Morgunblaðið - 06.03.1962, Side 1
24 síður
49. árgangur
54. tbl. — Þriðjudagur 6. marz 1962
Prentsmiðja M^rgunblaðsins
Krúsjeff fellst á fund
utanríkisráðherra í Genf
— Frakkar taka ekki jbátt i afvopn-
unarráðstefnunni
London, Washington og
París, 5. marz. — (AP) —
FRÁ því var skýrt í
Liondon og Washington í dag,
að Krúsjeff forsætisráðherra
Sovétríkjanna hefði fallizt á
tillögu Breta og Bandaríkja-
manna um, að afvopnunar-
ráðstefna 18 ríkja hef jist með
fundi utanríkisráðherra að-
ildarríkjanna.
Q Ennfremur samþykkir
hann, að haldinn verði sér-
Mikilvæg
ræða um
Nýju-
Guineu
Tokyo og Jakarta, 5. marz.
_ (NTB — AP) —
SUKARNO, forseti Indónesíu, til
kynnti í dag að hann myndi
halda þýðingarmikla ræðu um
Vestur-Nýju-Guineu n.k. fimmtu
dag. — Indónesíska fréttastofan,
sem skýrði frá þessu i dag,
minntist ekki á hvert innihald
ræðu forsetans myndi verða. *
★
Auk þess skýrði fréttastofan
frá því, að Sukarno hefði sent
vamarmálaráðherra sinn og yf-
irmann hersins, Abdul Haris
Nasution, hershöfðingja, í könn-
unarferð að landamærum hol-
lenzku Guineu og veitt honum
umboð til að gera þær ráðstaf-
anir, sem honum þættu nauð-
synlegar, ef stjórnin ákvæði að
verða við kröfum þjóðarinnar
um frelsun V.-Nýju-Guineu úr
höndum Hollendinga.
Krúsjeff
stakur fundur utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, Bret-
lands og Bandaríkjanna.
0 Hins vegar var sú til-
kynning birt opinberlega síð-
degis í París, að franska
stjórnin ætli ekki að senda
menn til afvopnunarráðstefn-
unnar í Genf — hvorki á
fund utanríkisráðherra né
ráðstefnuna sjálfa.
í tilkynningu frönsku stjórn-
arinnar segir, að ekki sé trú-
legt, að mikill árangur náist í
Genf nú, en sú sé von Frakka,
að síðar verði haldnar viðræður
milli þeirra ríkja, sem raun-
veruleg spor geti stigið í átt
til afvopnunar.
Fregnin um svar Krúsjeffs
var tilkynnt í Hvíta húsinu í
Washington og fylgdi henni, að
Kennedy myndi svara sovézka
forsætisráðherranum innan sól-
arhrings. í Bretlandi var það
Harold Macmillan, forsætisráð-
herra, sem skýrði frá orðsend-
ingunni á umræðufundi um land
varnamál í neðri málstofu
brezka þingsins. Sagðist Mac-
millan vona að umræðurnar í
Genf bæru þann árangur, að
þeir Kennedy og Krúsjeff gætu
hitzt þar áður en langt um liði.
Kennedy forseta barst svar
Krúsjeffs á sunnudagskvöld, en
þá var þegar tilkynnt, að ekk-
ert yrði sagt af opinberri hálfu
fyrr en forsetinn hefði athugað
það vel. — Þykir þetta jákvæða
svar því fremur mikilsvert, sem
Kennedy forseti tilkynnti sl.
föstudag, að Bandaríkjamenn
myndu hefja tilraunir með
Framhald á bls. 23.
Minnst skipsverja
af Stuðlabergi
MINNINGARATHÖFN um
skipverjana, sem fórust með
Stuölabergi, fer fram í
Keflavíkurkirkju kl. 2 í dag.
Minningarrseður flytja sókn-
arprestuxinn, sr. Björn Jóns-
son og vígslubiskup, sr. Bjarni
Jónsson. Við athöifnina syng
ur kirkjukór Keflavíkur-
kirkju undir stjóm Friðriks
Þorsteinssonar og Guðmund-
ur Jónsson söngvari syngur
við undirleik Ragnars Björns
sonar.
Þeir sem fórust voru:
Jón Jörundsson, skipstjóri,
Faxabraut 40, Keflavík; Pét
ur Þorfinnsson, stýrimaður,
Engihlíð 12, Rvík; Kristján
Jörundsson, 1. vélstjóri,
Brekiku, Ytri-Njarðvík; Karl
Jónsison, 2. vélstjóri, Heiðar-
vegi 6, Keflavík; Birgir Guð-
mundsson, matsveinn, Njáls-
götu 22, Rvík; Stefá-n Elías-
son, Vesturgötu 24, Hafnarf.;
Guðmundur Ólason, Stórholti
22, Rvík; Gunnar L. Hávarðs
son, Kirkjuvegi 46, Keflavík;
Örn Ólafsson, Langeyrarvegi
11, Hafnarf.; Kristmundur
Benjamínsson, Birkiteig 14,
Keflavík; Ingimundur Sig-
110 farast í ffugslysi
Aldrei hafa fleiri farizt med einni
flugvél siðan farþegaflug hófst
Douala og London 5. marz.
AÐFARANÓTT mánudags varð
hörmulegt flugslys í V-Afríku, er
Styrkleiki fiskstofna í
sambandi viö sólbletti?
