Morgunblaðið - 10.05.1962, Side 20

Morgunblaðið - 10.05.1962, Side 20
20 MORGUISBLAÐIÐ Fimmtudagur 10. maí 1962 GEORGE ALBERT CLAY: GINA Saga samvizkulausrar konu Gina þurrkaði sótið af kinn frúarinnar með vasaklútnum sín um. Hvers vegna hættið þið ekki að berjast gegn þeim? sagði hún. Ég get ekki þolað að sjá ykkur í þessu ástandi. Því haettum við aldrei, svaraði frúin. Ekki fyrr en þeir hafa verið reknir héðan og ekki einu sinni þá. Ginu varð hugsað til grun- semda Ichiros. En þetta er von- laus barátta, sagðj hún. Þeir verða hér um alla eilífð. Þú ert gömul og þreytt, sagði Gina og reyndi að taka í hand- legginn á gömlu konunni. Lof- aðu þeim ungu að berjast. Hvað getið þið á móti þeim, svona sterkum? Heyrirðu ekki fréttirn ar. Japanirnir eru allsstaðar sig- ursæ-lir. Nú, þegar þeir hafa tek ið Ástralíu og....... Þeir eru nú ekki komnir til Ástralíu enn, sagði Lolyta. Það segir nú Kato aðmíráll samt. Því trúum við ekki. Það er misskilningur hans. Útvarpsfréttirnar segja það líka. Japanimir mæla sem þeir vilja, og þegar fréttirnar eru ekki þeim í vil, búa þeir til frétt ir sjálfir. En svo eru ráð til að frétta sannleikann. Hver eru þau? spurði Gina og um leið hataði hún sjálfa sig fyrir spurninguna. Segðu mér, hvernig þið farið að því, Lolyta. Lolyta setti pönnuna aftur á eldinn. Þú spyrð ofmikið, Gina. Ég skal tala við aðmírálinn. Don Diego skal ekki þurfa að vinna fyrir þá, ef hann vill það ekki. Við skulum reka alla þessa menn út úr húsinu og þið skul- uð fá allan þann mat, sem þið þarfnizt. Hættu þessu, Gina, sagði gamla konan. Við komumst af og stundum líður okkur meira að segja vel. Það er ekki sann- gjamt, að þú sért að neyta af- stöðu þinnar í okkar þágu. Gina afsakaði sig. Ég vildi nú bara sýna þakklæti mitt fyrir gestrisnina, sem ég hef notið hér. Frú Lolyta sneri sér aftur að ofninum. Þú skuldar okkur enga gestrisni, því að gestrisni er hlut ur, sem ekki er hægt að lána. Að minnsta kosti gildir það um spænska gestrisni. Gina móðgaðist af þessari sneið. Mér finnst þetta nú hvorki tími né tækifæri til að grobba af spænskum siðum og vanjum. Siðir mínir og venj ur eru það eina, sem ég á eftir, Gina, sagði frú Lolyta lágt. Ef ég missti það, gæti ég eins vel misst lífið sjálft. Það er þess vegna, sem ég verð að halda áfram að berjast. Það stendur ekki á svo miklu, hvort við sigrum eða ekki, ef við að- eins gefumst ekki upp. Þú skilur þetta ekki. Frú Lolyta yppti öxl- um. Þú verður í mat, Gina? Það get ég ekki, sagði Gina. Ég hef kvöldiboð í dag. Hún leit á gömlu konuna, sem hrærði í pönnunni og andaði að sér ilm- inum frá henni, og þá varð henni hugsað til síns eigin eldhúss og starfsfólksins, sem þar var. Hún vorkenndi Lolytu, en Lolyta var heimskingi. Það er kannske fyrir beztu, sagði gamla konan. Don Diego mundi ekki kæra sig um að hitta þig hér. Og hann yrði mér reið ur fyrir að tala við þig. Hann 'hefur bannað mér það. XXX. Gina festi á sig eyrnalokkana með smarögðunum og demöntun um og talaði svo við Vicente yfir Ö2#l sér: Kato aðmíráll er þér mjög reiður. Það þykir mér verst. Hann hló. Það ætti þér að þykja, hvort sem þér þykir það eða ekki. Hún leit aftur í spegilinn og laut síð- an fram að honum og gáðj vand lega að hrukkum á andlitinu og strauk síðan á sér hálsinn til iþess að vera viss um, að þar væru engin laus hár. Hvers vegna er hann reiður? spurði Vicente utan úr dyrunum. Hann sagði, að þú gerðir of- mikið að því að ágirnast jarð- eignir, sagði hún. Þú munt hafa móðgað einhvern háttsettan. Hann kom aftur inn í herberg ið og stóð rétt hjá henni. Hún tók eftir því, hve mjög hann hafði horazt og bláir baugar voru undir augunum. Ég er að gera þig forríka, Gina, sagði hann. Er það kannski ekki það, sem þú vilt framar öllu? Hvað ertu eiginlega að braska? sagði hún. Ég hef ekkert vit á svona verzlun. É£’ «r að