Morgunblaðið - 17.01.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.01.1962, Blaðsíða 20
Frettasímar Mbl. — eftir 1o k u n — Erlesdar íréttir: 2-24-85 Innlendar fréttir: 2-24-84 TUNCLIÐ Sjá blaðsíðu 8. 13. tbl. — Miðvikudagur 17. janúar 1962 Nœrri drukkn- aður \ höfninni AÐFARANÓTT þriðjudags mátti litlu muna, að maður drukknaði i Reykjavíkurhöfn. Kl. 3 un nóttina var drukkinn maður á leið út i bát sinn, sem lá utan á togara við Faxagarð. l»egar hann gekk eftir land- göngubrúnni út í togarann, skrikaði honum fótur og féll í sjóinn. Bar margt til þess, að svo fór: Landgöngubrýr togara eru hættulegar, eins og menn þekkja, togarinn lá nokkra metra frá bryggju; töluverður öldugangur var í höfninni vegna stormsins; hálffallið var að og maðurinn ekki öruggur í gangi. Leigubílstjóri, sem ekið hafði manninum út á bryggjuna, kall- aði á lögregluna. Komu þar að lögregluþjónamir Erlendur Sveinsson frá Breiðabólstað á Álftanesi og Kristján Vattnes, báðir hraustleikamenn, og gengu vasklega fram um að bjarga manninum. Tókst þeim að ná honum upp á bryggju, en síðan var ekið á Slysavarðstof- una, endaði hafði maðurinn sop- Verkfærum stolið 1 FTRRINÓTT var framið innbrot í vinnuskúr í Grjót- námi bæjarins. Stolið var 12 tonna tjakk, tveimur borvélum, önnur af gerð- inni Black & Decker, og loks tveimur blöndunar- tækjum af gastækjum. Er hér um mikið verðmæti að ræða, sennilega um 10 þús. krónur. 1 ið drjúgan sjó og orðinn ískald- ur. Á leiðinni missti hann með- vitund. A Slysavarðstofunni var honum hjúkrað eftir föngum og fékk na.a. súrefni, svo að hann hjarnaði við, en þarna skildi naumlega milli lífs og helju. Bólusett á Akranesi AKRANESI, 16. jan. — Ég talaði við Torfa Bjarnason, héraðs- lækni í dag, og spurði hann um ráðstafanir í bænum gagnvart bólusóttarhættunni. Héraðslækn- ir kvað búið að bólusetja urn 135 börn við veikinni á síðast- liðnum 3—4 dögum. Bkki var á héraðslækni að heyra, að haxin teldi neina verulega hættu á ferðum. — Oddur. 7 nemendur hættír Hólum hættu námi í gær Hafa búið til leiksýningu, segir skólastjórinn HÓLUM 1 HJALTADAL, 16. i frá skólanum til viðbótar fjór- jan. — Eins og skýrt hefur verið um, sem áður voru famir. Þrír frá höifðu sex nemendur Bænda- þeirra, Magnús Magniússon, Ósk- skólaus á Hólum á orði að fara I ar Ásgeirsson og Þórarinn Jóns- Geysifjölmennur Varðbergs- fundur um vestræna samvinnu Varðberg, félag ungra áhuga- manna um vestræna samvinnu, efndi til almenns umræffufundar um „Island og vestræna sam- vinnu“ í Bæjarbíó í Hafnarfirffi í gærkvöldi. Var fundurinn mjög fjölsóttur og þurfti fjöldi fund- armanna aff standa. Kommúnistar höfffu smalaff nokkru liffi á fund- inn bæffi úr Reykjavík og Kópa- vogi, en af undirtektum fundar- manna mátti glöggt merkja aff þeir voru þar í algjörum minni- hluta. Framsögumenn voru þeir Björg viíi G-uðmundsson viðskiptafræð- ingur, Heimiir Hannesson stud. jur. og Þór Vilhjáknsson lögfræð- ingur. Björgvin Guðmundsson lagði áherziu á það í ræðu sinni að mesta hættan, sem ógnað gæti sjálfstæði landsins, væri fólg- in í andvaraleysi. Við megurn aldrei gleyma því, sagði hann, að frelsi og lýðræði er það dýrmæt- asta, sem við eigum. Og því mieg- um við aldirei glata. Heimir Hannesson brá upp myndum af stjórnarfarinu, sem ríkir í þeim löndum, þar sem kommúnistar hafa náð vöidum. Benti hann á að það væri í raun og veru þróunin í Austur Evrópu Kynnir sér jarðhita á Nýja Sjálandi fyrir danskan styrk L C. MÖLLER, forstjóri í Kaupmannahöfn, heíur skýrt frá því, að ákveðið hafi verið að veitc. dr. Gunnari Böðvars- syni, verkfræðingi, styrk að fjárhæð 10.000 danskar krónur til að kynna sér jarðboranir og virkjun jarðhita á Nýja-Sjá- landi. Styrkurinn er veittur úr sjóði, sem I. C. Möller, for- stjóri, stofnaði fyrir