Morgunblaðið - 18.05.1962, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.05.1962, Blaðsíða 12
12 Föstudagur 18. maí 1962 T MORGVNBLAÐIÐ Otgefandi: H.f Arvakur Reykjavík. Frarnkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Otbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: ^.ðalstræti 6. Augiýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. HALDA VERNDAR- HENDI YFIR KOMM- ÚNISTUM Þannig hafa hryðjuverkanr.enn OAS gengið til verka í Alsír að undanförnu. Enginn Serki hefur verið óhultur á götum úti, fyrir vélbyssuárásum meðlima samtakanna. 17ins og getið var um hér í *-J blaðinu í gær hafa Framsóknarmenn nú tekið upp beina vöm fyrir komm- únista. Fram að þessu hafa þeir látið sér nægja að taka sömu afstöðu og kommúnist- ar til málefna. Þeir hafa forðazt að skamma þá, en ekki beinlínis tekið upp varnir fyrir stefnu þeirra. í 2—3 áratugi hafa komm- únistar ekki verið í jafn erf- iðri aðstöðu og nú síðustu vikurnar, eftir að flett hef- ur verið ofan af þjóðsvika- fyrirætlunum þeirra. Þess vegna finnst aðalmálgagni Framsóknarflokksins nauð- synlegt að koma þeim til hjálpar með beinum vörn- tun í áróðursskrifum. Meginskjólið, sem Fram- sóknarmenn veita kommún- istum, er hins vegar að sjálf- sögðu samstaða þeirra með þessum erindrekum erlends valds á öllum sviðum þjóð- lífsins. — Ef kommúnistar væru nú einangraðir og Framsóknarflokkurinn taéki sömu afstöðu til þeirra og allir lýðræðisflokkar ver- aldar nú gera, eftir að eðli þeirra og starfsaðferðir eru lýðum Ijósar, þá væri eng- inn efi á því, að kommún- istar yrðu nú þegar þessar vilcurnar settir á sama bekk í íslenzku þjóðlífi og þeir eru annars staðar. En Framsóknarflokkurinn virðist ekki mega til þess hugsa að fylgi kommúnista rýrni. Annars mundi hann ekki taka upp vamir fyrir þá, nú þegar loksins er hægt að gera þá algjörlega áhrifa- lausa. Þessi staðreynd bend- ir því miður svo eindregið til þess, að leiðtogar Fram- sóknarflokksins hyggist enn reyna að koma á „þjóðfylk- ingunni11 með kommúnistum, að varla ætti að þurfa fyllri sannanir. Með hliðsjón af þessum staðreyndum hafa borgar- stjórnarkosningarnar ekki einungis þá meginþýðingu að tryggja höfuðborginni farsæla stjórn — og sveitar- stjórnarkosningar annars staðar að tryggja hinum ýmsu sveitarfélögum forystu dugmikilla og frjálslyndra lýðræðissinna — heldur get- ur líka á þeim oltið öll þjóð- málaþróun hér á landi næstu árin eða áratugi. Ef fylgistap kommúnista yrði ekki verulegt vegna stuðnings' þess og skjóls, sem Framsóknarflokkurinn veitir þeim, mundu þeir áfram geta haft mikil á- hrif, til dæmis í verkalýðs- félögum og víðar, í sam- vinnu við Framsóknarflokk- inn. En hitt er einnig mikil- vægt, að sú vinstri klíka, sem nú ræður lögum og lof- um í Framsóknarflokknum, sjai, svo ekki ^erði um villzt, þegar atkvæði verða talin í kosningunum, að það fólk, sem fylgt hefur Framsókn- arflokknum, ætlast ekki til þess að hann verði notaður til að styrkja kommúnista til áhrifa og valda. NÝ VINSTRI STJÓRN rngum dylst, að kommún- istar og Framsóknar- menn stefna að því að reyna að kollvarpa Viðreisnar- stjórninni og eyðileggja efnahag landsins í þeim til- gangi að stofna síðan vinstri stjóm í því upplausnar- ástandi, sem þá mundi skap- ast. Og Morgunblaðið hefur öruggar heimildir fyrir því, að þegar hefur stefnan verið mörkuð í meginatriðum, með hliðsjón af „mistökum“ síðustu vinstri stjórnar og er á þessa leið: Ný vinstri stjóm á „að vera alþýðustjórn eða þróast upp í það“. Fyrsta skrefið í þeirri þróun á að vera að öll bankastarfsemi verði lögð undir fullt ákvörðunarvald sjálfrar ríkisstjómarinnar til að koma öllu fjármálavaldi í hendur „þjóðfylkingar- manna“. Megináherzlu á að leggja á að koma í veg fyr- ir, að nokkur einkafyrirtæki geti hagnazt, heldur á að halda þeim í stöðugum fjár- hagsvandræðum. —■ Smáat- vinnurekstri og félitlum fyrirtækjum á þannig fyrst að koma á kné, en jafnframt á að halda uppi pólitískum stórárásum á sterkari fyrir- tæki til að dreifa athyglinni frá hruni smáatvinnurekstr- ar. —• „Þjóðfylkingarmenn" ætla sér að koma á fót ríkisrekstri í innflutnings- og útflutn- ingsverzlun og víðtækri bióðnýtingu á fleiri sviðum, Mikiivægt lyf gegn graftarsýklum FYRR á þessu ári til- kynnti W. Godtfredsen á rannsóknarstofum Lövens Kemiske Fabrik (Leo) í Kaupmannahöfn, að á rannsóknarstofunni hefði fundist nýtt antibíótikum. The Lancet hefur nú birt niðurstöður af fyrstu at- hugunum um nytsemi þess, og eru læknarnir af- ar hrifnir af efninu, sem Leo nefnir