Morgunblaðið - 06.03.1962, Side 5
Þriðjudagur 6. marz 1962
5
MORGVNBLAÐIÐ
— Ég álít, að „My fair lady“
sé skemmtilegasta verk, sem
sett hefur verið á svið á ís-
landi, sagði Erik Bidsted,
balÆetmeistari, þegar frétta-
maður blaðsins hitti hann í
Þjóðleikhúsinu fyrir skömmu.
— Æfingar eru mjög strang
ar nú og verða það til frum-
sýningar, en ráðgert er að hiún
verðj 10. marz. Eg æfi balil-
ettinn alltaf á morgnana frá
9—12 og svo eru æfingar með
leikurum og söngfólki fram á
kvöld.
— Hvernig finnsit yður að
æfa íslenzka dansfólkið?
— Það er mjög gott og mér
finnst athyglisvert hvað stúlk,
urnar eru fljótar að venjast
því að dansa með erlendu
karldönsurunium, siem hingað
voru fengnir, því að þær hafa
dansað svo lítið með karl-
mönnum áður. Reyndar er
einn þesisara dansara íslenzk-
ur. Það er Jón Valgeir, en
hann hefur dansað í Tívo-li s.l.
sumar. Hitt eru tveir Þjóð-
verjar, einn Dani, einn Svíi
og Engiendingur.
— Hvað verða þessir dains-
arar hér lengi?
— Þeir verða þar till sýning
um lýkur í vor nema Jón Val-
geír og Daninn, Pauil ili. Þeg-
ar þeir fara fáum við í stað-
inn tvo dansara frá Ams'ter-
dam.
Ég veit ek'ki enn hverrar
þjóðar þeir verða, en ég fer
til Amsterdam til að sækja þá
og kem ef til vill með þeim
hingað til að setja þá inn í
hlutverk sín, ef ég kemst ekki
gerir Ili það áður en hann fer.
•— Hvað er langt síðan þér
komuð hingað til að æfa „My
fair lady“.
— Ég kom í janúarlok og
fer strax eftir frumsýningu,
til Berlínar að setja nýja dans-
ara inn í hlutverk sín þar.
„My fair lady“, var frum-
sýnd í Berlín í október s.l. og
ekkert lát er enn á aðsókn-
inni. Gert er ráð fyrir að sýn
ingar standi minnsta kosti ár.
—: Æfðuð þér dansana í
Berlín?
— Já, ég hef nú æft dansana
í „My fair lady“ 1 fjórum
löndum. Ég samdi þá og æfði
fyrir sýninguna í Kaupmanna-
höfn 1959 og hef æift þá á
fleiri stöðum í Danmörku t.d.
í Odense, þar sem ég var
einnig leikstjóri. Auk þess hef
ég æft dansana í Hollandi, Ber
lín og hér. Svend Aage Lars-
en hefur verið leiíkstjóri á
öllurn þessum stöðum, nema
í Odense, og hann hefur sett
söngleikin á svið á fleiri stöð-
um, með öðrum ballettmeist-
urum.
— Verður ekki leiðigjarnt
að æfa sömu dansana svona
Erik Bidsted, ballettmeistari.
oft?
— Nei, nei. Það er alltaf
skemmtilegt að vinna með
nýju fólki og í hverju landi
hafa dansaramir sinn sérstaka
svip.
— Hvað tefkur við, þegar
þér komið frá Berlín?
— Þá fer ég till Odense til
að æfa „Koddahjal", og 15.
apríl hefjast æfingar í Tívolí.
— Verða margir ballettar á
dagskrá þar í sumar?
— Það verða 5. Ég sem tvo,
Niels Björn Larsen, frá Kon-
unglega leikhúsinu tvo_ og einn
semjum við saman. Ég verð
að æfa samiímis í Kaupmanna
höfn og í Odense, þá verð ég
í Kaupma-nnahöfn á daginn
og fer svo til Odenge á kvöld-
in.
— Dansið þér í ballettunum
í Tívolí í sumar?
— Já í tveimur þeirra.
