Morgunblaðið - 21.12.1961, Page 14
14
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 21. des. 1961
Jól^leikrit ÞJóEleikhússins
Skugga-Sveinn 100 ára
JÓLALEIKRIT Þjóðleikhússins
að þessu sinni verður Skugga-
Sveinn eftir Matthías Jochums-
son. Nú um jólin eru 100 ár liðin
síðan Matthías skrifaði leikritið.
Hann gerði það í jólaleyfi sínu
1861, en þá var hann í fimmta
bekk Menntaskólans. Nefndi
Matthías leikritið „Útilegumenn-
irnir“ og var það frumsýnt um
mánaðamótin janúar febrúar
1862.
Það var leikfélagið Aldan, sem
©ð sýningunni stóð. Leikendurn-
ir voru aðallega nemendur úr
prestaskólanum og nokkrir lög-
fræðingar. Leiktjöldin gerði Sig-
urður Guðmundsson, málari. Að-
eins tvær konur tóku þátt í þess-
ari sýningu og fóru þær með
hlutverk Ástu og Margrétar,
vinnukonu, en karlmaður lék
Grasa-Guddu. Fórst honum það
Evo vel úr hendi að lengi var
eiður að láta karlmenn fara með
hlutverkið.
„Útilegumönnunum" var mjög
vel tekið á þessari fyrstu sýn-
Ingu. Matthías sagði, að hann
hefði verið klappaður svo oft
fram, að það hafi vakið undrun
sina.
Mikill söngur
Á fundi með fréttamönnum
sagði Þjóðleikhússtjóri Guðlaug-
ur Rósinkrans, að Matthías hefði
sífellt verið að breyta leikritinu
og væri það nú orðið leikrænna
en verið hefði í upphafi. Hefði
hann t. d. bætt inn í það nokkr-
um ljóðum, sem hann hefði ort
við lög danskra tónskálda. Auk
þeirra verða nú 15 lög eftir Karl
O. Runólfsson, en 10 þeirra hef-
ur hann samið fyrir þessa sýn-
ingu. Forleikurinn er einnig eftir
Karl Ó. Runólfsson. Tvö lög eru
eftir Þórarin Guðmundsson.
Eins og kunnugt er hóf Þjóð-
leikhúsið sýningu á Skugga-
Sveini 1952 og var hann þá sýnd-
ur 40 sinnum. Sýningin nú verð-
ur frábrugðin að því leyti, að í
henni eru fleiri söngvar, t. d.
fara tíu meðlimir Þjóðleikhúss-
kórsins með hlutverk vinnufólks-
ins í Dal og syngja nokkra
söngva. Einnig er þætti Galdra-
Héðins og kotunganna Geirs og
Grana ekki sleppt, en það hefur
oft verið gert t. d. í sýningu
Þjóðleikhússins 1952.
„Nýr Skugga-Sveinn“
Með helztu hlutverkin í
Skugga-Sveini f&ra Haraldur
Björnsson, sem leikur Sigurð í
Dal, Jón Sigurbjörnsson, leikur
Skugga-Svein, en hann hefur
ekki leikið það hlutverk áður,
Snæbjörg Snæbjarnardóttir leik-
ur Ástu og Valdimar örnólfsson
leikur Harald, en hvorugt þeirra
hefur leikið á sviði Þjóðleikhúss-
ins áður, Ævar Kvaran leikur
Lárenzíus, Valdimar Helgason
Jón sterka, Nína Sveinsdóttir
Grasa-Guddu, Bessi Bjarnason
Gvend smala og Árni Tryggva-
son Ketil Skræk.
Stuttur ballet er í leikritinu,
hann er saminn af Sigríði Ár-
mann og dansa nemendur úr
ballettskóla Þjóðleikhússins.
Leikstjóri er Klemenz Jónsson,
hljómsveitarstjóri Karl Billich,
leiktjöld gerði Gunnar Bjarna-
son.
Söguskóldsnga
BÓKAFORLAG Odds Björnsson
ar hefir nú nýlega látið frá sér
fara þriðju skáldsöguna eftir
finnska rithöfundinn Mika Walt-
ari og ber hún nafnið „Föru-
sveinninn".
kvikmynðir * kvikmyndir * kvikmyndir * kvikmyndir # I hugmynd uffl starfshættj þeirra
*
<
i
0
Haf narf jarðarbíó:
SELDAR TIL ÁSTA.
