Morgunblaðið - 18.05.1962, Síða 5
W Föstudagur 18. maf 1962
M ORCrNRT. 4 DIÐ
5
V
f BORGINNI Penang á Mal-
ayaskaga er frægt musteri,
sem er kallað ormamusterið.
Þangað koma árlega hundruð
íbúa skagans, en þeir trúa
því að ormarnir í musterinu
séu gæddir krafti, sem geti
veitt þeim uppfyllingu óska
sinna.
Á meðan að mennirnir
brenna reykelsi, biðja þeir
ormana t.d. um að segja sér
hvaða númer hljóti hæsta
vinninginn í happdrætti mán
aðarins, sumir leita lækninga
og aðra langar til að giftast.
Æðlstiprestur musterisins,
Sit Ohuan Siew, fullyrðir að
óskir margra séu uppfylltar.
Ormamusterið var reist fyrir
80 árum og nýlega kostuðu
Orma-
musterið
þakklátir ormadýrkendur
endurbyggingu þass. Stofn-
uðu þeir til samskota og nam
upphæðin, sem þeir sötfnuðu
þúsundum dollara.
Flestir búddatrúarmenn-
irnir koma til musterisins
fyrstu 5 daga mánaðarins og
þá liggja þeir stanzlaust á
bæn í reyelsismettuðu and-
rúmsloftinu frá kl. 6 á morgn
ana til kil. 7 á kvöldin.
Margir ormamir í muster-
inu eru eitraðir og stærð
þeirra er mjög mismunandi.
Þeir liggja á kalkvistum, sem
standa í skrautlegum vösum
fyrir framan altari musteris-
ins. Þeir, sem heimsækja
musterið forðast að koma ná-
lægt ormunum, en æðsti
presturinn handfjatlar þé án
minnstu hræðslu. Hann læt-
ur þá skríða eftir handlegg
sér og hringa sig um háls
sinn.
Ormarnir gjöra mér ekkert
illt, segir hann, á milli mín
og þeirra ríkir gagnkvæmur
skilningur og virðing.
Forstöðumaður ormamusterisins t.v. og æðsti presturinn, Sk Chuan Siew, eru vinir ormanna.
tíma (Ólafur 3inarsson og Halldór
Jóhannsson).
Kristín E. Jónsdóttir til 28. mai,
(Björn Júlíusson, Holtsapóteki kl.
3—4 þriðjudaga og föstudaga).
Ófeigur J. Ófeigsson til júníloka
(Jónas Sveinsson í maí og Kristján
Þorvarðsson í júní).
Ólafur Jónsson frá 10. maí í 2—3
vikur. (Tryggvi I>orsteinsson).
Ólafur Þorsteinsson til maíloka —
(Stefán Ólafsson).
Páll Sigurðsson, yngri til 20 maí
(Stefán Guðnason;.
Ragnhildur Ingibergsdóttir til 15.
júní (Brynjólfur Dagsson).
Tómas A. Jónasson frá 9. maí í 6
vikur (Björn Þ. Þórðarson).
Þórður Þórðarson til 21. maí (Berg
sveinn Ólafsson).
+ Gengið +
16. maí 1962
Kaup Sala
1 Sterlingspund ... .... 120,88 121,18
1 Bandaríkj adoilar .... 42,95 43,06
1 Kanadadollar .... .... 39,52 39,63
100 Danskar krónur ... 623,27 624,87
100 Norskar krónur .... 602,40 603,94
100 Danskar kr .... 622,55 624,15
100 Sænskar kr .... 834.19 836.34
1-0 Finnsk nörk .. ..... 13,37 13,40
100 Franskir fr. .. 876,40 878,64
100 Belgiski" fr ..... 86,28 86,50
100 Svissneskir fr. .... 991,30 993,85
100 Gyllini .. 1.195,34 1.198,40
100 V.-Þýzk mörk .... 1073,48 1076,24
100 Tékkn. ('íiur ... 596,40 598,00
1000 Lírur ..... 69.20 69,38
100 Austurr. sch ...» 166,18 166,60
100 Pesetar 71.00 71,80
70 ára er í dag Tryggvi Péturs-
son, bílasmiður, Engjavegi 5, Sel
íossi. í dag verður hann staddur
hjá börnum sínum Mávahlíð 2.
Reykjavíik.
Nýlega hafa opinberað trúlotfun
tína Ásta Pétursdóttir, Baróns-
stíg 33 og Indriði Björnsson, Efra
Seli, Landssveit.
Læknar fiarveiandi
tíma
Esra Pétursson um óákveðinn
<Halldór Arinbjarnar).
Guðmundur Benediktsson frá 7.—21.
>na. (Skúli Thoroddsen).
Jón K. Jóhannsson frá 18. mai 1
vikur.
Kristján Jóhannesson um óákveðinn
Stúdentinn: — Eg hef ekki á-
kveðið ennþá hvort ég læri tann-
lækningar eða eymalækningar.
Faðirinn: Tannlækningar eru
gróðavænlegri og von um meiri
atvinnu, því að allir hafa 32 tenn-
ur en aðeins tvö eyru.
