Morgunblaðið - 06.03.1962, Side 24

Morgunblaðið - 06.03.1962, Side 24
Fréttasimar Mbl — eftir lokun — Erler.dar fréttir: 2-24-85 Inniendat fréttir: 2-24-84 54. tbl. — Þriðjudagur 6. marz 1962 ---------------n ÞORSKURINN Sjá bls. 10. Víð/r með yfir 20 lestir í róðri SANDGERÐI, 5. marz. — Hingað komu 25 bátar sl. laugardag með samtals 235,5 lestir af fiski. Mestan afla höfðu Jón Garðar 15,1 lest, Gylfi II 14,6 lestir og Guðmundur Þórðarson 14,3 lestir. Fjársöfnunin vegna sjóslysanna í FYRRI viku var hafin söfnun til styrktar bágstödd um skjólstæðingum þeirra manna, sem drukknað hafa í sjóslysunum að undan- förnu af Sserúnu, Elliða og Stuðlabergi, þar sem nærri 30 börn hafa orðið föður- laus. Eru menn hér með minntir á þessa söfnun og þeir sem hafa hugsað sér að láta af hendi rakna hvattir til að gera það sem fyrst. Gjöfum er veitt mót- taka iijá blöðunum, í bisk- upsskrifstofunni, hjá sóknar prestum, skrifstofu LÍÚ, og skrifstofu Eggerts Kristjáns sonar. Stevsnson nírnm hjd SÞ New York, 5. marz (AP). ADLAI E. Stevensoni, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, bar það til baka í dag, að hann myndi verða í framboði fyrir New York í öldungadeildar- kosningunum á hausti komanda, en, blað eitt í New hafði gefið þetta í skyn í dag. Stevenson sagðist, sem kunnugt væri, þegar hafa neitað að vera í framboði fyrir demókrata í Illinois og það sama gilti um New Yörk. Forsetinn álítur bezt, að ég verði áfram hjá S.Þ., sagði Stev- enson, og ég held að hann hafi á réttu að standa. Þar af leið- andi verð ég ekki frekar í fram- boði í New York en í Illinois. Aflann fengu bátarnir ýmist í net eða á línu. 1 gær kom Víðir II hingað með 20,2 lestir af fiski, sem hann hafði fengið í þorsknót. Þar af voru 16 lestir af ágætum þorski og 4 lestir af smáýsu. Heldur létu aðgerðarmenn illa yfir ýs- unni, því þeir voru jafn lengi að gera að henni og öllum þorsk- inum. Mjög mikil atvinna er nú hér í Sandgerði. — Páll. T o garasölur PÉTUR Halldórsson seldi í Hull í gær 192 lestir fyrir 8404 sterl- ingspund. Og Jón forseti seldi í Cuxhaven 150 lestir fyrir 194 þús. mörk. Fylgishrun kommúnisfa í Sveinafélagi pípu- lagningarmanna FYLGISTAP kommúnista í verkalýðsfélögunum heldur stöðugt áfram. Sl. sunnudag var haldinn aðalfundur í Sveinafélagi pípulagningar- manna. Kommúnistar hafa Lítil veiði Akrancsbáta AKRANESI, 5. marz. — Aðeins 2 bátar eru á sjó hér í dag. Og eru þeir með þorskanet. Tveir þorsRnetabátar vitjuðu um í gær, sunnudag og fiskuðu nauða- lítið. Á laugardag var heildar- afli bátanna hér 112 lestir. Afla- hæstir voru þessir þrír: Skipa- skagi með 13,5 lestir, Bjarni Jó- hannesson 13, og Farsæll 11 lest- ir. Hringnótabáturinn Haraldur fékk 100 tunnur af síld austur við Eyjar í fyrradag. Skirnir lagði netin í gær, sunnudag og eru þá 7 bátar sem eiga hér þorskanet í sjó. — O. farið með stjórn í þessu fé- lagi árum saman. Nú urðu aftur á móti úrslit kosning- anna þau, að lýðræðissinnar voru kjörnir í stjórn með miklum meirihluta. Form. var kosinn Bjami Guð- brandsson með 27 atkv., en fyrrv. form., Rafn Kristjánsson, hlaut aðeins 12 atkv. Varaform. var kjörinn Ólafur Marteinn Pálsson með 30 atkv., en fram- bjóðandi kommúnista fékk 7 atkv. Einnig var ritari félagsins, Jónas Valdimarsson, kosinn með svipuðu atkvæðamagni. Aðrir í stjóm urðu sjálfkjörnir, en þeir eru: Magnús Tómasson, gjald- keri og Einar Bæringsson, gjald keri Styrktarsjóðs. Varastjórn er þannig skipuð: Bjarni Sæmunds son, Gústaf Kristjansen og Gunnar E. Páisson. Gœftir hjá Eyja- hátum en afli rýr Vestmannaeyjum, 5. marz. SAMA ágætis veðrið daglega og alltaf róið. í gær komu á land um 350 lestir af fiski og var hæsti bátur með um 14 lestir. Annars var fiskiríið misjafnt, og ekki alveg allir á sjó á sunnu- deginum. Flestir