nokkrum árum. 1 skipulagsskrá sjóðsins segir, að sjóðurinn skuli m.a. verja til stuðnings almennum velferðarmálum, mannúðarstarf- semi, listum og vísindum, og geta komið til greina við styrk- veitingar menn eða stofnanir í Danmörku, á íslandi eða í Sví- þjóð. - og öðrum kommúnistalöndum, sem hefði opnað augu lýðræðis- þjcJ_nna fyrir eðli kommúnism- ans og þannig skapað vestræna samvinnu. Þór Vilhjálmsson ræddi meðal annars þann árangur, sem náðst hefur af starfi NATO frá 1949, en þar kvað hann mikilvœgast að síðan þá hefði kommúnistum ekki fcekizt að færa út veldi sitt í Evrópu um einn einasta þuml- ung. Atlantshafsbandalagið, sagði hann, vair stofnað til að mæta hinum hernaðarlegu ógnunum kommúnista. Og við íslendingar getum því aðeins varið öryggi okkar sjálfra með því að sækja afl til bandamanna okkar í þessu bandalagi. Ræður allra frummælenda hlutu hinar beztu undirtektir meðal allra fundarmanna, ef frá Framhald á bls. 2. OKKUR vantar unglinga til aff bera blaðiff til kaupenda 1 eft- irtalin hverfi: Fjólugötu, Kleppsveg og Tjarnargötu Hafið samband við afgreiffsl una, simi 2-24-80. son, ákváðú að yfirgefa staðinn í gærkvöldi, og héldu héðan í dag. Áður voru þeir Bjami Höskulds- son, Eggert Einarsson, Jón Guðna son og Njörður Jónsson famir. Firnm aif þessum sjö niem- endum, sem fóru, voru við nám í skólanum í íyrra, en allir em þeir búsettir í Reykjavík eða á AkureyrL Hinir þrír, sem hættu við að fara, eru búsettir í sveit. í Bændaskólanum á Hólum eru nú ellefu nemenduir eftir, þar af voru fimm £ skólanum í fyrra, en átta þeirra eru úr sveit. Af samtölum við nemendur og kennara skólans er ljóst, að skólastarfið hefuir gengið snurðu- laust og verið eins og bezt varð á feosið fram að jólum. Eins og þegar hefur verið skýrt frá í Mbl. feom hins vegar til misklíð- ar mi'lli nemenda og kennara eftir jól. Var þá genigið nokkuð til móts við kröfur nemenda og virtist rnálið þá leyst. Þá kom á ný til ágreinings vegna nýrrar stundasikrár, sem gilda átti fré 25. jan. til T. febr. Höfðu nem- endur ekfeert út á bófelega námið að setja, en sumum féll ekki það verklega, og töldu sumt af því óþarft, svo sem smíðar í hest- húsi og kennsla í hirðingu og fóðrun kúa. Hins vegar sættu allir sig við smíðar á verkstæði. Til samkomulags bauð Gunnar Bjarnason, skólastjóri, nemend- um, að hnika mætti tii búsmíð- unum, ef tir því sem hægt væri og nemendur hefðu áhuga á og teldu, að kæmi þeim að mestu haldi. Aftur á móti taldi Gunn- ar, að hann gæti ekki útskrifað búfræðinga, sem ekki kynnu fyrr greind fjósastörf, enda væri mik- ið í húfi, að þeir kynnu þau. Þá héldu og sumir nemendur þvi fram, sem voru í bændaskólan- um í fyrra, að þeir væru ekki skyldugir til að hlíta annarri Framh. á bls. 19. 3.400 bólusettir í gær MORGUNBLAÐIÐ fékk þær upplýsingar hjá Sigrúnu Magnús- dóttur, yfirhjúkrunarkonu S Heilsuverndarstöðinni, að í gær hefðu alls 3400 manns verið bólusettir gegn bólusótt í stöð- inni. Vélarnar stððvað- ar eftir 4 mínútur Sjópróf vegna skemmdanna á vélum bv. Sigurðar í GÆRMORGUN fóru fram sjópróf vegna úrbræðslu véla bv. Sigurffar, sem sagt var frá hér í blaðinu í gær. Varff sjó- prófum ekki lokiff, og halda þau áfram i dag. — Fyrir rétt inum mættu í gær Jón Sig- urffsson, skipstjóri og útgerff- arstjóri bv Sigurðar, og Gunn ar Hinz, vélstjóri, starfsmað- ur vélsmiðjunnar Héffins h.f. en hann vaiwi ásamt öðrum manni aff standsetningu véla Sigurðar. I ljós kom að vélar skipsins höfðu ckki veriff í gangi nema fjórar mínútur, er þess varff vart að ekki var allt með felldu, ug voru þær þá sam- stundis stöðvaffar. — 1 ljós mun hafa komiff aff gleymst hafði aff skrúfa frá smurolíu hana. — I dag munu önnur vitni í máli þessu koma fyrir dóminn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.