Morgunblaðið - 15.03.1962, Qupperneq 10
10
MORG1JNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 15. matrz 1962
Á SUMRIN er allar helgar
gestkvæmt í Þórsmörk, en á
vetrum fara þangað aðeins
einstaka ferðagarpar ef veð-
ur er hagstætt, eins og nú.
Einn þeirra er Karl Sæm-
undsson, sem um síðustu
helgi tók myndirnar hér á
síðunni þar inn frá. Þá fóru
félagar úr Ferðafélagi íslands
og nokkrir aðrir í Þórsmörk
í stórum hópferðabíl frá Gísla
Eiríkssyni. Sagði Karl, sem
fór með í síðustu ferð Ferða-
félagsins þangað inn eftir í
haust, að síðan hefðu ferða-
menn skrifað sig i gestabók-
ina í skálanum einu sinni, í
janúar.
Það var ágætt færi inn-
eftir, aðeins árnar farar-
tálmi, en þær eru ekki á is.
Tók nokkuð langan tíma að
finna góða leið yfir Kross-
ána, en ailt gekk vel. í Þórs-
mörk var yndislegt veður. Á
laugardagskvöldið var farin
mjög skemmtileg gönguferð
í Húsadal í tunglsljósi, norð-
urljósum og stjörnubjörtu. Þá
var 12 stiga frost. Á sunnu-
daginn var farið í gönguferð-
ir um nágrennið um morg-
uninn og í Stakkholtsgjá eft-
ir hádegi og komið við hjá
Seljalandsfossi á heimleið. —
Það er mikill munur á Þórs-
mörk að vetri og sumri. En
mér finnst ekki síður gam-
an að koma þangað að vetr-
arlagi og sjá stórfenglega
náttúru í vetrarskrúða, sagði
Karl Sæmundsson, er hann
lánaði okkur myndirnar.
Farið á ís eftir Stakkholtsgjá, sem gengur inn í Eyjafjöllin að norðan. Innst í henni er
ljómandi fallegur foss í klakaböndum og gengur íerðafólk oft þaugað.
í vetrarham
Vað á Krossá kannað, en reyndist óíært.