Morgunblaðið - 18.05.1962, Blaðsíða 14
14
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 18. maí 1962
Þakka sérstaktega sveitungnm mínum vinarfhug og gjafir
á sjötugs afmæli minu, svo og öllum öðrum sem hafa heiðr-
að mig með skeytum og gjöfum.
DaJsmynni 14. rnaií 1962.
Sesselja Jónsðóttir
Verzlun til solu
Smávöruverzlun við Laugaveg er til sölu nú þegar.
Nokkur lager. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir n.k.
þriðjudagskvöld (22. maí) merkt: „Smávöruverzlun
— 4723“.
Keflavík — Vogar
Tilboð óskast í húsgrunn í Vogum, ásamt tilheyrandi
efni, sem er á staðnum, mótatimbri. sementi, gluggum
og vikursteinum, ásarot stórum bragga, er stendur
við grunninn. — Upplýsingar veittar í síma 1358 í
Keflavík eftir kl. 7 á kvöldin.
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar vegna vanskila
á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík Og heimild
í lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnurekstur
þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn skulda
soluskatt 1. ársfjórðungs 1962, svo Og söluskatt og út-
flutningssjóðsgjald eldri ára, stöðvaður, þar til þau
hafa gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt
áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja
komast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar
til tollstjóraskrifstofunnar, Arnarihvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 15. maí 1962
Sigurjón Sigurðsson.
Maðurinn minn
GÍSLI INGVAR HANNESSON
bóndi á Skipum, Stokkseyri,
andaðist að heimili sínu miðvikudaginn 16. maí.
Guðfinna Guðmundsdóttir
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við
fráfall
ÞURÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR
Njálsgötu 37
Böm og tengdabörn
Innilegt þakklæti flyt ép öllum þeim fjær og nær, sem
auðsýndu vináttu og samúð við análát og útför minnar
elskuðu vinkonu
GUÐRÓNAR ODDSDÓTT'UR
Oddeyrargotu 11, Akureyri.
Guð blessi ykkur ÖU.
Rósa Randversdóttir
Þökkum innilega sýnda samúð við andiát og jarðarför
GÍSLA MAGNÚSSONAF
útgerðarmanns.
Sigríður Einarsdóttir og börn,
Sólhlíð 3, Vestmannaeyjum.
Sigríður Benediktsdóttir
Minning
FRÚ SIGRÍÐUR Benediktsdótt-
ir, ekkja Stefáns Gunnarssonar
skósmiðs og skókaupmanns,
kvaddi þennan heim hinn 10.
þ.m., en 5 dögum síðar hefði
hún náð 81 árs aldri. Hún var
fædd þann 15. maí 1881 að Mið-
húsum í Vatnsdal, og voru for-
eldrar hennar þau hjónin Guð-
ríður Tómasdóttir og Benedikt
járnsmiður Samsonarson, síðar
í Skálholtskoti í Reykjavík, Sam
sonarsonar trésmiðs og bónda í
Víðidal, seinna kaupmanns og
hreppstjóra í Dýrafirði.
Sigríður giftist 28. júní Stef-
áni Gunnarssyni, f. 26. sept.
1880 í Litlabæ á Vatnisleysu-
strönd. Foreldrar hans voru
hjónin Sesselja Jónsdóttir bónda
Jónssonar á Brunnastöðum og
Gunnar bóndi í Litlabæ og síð-
ar Hátúni, Stefánssonar bónda
á Brekku í Biskupstungum,
Gunnarssonar bónda og hrepp-
stjóra í Hvammi í Landsveit
Einarssonar. Föðurætt Stefáns
var komin frá Bjarna Halldórs-
syni frá Víkingslæk í Landsveit.
Sigríður og Stefán settu ung
og efnalaus heimili á stofn í
Reykjavík, og bjuggu hér alla
tíð. Eiginmann sinn missti Sig*
ríður þann 17. apríl 1948, eftir
tæpra 46 ára ástríka sambúð.