kaupa upp land. Mik ið lai. Með tíð og tíma get ég einn ráom verðinu á rísinu hér á Cebu. Hvers vegna hefur Kato þá þessar áhyggjur? Ekki er það ólöglegt að kaupa land. Það er fyrir Filipseyja-gjald- eyri. Gangurinn í þessu er svona, skilurðu: Ég fer til bónda og býð honum að kaupa landið hans fyrir hér um bil þriðjung verðs, en ég borga í innlendum gjald- eyri. Hann neitar venjulega, en ég segi honum bara, að tilboðið standi. Og hvar færðu Filipseyjapen- ingana? Hjá Ishii. Hann ræður yfir öllum bönkunum. Hann lætur mig fá þá affallalaust. Hvernig það? Vill hann ekki peninga? Er hann svona ríkur? Hann tekur engan ábata. Ég held, að hann geri það fyrir þig. Þú veizt, að hann hefur alltaf verið hálfskotimn í þér. Það vissi ég ekki. Haltu áfram. Eftir fáa daga segir Tanda ofursti bóndanum, að stjórnin þurfi á þessu landi að halda fyr ir herbúðir eða flugvöll, og hann foýður sama verð og ég hafði gert, en bóndinn veit, að það er í japönskum gjaldeyri. Vicente hló. Þú ættir bara að sjá þá, þeg ar þeir koma hlaupandi til mín. Þeir vita, að þeir verða að selja það, hvort sem er, en þeir vilja heldur innlendan gjaldeyri. Og svo deilið þið Tanda ágóð- anum, eða hvað? Ekki aldeilis, svaraði Virente hvasst. Ég borga honum náttúr- lega fyrir það, en hugmyndin var min og ég á að fá ágóðann. Og svo þegar bóndinn kemst að þvi, að stjórnin ætlar alls ekki að nota jörðina, 'hvað þá? Þá getur hann bara ekkert gert, því að jörðin er orðin mín eigm. Ég er hrædd um, að þetta verði ekki lengi að komast upp, og bændurnir fara þá að vara sig á þér. Já, það kemur einstöku sinn- um fyrir, að bóndi neiti að selja, en þá lætur Tanda bara byggja herbúðir á landinu hans. Þetta er náttúrlega sniðugt hjá iþér, sagði Gina, en þér væri nú samt ráðlegra að gera hlé á því í bili. Það get ég ekki. Ég verð að fá alla rísuppskenina í mínar hend ur, svo að ég ráði verðinu og geti svo keypt meira land. Það er varasamt að halda þessu áfram, þegar Kato segir þér að hætta. Gina sneri sér aft- ur að speglinum. Þar kemur einmitt til þinna kasta, sagði hann. Þú heldur aft ur af Kato einn mánuð enn og eftir það er sama um allt. Mér finnst nú ekki nema sanngjarnt, að 'þú takir þinn hluta af álfætt unni. Hluta? Ég fæ ekki betur séð en ég taki hana alla. Heldurðu kannski, að ég hafi engar áhyggj ur, sagði hann. Held urðu, að þetta gangi allt fyrir sig anidstöðulaust? Ég hef fengið aðvaranir frá skæruliðunum og verð að hafa vörð um mig dag og nótt. Ég er alls ekki óhultur í skrifstofunni minni, og það hef ur verið skotið á mig þrisvar, í bílnum mínum, síðast í dag. Ég get ekki sofið rólegur nema hér í húsinu. Það vissi ég ekki. En Ichiro hefur sagt þér að hætta þessu, og honum er alvara. Mér þykir Hklegt, að hann minnist á það við þig í kvöld. Hún gekk frá snyrtiborðinu og að háa speglinum. Æ, hver skratt inn. Mér verður alltof heitt í þessu flaueli. Hvers vegna ertu þá í því? Ichiro er hrifinn af því. Hún stóð fyrir framan spegilinn og sá, að flauelskjóllinn fór eins og foezt varð á kosið. Og demant- arnir glitruðu á únliðum hennar og fingrum. Kvöldverðurinn var eitthvað ekki sem bezt heppnaður, og Gina vissi ekki, hvernig hún átti að bæta úr því. Þarna voru of mörg þjóðerni saman komin og ofmargir, sem ekki kunnu nema eitt tungumál. Samræðurn ar voru takmarkaðar við litla hópa og gengu skrykkjótt samt. Nýi landsstjórinn hafði verið ómerkilegur lögfræðingur þarna á eyjunum, og viðhöfnin þarna hafði stigið honum til höfuðs, svo að hann hafði drukkið ofmilc ið, og hengdi nú höfuðið, svo að Gina óttaðist, að hann mundi falla fram á borðið, og sofna, Litla konan hans með músar andlitið var svo óróleg, að hún gat ekki almennilega haldið uppi samtalj við Kato. Gina hafði SBtltvarpiö Fimmtudagur 10. maf. 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi — 8.15 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar “ 10.10 Veðurfregnir). 