— Fyrst við erum farin að
tala um Tívolí, dettur okkur
í h'Ug að spyrja ballettmeistar-
ann um unga íslendinginn
Helga Tómasson, sem dans-
aði þa.r við góðan orðstír nokik
ur sumur.
— Ég frétti alltaf af honum
sagði Bidsted og brosti, hann
er hálfgildings uppeldissonur
minn, kom til mí'n að læra að
dansa, þegar hann var smá
strákur. Hann fór til Banda-
ríkjanna eins og þér vitið, og
komst þar að hjá frægum
baHettflókíki.
. Eins og stendur er hann á
dansferð með þessum flokki
Og ég frétti, að á einum stað
hefði sóló-dansarinn forfald-
azt og Helgi var beðinn að
taka hlutverk hans. Hann var
tregur til í fyrstu, en lét þó
til leiðast og fékk góða dóma.
Ég er sannfærðúr um að hann
á eftir að verða mikill dans-
ari.
— Hvað haldið þér um »ýn-
inguna á „My fair lady“ hér
í sambandf við aðrar sýning-
ar sem þér hafið verið með í
að færa upp?
— Ég held að hún standi
þeim á engan hátt að baiki,
þó að sviðið hér sé minna en
t.d. í Berlín, þá kemur það
ekki að sök og leiktjöldin, sem
fengin hafa verið eru mjög
góð. Þau eru frá Kaupmanna-
höfn og kostuðu 500 þús.
danskar krónur .
Ég er sannfærður um að
„My fair lady“ verður vinsæl
hér eins og annars staðar,
enda er þetta sérstaklega
skemmtilegt og gott verk.
Við kvöddum baUettmeistar
ann, því að hann þurfti að
hraða sér til kennslu við ball-
ettskólann, en síðan hann kom
í janúar hefur hann kennt ein-
um flokki skólans, 20 12—13
ára telpum, fjórum sinnum í
viku, þegax æfingar hafa leyft.
Ekki er allt gott, sem er áhrifamik-
Ið og fagurt, en það, sem er gott, er
sevinlega fagurt. — Ninon d’Enclos.
Vér fii- um ekki fegurðina, þó við
leitum hennar heimsendanna á milli,
nema vér berum hana innra með oss
djálfum. — Emersci.
Fc .rðin er sannleikur, -annleikur-
inn er fegurð. — Keats.
+ Gengið +
Kaup Sala
1 Sterlingspurid ... 120,91 121,21
1 Bandaríkjadollar ..„ 42,95 43,06
1 Kaiidadollar .... 40,97 41,08
300 Danskar krónur 623,93 625,53
100 Norskar krónur .. 603,00 604,54
1C0 Sænskar krónur 832,71 834,86
110 Finnsk mörk .... 13,37 13,40
100 Franskir fr. 878,64
100 Belgiskir fr .... 86,28 86,50
100 Svissneskir fr. .... 990,78 993,33
100 Tékkn. krcnur ... 598,00
100 Austurr. sch .... 166,18 166,60
100 Pesetar .... 71,60 71,80
100 V-þýzk -nörk „ 1.073,20 1.075,96
1000 Lírur 69,20 69,38
100 Gyllini ^ 1.186,44 1.189,50
Þú getur sjálfum þér um
kennt. Það varst alltaf þú, sem
sagðir: „Við skulum bara leyfa
Pening'askápur
Mig vantar notaðan pen-
ingaskáp, ekki mjög stóran.
Tilb. sé skilað á afgr. Mbl.
fyrir nk. fimmtud., merkt:
„X-3 — 4061“.
Til sölu
mjog góður japanskur sjón-
auki. Verð kr. 2.500,00. —
Uppl. í Húsgagnaverzlun-
inni Þórsg. 15 (Baldursgötu
megin). Sími 12131.
Hafnarfjörður
Saumanámskeið h e f s t
mánudaginn 12. marz. —
Uppl. í síma 50428 kl. 1—4.
Einnig Selvogsgötu 2.
Guðrún Jónsdóttir.
