krónunnar, verði frá því að lög-
in tóku gildi varið til greiðslu
tryggingariðgjalda fiskiskipaflot-
ans.
2. Gjald það, sem renna á til
stotfnlánadeildar sjávarútvegsins
skv. áðurnefndum bráðabirgða-
lögum verði í stað þess látið
ganga til hins nýja trygginga-
'kerfis fiskiskipa. Upphæð sú,
sem þá vantar á fulla greiðslu
vátryggingariðgj alda fiskiskipa-
flotans fyrir árið 1961 verði tekin
af gengishagnaði þeim, sem mynd
aðist við síðustu gengisbreytingu.
3. Lækkaðir verði vextir af
afurðalánum og stotfnlénum til
sj ávarútvegsins.
4. Bætt verði afgreiðsluskil-
skilyrði síldveiðitflotans með
byggingu geymslu- og umskipun-
arstöðva á Vestdalseyri við Seyð-
isfjörð og Mjóeyri við Eskifjörð
til þess að koma í veg fyrir óeðli
lega bið flotans eftir löndun. Jafn
framt veiti hið opinbera verk-
smiðjunum á Norðausturlandi,
Austfjörðum og SV-landi stuðn-
ing til stækkunar og bættra atf-
greiðsluskilyrða.
5. Gerðar verði ráðstafanir
til þess að auðvelda fiskvinnslu-
stöðvum aðgang að lánum með
hagkvæmum vöxtum, sem geri
þeim kleift að greiða hráefni við
móttöku og að koma fram nauð-
synlegum tæknilegum umbótum
til reksturs stöðvanna, sem geri
þeim fært að greiða hærra hrá-
efnisverð.
Fundurinn felur stjórn og Verð
lagsráði að vinna að hækkun fisk
verðs, lækkun kostnaðarliða út-
gerðarinnar eftir því sem unnt er
á framangreindum grundvelli,
þannig að um hallalausan rekst-
ur geti orðið að ræða miðað við
meðalafla.“
Á framhaldsaðalfundi L.Í.Ú.,
sem haldinn var 12. desamber
lágu fyrir fundinum niðurstöður
ýmissa þeirra þátta, sem að fram
an eru raktar og samþykkti fund
urinn síðan eftirfarandi tillögu:
„Með tilliti til atfgreiðslu þeirr-
ar, sem nú liggur fyrir á greiðslu
vátryggingariðgjöldum fiskiskipa
flotans fyrir árið 1060, 1961 og
1962 og í trausti þess, að lagfær-
ing fáist á vaxta- og lánakjörum
í samræmi við ályktanir fundar-
ins og í trausti þess, að verðlags-
ráð sjávarútvegsins verði komið
á fót, sem ákveði fiskverð eigi
síðar en 20. janúar 1962, sem við-
unandi verði talið, samþykkir
aðalfundur L.Í.Ú. haldinn þriðju
áaginn 12. desember 1961 að
mæla með því við útvegsmenn,
að hafnir verði róðrar um n.k. ára
mót, enda hafi fyrir þann tíma
tekizt samningar við sjómenn."
Ferskfiskeftirlit
og aðstoð við fiskiskip
Fundurinn lýsti sig fylgjandi
því ferskfiskeftirliti sem upp var
tekið lun sl. áramót, en telur að
framkvæmd matsins verði að vera
þannig að niðurstöður liggi fyrir
þegar eftir að afihending aflans
til kaupenda hetfur farið fram.
Þá skoraði fundurinn á ríkis-
stjórnina að setja inn í lög um
Vélbátaábyrgðarfélag ákvæði um
að fiskiskip vátryggð annars
staðar en hjá Samábyrgð íslands
njóti sama réttar um greiðslu að-
stoðar frá varðskipum og björg-
unarskipum, enda hvíli á þeim
sömu skyldur.