Tilgáta tveggja isl. visindamanna
í NÓVEMBERHEFTI eins elzta heim við þetta. Einnig telja þeir
og kunnasta náttúruíræðitímarits
í Englandi, Nature, birtist grein
eftir dr. Gunnar Böðvarsson og
Jón Jónsson, fiskifræðing, þar
sem sett er fram nýstárleg og
mjög athyglisverff tilgáta um
hugsanlegt samband milli styrk-
leika þorskstofnsins og annarra
fiskstofna við Island annars
vegar og sólblettanna hins vegar.
En í sólblettunum er 11 ára
sveifla,
Telja þeir Gunnar og Jón að
sterkir fiskárgangar kunni að
klekjast út þegar sólblettir eru
minnstir, og af gögnum, einkum
um þorskveiðar, hér við land
hafa þeir þótzt merkja greini-
legar 11 ára sveiflur, sem koma
sig hafa seð merki um þetta, þó
óglöggari séu, í skýrslum um
síldveiði, laxveiði og hrognkelsa-
veiði.
Tilgátur um áhrif sólbletta-
sveiflunnar á ýmis lífiræðileg
fyrirbæri hafa viða komið fram
áður, þó ekki varðandi fisk. Tel-
ur dr. Gunnar að ef sólbletta-
sveiflan hafi einhvers staðar
áhrif, þá eigi það að vera á
þeirri breiddargráðu sem ísland
er, því miðin sunnan við Island
eru einmitt í að.al-norðurljósa-
beltinu og ætti áhrifanna því
helzt að gæta hér.
Nánar er skýrt frá þessari til-
gátu í viðtali við Gunnar Böðv-
arsson á bls. 10.
DC7C-flugvél frá brezka flug-
félaginu Kaledonia hrapaði ná-
lægt Doula flugvellinum í
Kamerún. Með flugvélinni voru
100 farþegar og 10 manna áhöfn
og komst enginn lífs af. Björg-
unarstarf hófst strax og er íðsast
fréttist voru fundin 06 lík.
★
DC7C-flugvélin var á leið frá
Mozambique til Luxemburg og
var Douala meðal viðkomustaða
hennar á þeirri leið. Flugvélin
hafði þar nokkra viðdvöl, en
hrapaði skömmu eftir að hún
hafði sig á loft einum og hálfum
kílómeter frá enda flugbrautar-
innar. Féll hún brennandi niður
í votlendi vaxið frumskógi.
Erfitt björgunarstarf
Björgunarsveitir voru strax
sendar á vetvang, en þær áttu
mjög erfitt um vik, því aðstæð-
ur voru slæmar. Urðu björgun-
armennirnir að róa að flugvél-
inni, og eina birtan, sem þeir
höfðu var skinið frá brennandi
flakinu. Þegar þeir áttu skammt
eftir ófarið að flakinu urðu þeir
að nema staðar sökum hins gíf-
urlega hita frá bálinu. Eldurinn
í flugvélinni var svo mikill, að
strax var talið ósennilegt að
nokkur hefði komizt lífs af, enda
kom í ljós, er björgunarmennirn-
ir komust að flakinu. í kvöld
höfðu þegar fundizt 06 lík og
voru flest þeirra mjög brunnin.
Krafizt rannsóknar
Flestir farþeganna voru frá
S-Afríku og Ródesíu, auk þeirra
voru sex Hollendingar, tveir
Danir tveir Englendingar, einn
íri, og einn ítali.
Ríkisstjórnin í Kammerún hef-
ur krafizt rannsóknar á slysinu.
Fulltrúar belgíska flugfélagsins
Sabena, sem átti vélina og Kale-
donía flugfélagsins, sem hafði
hana á leigu eru nú á leið til
Doula til að framkvæma hana
Brezkir verka-
menn í verkfalli
London, 5. marz. — (NTB) —
ÞRJÁR milljónir brezkra verka-
manna, sem vinna við þunga-
iðnað, gerðu í dag verkfall til
að mótmæla stefnu stjórnarinn-
ar í launamálum. Er þetta í ann
að skiptið á fimm vikum, sem
þeir gera slíkt verkfall.
Helmingur þungaiðnaðar i
Bretlandi lamaðist í dag vegna
verkfallsins og var þátttaka í
því góð. í byrjun febrúar fóru
sömu verkamenn I eins dags
verkfall. Krefjast þeir launa-
hækkunar og styttri vinnutíma.
Powers skýrir frá
Washington, 5. marz (AP).
TILKYNNT var í dag að Francis
G. Powers, flugmaður, skýri frá
því hvað kom fyrir flugvél hans,
er hún hrapaði yfir Rússlamdi, og
dvöl sinni þar í landi á fundi
hermálanefndar öldungadeildar
Bandaríkjaþmgs á morgun. Er
þetta í fyrsta sinn. sem Powers
skýrir opinoerlega frá þessu.
Formaður hermálanefndarinn-
ar Richaid B. Russell tilkynnti
þetta eftir stuttan fund með yfir-
manni bandarísku leyniþjónust-
unnar, John A. McCone. Á fund-
inum skýrði McCone Russell frá
yfirheyrslunum Powers eftir að
hann var latinn laus, en Russell
vildi ekki gtfa neinar upplýsing-
ar V’arðancU hana. Sagði hann, að
McCone myndi lesa hermála*
nefndinni skýrslu um yfirheyrslu
Powers á fundi hennar í fyrra-
málið.
Sáttafundur í
sjómannadeilunni
TORFI Hjartarson, sáttasemjari
ríkisins, boðaði í gærkvöldi fyrsta
fundinn í sjómannadeilunni eftir
að verkfall var boðað. Fundinn
sátu fulltrúar háseta og mat-
sveina annars vegar og fulltrúar
útgerðarmanna hins vegar.
Stóð fundurinn enn þegar blað
ið fór í prentun.