Morgunblaðið - 15.03.1962, Síða 24

Morgunblaðið - 15.03.1962, Síða 24
Fiéttasímar Mbl — e f t i r loknn — Erletsdar fréttir: 2-24-85 Innlendat fréttir: 2-24-84 IÞROTTIR Sjá bls. 22 62. tbl. — Fimmtudagur 15. marz 1962 Islendingar reyktu 218 ■ J- A SL. ÁRI voru seld á fs-1 landi 217.724 mille af sígar- ettum eða nærri 218 millj. sígarettur. Þessar tölur, sem blaðið' fékk í gær hjá Tóbaks I einkasölunni, eru mjðg at- hyglisverðar í sambandi við fréttir sem berast erlendis frá um að sígarettureykingar valdi krabbameini í lungum Inflúenzufaraldurinn: Unglingaskólar taka til starfa á föstudag Barnaskólar eftir helgi HLAÐIÐ féklk í gærtovöldi þær upplýsingar hjá skriístotfu borg- arlæknis að ástandið vegna in- flúenzunnar virtist óbreytt, að öðru leytj en því að nokkur breyting væri á aldri þeirra er veikina tækju. í fyrstu voru það fyrst og fremst unglingar á dkóla Skyldualdri unglingaskóla sem veikina tóku. Nú virðist ekki síður um að ræða böm á barna- Skólaaldri, sem veikina taka, og þá fyrst og fremst yngri en 10 ára. 1 samræmi við það munu ung- lingaskólar taka til staria á föstudaginn, en barnaskólarnir elkiki fyrr en á mánudaginn. Lítið hefir enn borið á þvi að kornböm tækju veikina. Influensunnar gætir enn lítið í fiskverkunarstöðvunum í Vest- mannaeyjum, en á Akranesi höfðu 60 starfsmenn fisikvinnslu- stöðvanna 5 iagst í gær. Símaði fréttaritari blaðsins á staðnum að hjá Fiskver h.f. hefði vantað 21 mann, Heimaskaga h.f. 20, Haraldi Böðvarssyni & o. 15, Sig urði Hallbjarnarsyni & Co 3, en engann í fiskverkunastöð Þórð- ar ÓSkarssonar. Hljómleikum Sinfóníúhljóm- Bingó til styrktar sjóslysasöfnuninni SVO sem kunnugt er, þá var bingókvöld í þremur samkomu- húsum sl. sunnudag þar sem all- ur ágóði rann til sjósiysasöfnun- arinnar. Veitingahúsið Lidó var ekki falt þetta kvöld, þar sem húsið var leigt út vegna afmælishátíð- ar ÍR. En þar sem bingókivöld í Lídó hafa notið mikilla vin- sælda í vetur hefur forstjóri og starfsfólk Lídó sameinazt um að gangast fyiir bingókvöldi þar í kvöld, þar sem allur ágóði renn- ur í sjóslysasöfnunina. Og þar með er ekki sagan öll sögð, held- ur hefur farið fram fjársöfnun meðal starfsfólksins og allir vinn- ingar á bmgókvöldinu keyptir fyrir þá upphæð, auk þess, sem allt starísfólk hússins gefur vinnu sína þetta kvöld. Hljóm- sveit Svavars Gests leikur fyrir dansi, en Svavar Gests mun jafn íramt stjórna bingóinu. sveitarinnar sem verða áttu í kvöld hefur verið frestað, þar eð 14 af 50 hljómisveitarmönn- um eru lagstir í inflúenzu. og athuganir heilbrigðisyfir- valda hér og erlendis á því hvaða ráðstafanir hægt sé að gera. Auk þess sem Islendingar btenna upp í reyk 218 millj. sígarettna, settu þeir á árinu 1961 tæpar 34 lestir af nef- tóbaki upp í nefið á sér. — Alls seldist á árinu 1961 tó- bak, eldspýtur og vindlinga- pappír fyrir 198,7 millj. kr. Ef fundin er meðalneyzla vind linga á hvert mannsbarn á land- inu kemur í Jjós, að sérhver ís- lendingur, ungur sem gamall, reykir um 1280 vindlinga á ári. Ber þess þó að gæta að farmenn og fjölskyldur þeirra munu yfir- leitt reykja tóbak. sem ekki fer um einkasöluna, svö meðalneysl- an er töluvert meiri. Meðalneyslan áðurnefnda þýð- ir þó að sérhver íslendingur reyk ir um 3 sígarettur á dag til jafn- aðar. Tékkar kaupa þilplötur afFinnum — en selja okkur á upp- sprengdu verði MORGUNBLAÐIÐ hefur fregnað, að verð á „masón- Seljalandsfoss er ekki klakaböndum að vísu, en ó hætt mun að segja að hann sé í vetrarskrúða eftir þennan frostakaflá. Þessa mynd og fleiri fallegar vetrarm.yndir, sem birtar eru á hls. 10, tók Karl Sæmundsson í ferð inn^ í Þórsmörk um s.l. heigi. íti“ og svipuðum plötum, sem við kaupum af Tékkum og Pólverjum, sé allt