Lionsklúbburinn
gaf sjónprófunar-
tæki
HAFNARFIRÐI — Fyrir nokkru
gaf Lionsklúbbur Hafnarfjarðar
sjónprófunartæki í Barnaskólann
Og var þessi mynd þá tekin við
það tækifæri. Er þetta allfull-
komið tæki til að prófa sjón
barna Og því hið mesta þarihþing
fyrir skólann. Eins og að líkum
lætur er afarmikilvægt að hægt
sé að fylgjast með sjón barnanna
og ber þeirrr vissulega þakkir,
sem að henni stóðu. Bað Þorgeir
Ibsen skólastjóri blaðið að flytja
gefendum þakkir skólans íyrir
þessa höfðinglegu gjöf.
Á myndinni, sem tekin var við
þetta tækifæri, eru talið frá
vinstri: Sveinn Þórðarson, ögm.
Haukur Guðmundsson, Ásgeir Ó1
afsson, Eggert ísaksson form.
Lionsklúbbsins, Sigurður Emils-
son, Gunnlaugur Guðmundsson.
Eiríkur Björnsson og Þorgeir Ib
sen.
Krossfiskar og iirúöurkarlar
Nýja bókin hans Stef-
áns Jónsson frétta-
manns vekur mikiö
umtal. Allir ljúka upp
einum munni um að
hún sé afburða
skemmtileg. Þar er
drepið á ýmislegt, sem
ekki má segja í útvarp.
Þessi bók er alveg í sér
flokki um alla gerð.
Enginn bókamaður
getur látið vera að
eignast þessa bók.
Það lífgar áreiðan-
lega upp á jólaskapið
að hafa Krossfiska og
hrúðurkarla.
Munið að þessi skemmtilega bók heitir Krossfiskar og hrúðurkarlar.
Ægisútgáfan.
af veiði síldar á hrygningartíma- amíðað skulj á næsitunni hafrann
bilum hennap. _ ^ sóknarskip og skoraði á alla að-
Aðalfundur L.Í.Ú. lét í ljós ila sem með þetta mála hatfa að
ánægju sína yfir því að alþingi I gera að hraða öllum undirbún-
og ríkisstjórn hefði samþykkt að ] ingi.
Síðustu togorusölur fyrir jol
Vextir af lánum
og vátryggingar
Þá skoraði aðalfundur L.Í.Ú á
ríkisstjórnina að færa niður
vexti af lánum Fiskveiðasjóðs og
Fisikimálasjóðs í 4%, þar sem
sjóðir þessir eru að mestu leyti
byggðir upp með tekjum frá
sjávarútvegsframleiðslunni og
ennfremur lánstími Fiskveiða-
sjoðs verðí 20 ár.
Aðalfundur L.Í.Ú. taldi nauð-
synlegt að fram færi svo fljótt
sem við verður komi, endurskoð
-un á starfsiháttum og endurtrygg
ingum Samébyrgðar íslands á
fiskiskipum með það fyrir augum
að lækkuð verði iðgjöld af bát-
um, sem tryggðir eru skyldu-
tryggingu og beinir fundurinn
þeim tilmælum til sjávarútvegs-
málaráðlherra að engar endanleg
ar ákvarðanir verði teknar í þess
um málum, nema í samráði við
samtök útvegsmanna við undir-
búning málsins.
Verðlagsráð
sjávarútvegsins
Þá skoraði fundurinn á rrkis-
stjórn og Alþingi að setja lög fyr
ir áramót um Verðlagsnefnd sjáv
arafurða, sem ákveða fisikverð á
öllum tegundum fisks, sem
seldur er til vinnslu eða óunninn
til útflutnings. Verði hún skipuð
jafnmörgum fulltrúum útgerða-
manna og sjómanna annars veg-
ar og fiskkaupenda hins vegar og
oddamanni frá Hagstofu íslands
eða Hæstarétti. Og sé öllum opin-
berum aðilum gert skylt að láta
nefndinni í té öll nauðsynleg
gögn í því skyni.
Erlent f járiragn og verndun
hryggningarsvæða
Aðalfundurinn lýsti því sem
eindreginni skoðun sinni, að
ófært væri að hleypa erlendu
fjármagni inn í landið aðgæzlu-
laust.