ÞÓ AÐ margar þær þýzku kvik-
jnyndár, sem hér hafa sézt á
undanförnum árum hafi haft
•þann leiða ágalla að vera fullar
tilfinningasemi og nokkuð
vsemnri rómantík, þá verður það
ekki sagt um þá þýzku mynd,
sem hér er um að ræða. Mynd-
in gerist í Amsterdam og í
-Havanna og segir frá samvizku-
lausum bófum, sem reka hvíta
þrælasölu £ stórum stíl. Höfuð-
paurarnir eru Jan Fabrizius eig-
andi „Casino Rio“, sem er illa
iþokkaður dans. og veitingastað-
ur í Amsterdam, og fyrrum fé-
lagi hans van Laan. Ung stúlka
frá Köln hefur lent 1 klóm þeirra
félaganna og í fjarvist Faforizius-
ar hefur van Laan sent hana í
vændishús í Havanna þar sem
hún fremur sjálfsmorð. Faforizius
hafði ætlað sjálfum sér þessa
stúlku og því reiðist hann van
Laan ákaflega og hyggur á hefnd
ir. Þýzkur sakamálafulltrúi,
Martin Stelling, fær áhuga á
• •
Fyrsta Oddu-bók-
in endurprentuð
MBL. HEFIR borizt barnabókin
Adda eftir Jennu og Hreiðar
Stefánsson, sem Bókaforlag Odds
Björnssonar gefur út. Þessi öddu
bók er hin fyrsta af 7 bókum í
þessum flokki barnabóka, en
Öddubækurnar eru vel þekktar
af ungum lesendum. Þessi útgáfa
er aukin og endurbætt. Bókin er
prýdd allmörgum tei-knimyndum
og smekkleg að öllum frágangi.
þessu máli og heldur til Amster-
dam þar sem hann kemst í sam-
band við hollenzkan starísforóð-
ur sinn. Hann kemst þarna einr.-
ig í kynni við þýzka stúlku,
Verena Linkmann, fréttaritara.
Hún hefur orðið þess vör að ým.
islegt grunsamlegt gerist í
„Casino Rio“ og hún ræður sig
þangað sem dansmey til þess að
geta betur fylgst með því, sem
þarna fer fram. Fabrizius hefur
í hefndarskyni við van Laan, náð
tökum á Irenu dóttur harts og
fer svo að hann sendir hana
ásamt mörgum öðrum til Hav-
anna, þar sem vændishúsið bið-
ur þeirra. Á leiðinni yfir hafið,
er konan sem hefur urnsjá stúlkn
anna myrt og fer þær þá að
gruna margt. Einkum þó Var-
ena, sem er ein hinna ungu
stúlkna. Skipstjórinn á skipinu,
sem flytur þennan stúlkna-
,,farm“ símar til Havanna eftir
lögregluhjálp. Lögreglan kemur
til móts við skipið í hraðbáti og
tekur morðingjamn og allar stúlk
urnar í sínar vörzlur — en fer
með allan hópinn í vændishúsið.
Þetta voru sem sé ekki lögreglu
menn .Gerast nú margir atfourð-
ir og óhúgnanlegir og verður sú
saga ekki rakin hér frekar.
Mynd þessi er prýðilega gerð
og spænna hennar mjög mikil.
Leikurinn er einnig mjög góður,
en aðalhlutverkin leika Klaus-
jiirgen Wusson (Fabrizius),
Werner- Peters (van Laan), Joa.
chim Fuchsfoerger (Stelling),
Christine Corner (Vesena) og^
Eva Anthes (Irena). Margt og,
mikið hefur verið skrifað um j
starfsemi hvítra þrælasala. Hygg |
ég að mynd þessi gefi glögga
Munið óskabók kvenþjóðarinnar í ár:
Sggfjtm €M f
Ester Castelio
Hugljúf skáldsaga. byggð á sönnum atburðum
Skemmtisagnaútgáfan, Laugavegi 19B, sími 14045
Bæjarbíó:
PÉTUR SKEMMTIR.
