Morgunblaðið - 13.04.1962, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.04.1962, Qupperneq 14
14 mo Rcrn\Jt 1 Á D 1Ð Föstudagur 13. apríl 1962 v DppgJö"- Get tekið að mér uppgjör og bókhald fyrir lítið fyrirtseki. Tilboð merkt: „Uppgjör — 4303“ sendist Mbl. fyrir 17. þ.i Nýkomið Glæsilegft úrval af ódýrum SUMARKJÓLAEFNUM verð aðeins kr. 44.60 m. Oomu & herrabúðin Laugavegi 55 VöruhifreiB árgangur 1955 1% tonna vökvakrana til sölu. Selst einnig sitt í hvoru lagi. Upplýsingar í síma 10427 næstu kvöld. Fotboltaspil Fótboltaspil Margeftirspurðu fótboltaspilin Komin aftur. Pantanir óskast sóttar sem fyrst. Sendum gegn póstkröfu RITFANGAVERZLUN ÍSAFOLDAR Bankastræti 8 — Reykjavík. Lokað vegna jarðarfarar frá kl. 12 á hádegi. Bókabúð Olivers Steins Hafnarfirði. Skrifsfofur vorar verða lokaðar vcgna jarðarfarar föstudaginn 13. apríl frá kl. 2—4 e.h. LÝSI H.F. Guðrún Magnúsdóttir í DAG er til moldar borin, vest- ur á Bíldudal, frú Guðrún Magnúsdóttir. — Hún var fædd 16. júní 1875. Dáin 27. marz sl. Hún var fædd að Geitagili í Ör- lygshöfn við Patreksfjörð. — Foreldrar hennar voru Þórdís Jónsdóttir og Magnús Sigurðs- son. Ólst hún upp í stórum syst- kinahóp, þar sem börn þeirra hjóna voru 10, sem til aldurs komust, allt dugnaðar- og starfs fólk. Má þar til nefna Ólaf Magnússon, sem var stofnandi og eigandi fyrirtækisins Fálkinn hér í bæ. — Dvaldist Guðrún á heimili hans, er hún var við nám í fatasaum o. fL á ungdóms- árum sínum. Guðrún fluttist til Bildudals 1906 og giftist þar 1. marz 1907 Jón Ólafssyni, mætum manni. Var þeim hjónum tveggja barna auðið, dreng, sem dó ungbarn og hét Gunnar Just og dóttur, sem heitir Ester; Ebba gift Engilbert Guðmundssyni, tannlækni, bú- sett í Reykjavík. Fósturdóttir þeirra hjóna er Ósk Hallgríms- dóttir, gift Ingimar Júlíuissyni, búsett á Bíldudal. Mann sinn missti Guðrún 1942 eftir 35 ára farsælt hjóna- band. Heimilishættir og upp- bygging heimilis þeirra bar þess ljósan vott, hvað samhent þau voru um uppbyggingu heimilis síns. Öllum leið vel. sem komust í kynni við þessi hjón og nutu alúðar þeirra og gestrisni. Get ég sem þessar línur rita, borið um það af eigin raun. Meiri tryggð og viafestu hef ég ekki hitt á lífsleið minni, en hjá þess ari konu, sem nú er horfin af sjónarsviðiniu. Allt, sem hún tók að sér og taldi sér skylt að vinna, var gjört með þeirri vandvirkni og samvizkusemi, sem ein-kenn- ir góða manneskju. — Blómin og trén, í fallega garðinum henn ar, máttu ekki líða við það, þó bún væri orðin lasburða, hún I brást þehn ekki heldur en öðr- um — að vinna skyldustörfin. Hún var meðlimur í slysa- varnadeild, sem starfar á Bíldu- dal, tók hún virkan þátt i því starfi og var ótrauð í því að hvetja konur til að starfa þar. Hún var sjómannskona og skyldi hvað öryggi þeirra er mikilvægt þeim, sem eiga ástvini á sjón- um. Hún varð eins og fleiri, á þess um hérvistardögum, að mæta erfiðleikum, ástvinamissi og veikindum. — En ailtaf hélt hún jafnvæginu »g vildi helzt enga vorkunnsemi. Hún hafði óbifan- legt traust á handleiðslu guðs, og gaf allt sitt láf á hans vald. Hún unni dóttur sinni, tengda- syni og bamabömum, sem bjuggu í fjarlægð sem á allan hátt héldu þeim tengslum við hana, sem kærleiksrík móðir þráir og þarf að njóta hjá ást- vinum sínum til að gjöra ævi- kvöldið bjart. Hún átti heima á Bíldudal meira en 'hálfa öld. — Bildudal- ir er lítið kauptún, þar sem all- ir þek'kjast. Margir hafa komið í litla snyrtilega húsið, sem Úlpumarkaður Sérstök hagkaup. Barnaúlpur frá kr. 165. Miklatorgi (við hliðina á ísborg). Iðnaðarhúsnœði Ca. 120 ferm. óskast til leigu sem fyrst. