Morgunblaðið - 10.05.1962, Page 3

Morgunblaðið - 10.05.1962, Page 3
i'immtudagur 10. maí 1962 MORGUNBLMÐIÐ 3 R / i irain oh nar starfsemi eru fjölbýlishúsin :§§§!f við Grensásveg og Skála- |§§§§ gerðí, en í þeim eru alls 109 tveggja og þriggja herbergja §§§;§ íbúðir, en úthlutun þeirra hófst sl. haust. Fluttum inn um mánaða- mótin marz-apríl Fyrir skömmu brugðum §§§§§§ við okkur, blaðamaður og ljósmyndari frá Morgunblað- inu, inn á Grensásveg 56, en Kjörin góð 1 ÖRT vaxandi bæjarfélagi eins og Reykjavík eru hús- næðismálin mjög veigamikill þáttur, sem hver bæjarstjórn verður að kosta kapps um að efla, eftir því sem föng eru til hverju sinni. Um langt skeið hefur borgar- stjórn Reykjavíkur aðstoðað fólk, sem verst hefur verið sett, til að koma sér upp eigin húsnæði, ýmist í fjöl- býlishúsum eða litlum ein- býlishúsum eins og í smá- íbúðahverfinu. Til dæmis um þessa starf- semi má nefna, að árið 1957 var ákveðið að hefjast handa um byggingu 800 íbúða og sérstakur byggingarsjóður Reykjavíkurborgar stofnaður í því skyni og var stofnfé hans 42 millj. kr. Af þessum 800 íbúðum er lokið bygg- ingu 387 ibúða, en 128 eru í smíðum og verður afhend- ing þeirra hafin í sumar. — Eftir er því að hefja fram- kvæmdir við 285 íbúðir, sem hafizt verður handa um að byggja í sumar ©g næsta sumar. Tilgangur þessara bygg- ingarframkvæmda Reykjavík urborgar *r, eins og fyrr greinir, að aðstoða það fólk, er verst er sett hverju sinni. Þannig gengur það fólk fyr- ir íbúðum, sem hefst við í bröggum eða heilsuspillandi íbúðum, svo og barnmargar fjölskyldur, sem átt hafa við húsnæðisörðugleika að etja. Síðasti áfangi þessarar þar býr Helgi Þorvarðarson, pípulagningarmaður, á fjórðu hæð, ásamt konu sinni, Krist jönu Hjartardóttur og tveim börnum, Friðsemd og Þor- varði. Það sem fyrst vakti at- hygli okkar, var hið undur- fagra útsýni: Þar sér yfir Sundin til Esjunnar, austur að Hengli og Reykjanesfjall- garð til suðurs. Er við höfðum dáðst að útsýninu og vorum setztir, spurði ég Helga, hvenær þau hjónin hefðu flutt í íbúðina. — Við fluttum um mán- aðamótin marz-apríl. Áður bjuggum við í Blesugrófinni. — Þið hafið beðið þess með eftirvæntingu, hvernig til tækist í þetta sinn? — Þið getið nú nærri. Og Helgi Þorvarðarson pípulagningarmaður og kona hans, Kristjana Hjartardóttir ásamt börnum þeirra, Friðsemd og Þorvarði. ekki hægt að segja annað viðbrigðin urðu geysileg. Sérstaklega hvað snerti börnin, þar sem skólagangan er þeim torsótt í Blesugróf- inni, en skólabíllinn fer ekki nærri alla leið. Þá urðu viðbrigðin og geysileg fyrir konu mína, því að sjálf- sögðu er miklu styttra að fara í búðir og annað þess háttar. Ekki má heldur gleyma því, að flest húsin í Blesugrófinni eru byggð sem sumarbústaðir og eru því mjög köld, sérstaklega er gólfkuldinn mikill. Góð kjör Þá sagði Helgi okkur, að íbúðin væri þrjú herbergi og eldhús og gefin upp fyrir að vera 73,6 fermetrar. Sér hefði þó fnælzt hún 78 fer- metrar, en sjálfsagt hefði það ekki verið nákvæmlega mælt hjá sér. Hið fallega útsýni úr stofuglugga num. Sér þar yfir Elliðaárvoginn. — Og hún hefur verið til- búin undir tréverk, er þú fékkst hana? — Já. En þó var búið að ganga til fullnustu frá öllu sameiginlegt fyrir utan það að eftir var að dúkleggja ganginn. — Og kjörin? — Ekki er hægt að segja annað en þau hafi verið góð, en útborgunin var erfiðust. — Hve há var hún? — Hún var 120 þúsund, en fyrsti veðréttur var laus fyrir lánum allt að 100 þús. kr. Hef ég þegar fengið lof- orð fyrir húsnæðisstjórnar- láni að upphæð 35 þús. kr. og þykist góður, fái ég 35 þúsund til viðbótar. Að öðru leyti hvíla 200 þús. kr. á íbúðinni, 100 þús. frá ríki og 100 þús. frá bæ, sem greiðist með jöfnum afborgunum, 12.600 kr. á ári í 50 ár. — Þú sagðir áðan, að íbúð- in hefði verið tilbúin undir tréverk, er þú fékkst hana í hendur. Hve mikill kostnað- ur skyldi vera við innrétt- ingu hennar? — Ég hygg að það sleppi með 50—60 þúsund, annars hef ég ekki tekið það saman. T.d. kostaði eldhúsinnrétting- in 7 þús., en við áttum elda- vélina fyrir. Innréttingin í baðið 9 þúsund og málning- in 2.700. — Þú