Morgunblaðið - 18.05.1962, Síða 3

Morgunblaðið - 18.05.1962, Síða 3
Föstudagur 18. mai 1962 MORGVWBLÁIÐIÐ 3 . rmam rbl ,□ i .] ■is'- ! ! Teikningin sýnir fyrirhugað skipulag milli Suðurlandsbrautar og Gnoðarvogshúsanna, þ.e.a.s. hluta svaeðisins. — Fram- kvæmdir eru þegar hafnar. — Fyrsta tilraun með rækt- un götutrjáa í Reykjavík Grasi gróið bílastæði á Melunum — fram- kvæmdir hafnar við Suðurlandsbraut ÓHÆTT ER að fullyrða að aldrei hafa verið stærri verk- efni á prjónunum hjá garð- yrkjustjóra Reykjavíkur en nú í vor. Er stefnt að því að nviklu kappi að rækta upp svæði, bæði viðsvegar inni í borginni og í nágrenni henn- ar. Er þar e. t. v. merkust til raun sú, sem hafizt hefur ver ið handa um og langt er kom- in, en það er að rækta upp melinn fyrir sunnan íþrótta- völlinn, frá Hringbraut að Bændahöllinni, en þar á að vera grasigróið bílastæði. Mbl. átti í gær tal við Haf- liða Jónsson, garðyrkjustjóra. Sagði hann að vona yrði að bifreiðaeigendur, sem kynnu að vilja nota svæði þetta, tsekju fullt tillit til þess að gróðurinn er viðkvæmur þann tíma árs, er klaki fer úr jörðu. Sagði Hafliði að það yrðu aðeins um tveir mánuð ir árlega sem stæðið yrði lokað, á vorin og e. t. v. að vetri, ef miklar frostleysur gerði. „Á þessu stæði verður að- eins leyft stæði fyrir fólks- bíla“, sagði Hafliði. „Stæði fyrir vörubíla og langferða- biíla verður meðfram Birki- mel. Með þessari ræktun von urnst við til að hefta hið hvim leiða sandifdk, sem jafnan er þarna á Melnum. Æskilegt væri að þessi tilraun gæfist vel þannig að viðar verði hægt að koma upp slíkum bílastæðum“. „Svæðið á Melnum hefur nú verið rifið upp og jafnað, og fer sáning fram einhvem næstu daga. Að henni lokinni verður svæðið valtað og við Skulum vona að í júnímánuði verði það orðið ein græn flöt, og hægt að taka það í notkun í ágústmánuði. Hér yrði um að ræða byltingu í umbúnaði allra stærri bíla- stæða í bænum, og ég er von- góður um að þessi tilraun tak ist“, sagði Hafliði. Þá eru framkvæmdir við annað slíkt svæði í þann veg að héfjast, en það er svæðið við Fúlutjörn Og nágrennið við Borgartún. — xxx — „Næsta stórverkefni, sem unnið verður að í vor og fram eftir sumri, er fyrsta til raun með ræktun götutrjáa Pforam okbcir í Reykjavík. Svæðið m,illi Suðurlandsbrautar og Gnoðar vogshúsanna svonefndu, allt frá Álfheimum inn að Elliða- ám á að verða ein samfelld grasræna, um 15 metra breið, en síðan á að taka við malar- stígur fyrir fótgangandi og hestamenn. í grasræmuna milli Suðurlandsbrautar Og malarstígsins á að setja götu tré með 15 metra milliibili, en fyrir norðan malarstíginn kem ur samfelld grasflöt upp að lóðum Gnoðarvogshúsanna. Verður komið fyrir bek'kjum á stöku stað fyrir föik, sem þarna vill njóta sólar, og enn fremur er í ráði að þama verði sett upp einföld leik- tæki fyrir börn. Framkvæmd ir eru þegar hafnar og ,er unnið að því að slétta svæðið með stórvirkum vélum“. -- XXX ---- „Jafnframt því, sem hér að framan getur, verður haldið áfram ræktun meðfram Miklubraut jafnhliða því, sem hún er fullgerð með steypt- um akbrautum“, sagði Hafliði. „í sumar verður gengið frá grasblettunum á milli ak- brauta þess hluta götunnar, sem þegar hefur verið stein - steyptur og meðfram henni, bæði að norðan og sunnan, að svo miklu leyti sem hægt verð ur“. „Hér hefur aðéins verið drepið á stærstu verkefnin í sumar, en auk þess hefur að sjálfsögðu verið hafizt handa um srnærri verkefni líkt og venja er til“, sagði Hafliði garðyrkjustjóri. Þessa mynd framkvæmdum við Suðulandsbraut gær. — Á 3ja hundrað aðkomu- menn í Olafsvík á vertíð ÓLAFSVÍK, 16. maí. Þrír bátar róa enn frá Ólafsvik, en unnið er að því að gera upp hjá áhöfn um annarra báta eftir vertíðina. í Ólafsvík eru um 940 manns með fasta búsetu, en á vertíðinni (lykkist þangað fjöldinn allur af sjómönnum og öðru verfólki Á