Morgunblaðið - 14.01.1962, Blaðsíða 23
Sunnudagur 14. jan. 1962
MORGUNBLAÐIÐ
23
Frú Fanney Breiðfjörð
Benediktsdóttir - Minning
Falur tvöfaldar bílakostinn
HINN 6. þ. m. andaðist að Landa
botsspítala frú Fanney Breið-
fjörð Benediktsdóttir eftir langa
og erfiða sjúkdómslegu, og hafði
Fanney búið við stöðugt heilsu-
leysi hin síðari ár æfi sinnar,
enda þótt hún bæri hinn þunga
kross sjúkdóins og erfiðleika sem
sönn hetja.
1' Fanney Benediktsdóttir var
fædd hinn 7. marz 1921 í Stykk-
ishólmi hinum fagra höfuðstað
Breiðafjarðar, og voru foreldr-
ar hennar hjónin Benedikt Ket-
ilbjarnarson Magnússonar Jóns-
sonar hreppstjóra að Tjaldanesi
í Dölum vestur. og Helga Jóns-
dóttir Björnssonar að Klúku í
Strandasýslu.
Tæplega tveggja ára missti
Fanney föður sinn, var þá ekki
um annað að gera en að taka
upp heimilið og sundra fjöl-
skyldunni. Yngri dótturin Bene-
dikta fór að Kleifum í Gilsfirði
og ólst þar upp hjá frændfólki
sínu, en með eldri dótturina
Fanneyju fluttist frú Helga til
Reykjavíkur, Fyrstu æsku árin
dvaldi Fanney með móður sinni
hér í Reykjavík, en síðar fluttist
hún með henni til Þorlákshafn-
ar og dvaldi hjá stjúpa sínum
Guðmundi Sigurðssyni hrepp-
stjóra nú búsettum í Hlíð í
Grafningi.
I Árið 1941 giftist Fanney eftir-
lifandi manni sínum Halldóri
Halldórssyni múrarameistara í
Reykjavík og eignuðust þau
þrjú efnileg börn, Benedikt sem
nú er 17 ára, mesti efnis piltur,
og Dagfríði 15 ára. sem stundar
nám í kvennaskóla Reykjavík-
ur. Þriðja barnið var drengur,
sem dó nokkurra daga gamall.
Enda þótt stundum brygði fyr-
ir sóiu skuggaský vegna sjúkleika
Fanneyjar þá lifði hún þó ham-
ingjusömu lífi. I>au hjónin voru
samhent og hjónabandið ástúð-
legt enda heimili þeirra til
sannrar fyrirmyndar. í>að var
vissulega unaðslegt að heim-
sækja þessi góðu hjón og njóta
framúrskarandi gestrisni þeirra
að hinu fagra og friðsæla heim-
ili þeirra hér í Reykjavík. Skarð
er nú fyrir skildi og dimmt yfir
hinu fagra heimili þeirra hjóna
þar sem húsmóðirin er horfin
af sjónarsviðinu, en öll él birtir
upp um síðir, og eins og hinn
mikli skáldjöfur Einar Bene-
diktsson segir í einu kvæði sínu:
Fyrir handan vetrarkvöldin
sé ég glampa á sólartjöldin.
Mikla drottning láðs og lagar,
Ijóssins móðir, skín mér hátt,
kom að nýju úr austurátt.
Unn mér brjóttu rökkurvöldin.
Frændur, vinir og annað sam-
ferðafólk, kveðja nú Fanneyu
Benediktsdóttur með þakklæti
íyrir samfylgdina, manni henn-
ar, Halldóri og börnum, móður,
fóstra og systkinum votta ég
mina innilegustu samúð og bið
þeim blessunar Guðs. Frænku
mína kveð ég með trega í hjarta
og bið góðan Guð að blessa og
varðveita hana.
Ár«i Ketilbjarnar.
— Marinfræði
Framh. af bls. 8.
!>að má fara hægt af stað.
Hún þarf ekki að vera neitt
bákn. Einn eða tveir starfsmenn
myndu geta miklu áorkað, en
töf eða athafnaleysi er eitur.
Það verður að rannsaka
rækilega hvert hérað á fs-
Iandi áður en mannfræðileg
séreinkenni þeirra hverfa.
Og það verður að vera hægt
að skipuleggja þessar rann-
sóknir langt fram í timann.
Það þarf líka að fylgjast með
líkamseinkennum íslendinga
lið fram af lið.
Það þarf að byggja upp
sérstakt kerfi og samræma
störf þeirra afla á Islandi,
sem annað hvort beint eða
óbeint geta lagt fram ein-
hvem skerf til íslenzkrar
mannfræði.
Ég skýri þetta ekki nánar hér
en ég á m. a. við þau öfl, sem
þegar hafa sýnt mannfræðinni
skilning og stuðning á ýmsan
hátt, svo sem lækna, kennara,
starfsfólk Hagstofunnar, alþing-
ismenn og vísindamenn.