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: .,263‘,. Útför mannsins míns og föður okkar KRISTJÁNS SVEINSSÖNAP Túngötu 20, er andaðist 7. þ.m. fer fram frá Keflavíkurkirkju laugar- daginn 14. apríl. Athöinin hefst kl. 14 að heimili hins látna. Jóhanna Þorsteinsdóttír og börn. Við þökkum af alhug þeim fjölmörgu sem sýnt hafa okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför STEFANÍU G. GUÐMUNDSDÓTTUR Sigurður Eggertsson, Jónína Sigurðardóttir. Sendum öllum nær og fjær alúðar þakkir sem auð- sýndu samúð og vinarhug við andlát og jarðarför konu minnar, móður, tengdamóður og ömmu MATTHILDAR KRISTJÁNSDÓTTUR Halldór Jónsson, böm, tengdahörn og barnabörn. Kópavogshúar Opnuð er ný málningarvöruverzlun við Kársnes- braut, á móti Blómaskálanum. Sendi heim eftir kl. 6. LITASKÁLINN. Kona óskast í bakstur og fleira frá kl. 10—7 5 daga vikunnar. Upplýsingar ' síma 50399 eða Veitingastofunni Laugavegi 126. Matsvein á vélbát Ungur maður, lærður matsveinn, óskar eftir að kom- ast á gott fiskiskip. Er til viðtals á kvöldin í síma 19378. stendur við elzitu götuna i kaup- túninu, — eða stanzað við girð- inguna, við failega blómagarð- inn — og átt orðastað við gömlu kcnuna, sem allir vildu sýna vmsemd og hjálpsemi, sem hun var þakklát fyrir. Hennar mun lengi vera minnzt þar með sökn- uði. Eg kveð þessa vinkonu n.ína með hjartans þakklæti £rá mér og börnum mínum og með innilegri saimúð Ui ástvina hennar. Viktoría Bjarnadóttir. — Utan úr heimi Framh. af bls. x2. þungt á marga, sem slík viðskipti stunda. Lord Ritchie, sem er yfir maður kauphallarinnar, lýsti því nýlega yfir, að nú væri svo kom- ið, að „City“, þ. e. fjármálamenn- irnir væru nú að missa þolin- mæðina gagnvart stjórninni. Skatturinn verður þó ekki inn- heimtur, fyrr en að ári liðnu, og verður þá ekki eins hár og tíð- kast annars staðar, nálgast til dæmis hvergi skatt þann sem lagður er á slíkar tekjur í Dan- mörku, enda mun hann þar hæst- ur, að því er brezka blaðið Fina cial Times segir nýlega. Aðalreglan í hinum nýju lög- um, er sú. að ágóði af hlutabréf- um og öðrum verðbréfum, sem seld eru innan sex mánaða frá því þau voru keypt, verði skatt- skyldur. Ágóði af fasteignasölu verður sömuleiðis skattskyldur, ef fast- eign er seld innan þriggja ára, frá því kaup fara fram. Undan- skilin eru þó þau hús, sem mena búa í sjálfir. Minnl háttar breytingar á sköttum lýok'krar breytingar verða gerðar á erfðafjárskatti, og er hann skv. þeim aðeins reiknaður af arfi, er hann ær 4000 pundum. Áður miðaðist hann við 3000 pund. Síðan smáhækkar hann, unz nær 6000 pundum, en muu að öðru leyti óbreyttur, Sikattfríðindi gamals fólks verða og aukin, og fríðindi her- manna verða og aukin að nokkru, Viðtöbumar Þær viðtökur, sem fjárlaga- frumvarpið fékk, að þessu sinni, eru mjög misjafnar, og sýndist hverjum sitt um breytingar á sölu skattinum eftu- neyzluvenjum og atvinnu. í kauphöllinni varð þess þegar vart, að hlutabréf í bílaverk- smiðjum stigu, en hins vegar féll hlutabréf í súikkulaðiverfcsmiðj- um og kexiðnaðarfyrirtækjum. — Minning Framh. af bls. 11. að hann veldist til forystuhlut- verks í störfum sínum, því hanu var gæddur óvenjulegum hæfi- leikum á þessum sviðum. Mun vóirt oimælt, að fáir eða engir íslenzkir verzlunarmenn hafi verið betur kynntir innanlanda eða utan að heiðarleik og sann- girni í viðskiptum. Er mér minnisstætt, er ég starfaði hjá honum, hversu orð hans voru mikils metin, og hversu miki'lá trausts menn báru til hans og fyrirtækis hans. En auk þess sem Bernhard Petersen var skörungur á sviði verzlunar- og framleiðslumála var hann einstaklega ástríkur heimilisfaðir og félagi. Glaður og reifur var hann á góðri stund, enda munu allir, sem honum kynntust, minnast gam- ansemi hans og góðvildar, gest- risni og höfðingslundar. Þessum fátæk'legu orðum mín- um vil ég ljúka með því að þakka Bernhard allan stuðning hans, beinan og óbeinan, og votta konu hans og börnum inni legustu samúð mína. Vitandi það, að skarð hans verður aldrei fyllt, þá getum við, sem þennan höfðingja þelcktum, samt glaðst yfir því, að viðkynningin við hann hefur gert okkur að betri mönnum. Othar Hansson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.