Morgunblaðið - 10.05.1962, Síða 2

Morgunblaðið - 10.05.1962, Síða 2
2 MOViGVN BL AÐ1Ð Fimmtudagur 10. maí 1962 4thyglisverð yfirlýsing forseta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar Gripið til örþrifaráðs — Ofsöknir boðað- ar á hendur 5. manni framboðslista Sjálfstæðisflokksins, Ama Gretari Finnssyni, lögfræðingi Á FUNDI Bæjarstjórnar Ilafn arfjarðar s.l. þriðjudag gerð- ist tvennt, sem einkum vakti athygli manna og sem ótví- rætt bendir tii þess vonleysis, sem gripið hefir um sig á meðal þrenningarinnar Krist- jáns Andréssonar, Stefáns Gunnlaugssonar og Kristins G unnarssonar, vegna væntan legra bæj arstjómar kosnin ga. Vonleysi þeirra orsakast augljóslega af öruggri vissu þess að meginn þorri Hafn- firðinga hefir gert sér þess fulla grein að það eru þeir, sem bera meginábyrgðina á þvi að fjármál bæjarins og bæjarfyrirtækja eru nú kom- in í algert öngþveiti. Þrátt fyrir þá leynd, sem þeir þremenningamir hefðu kosið að hafa um mál þessi fram yfir bæjarstjómarkosn- ingarnar, hefir þeim þó eigi tekist að hindra það að aug ljós merki hafi sést um hversu komið er. Þannig var Bæjarsjóður Hafnarfjarðar nýlega dæmd- ur til greiðslu yfir 3 millj. kr. skuldar Bæjarútgerðarinn ar við Framkvædabanka ís- lands auk yfir hundrað þús- und króna málskostnaðar, allt án þess að framkvæmdastjóri Bæjarútgerðarinnar né bæj- arstjóri gæfu útgerðarráðs- mönnum eða bæjarráðj kost þess að fylgjast með gangi þessara mála. Vitað er að fjölmargar kröfur liggja víðsvegar hjá lögfræðingum til innheimtu. Gífurlegar vanskilaskuldir innlendar og erlendar hafa hrúgast upp og ógna efna- hag og fjárhagslegri afkomu bæjarfélagsins og borgar- anna. Reynt er þó af for- ráðamönnum bæjarins að halda þessu sem mest leyndu fyrir Hafnfirðingum fram yf ir kosningar. Vegna þess að einni af þessum vanskilakröfum var komið til innheimtu á lög- fræðiskrifstofu Áma Grétars Finmssonar, lögfr., sem við þessar kosningar skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðismanna, og það enda þótt hann á all an venjulegan hátt krefði bæj arráð um greiðslu skuldar- innar ásamt innheimtulaun- um samkvæmt taxta lög- mannafélags íslands, þá boð- uðu þeir þremenningarnir á bæjarstjómarfundinum að þar sem hér ætti hlut að máli einn af frambjóðendum Sjálf stæðisflokksins þá skyldi haf- in ofsókn á hendur honum vegna þessara venjulegu inn- heimtustarfa. Fátt varpar skýrara ljósi á vonleysi og lánleysi þessara félaga, sem nú standa frammi fyyrir reilfiingstíkilum k'JS- leysis síns gagnvart hafn- firzkum kjósendum, en sú á- kvörðun þeirra að gripa til slíkra baráttuaðferða, von- lausra örþrifaráða. Fjarvera eins af bæjarfull trúum Alþýðuflokksins, Áma Gunniaugssonar hdl. bendir óneitanlega til þess að hann hafi eigi kosið að taka þátt í aðför þessari og er það skilj anlegt. 1 umræðum um þetta mál gaf forseti bæjar- stjómar, Kristinn Gunn- arsson, það ótvírætt í skyn, þótt máski óviljandi væri, að þegar væri það fastmælum bundið að end- umýjað yrði samstarf við kommúnista ef svo skyldi fara að fylgisaukning Sjálf stæðisflokksins yrði ekki nægjanleg til þess að tryggja þehn meirihluta í Bæjarstjóm Hafnarfjarðar að afloknum kosningum. Víst er nm það að hin boð- aða, ómaklega árás hinna lán litlu þremenninga á Áma G Finnsson, samfara hinni ótví- ræðu yfirlýsingu forseta bæj- arstjórnar um áframhaldandi samstarf við kommúnista mun vekja réttlátan óhug og fyrirlitningru meðal hafn- firzkra kjósenda og verða til þess eins að Hafnfirðingar fylki nú liði, afþakki forráð þessara óhappamanna