Aðalfundurinn 1961 ítrekaði
ályktun þess efnis að setja þyrfti
lög eða reglugerð á þessu haust-
þingi, er banni með Öllu veiðar
með öðrum veiðarfærum á
ákveðnum hrygning-arsvæðum
þorsksins á hrygningartímabil-
inu ár hvert, um árabil, á tak-
mörkuðum svæðum, eftir áliti
sérfróðra manna. Skoraði fundur
inn á sjávarútvegsmálaráðuneyt-
ið að láta nú þegar fram fara
ítarlegar rannsóknir í sambandi
við ofveiði á smásíld, smáufsa og
simáýsu og hvort geti stafað hætta
NÍU tO'garar hafa -selt í gær og
fyrradag, og sá tíundi selur í
dag, miðvikudag.
Á mánudag seldi Víkingur í
Huill 169 lestir fyrir 9883
sterlingspund oig Jón Þorláksson
í Grimsby 117 lestir. fyrir 7000
sterlingspund.
Sama dag seldj Apríl í Brem-
erhaven 130 lestir fyrir 70000
mörk. Þá seldi Pétur Halldórs-
son síldarfarm í Cuxhaven, 198
lestir fyrir 98778 mörk.
Á þriðjudag seldi Hvalfell í
Grimsby 146,5 lestir fyrir 8337
sterlingspund, Skúli. Magnússon
í Grimsby 114,6 lestir fyrir 6464
stpd., og Júpíter í Hull 165 lestir
fyrir 9462 stpd.
Sama dag seldi Júní í Bremer-
haven 175 lestir fyrir 124500
mörk, og Gylfi seldi síldarfarm
Skozkur
þ j óðdansaf lokkur
í BYRJUN janúar er væntanleg
ur til landsins skozkur þjóðdansa
flokkur, sem mun hafa tvær sýn
ingar í Þjóðleifehúsinu. Flokkur-
inn, sem er ríkisstyrktur, er á
leið til Bandaríkjanna í annað
sinn og mun ferðast um Öll
Bandaríkin og sýna skozka þjóð-
dansa með sekkjapípuundirleik.
Þjóðdansar eru mjög vinsælir í
Skotlandi, m.a. oft danssýningar
í Edinborgarkastala við hótíðleg
tækifæri. Flokkurinn, sem hing
að kemur, hefur ferðazt víða um
og sýnt slíka dansa.
í Bremerhaven, 151 Iest fyrir
79200 mörk.
í dag, miðvikudag, selur Ágúst
í Bretlandi. Það verður síðasta
sala fyrir jól.
Jólaskreytingar
í Keflavík
STÓRUM jólatrjám hefur verið
komið fyrir á opnum svæðum í
Keflavík. Bæjarstjórn hefur haft
forgöngu um uppsetningu á 4 a£
jólatrjánum, sem eru staðsett á
Vatnsnestorgi, við barnaskólann,
sjúkrahúsið og kirkjuna, en jótfa-
tréð við höfnina er sett upp á
vegum málfundafélagsins Faxa,
en er gjöf frá norsku veiðafæra-
firma.
Rafveita Keflavíkur hefur ann-
azt lýsingar á öllum jólatrjánum,
en auk þess hefur bærinn lýst
með skrautljósum senditurn
slmastöðvarinnar, sem er um 30
metra hár og gnæfir því yfir
bæinn og sést langt að.
Verzlanir hafa skreytt glugga
sína vel og götulýsing var stór-
aukin í sumar og gömlu staur-
arnir með margföldum vú'um
tefenir burtu, svo nú er bjart yfir
og jólalegt um að litast. Skraut-
lýsingar í görðum og á húsum
fólks og fyrirtækja setja einnig
jóilasvip á bæinn. Nýju um-
ferðamerkjunum hefur nú verið
komið upp og væntanlega sér
lögreglan um að halda umferð-
inni í skefjum. þegar mest á
reynir. — hsj.
NÝ SENDING
Þýzkar handtöskur
Gluggiiín
I.augavegi 30.
i