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.00 „Á frívaktinni", sjómannaþáttur (Sigríður Hagalín). 15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk. — Tónleikar. — 16.30 Veður- fregnir. — Tónleikar — 17.00 Fréttir. — Tónleikar). 18.30 Óperulög. — 18.45 Tilkynningar. — 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Tónleikar: „Euryanthe" og „Ober on", tveir forleikir eftir Weber (Hljómsveitin Philharmonia leik ur; Otto Klemperer stjórnar). 20.20 Erindi: Vaxtarþrá á villigötum (Grétar Fells rithöfun<iur). 20.45 íslenzkir organleikarar kynna verk eftir Johann Sebastian Bach; IX: Dr. Páll ísólfsson leik ur fjögur tónverk og gerir grein fyrir þeim í formálsorðum. a) Fantasía í G-dúr. b) Kansóna í d-moll. c) Tveir smáforleikir. d) Tokkata og fúga í d-moll. 21.15 Að vertíðarlokum: Dagskrá slysa varnadeildarinnar Ingólfs í Keykjavík. — Viðtöl við fulltrúa á landsþingi Slysavarnafélags íslands, söngur kórs kvennadeild arinnar. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Garðyrkjuþáttur: Sigurður AI« bert Jónsson garðyrkjufræðing- ur talar um hirðingu á skrúð- görðum. 22.30 Harmonikuþáttur (Henry J. Ey- land og Högni Jónsson). 23.00 Dagskrárlok. Föstudagur 11. maí. 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — 8.05 Morgunleikfimi — 8.15 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — 8.35 Tónleikar — 10.10 Veðurfregnir). 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar), 13:15 Lesin dagskrá næstu viku. . 13:25 „Við vinnuna4': Tónleiikar. 15.00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk, — Tónleikar. — 16.30 Veður- fregnir. — Tónleikar, — 17.00 Fréttir. — Tónleikar). 18:30 Ýmis þjóðlög. — 18:45 Tilkynn* ingar — 19:20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir. Orðsending til forsldrn í skóiohverfi Hlíðnskólo Þann 14. maí hefst í Hlíðaskóla vornámskeið fyrir börn fædd 1955, sem hefja eiga skólagöngu að hausti þeim skóla. Vornámskeið þetta stendur í allt að tvær vikur, tvo tíma á dag. Innritun fer fram í skólanum vik- una 6—12. maí, kl. 10—11 f.h og 16,30—17,30 e.h. Ennfremur má tilkynna innritun í síma 17860 á áðurnefndum tímum. Við innritun verða veittar allar nánari upplýsingar um vornámskeiðið. Þeir sem koma þessara erinda gangi inn um miðdyr Hlíðaskóla að sunnan (frá Hörgshlíð). Vinsamlegast hringið ekki í aðra síma skólans vegna innritunar. Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur. X- X- * GEISLI GEIMFARI *- X- X- — Við skulum fara, John. Þegar þú skýrir durabilium-málið fyrir geimskipafélaginu og öryggiseftirlit- inu skal ég standa með þér og veita þér stuðning. Seinna, heima á jörðinni .... — Það virðist vera orðið of fram- crðið. Allir cru farnir heim frá geim skipafélaginu nema verðirnir. Við skulum bíða hér í skrifstofunum og skýra Jason frá málinu straxífyrra- málið. 20:00 Dagleg*t mál (Bjarni Einarsson cand. mag.). 20:05 Efst á baugi (Tómas Karlsson). 20:35 Frægir söngvarar; XXIII: Tito Gobbi syngur. 21:00 Ljóðaþáttur: Guðbjörg Vigfús- dóttir lee kvæði eftir Þorstein Erlingsson. 21:10 Tónleikar: Svíta nr. 2 1 d-moll fyrir einleiksselló eftir BacU (Pablo Casals leikur). 21:30 Útvarpssagan: „Saga um Ólaf — Árið 1914“ eftir Eyvind John- son; XII. — sögulok (Árni Gunn arsson fil. kand.). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 Um fiskinn (Stefán Jónsson fréttamaður). 22:30 Á síðkvöldi: Létt klassísk tónlist. a) Gestaatriðið úr óperunni -- „Sadko44 eftir Rimsky-Korsa kov (Mark Reizen, Ivan Kozlovsky og Pavel Lisitsjan syngja með Bolshoj leikhúa hljómsveitinni í Moskvu; — Nioolaj Golovanov stj.). b) ,,Les Syljphides44, ballettmúsík eftir Chopin (Hljómsv. Philharm onia í Lundúnum leikur; Ro bert Irving stj.), 23:16 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.