í mál- efnum bæjarfélagsins og tryggi öruggan meirihluta sjálfstæðismanna. Fegurðarkeppni um næstu helgi NÆSTKOMANDI laugardag verður fegurðardrottning íslands 1962 valin í Austurbæjarbíói. Keppa þar til úrslita fimm stúlkur af þeim tíu, sem valdar voru til þátttöku í keppninnL Verðlaunin, sem stúlkurnar keppa um, eru þessi: 1. verðlaun: Ferð á Miss International á Langasandi og þátttaka í keppn- inni að ári. 2. verðlaun: Þátttaka 1 Miss Universe keppninni nú í júilámánuði n.k. 3. verðlaun: Þótttaka í Miss Europe keppn- inni í Beyruiíh að ári. 4. verð- laun: Þátttaka í Miss World koppninni í London í nóv. n.k. 5. verðlaun: Gullúr frá Magnúsi Baktvinssyni. Dómnefndina skipa: Jón Ei- ríksson, læknir, Eggert Guð- mundsson, listmálari, Sigríður Gunnarsdóttir fegurðarsérfræð- ingur, Ásmundur Einarsson, blaðamaður, Sigurður Magnús- son, fulltrúi, Karólína Péturs- dóttir bókar: og Jóhannes Jör- undsson, auglýsingastjóri. Kynn- ir keppninnar verður Jón Múli Árnason, útvarpsþulur. Að lokinni skemmtuninni í Austurbæj arbíói hefst krýning- arhátíð með dansleik og tízku- sýningum að Glaumibæ og Næt- urklúbbnum. nýja bifreið valt á götu á Akureyri á þriðjudag og skemmdist talsvert. Sp'unkuný bifreið valt Akureyri, 9. maí KLUKKAN rúmlega 6 á þriðju- dag ók þessi nýja bifreið inn Hafnarstræti. en eigandinn hafði tekið við bílnum daginn áður og var aðeins búinn að aíka honum nokkra tugi kílómetra. í námunda við húsið Hafnarstræti 3, virðist hann hafa misst stjórn á bifreiðinni. Lenti bún upp á gangstétt og síðan á lágum steyptum stólpa í girðingu. Við það valt bifreiðin, en stólpinn brotnaði. Auk bifreiðastjórans voru tvö börn í bifreiðinni, en engan sem í henni var sakaði. Bifreiðin er talsvert mikið skemmd, einkum vinstri hliðin, sem liggur á götunni og dæld framan í eftir áreksturinn. — St. E. Sig Dalasýslu berst vegleg dánargjöf Gamalmeimalieimili skuli reist að Fellsenda BÚÐARDAL, 9. mgí. — Á laugardag sl. kom til Búðardals Jón G. Maríasson bankastjóri, til þess að gera grein fyrir og afhenda Dalasýslu eignir dán- arbús Finns heitins ólafssonar, stórkaupsmanns frá Fellsenda í Miðdölum, er andaðist í Reykja víó 2. október 1957. Samkvæmt erfðaskrá, sem Finnur heitinn lét eftir sig, renna allar eigur hans í sjóð, er varið skal til að stofna og reka dvalarheimili gamalmenna í Dalasýslu að Fellsenda í Mið- dölum. Hrein eign sjóðsins er nú 1,6 millj. kr. að nafnverði. Eftir sömu arfleiðsluskrá var Jón G. Maríasson, bankastjóri, ákveðinn skiptaforstjóri dánar- búsins og síðar löggiltur til þess starfs, en þeir Finnur heit- inn og Jón voru góðir vinir. Skipulagsskrá fyrir umrædd- an gjafasjóð var samin og birt í B-deild Stjórnartíðinda árið 1960. Ber sjóður þessi nafn for- eldra Finns og heitir Minning- arsjóður hjónanna ólafs hrepp- stjóra Finnssonar frá Fellsenda og konu hans, Guðrúnar Tómas- dóttur. Stjórn sjóðsins skal skipuð 5 mönnum: bankastjóra Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi: SV-land til Norðurlands og SV-mið til Breiðafjarðamiða: NA gola, léttskýjað með köfl um. Vestfjarðamið og norður- mið. NA kaldi, skýjað. NA-land og miðin: NA gola eða kaldi, þykkt loft en úr- komulaust. Horfur á föstudag: AtLstlæg átt, víöast þurrt veður, léttskýjað við Faxa- flóa og Breiðafjörð. frá Landsbanka Islands, og skal það vera Jón G. Maríasson, meðan hans nýtur við, sýslu- manni Dalasýslu, héraðslæknin- um í Dalasýslu, sóknarpresti Suður-Dalaþinga og hrepps- nefndaroddvita Miðdalahrepps. Undirbúningi hraðað Stjórn sjóðsins hélt fyrsta fundinn