ÞESSI þýzka söngva- og gaman-
mynd er að vísu nokkuð róman-
tísk á köflum, en þó einnig full
af fjöri og æskugleði. Ungur
verkfræðistúdent, Pétur Erd-
mann, vinnur í fríi sínu í foíla-
verksmiðju. Honum er margt til
lista lagt, syngur vel og dansar
og. leikur auk þess á öll hugsan-
leg hljóðfæri. Dag einn fær hann
símskeyti frá félögum sínum í
Munchen, — en þeir eru líka!
mjög færir hljóðfæraleikarar —
og skeytið er stutt og laggott: |
„S.O.S. Pétur.“ Pétur bregður
skjótt við og heldur á fund fé-
laga sinna. Þeir hafa verið ráðn-
ir til að annast hljómlistina í
sámkvæmi Steinerg aðalfor-
stjóra. En þegar Pétur kernur
til Múnchen, stendur þannig á að
móðir hans, Sylvía leikkona hef-
ur kynnst manni að nafni Bernd
Werding, sem er handgenginn
Steiner, og hafa þau fellt hugi
saman. Sylvía hefur sagt sig mun
yngri en hún er og þvreru henni
óþægindi að því að sonur hennar
um tvítugt skuii birtast á svið-
ir.u. En Pétur leysir þann vanda
með mestu prýði En nú vill svo
til að Pétur og Kittý dóttir Stein-
ers hafa orðið hrifin hvort af
cðru við fyrstu sýn. Pétur, sem
er einn ar hljóðfæraleikurunum
í veizlu Steiners hittir þar óvænt
móður sína og fagnar henni.
Kitty sér þetta, en veit ekki að
þetta er móðir Péturs, og því
verður hún bæði reið og afbrýði-
söm. Leiðir þetta til mikils mis-
skilnings og vonbrigða hinna
ungu elskenda. En allt fellur þó
í ljúfa löð eftir áhrifamikinn at-
burð í Jazz-kjallaranum.
Mynd þessi er, sem áður seg-
ir býsna skemmtileg og einkum
við-hæfi unglinga, enda var már
sagt að þeir fjölmenntu í Bæjar-
bíó til að sjá hið glaða unga
fólk, sem þarna leikur. Peter
Kraus, sem leikur Pétur er að-
eins rúmlega tvítugur, en þegar
orðinn kunnur og vinsæll kvik-
mynöaleikari með:.-:l allra tán-
inga í Evrópu.
Ekið á bíl á stæði
í GÆR fyrir hádegið var ekið á
fólkswagen bifreiðina R-5125,
þar sem hán stóð vestast á bíla-
stæðinu bak við landsbókasafnið.
Var dældað vinstra afturbretti
bifreiðarinnar. Þeir, sem kynnu
að hafa séð atburð þennan, eru
beðnir að láta rannsóknarlög-
regluna vita.
Mika Waltar5
eitir Wolturi
Fjallar hún um æfintýramann
sem lifir á Miðöldum og lendir í
ástarbralli, orrustum, með sjó-
ræningjum og krossferðariddur
um.
Áður hefir forlagið sent frá
sér „Egyptann" og „Ævintýra-
manninn“, sem einnig eru sögu
skáldsögur frá löngu liðnum
tíma.
Bókina hefir Björn O. Björns-
son þýtt og er hún smekkleg að
frágangi.
Bannað að leika
Rokk og Roll
- og dans „Twisl"
BEIRUT, Líbanon, 19. des. AP —
Inbanríkisráðherra Líbanons,
Kamal Jumblat, hefur ákveðið
að banna Rock og Roll tónlist
og dansinn „Twist“. Þessi nýi
dans hefur farið eins og eldur í
sinu um Líbanon síðustu tvo
mánuði og mannþröng verið svo
gífurleg við dansstaði, að víða
hefur orðið að loka kl. 10 á
kvöldin.
Dagblöð í Líbanon hafa þegar
risið gegn þessu banni. Eitt
þeirra birti á forsíðu mynd af
arabískum magadansi og lagði
til að hann yrði bannaður í stað
„Twist“.
F jórSa Jóa-bókin
um íslenzka Tarzan
NÝLEGA kom í bókaverzlanir
fjórða JÓA-bókin; nefnist hún
„JÓI OG TÝNDA SKIPIГ! Er hér
um að ræða algjörlega sjálfstætt
hefti í bókarflokknum um íslenzka
Tarzan, eða ævintýradrenginn Jóa
Jóns, útlagastúlkuna Kiddý Mundu
og skátasveitina hennar. Fyrri
JÓA-bækurnar voru:
Jói í ævintýraleit, Jói og sjóræn
ingjaskipið (uppseld), Jói og hefnd
sjóræningjastrákanna og nú að
síðustu Jói og týnda skipið.