höfðu 4—6 lest- ir. í dag er ennþá tregari afli, og um 7 leytið í kvöld var mesti Kaldar kveðjur til Reykvíkinga SÍÐASTL. sunnudag voru Reykvíkingum sendar kald ar kveðjur í ritstjórnar- grein í „Tímanum“. Þar er talað um „sora þeirra spilltu sérgæðings- og fjár gróðaafla, sem grafið hafa um sig við rætur borgar- meiðsins í fjörutíu ár“ o.s. frv. Þetta minnir á það, þegar „Tíminn“ líkti Esj- unni við útrunninn fjós- haug. Um þetta hatur á höfuðborginni er fjallað í riistjornaigrein í dag. Ljósmyndari Morgun- blaösins, Olaiur K. Magn- ússon, tók þessa mynd yf- ir bæmn og Esjuna í gær. afli, sem ég heyrði talað um, 8—9 lestir, og margir höfðu 2—4 lestir. Annars koma þeir sem mestan afla fá yfirleitt seinna að. 8 bátar eru byrjaðir netaveið- ar, en afli hefur verið sáralítill hjá þeim og hvað minnstur í dag. Eiginlega er heldur lítill hugur í mönnum að taka netin, eins og oft vill verða þegar loðnan er gengin yfir. Lagarfoss er hér í dag og er að lesta ýmsar sjávarafurðir. Ber þar mest á freðsíld um 400 lestir, skreið um 70, refafóður 50 lestir. Vestmannaeyjabátar tveir voru að reyna með hringnót, en varð lítið úr því hjá þeim, höfðu ekki heppileg veiðarfæri. — B. Guðm. Fékk 230 þús. kr. sekt ÍSAFIRÐI, 5. marz. — Skipstjór- inn á brezka togaranum St. Elstan frá Hull, sem varðskipið Þór tók í landihelgi á Húnaflóa í síðustu viku, kom fyrir rétt á ísafirði. Hefur dómur nú verið kveðinn upp þar. Var skipstjór- inn dæmdur í 230 þús. króna sekt og veiðarfæri og afli skipsins gert upptækt til landhelgissjóðs. Eins og áður hefur verið frá skýrt kom það fram í réttinum að skipstjórinn rengdi ekki staðsetn- ingu varðskipsmanna, en taldi skv. sínu korti að hann væri ekki fyrir inhan landhelgisiínuna. Skipstjórinn áfrýjaði til Hæsta réttar. Setti umboðsmaður tog- arans tryggingu fyrir hann og lét togarinn síðan úr höfn. — Þau létu sig ekki muna um' að leysa af hendi sitt hlut- verk í skíöalandsgöngunni á sunnudaginn þessi litlu, og gengu öll hjálparlaust sína 4 km. á skíðum. Þetta eru allt Ármenningar og gengu i hópi Ármenninganna í Jósefsdal. Þau eiga líka öll til skíða manna að telja. Krakkarnir eru, talið frá vinstri: Mar- grét Waage, 7 ára (dóttir Sigurðar S. Waage), Krist- mann Guðmundsson Árnason, 4 ára (sonur Árna Edwins- sonar og dóttur sonur Krist- manns rithöfundar), Auður Harðardóttir, 9 ára og Guð- rún Harðardóttir, 5 ára (dæt ur Harðar Hafliðasonar og Ingu Árnadóttur), Eyrún Magnúsdóttir, 5 ára (dóttir Magnúsar Eyjólfssonar), Kristín Waage, 10 ára (dótt- ir Sigurðar S. Waage) og Margrét Ásgeirsdóttir, 5 ára^ (dóttir Ásgeirs Eyjólfssonar). Á myndina vantar einn 4 ára, Sigurbjarna Þórmundsson. Síæmar gæítir og lítill ofli HORNAFIRÐI, 5. marz. — Á Hornafirði voru gæftir með ósköpum stirðar í febrúarmán- uði. í allt voru farnar 82 sjó- ferðir af 12 bátum. Þar af fóru línubátar sem eru 8 alls 71 sjó- ferð Og 4 handfærabátar 9 sjó- ferðir. Afli hefur alltaf verið fremur lítill. Aflinn í mánuðin- um varð alls á þessa 12 báta 555 lestir af slægðum fiski með haus. Frá áramótum er aflinn alls 878,5 lestir. Mestan afla hafa Gissur hvíti 167,3 lestir í 22 sjó- ferðum og Ólafur Tryggvason 163,3 lestir í 25 sjóferðum. Nokkuð var veitt af loðnu seinni hlutann af febrúar, en ekki fisk- aðist neitt á hana. Flestir línu- bátar eru nú að byrja með net, en útlitið er ekki gott, eins og er, hinsvegar er sæmilegur afli hjá handfærabátum. — Gunnar. Ekið á maimlansan bíl Á TÍMABILINU frá kl. 9 á sunnu dagskvöld til kl. 9 á mánudags- morgun var ekið á mannlausan bíl við Óðinstorg og bíllinn skemmdur töluvert. Eru það til- mæli rannsóknarlögreglunnar að ef einhverjir kynnu að geta gef- ið upplýsingar um mál þetta, að þeir gefi sig fram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.