á laugardaginn í Búð- ardal. Skipti hún með sér verkum og var Friðjón Þórðar- son, sýslumaður, kjörinn for- maður. Þakkaði hann hina höfðinglegu ráðstöfun, minntist gefanda og færði Jóni G. Maraíassyni og aðstoðarmönn- um hans við búskiptin beztu þakkir sjóðsstjórnar, svo og hér aðsbúa allra. Ákvað stjórnin síðan að athuga hið fyrsta und- irbúning að fyrirhugaðri fram- kvæmd. Finnur ólafsson var fæddur að Fellsenda í Miðdölum 27. nóv. 1880. Á æskuárum stund- aði hann nám við Lærðaskól- ann í Reykjavík, dvaldist mörg ár í Bretlandi og var síðar stórkaupmaður í Reykjavík til æviloka. Hann var ókvæntur og barnlaus og systur hans tvær löngu dánar. Hann átti tvær jarðir í Miðdölum, Fells- enda og Svarfhól, og lét sér mjög annt um að efla þar ræktun og framfarir. Dvaldist hann þar iðulega á sumrum og sýndi átthögum sínum í hví- vetna einstaka ræktarsemi og órofa tryggð. — F. Þ. Aðalfundur KH HAFN ARFIRÐl — Aðaltfundur Kaupmannafélagís Haifnarfjarðar var haldinn í Gótemplarahúsinu mánudaginn 7. maí síðastliðinn. Þar fóru fram venjuleg aðaitfund- arstörf og síðan stjórnankosning. — Formaður var kosinn Stefán G. Sigurðsson og meðlstjórnendur þeir Kristens Sigurðsson og Jón Elíasson. í varastjórn Jón Boði Bjömsson og Stetfán Gestur Krist jánsson. Fuliltrúar í Kaupimanna- samtökin voru kosnir Jón Miathie sen og Stefán Sigurðsson. Formaður á bát horffinn í GÆR var auglýst eftir för- manninum á bátnum Gullþór GK 285, en ekkert hefur til hana spurzt síðan seint á föstudags- krvöld. Þá sást hann á Ægisgarði í Reyfk j avikurhötfn. Maðurinn heitir Einar Árnason 38 ára gamall, til heimilis á Hverfisgötu 98. Hann er lítill maður vexti, þrekinn, skolhærð ur og var sennilega klæddur brúnum fótum á föstudag. Ein- ar er annar eigandi Gulliþórs og formaður á honum. Báturinn lá í Reykj avikurhötfn á föstudag. Erlendar fréttir i stuttu málí • Hollandia, Nýju Guineu, 9. maí (AP) HINN 27. apríl sl. lentu um 40 fallhlífahermenn Indonesa á Onim skaga á vesturströnd Hollenzku Nýju Guineu. í dag tilkynnti hollenzka herstjórn- in að tekizt hefði að um- kringja herflokk þennan og sækja Hollendingar nú fram ’gegn innnásarmönnum. • Washington, 9. maí (AP) Bandarikjamenn sprengdu i dag sjöundu kjarnorku- sprengju sína í nánd við Jóla ey á KyrrahafL Sprengjan var lítil, innan við eina mega lest og var varpað úr flugvél. • Wsshingbon, 9. maí (AP) GEIMSKIP það, er Glenn of- ursti fór í þrjá hringi um- hverfis jörðu, verður til sýn- is víða um heim á næstunni. Óskuðu Bandaríkj amenn að fá að sýna geimskipið í Sovét rikjunum, en Rússar neituðu um heimild til þess. • Washington, 9. maíNTB EINAR Gerhardsen forsætis- ráðherra Noregs kom til Vas- hington í dag í tveggja daga apinbera heimsókn sem gest- ur ICennedys íorseta. Var íGerhardsen og konu hans vel l Eagnað á flugvellinum, en þar tók McGhee aðstoðarutanrík- isráðherra á móti þeim. • London, 9. maí (NTB) BREZKA stjórnin skýrði frá því 1 dag að gripið yrði til nauðsynlegra varúðarráðstaf- ana til að tryggja aðflutning. á nauðsynjum ef hafnarverka menn í Bretlandi hefja verk- fall á sunnudag. Er sennilegt að við það sé átt að herinn verði látinn annast nauðsyn- leg störf í þessu sambandi. Um 75.000 hafnarverkamenn munu taka þátt í verkfallinu ef til kemur. • Beirut. Libanon, 9. mal (AP) HERRÉTTUR 1 Beirut krafð- ist í dag dauðarefsingar ytfir að minnsta kosti 132 hermönn um, lögreglumönnum Og borg urum, fyrir aðild þeirra að tilraun til byltimgar í Líban- on um áramótin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.