Morgunblaðið - 10.05.1962, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.05.1962, Qupperneq 15
rimmtudagur 10. maí 1962 UORGVNBLAÐI& 15 Verkföll iðnverkamanna á Spáni breiðist enn út vang, og handtók hún fjölda stúdenta. Var þeim síðan sleppt aftur, eftir að þeir höfðu orðið að greiða sektir, allt frá 100 pes- etum (um 700 ísl. kr.) í DAG kom til óeirða milli námu verkamanna í San Sebastian héraðinu á norðaustur Spáni og lögreglu. Hernaðarástandi var lýst þar yfir sl. laugardag, eftir verkföll þau, sem ríkt hafa und- anfarið. t Asturias héraðinu, þar sem verkfall kolanámumanna hefur staðið í um það bil mán- uð, eru verkamenn að snúa til vinnu aftur. Hins vegar virðist verkfallsaldan nú vera að breið- ast út í ýmsum iðngreinum á norðaustur Spáni. Til óeirða kom í dag í Madrid, er stúdentar gerðu uppþot. Lög- regla var þegar kvödd á vett- Verkfallsalda sú, sem gengið hefur yfir Spán undanfarið, er eitt mesta vandamál, sem Franco stjórnin hefur þurft að glíma við, síðan hún kom til valda. I>að hefur vakið athygli, að Iþótt forráðamenn verkalýðsfé- laga hafi samiþykkt að hefja aft- ur vinnu, hafa verkamenn á ýmsum stöðum ekki sinnt því kalli, og haldið áfram verkfalli. >» /. Með Islendingum í Kaupmannahöfn í HUNDRUÐ ára hafa fslend- ingar sótt sér menntun og frama til kóngsins Kaupinhafnar. Enn eru íslenzkir stúdentar þar mjög f jölmennir og eru ekki í annarri borg fjölmennari, að Reykjavík Undanskilinni. Stúdentar í Kaupmannahöfn hafa nr«ð sér gamalt og virðu- legt félag, Félag íslenzkra stúd- enta í Kaupmannahöfn og er það stofnað 23. jan. 1893. Er það þvi næst elzta stúdentafélag fs- lendinga, en elzt er Stúdentafé- lag Reykjavíkur, sem áður hét Hið íslenzka stúdentafélag og var sennilega stofnað 1871, en það ártal getur þó skeikað um nokkur ár til eða frá. ERFIÐUR ARFUR Hið merkasta við stúdentafé- lagið í Kaupmannahöfn er saga þess, sem full er af merkum at- íburðum og venjujn. Margir (halda því fram, að mjög hafi hallað undan fseti fyrir félaginu síðustu ár ef ekki áratugi og á það margar orsakir, sumar ofur eðlilegar. Gamansamir menn við Eyrarsund hreyfa því, að ekeleggur ferill ifélagsins í sjálf- Btæðismálinu hér áður fyrr vaxi núverandi félagsmönnum svo í augum, að 'þeir leggi á sig mi'kið etarf til þess að útvega íslend- ingum það sjálfstasði frá Dön- um, sem skilmerkilegar heimild ir hér nyrðra teija, að fengizt hafi endanlega árið 1944. En Blæmt fréttasamband milli Xs- lands og Danmerkur er þó göm- ul saga, og má minnast þess, þegar séra Eirífcur Briem kom ríðandi suður Hoitavörðufheiði á öldinni, se*i leið, með hina árs- gömlu frétt um andlát Priðriks fconungs VII. £*að er erfitt starf að halda uppi merki jafnaldraðs og virðu legs félags og iðka venjur þess í hvívetna. Það hefur stúdenta- Ifélaginu í Kaupmannahöfn þó að mörgu leyti tekizt, og eitt er víst, að starfsemi félagsins er öflug og fjölibreytt. BLAÐAKVÖLD OG MÁLHNG Blaðamaður Mibl. átti þess fcost nýlega að ræða nokkuð við framámenn félagsins um starf- pemina og sæfcja tvö blaðakvöld. Núverandi stjórn skipa þeir Sig- urður Jóhannesson, Þorsteinn Gunnarsson og Þorsteinn Vil- hjálmsson. Gildur þáttur í starfi félagsins eru vikuleg blaðakvöld, en þau sækja stúdentar og aðrir landar, sem dvelast í Khöfn eða eiga þar leið hjá garði. Pélagið fær send íslenzku dagblöðin, án endurgjalds, auk þess vikublöð- in frá Akureyri, hagtíðindi, Lög- birtingablaðið o. fl. og liggja þau frammi á þessum samkom- um. Samkomur þessar eru á hverjum fimmtudegi á Kanni— balnum við Nörregade, en það er m. a. matsala stúdenta. Þarna drekka menn öl og kaffi, lesa blöðin, rabba saman eða spila. Eru þetta hinar ánægjulegustu samkomur og sækja þær oftast milli fimmtíu og hundrað manns. Þá hefur félagið samband við sendiráðið