í formálsorði fyrir Jóa og týnda
skipinu segir höfundur m. a.: Bók
þessi er tileinkuð þeim drengjum,
sem hafa eins og Jói Jóns, átt við
örðugleika að stríða í lífinu vegna
líkamlegs vanmáttar — drengjun-
um, sem vilja eins og söguhetjan
tileinka sér kjörorð ævintýra-
mannsiins. Þá segir höfundur einn-
ig: „Til þess að geta orðið til hjálp
ar ef slys ber að höndum, þarftu
að læra: björgunarsund og lífgun
úr dauðadái, Hjálp í viðlögum,
morse og flaggastarfrófið, ýmis
leynmerki.
Fplmenn
Lúcíuliátíð
ÍSLENZK-sænska félagið hélt
hina árlegu Lúcíuhátíð sína 13.
des. í Þjóðleikhússkjallaranum.
Fjölmenni var á þessari samkomu
svö eins og húsakynnin fremst
leyfðu. Form. fél. minntist þess
er hann bauð gesti velkomna, að
íélagið er nú fimm ára Hafa
margir mætir Svíar verið gestir
félagsins þessi ár, m. a. rithöf-
undarnir Harry Martinson, Ey-
vind Johnson og Vilhelm Moberg.
Séra Jakob Jónsson flutti fróð-
legt og snjalla Lúcíuræðu. ,
Birna Geirsdóttir var Lúcía
kvöldsins, en meðal þerna hennar
voru stúlkur úr pólyfónkórnum
enda var söngurinn með ágætum,
Jón Jónsson, jarðfræðingur sýndi
litskuggamyndir frá Uppsöluin og
skýrði þær skemmtilega, en á eft-
ir sungu tveir piltar úr Mennta-
skóla Reykjavíkur, Þörkell Helga
son Og Böðvar Guðmundsson,
Glunta með undirleik skólasyst-
ur sinnar, Sigríðar Einarsdóttur.
Þótti þessu unga fólki vel tak-
ast. Síðan var dansað fram á
nótt
G'afir til IJtskáSakirkjU
í pípuorgelsjóð
í tilefni af 100 ára afmæli hennar
12. nóv. sl.
Frá Kirkjukór Út- ,
— skálakirkju .. kr. 8 Ono 00
— Hvalsnesssöfnuði — 5.000,00
— Þorsteini Árna-
syni og frú .... — 1.000,00
— Guðrúnu Sveins-
dóttur .......... — 1.000,00
— Mörtu Eiríks-
dóttur .......... — 200,00
— Magnúsi Pálss. — 100,00
— Magnúsi Hákonar
syni ............ — 100,00
— Gamalli Suður-
nesjakonu í Rvík —• 500.00
— Fyrrverandi
sóknarbörnum — 3.000,00
— Bjarna Sigurðss.
og Ingibjörgu
Sigurðardóttur
Hausth........... — 1.000,00
—■ Gömlum vinum
á Hvalsnesi .... — 300,00
— Ónefndri konu
í Útskálasókn .. — 500,00
— Finnboga Guð-
mundssym Tjarn
arkoti Njarð-
víkum .......... — 500,00
— Njarðvíkurkirkju
til minningar um
Jórunni Ólafsd. — 2.000,00
— Ónefndri konu
í Hafnarfirði .. — 100,00
— Til minningar um
látinn ástvin frá
hjónum í Kvík .. •— 1.00,00
— Ólafi Ólafssyni
Og frú Skólavörðu
stíg 42 Rvík til
minningar um
foreldra hans
Kristínu Sigurð-
ard. fædd 30. nóv.
1854, dáin 7. apríl
1942 og Ólaf Sæ-
mundss. fæddur
í júlí 1854, dáinn
23. júlí 1912, frá
Móakoti í Gerða-
hreppi ........ — 10.000,00
Kr. 34.300,00
Sóknarnefnd Útskálasóknar
þakkar öllum, sem unnu að uncl
irbúningi hundrað ára afmælis-
hátíðar Útskálakirkju, og einnig
öllum þeim, sem tóku þátt í há-
tíðahöldunum þennan dag, og þar
með stuðluðu að því að þessi há«
tíð mætti vérða hin veglegasta,
Og söfnuðinum ógleymanleg. Og
fyrir hönd safnaðarins þakkar
hún gefendum fyrir þær miklu
gjafir er kirkjunni bárust, og
óskar að rætast megi á þeim orð-
skáldkonunnar að „hvenær sem
hjartað gefur gjöf, hefir gjöfin
því sjálfu foætzt". _
Sóknarnefnd Útskálasóknar
Sigurbergur H. Þorleifsson,
Jóhannes Jónsson, , 4
Jón Eiríksson.
/