þessari vertíð mun eitthvað á þriðja hundrað manns hafa kom ið til Ólafsvíkur, og er meiri- hlutinn á bátum, sem þaðan eru gerðir út, aðkomufólk. Erfitt getur verið að koma öll- um þessum fjölda fyrir í ekki stærri bæ. Hraðfrystihús Ólafs- víkur hefur ágætar verbúðir, þar sem 60—70 manns búa og um 100 matast. Þá hefur Halldór Jónsson verbúðir fyrir 40—50 manns og Víglundur Jónsson fyr ir um 40. Margir búa í herbergj um úti í bæ. Geysimikið hefur verið byggt í Ólafsvík undanfar- in ár og hafa margir miðað byggingu húsa sinna við það að geta leigt aðkomufólki á vertíð- inn; - Hjörtur. O • r r onjoaöi i Skorradal AKRANESI, 17. maí. — Kl. sex í gærmorguu var ekki vorlegt út að líta í Skorradal. Skarðs- heiði og Hestiháls voru alhvít ofan að vatni. Snjóinn tók upp, þegar sólin fór að skína. — Oddur. STAKSTEIIVAR Guðmumlur gerir áwjp á sjjálfan sig Ef sú forsíða, sem myndin á bls. 24. er af, hefði ekki birzt í Moskvu málgagninu, væri ástæða til að taka alvarlega lubbamennsku a9 standenda hennar. Þar er hvorki sagt meira né minna en það, að borgarstjórinn í Rvik hafi dreg- ið sér tvær milljónir af eignum borgaranna. Hinsvegar er „rök- stuðningurinn“ svo hjákátlegur, að engir hafa skemmt sér betur við lesturinn en þær tugþúsund ir Reykvíkinga, sem meira traust bera til Geirs Hallgrims- sonar en flestra manna annarra. Saga kommúnistablaðsins er í stuttu máli á þennan veg: Árið 1957 fékk fyrirtækið H. Benediktsson, h.f. úthlutað lóð við Suðurlandsbraut. Venjuleg- ur lóðasamningur var gerður við fyrirtækið, eins og við aðra þá, sem lóðir fengu, þ. á. m. t. d. SÍS. Allar þessar lóðaúthlut- anir samþykkti Guðm.undur Vigfússon, Moskvufari, borgar iulltrúi kommúnista. Á ár- inu 1958 er síðan farið að ræða um að taka sérstakt lóða- gjald þ. á. m. fyrir iðnaðar- og verzlunarlóðir og var það gjald síðan endanlega ákveðið 18. des ember 1959, einnig með atkvæði Guðmundar Vigfússonar. Borgarstjóm v hækkar leijoi 6m það íeyti sem lóðagjöldin voru ákveðin, var gert ráð fyrir mjög aukinni eftirspurn eftir iðnaðarlóðum, því að þá tók að hilla undir afnám fjárfestingar- Ieyfakerfisins, en á árunum 1957. ‘ sem hér um ræðir, fengu allir þeir, sem úthlutað hafð'i verið fjárfestingarleyfum fyrir iðnað, lóðir hjá borginni og var H. Benediktsson h.f. þar auðvitað engin undantekning. Þegar gatnagerðargjaldið var ákveðið voru í gildi leigusamn- ingar við alla þá, sem áður höfðu fengið lóðir. Um iðnaðarlóðirnar gilti það hinsvegar, að heimilt var að endurskoða leiguna á fimm ára fresti. Þessa heimild hefur borgarstjórn Reykjavíkur hagnýtt sér og hækkar leigu fyrir þær iðnaðarlóðir, sem út- hlutað var áður en gatnagerðar- gjaldið kom í gildi jafnóðum og leigusamningar renna út. Þannig eru nú greiddar 10 krónur á fer- metra í Ieigulóðunum við Suður landsbraut, en tillögur um að aðeins tvær krónur verði greidd- ar af þeim lóðum, þar sem gatna gerðargjald var tek'ið. Þessi stefna var mörkiuð um leið og gatnagerðargjöldin voru ákveð- in. Morgunblaðinu er kunnugt um það, að Guðmundur Vigfússon, borgarfulltrúi, sem greitt hefur atkvæði með þessum aðgerðum, var sjálfur að afla upplýsinga fyrir Moskvumálgagnið og er því meginaðstandandi þessarar fárán legu siðleysisgreinar, sem virðist hafa tekið upplausniarliðið á rit- stjórnarskrifstofum blaðsins tvo sólarhringa að semja, því að ekk ert blað kom út af Kremlviljan- um í fyrradag. Annars er nú langt seilzt eftir kosningabombum“ þegar 4ra ára gömul vitneskja kommúnista og meira að segja aðgerðir, sem þeir sjálfir tókiu þátt í, er nú flennt fimm dálka ýfir forsíðu Moskvumálgagnsins, eins og heimsstyrjöld hefði brotizt út. En þessi árás, sannar hinsvegar, að fátt er það sem andstæðingar Sjálfstæðisflokksins geta notað til árása á hinn ágæta og vinsæla borgarstjóra Reykvíkinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.