og heldur uppi njósn- um of ferðum fróðra manna og spaugsamra að heiman, og eru þeir þá oftlega fengnir til þess að halda ræður í félaginu. Mál- f-undir eru tíðir og er mönnum þá mikið niðri fyrir og hleypi- dómar ekki torgætir, þegar ölið hleypir kappi í kinn. Nýlega var t. d. haldinn fundur í Bisk- upskjallaranum, sem er forn og frægur ölkjallari, og má hann muna sinn fífil fegri, þegar Hannes Hafstein og hans jafn- ingjar ræddu þar vand-amál 'þjóðar sinnar. Á þessum fundi var rætt um sjónvarpsmálið og var þar samþykkt ályktun, sem m. a. lét þess getið, að sjónvarp- ið frá Keflavíkurflugvelli væri einkurn varasamt, þar sem það næði til þeirra landsmanna, sem sizt mættu við slíku góðgæti. Á fundum þessum er gjarnan drukkið höfugt öl og er oft glatt á hjalla. HÁTÍÐIR INNAN DYRA OG UTAN Hátíðir eru tíðar í félaginu og fylgja þeim gamlar og skemmti- legar venjur. Pyrsta samkoma haustsins er til þess að fagna nýjum félagsmönnum. Er þá drukkið púns. 1. desember er haldinn sameiginlegur fullveld- isfagnaður með íslendingafélag- inu. Merkasta hátíðin er þó Þor- láksblótið, en þá blóta menn (helgan Þorlá'k, verndaidýrðling félagsins. Hátíð þessi er haldin 22. desember og er þar snæddur íslenzkur matur. Hátíðin er ávallt í Biskup®kjallaranum og þyfcir hið merkasta hóf. Þá má nefna sameiginlega há- tíð á vorin með færeyskum stúd entum, einnig „skovtur", sem fer þannig fram, að ekið er eitthivað • út í náttúruna, og þar neytt og notið þess, sem hver og einn hefur í pokahorninu. Af öðru má nefna knattspymu leik árlegan við færeyska stúd- enta. Keppni þessa hafa fslend- ingar unnið undanfarið, utan sl. ár, en þá biðu þeir lægri hlut fyrir frændum sínum með 2 mörkum gegn einu .Af öðrum ílþróttakeppnum má nefna kapp drybkju við Færeyinga á sam- eiginlegu hátíðinni. Keppni þess" ari tapa íslendingar ævinlega, enda segja fræðimenn, að fær- eyskir séu slíkir drykkjumenn, að við þé tjói ekki að reyna sig. Á vorin eru svo brugghús Carlsbergs og Tuborg sótt heim á víxl og þess notið, sem heima- menn hafa upp á að bjóða. SAMSTAÐA OG FÉLAGSANDI Það má fullyrða, að stúdenta- tfélagið í Kaupmannahöfn sé langöflugasta og starfsamasta stúdentafélag fslendinga erlend- is, enda er það hið fjölmennasta. Félagsmen* munu vera um 90 talsins, þar af rúmlega 50 há- skólastúdentar. Hinir eru kandi- datar við framhaldsnám eða við störf á staðnum. Félagsandi er þar öflugur og góður, en nokk- uð fannst blaðamanninum þó viðhorf þeirra, sem við var rætt, mótast af hinni dönsku stórborg og fjarlægðinni frá föðurland- inu, eins og ef til vill er eðlilegt. Hin mikla samstaða stúdent- anna i Khöfn forðar þeim þó flestum frá því að renna fyrir- varalaust inn í hóp innfæddra, eins og mjög flámennir hópar stúdenta í mörgum öðrum er- lendum borgum hljóta að gera. Það hefur vissulega sína kosti að vísu, en jafnframt galla. Hvort þarna er þyngra á metun- um skal hér ekki lagður á dóm- ur. Eitt er víst, að það er ánægju* legt að dveljast í hópi íslenzkra stúdenta í Khöfn, þeir eru skemmtilega ferskir og félags- lyndir, eins og hinu forna og merka félagi þeirra byrjar. J. R. Skeljasondsfoss d Akranesi MYNDIN h'ér að ofan er af Sikelj asandsfossi á Akranesi, sem ekki má rugla saman við Selja- landsfoas undir Eyjafjöllum. Þegar sanddæluiskipið Sansu leggst við Sementsbryggjuna með skeljasand aif botni Faxaflóa handa Sementsverhsmiðjunni, er tengt rör úr lest skipsins við mikla leiðslu á landi. Hún er 300 til 400 metra löng og endar í skeljasandsþró inni í Leirgrótf. Sogdæla sér um að dæla sandi og sjó inn í leiðslua, og fllytur sjór- inn sandinn um hana með miíbl- um hraða. Myndin sýnir, hyar sandur og sjór steypist ofan í þróna. (Ljósm. Mbl. Ólatfur Árnason). Ooo i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.