að 49% hærra en á heimsmarkaðn- um. En á sama tíma sem við kaupum þessa vöru frá Tékkóslóvakíu, þá kaupa Tékkar „masónít" af Finnum og auðvitað á heimsmarkaðs- verði. Þótt mikið hafi verið rýmkað um innflutningshöft- in, þá eru enn, eins og kunn- ugt er, allmargar vöruteg- undir bundnar við clearing- löndin svonefndu og þar á meðal þessar þilplötur, sem geysimikið eru notaðar hér á landi. Miklar verðlækkanir hafa orðið á þessari vöru á frjálsum markaði, og um áramótin var svo komið, að mismunurinn á verðinu frá kommúnistaríkjunum og heimsmarkaðsverðinu var orð inn mjög mikill. Þannig var verðið frá Póllandi t.d. allt að 49% hærra en frá Finn- landi. Er þetta enn eitt dæmið um það, hve óhagkvæm við- skiptin við kommúnistaríkin eru á mörgum sviðum, enda eiga þau verulegan þátt í því, að kjör hafa ekki batn- að jafnmikið hér síðustu ára- tugina eins og í nágranna- löndunum, þar sem við- skiptafrelsi hefur ríkt. \ ÞESSI mynd af franskri ungfrú í þjóöbúningi, um- vafin gulum og ilmandi mímósublómum, var reynd ar tekin í Reykjavík í gær og minnti á að suður í Nissa er sumarið að koma. — Borgarstjórnin þar lét | skera þessi blóm á föstu- dagsmorgun og senda á- leiðis til Islands, til að minna Frakklandsfara og gesti ferðaskrifstofunnar Sunnu á „frönsku kvöldi“ á að á suðurslóðum væri sumarið að koma. En blóm in strönduðu á miðri leið og komu ekki fyrr en í gær. Mímósurnar voru enn yndislega fallegar og ilm- andi, en nellikur er fylgdu höfðu fölnað. Mademoiselle Cocheret, dóttir franska ræöismanns- ins hér, sést hér klædd þjóðbúningi frá Normandí, að skoða blómin, þar sem þeim er stillt út í Sunnu í Bankastræti. í dag ætlar Guðni Þórðarson í Sunnu að gefa gestum af franska kvöldinu og öðrum við- skiptavinum mimósublóm meðan birgðir endast. Ljósm.: Ól. K. Mag. Baugfingur græddur á manns hönd í stað þumalfingurs ÁRNI Björnsson, læknir, hefur framkvæmt merka aðgerð á sjúklingi, sem fyrir rúmu ári síð- an varð fyrir því slysi að missa þumalfingur vinstri handar og hluta af baugfinigri sömu handar. Hefur það, sem eftir var af baug- fingri, nú verið flutt til og grætt á höndina í þumalfingurs stað. Þann 29 janúar 1961 varð Þór- ir Thorlaeius Efstasundi 71 hér í bæ , fyrir því slysi að lenda með höndina í „fræsara" á trésmíða- verkstæði. Tók af þumalfingur vinstri handar og miðkjúkan gekk úr baugfingri sömu handar. Þórir fór þegar á slysavarð- stofuna og þar var baugfingurinn græddur saman. Leið síðan fram til júnímánaðar si. suimars. þá var Þórir lagður inn á Land- spítalann, þar sem Árni Björns- son framkvæmdi aðgerð á hend- inni. Það, sem eftir var af baug- fingrinum, var nú tekið og fært yfir á þumalfingurinn. Tók sú aðgerð fjórar k'lukkustundir og var Þórir sarnfléytt viku á spítal- anum. Önnur aðgerð var fraimkvæimd í nóvember sl. Var þá tekin bein- flís úr írambandlegg Þóris, og fest 1 þann helming liðarins, sem eftir var af þumalfingrinum og grædd við það, sem eftir var af baugfingrinum, og grætt hafði verið á höndina í þumalfingurs en an ætlunin að taka sinar og tengja í bðinn, og með því er gert ráð fyrir að Þórir muni geta hreyft liðinn, sem hann hef ur ekki getað síðan slysið varð. „Mér finnst furðulegt, að þetta skuli vera hægt,“ sagði Þórir í viðtali við Mbl. í gær. „Höndin er þegar orðin betri en ég hafði nokkurn tíma búizt við. Eg hefi ekki mátt beita nýja þumalfingr inum á móti hinum á meðan bein ið hefur verið að jafna sig. Eg hefi nú fengið leyfi til þess að vinna, en verða að sjálfsögðu að fara mjög varlega með höndina.“ „Ef allt gengur eins og það hefur gengið til þessa, þá hefi ég fengið mikinn bata“ sagði Þór stað. Á hausti komanda mun síð- ir að lakum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.