Fucidin. Fuci- din hefur reynst sérlega eitrað fyrir graftarsýkla (Stafýlokokka). Fucidin hefur þann ómetanlega eiginleika að auka verkun penicillins. V Síðan fyrst var tilkynnt um fund Fucidins hefur það verið reynt gegn fjölda sýkla tegunda í ræktun, og hefur það reynst einna bezt gegn graftarsýklum þeim er Sta- fýlókokkar nefnast. Á rækt- unardiskinum dregur Fucidin úr vexti þeirra útþynnt, í sjö á móti 100 000 000. Hundr að sinnum meira magn þarf til að stanza streptókokka. Stífkrampabakteríur eru mjög viðkvæmar fyrir því, og barnaveikisýkillinn er um tíu sinnum viðkvæmari en stafýlokokkarnir. Það ætti einnig að geta verið notihæft gegn berklum. Ef til vill er mikilsverðasti eiginleiki Fucidins sá, að það margfaldar verkun penicill- ins 2,3 sinnum — ef sýklarnir ir eru ónæmir fyrir penicill- in. Séu sýklarnir næmir fyr- ir penicillin bætist aðeins verkun þess við fucidin-áhrif in. V Með ræktun er auðvelt að fá fram sýkla, sem eru ónæm ir fyrir Fucidin. Eiturverk- anir þess á spendýr eru litl- ar. Engin ill áhrif hafa fund- ist á menn, en þegar skýrsl- urnar birtust hafði það ver- ið gefið meira en 300 sj&kl- ingum. G. Taylor og K. Bloor i Manöhester hafa birt skýrslu um notkun sína á Fucidin gegn graftarsýklum í sárum. Þegar Fucidin var notað eitt tókst ekki að útrýma sýklum úr sárunum, en eigi að síður greru þau, og þá hurfu sýklarnir um leið. Þeir segja aftur á móti að þegar Fucidin og penicillin Voru notuð saman hafi árangurinn verið frábær. Skal hér nefnt dæmi úr skýrslu þeirra: „Tilfelli nr. 2. — Sextíu og níu ára gömul kona hafði æxli í húðinnj á kálfanum. Það var talið vera krabbamein, i og sfcórt svæði var skori? J burtu. Græða átti húð á sár- , . ið, en það tókst ekki, því að í þrátt fyrir penicilíin- og I streptomycingjöf komst í sár- i ið Staph. aureus, sem var I ónæmur fyrir penicillin. Hún 1 fékk nú penicillin og Fucidin l og sýklar voru algerlega | horfnir úr sárinu á 4. degi Eftir viku voru tveir þriðju hlutar af sárinu grónir.“ Um notkun Fucidins eins segj a þeir. „Sýklar hurfu ekki úr sárunum, fyrr en þau greru. Samt sem áður greru þau fljótt, og þegar litið er á tegund sáranna, var batinn svo hraður, að ætla má að fucidin flýti fyrir að sár grói og sú verkun sé óháð áhrif- um þess á sýklana.“ Þeir segja enníremur, að Fucidin sé mikilvirkara í líkamanum en ætla mætti með hliðsjón af ræktunartil- raununum, og geti því verið, að líkaminn breyti þvi í ann- að og mikilvirkara efni. Þótt mjög lítil reynsla sé komin á Fucidin, er öruggt, að mönnum hefur þarna tek- ist að finna mikilvægt vopn í baráttunni við sýklana. en styrkja jafnframt áhrifa- vald SÍS. í kjaramálum á að láta opinber fyrirtæki, fyrirtæki ríkis og bæja, og SÍS-fyrir- tæki semja um óraunhæfar kauphækkanir, sem geri einkarekstri ókleift að starfa. Þegar slíkir „samningar“ hefðu verið gerðir, ætti að setja stærri fyrirtækjum nokkurra daga frest til þess að fallast á slík „laun“. Ann- ars yrðu eignir þeirra gerðar upptækar til ríkisins eða þá afhentar SÍS. Loks á svo að tengja efna- hagslíf okkar við fjármála- vald hins kommúníska heimsveldis, með því að taka stór lán austantjalds og selja sem allra mest af vörum þangað, en eyðileggja mark- aði okkar annars staðar. Þessi eru áform þeirra, sem einskis svífast til þess að ná völdum. í kosningun- um 27. maí þurfa íslending- ar að svara þessum fyrir- sétlunum. GLEÐILEGT TÍM- ANNA TÁKN 17arautanríkisráðherra Sam- ^ einaða Arabalýðveldis- ins og nokkrir samstarfs- menn hans hafa verið í heimsókn hér á íslandi und- anfama daga. Islendingar fagna þessum góðu gestum og vona að aukin viðskipti milli hins arabíska heims og lands okkar sigli í kjölfar þessarar heimsóknar. Norrænir menn eru fjar- skyldir og fjarlægir löndum Araba. Engu að síður hljóta tengsl vináttu og viðskipta að skapast milli okkar og þeirra. — Heimurinn hefur færzt saman. I raun og veru er engin þjóð annarri fjar- læg í dag. Allir geta náð til allra á nokkrum klukku- stundum. Þessi breyting á afstöðu landa og þjóða hefur þegar haft í för með sér byltingu á fjölmörgum sviðum. — I framtíðinni mun brottfall fjarlægðanna hafa ennþá stórkostlegri áhrif. Það er von íslenzku þjóðarinnar að afleiðing þess verði fyrst og fremst sú, að friður og sátt eflist meðal allra þjóða, hvar sem þær búa, á hvað sem þær trúa og hver sem litarháttur hörunds þeirra er. Heimsókn varautanríkis- ráðherra Sameinaða Araba- lýðveldisins til Islands er 1 augum Islendinga gleðilegt tímanna tákn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.