mundir þá ætla, að íbúðin muni kosta tæp 400 þús. alls? — Já, ég mundi ætla það. Veturmn var beitarsæll BORGARFIRÐi eystra 2. maí: — Stöðugit góðviðri hefur verið hér diag hivem síðan viiku fyrir páska, en þá lauik vetrarríki hér að þessu sinni. S.I. vetur verður ékki talinn slæmur hér, á honum voru engin teljandi stórviðri og alltaf fremur snjólétt. Hinsveg ar var hann mjög kaldur, sér staklega marzmánuður, en i hon um steig frost óvenjuhátt dag eftiir dag svo slíkir kuldar hafa varla verið hér sáðan 1918 að sögn þeirra er muna svo langt aftur. Nú eru tún farin að grænka og enn hefi ég ekki frétt um veru- legt kal í þeim, sem menn ótt- uðust eftir öll frostin. Nokkru af fé er búið að Sleppa á vílkurn ar hér fyrir sunnan en yfirleitt munu menn ekki sleppa ám fyrir sauðburð þó góðviðrið haldist. Fé mun yfirleitt ganga vel fram og skepnuhöild vera góð, sem að verulegu leyti má þakika það hvað veturinn var beitarsæll, því hey voru víða lítil að vöxtum og auik þess hrakin og úr sér sprottin eftir hið mikla óþurrka sumar í fyrra, sem var það versta sem hér hefur komið síð- an 1950. Sauðburður mun ekki hefjast að ráði fyrr en undir 20. maí. Bkkert hefur fiskazt hér all- an þennan góða kafla. Þrátt fyrir Framhald á bls. 23. STMSTEINAR Allt fyrir SÍS Timinn birtir í gær ræðu eins aðalframbjóðanda Framsóknar- flokksins við borgarstjómar- kosningamar. Þar telur hann upp í tíu liðum megináhugamál flokks sins. Er þar ekkert nýtt og fátt eftirtektarvert, nema það, að í „prógramminu“ sjálfu nefnir hann Sig urð Jónasson, liklega til að gefa í skyn að sá maður íruni enn vera b o r g arstjóra ef ni vinstri flokk- anna, ef þeim tekst að hnekkja meiri hluta Sjálfstæð Sigurður isflokksins. — Jónasson Ræðumaður endar upptalningv sína á því, að Framsóknarflokk- urinn muni „vinna að lausn verkefna á hverjum tíma á grundvelli félagshyggju og sam vinnu“. Áður hefur hann vikið að fyrirmyndarstarfi samvinnu- manna á Akureyri. Þannig virð- ist það vera helzta „hugsjón“ Frairr.sóknarmanna, að SÍS-merk ið tróni á sem flestum bygging- um höfuðborgarinnar, að Sam- band íslenzkra samvinnufélaga leggi undir sig fasteignir og at- vinnurekstur höfuðborgarbúa. En ekki er víst að þeir séu fram bjóðandanum sammála. Utangátta I Eins og blaðalesendum er kunn | ugt hefur Alþýðublaðið ekki haft hugmynd nm það í fjögur ár að til væri neitt, sem héti borgarmálefni Reykjavikur. Er blaðið því að vonum utangátta, þegar það nú síðustu dagana reynir að gera mál þessi að um- ræðuefni vegna borgarstjórnar- kosninganna, sem framundan eru. Aðeins einn maður í Al- þýðuflokknum hefur einhverja þekkingu á borgarmálefnum, Magnús Ástmarsson, en hann er ekki Iengur í kjöri fyrir flokk- inn. Smá dæmi um þekkingar- Ieysi á borgarmálum gefur að líta í Alþýðublaðinu í gær. Þar segir: „Gatnagerðaráætlun Sjálfstæð isflokksins gerir ráð fyrir því, að Eaugarnesvegur verði ir.al- bikaður 1963 og 1964. Alþýðu- blaðið getur tekið undir það með húsmóðurinni, að það má furðu iegt heita, að svo mikil umferð- aræð sem Eaugamesvegur er, skuli vera látinn sitja á hakan- um varðandi malbikun svo lengi.“ Ef Alþýðublaðsmenn fylgdust eitthvað með borgarmálum, væri þeim kunnugt um það. að þetta ir.il var rætt í borgar- stjórn í marzmánuði. Hitaveita fyrst Geir Hallgrimsson, borgar- stjóri, gat þess á borgarstjórnar- fundinum I marz, að vissulega væri það rétt að íbúarnir við Laugarnesveg, sem væri ein af elztu götum borgarinnar, væm vel að malbikun koir.nir, en ekkí minna en þrjár ástæður lægju til þess að ekki væri skynsam- legt að ráðast í malbikun þeirr- ar götu í sumar. f fyrsta lagi væri verið að gera akfæra götu fyrir vestan fiskiðjuver Júpiters og Marz og sú gata gæti tckið við umferðinni af Laugarnes- vegi meðan verið væri að full- gera hann. f öðru lagi þyrfti að endurnýja holræsi í Laugarnes- vegi vegna meiri atvinnurekstr- ar, og loks væri gert ráð fyrir að ljúka hitaveitu í Laugarnes- hverfi á þessu ári og sjálfsagt væri að lá.ta hitaveitufram- kvæmdina ganga fyrir, svo að ekki þyrfti að brjóta upp nýja 1 götu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.