Ef nægilegur skilningur og
samstarfsvilji fæst þá veit ég
að við íslendingar getum, án
mikilla fjárútláta, framkvæmt
þá hluti á mannfræðisviðinu,
sem vekja myndu mikla athygli
og verða okkur til sóma. Það
er hægt að skapa á Íslandi að
mörgu leyti betri grundvöll
mannfræðivísinda en annars
staðar þekkist. Með því að gera
það myndu íslendingar stuðla
stórlega að framþróun þessara
vísinda almennt og styrkja
jafnframt ýmis önnur vísindi,
segir Jens Pálsson að lokum.
Dómarauámskeið í handknattleik
hefst mánudaginn 15. janúar
n.k. kl. 8,30 síðd. í húsakynium
Æskulýðsráðs, Lindargötu 50
(gengið inn frá Frakkastíg) —
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að mæta stundvíslega.
Stjóm HKDR
VAXANDI straumur erlendra
ferðamanna til landsins hefur
lyft undir margs konar atvinnu-
rekstur hérlendis. Bílaleigan
Falur er eitt þeirra fyrirtækja,
sem komið hafa í kjölfarið, og
það dafnar vel.
★
— Fyrir 3—4 árum hefði ver-
ið óhugsandi að stofna hér bila-
leigu, sagði Hákon Daníelsson,
framkvæmdastjóri Fals, í viðtali
við Mbl. En ferðamannastraum-
urinn hefur aukizt það mikið á
síðustu árum, að við ætlum að
tvöfalda bílakostinn í vor, verð-
um með 10—12 Volkswagen og
a. m. k. einn Landrcver í sumar,
sagði Hákon.
— í fyrra vorum við með 5
Volkswagen og heita má, að bíll
hafi ekki stanzað einn dag allt
sumarið. Reykvíkingar og utan-
bæjarmenn notfæra sér þessa
iþjónustu líka í vaxandi mæli og
starfsemin í vetur hefur verið
miklu meiri en við þorðum að
vonast til.
★
— Nú rignir yfir okkur fyrir-
spurnum frá útlöndum, því er-
lendum ferðamönnum finnst
sjálfsagt að skipta við bílaleigu-
miðstöð eins og hótelin. Stærstu
bílaleigur á meginlandinu hafa
um og yfir þúsund bíla — og dug
ir ekki tiL
— Meðaltal leigutímans í sum
ar hefur sennilega verið um
þrjár vikur, því yfir hásumarið
voru þetta oftast langferðir út
á land. Hinsvegar er líka algengt
að menn leigi sér bíl dag og dag
til afnota hér í bænum.
★
— Yfir vetrarmánuðina er
leigan hjá okkur kr. 200 á sól-
arhring, en auk þess kr. 2,50 fyr
ir hvem ekinn km. Við greiðum
hinsvegar allt benzín og allan
áfallinn viðgerðarkostnað. — Að
sumrinu er leigan kr. 500 á sól-
arhring, 150 km akstur er þar
innifalinn, en hver ekinn km.
fram yfir kostar kr. 2,80. Sem
fyrr greiðum við allt benzín og
viðgerðir, en þær hafa ekki ver-
ið miklar, því bílarnir eru allir
nýir og reynsla okkar er 9Ú, að
fólk fer vel með þá og ekur gæti-
lega.
★
Bílaleigan Falur hefur nú
flutt í ný húsakynni að Brautar-
holti 22 ,rúmgóð og vistleg. Þar
er skrifstofan og viðgerðarverk-
stæði, en tveir bifvélavirkjar
munu í sumar annast alit við-
hald bílanna, sem eru þrifnir og
yfirfarnir eftir hverja leigu »
og nýi leigjandinn tekur ávaltt
við gljáfægðum og tandurhreúF>
um.
N
KLAPPARSTÍG 26 — SÍMI 19-800
Höfum fyrirliggjandi sjónvarpstæki frá hinum heimsfrægu Nordmende verk-
smiðjum í Vestur-Þýzkalandi.
Þau eru gerð fyrir okkar straum 220 V og 50 rið og ameriska sjónvarpskerfið
svo þau henta okkur fullkomlega. Skermastærð þeirra er 23 tommur.
Nordmcnde Favorit skermir 23 tommur. Verð kr. 16.223,00
Nordmende Konsul skcrmastærð 23 tommur. Verð kr. 17.939.00
Nordmende Kommodor skerma&t. 23 tommur. Verð kr. 19,208.00
Tvö þau síðastnefndu hafa sjálfvirka myndstillingu.
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI
ASMUNDUR
SVEINSSDN
LISTAVERKABÆKUR
með afborgunum
Þér getið ekki valið fegurri og stærri gjöf en málverkabækur
MUGGS og ÁSMUNDARBÓK. Listaverkabækur Helgafells og
málverkaprentanir breyta venjulegu heimili í helgidóm. Hér er
ckki miklu til kostað. Nú fást málverkabækur Muggs og Ásmundar-
bókin, fcgurstu bækur fslands, með þægilegum afborgunarskilmál-
um í
UNUHÚSL Helgafelli, Veghúsastíg 7 (Sírni 16837)