Óska eftir kvöldvinnu
Hef Samvinnuskólapróf. —
Tilboð sendist afgr. Mbl.
fyrir næsta laugardag,
merkt: „4064“.
Stúlka óskast
til heimilisstarfa á fá-
mennu heimili. Mætti hafa
með sér barn á fyrsta ári.
Uppl. í síma 15837.
Barngóð kona
óskast til að gæta bams
frá kl. 10—4.30. Uppl. í
síma 15402 eftir kl. 5.
I Vandaður, vel með farinn
barnavagn Ul sölu. Einnig
barnagrind með botni. —
Uppl. í síma 1-29-30 eftir
kl. 5 í dag.
Oska eftir
2 herb. og eldhúsi á hæð.
Tvennt fullorðið í heimili.
Skilvís greiðsla. — Tilb.,
merkt: „Strax 66 — 4126“
sendist afgr. blaðsins.
íbúð til leigu
2ja herb. íbúð með eldhúsi,
búsgögnum c % síma til
leigu við Miklatorg. Tilboð
merkt: „610 — 4131“ send-
ist blaðinu fyrir næsta
föstudag.
Barngóð kona
óskast til að passa eins árs
gamalt barn milli kl. 1—6
virka daga. Tilboð merkt:
„Hagar — 4128“ sendist
Mbl. fyrir föstudag.
Ung hjón,
. sem bæði vinna >úti, óska
eftir 2ja herb. íbúð sem
fyrst. Uppl. í síma 17843
eftir kl. 6.30 e. h.
Barnarúm
2 gerðir.
Húsgagnavinnustofa
Srghvatar Gunnarssonar
Hverfisgötu 96. Sími 10274.
Barnakerra
Sem ný Silver Cross barna-
kerra til sölu, Holtsgötu 25
2. h. t. v. — Sími 11490.
fbúð óskast
3—4 herb. íbúð óskast til
leigu strax. Tilboðum sé
skilað fyrir 10. þ. m. merkt:
„íbúð — 4129“.
Kaupmenn — Kaupfélög
NÝ SENDING
„Ameríski“ heimilissloppurinn
E. Th. Hiathiesen h.f.
Laugavegi 178 — Sími 36570
BAÐKER
með tilheyrandi fittings og blöndunar-
tækjum, nykomið
Pantanir vitjist sem fyrst.
A. Jóhannsson & Smith h.f.
Brautarholti 4 — Sími 24244
kettinum að fara út“.
★
Sprengidagur. — Bf einhver I
hél't ekki föstuna, hafði hann
þau víti að missa leifarnar í |
föstuiloikin og páskak'etið í tilbót,
og þóttu það þungar skriftir,
sem von var. Svo fannst þeim
Guðrúnu, konu Sveins á Þremi,
og Margréti, hjákonu hans (á
síðarf hluta 18. aldar). Þær voru
svangar á föstunni o;g fóru að
ná sér í bita ofan úr ræfrinu,
meðan karl var í húsunum. En
í því kom karl inn, og varð
þeim þá svo bilt, að þær misstu
ketið ofan á gólfið. Þá varð I
karli að orði: „Hirtu matinn
Margrét, en komdu Guðrún, og
taktu út á lílkamanium það, sem
þú hefir til unnið“.
(ísl. þjóðhættir).
Tilboð óskast í
Volkswagen 1962
fólksbifreið í þvl ástandi, sem bifreiðin nú er í eftir
árekstur. Bifreiðin verður til sýnis á Bifreiðaverkstæð-
inu Kópavogshálsi við Álfhólsveg, miðvikudaginn 7.
marz 1962 milli kl. 13—17. — Tilboðin óskast send
Samvinnutryggingum, Bifreiðadeild, herbergi 214, fyr-
ir kl. 17 á föstudag hinn 9. marz 1962, merkt:
„Volkswagen — 4130“.
Nýkomið
IIOLLENZKIR KVENSKÓR
IIOLLENZKTR KULDASKÓR
brúnir og svartir
AMERÍSKAR MOKKASÍNUR
SKÓVERZLUN ÞÓRÐAR PÉTURSSONAR
Aðalstræti 18