— ~k —
Tvö herbergi og eldhús
til leigu í fjóra mánuði. —
Tilb. merkt: „íbúð — 4729“
sendist Mbl. y
Miðstöðvarkatlar
til sölu: Stærðir 32 ferm.,
8 ferm., 6 ferm. og 3 ferm.
Upplýsingar í síma 18583.
Segulbandstæki
(nýlegt) K-B-100 v-þýzkt
til sölu, á góðu verði. —■
Uppl. í síma 36964.
Vegna flutninga
er til sölu góð þvottavél
með þeytivindu. Verð kr.
4500,- Uppl. í síma 10811.
Vil kaupa
Volkswagen bíl. Uppl. í
síma 20143.
íbúð óskast
í Kópavogi (vesturbænum)
Upplýsingar í síma 34669.
Ökukennsla
Er aftur byjaður að kenna.
Get bætt við nemendum.
Stefán Jónsson.
Simi 34178.
Keflavík
Okkur vantar forstofu
herbergi nú þegar. Uppl.
í síma 1105.
Hraðfrystistöð Keflavíkur
Bíll
Vel með farinn 4—5 manna
bíll óskast. Ekki Skoda eða
Moskwitch. Útb. 30 þús.
Upplýsingar í síma 22864.
Útgerðarmenn
Skipstjóri vanur síldveið-
um óskar eftir góðum bát
í sumar. Tilboð merkt:
„Tækni — 4799“ send-
ist afgr. Mbl. fyrir 30. maí.
Kvengullúr
(Roamer) tapaðist í Vest-
urbænum. Finnandi vin-
samlegast skili því á lög-
reglustöðina.
Stúlka óskast til starfa
austur í Laugardal; má
hafa með sér barn. Upp-
lýsingar veittar í síma
3-71-05, í kvöld og næstu
daga.
Ungur og reglusamur
Verzlunarskólastúdent ósk
ar eftir góðri atvinnu nú
þegar. Tilboð sendist Mbl.
fyrir 23. þ. m., merkt: „At-
vinna — 4727“.
33V
Frúin: — Þegar kaupmaðurinn
rétti mér vörurnar, sem ég keypti
af honum, kallaði hann mig ung-
frú.
Maðurinn: — Þessu trúi ég vel.
Maðurinn hefur álitið að enginn
væri svo vitlaus að viljá eiga þig
fvrir konu. ‘
Fiskbúð
Fiskbúð óskast til leigu í
Reykjavík eða Kópavogi.
Tilboð merkt „Fiskbúð
279“, sendist afgr. Mbl. fyr
ir 22. þ. m.
Smokingföt til sölu
Sími 50709.
Fundið
kvenúr fannst í Slysavarn-
arhúsinu á Grandagarði.
Uppl. í síma 14807.
Keflavík — Nágrenni
Óska eftir 2ja—3ja herb.
leiguíbúð. Uppl. í síma
2294.
2ja—3ja herbergja íbúð
óskast til leigu sem 'yrst.
Uppl. í síma 12230 frá
8—11 í kvöld.
Jeppi
til sýnis og sölu að Haga-
mel 41, milli kl. 6—8 í dag.
Upplýsingar í síma 15234.
Veiðimenn
Góðir ánamaðkar til sölu.
Sendum heim. Símf 15376.
Til sölu
varahlutir í Ford Prefect
’46. Uppl. i síma 18352.
Tún
Get útvegað tún til að rista
ofan af, í nágrenni Reykja
víkur. Uppl. í síma 33689
eftir kl. 7.
Ung hjón
sem vii>na bæði úti, óska
eftir 2ja—3ja herb. íbúð.
Uppl. í síma 32806 eftír
kl. 6.
Tveggja herb. risíbúð
við Ægissíðu til leigu. Fólk
sem vinnur úti gengur fyr-
ir. Tilb. sendist afgr. Mbl.,
merkt: „Sólrík — 4589“.
Kýr til sölu
20 kýr á öllum aildri á öll-
um tímum til sölu. Seljast
með góðum skilmálum, ef
samið er strax. Uppl. 14 C
Brúarland.
ísskápur til sölu
Notaður „Norge“ ísskápur
7 cub.f. til sölu og sýnis
á Flókagötu 51 eftir kl. 5
í dag og næstu daga. —
Sírnj 20466.
Tökubarn
Barnlaus hjón vilja taka
barn í fóstur. Helzt sem
yngst. Bréf sendist afgr.
Mbl. fyrir 31/5, merkt:
„Tökubarn — 4725“. '
Hjón með tvö börn
13 og 16 ára óska eftir
2—3 herb. íbúð til leigu.
Tilb. sendist Mbl. fyrir 22.
þ. m., merkt: „íbúð —
4724“.
Notað mótatimbur
óskast. Uppl. í síma 16904
og 22699 milli kl. 7—9 í
kvöld og næstu kvöld.
ATHUGIÐ
að torið saman við út.breiðsl
er .angtum ódýrara að auglýs
i Morgunblaðinu, en öðrui
blóðum. — -