Hjónaband þeirra var alltaf til
fyrirmyndar, aldrei varð vart
sundurlyndis milli hjónanna,
heimilislífið var ágætt og sam-
heldni fjölskyldunnar mikil. í
nærri 27 ár áttu þau heimili 1
Miðstræti 6, þar fæddust öll
börn þeirra, og þar hygg ég að
þau hafi dvalið beztu ár ævi
sinnar. En eins og oft vill verða
fóru þau ekki varhluta af veik-
indum, hvorki sjálf né börn
þeirra. Misstu þau 4 af börnum
sínum. Marinó og Hákon dóu að-
eins nokkurra mánaða gamlir,
Gyða 8 ára efnilegt bam, og
Kristín um tvítugt, góð og mynd
arleg stúlka. Hin börnin er nú
lifa eru Guðríður gift Col,
Kirkby Green í USA, og Gunn-
ar stórkaupmaður, og Sesseija,
sem bæði dvelja í heimahúsum.
Sigríður var prýðileg kona, vel
greind, oftast kát og hress í
viðmóti, dugleg og ágæt hús-
móðir, og ber heimilið órækt
vitni um listfengi hennar og góð
an smekk, en þar eru fleiri lista
verk samankomin, bæði mál-
verk og aðrir listmunir, heldur
en þekkist víðasthvar hér á
landi. Ekki má gleyma blómun-
um þegar Sigrfðar er minnst.
Hún hafði mikið yndi af þeim,
hafði þau og hlynnti að þeim
í stofunum sínum, í garðinum
og gróðurhúsinu, og dvaldi
margar stundir meðal þeirra.
Sigríður var gestrisin með
afbrigðum, og var það ætíð eins
og komið væri til veizlu er gest
bar að garði í „Stefánshúsi" en
svo nefndum við oft heimili
þeirra hjóna. Hún var greiðvik-
in og hjálpfús, og mátti ekkert
aumt sjá án þess að reyna að
rétta hjálparhönd. Var hún
þannig sett í iífinu að hún gat
oft gert það, og urðu bæði skyid
ir -henni og óskyldir, aðnjótandi
ýmissar aðstoðar frá hennar
hendi.
Heimilinu helgaði Sigríður
alla starfskrafta sína. Hún var
stórbrotin kona og vel af guði
gerð, en átti nokku'ð lengi við
'heyrnardeyfð að búa er háði
henni talsvert, einkum seinni
árin. Reyndust þá börnin henni
afbragðsvel sem áður, og léttu
henni þessa byrði svo sem unnt
var. Hún var að öðru leyti heilsu
góð, þar til hún fékk snögglega
heilablóðfall og andaðist nokkr-
um dögum síðar af afieiðinguim
þess.
Eg sem þessar línur rita, minn.
ist með ánægju nærri 20 ára
samibýlis við Sigríði og fjöl-
skyldu hennar í Miðstræti, og
frændsemi og vináttu alla tíð.
Fyrstu tuttugu ár ævinnar verða
flestum ánægjulegust, og minn-
ingarnar hópast nú fram I hug-
ann, er hugsað er um þá tima,
og Sigríði og fjölskyldu henn-
ST.
Við hjónin og fjöis'kylda okk-
ar sendum innilegustu samúðar-
kveðjur vegna fráfalls frú Sig-
ríðar.
Ó. H. J.
Lakkhúðaðar þilplötur.
Stærð: 120x120 cm.
Mjög hentugar til klæðningar á
BAÐHERBERGJUM og ELDHÚSUM
Fjölbreytt litaval
Ludvig Storr & Co.
Símar: 1-33-33 og 1-16-20
Til sölu
Sérverzlun í fullum gangi á mjög góðum stað í borg-
inni. Góður vörulager. Hentugt fyrir karl eða konu
er vUja skapa sér sjálfstæða atvinnu. Tilboð leggist í
pósthólf 589 fyrir mánudagskvöld n.k.
Frá Tónlistarskólanum
Inntökupróf i Tónlistarskólann í Reykjavik fyrir skóia-
árið 1962—’63 verður mánudaginn 21. mai kl. 5 s.d.
' að Laufásvegi 7.
Skólastjóri
Byggingarfulltrúi
Starf byggingarfulltrúa í Garðahreppi er laust til um-
sóknar. Umsóknir ásamt kaupkröfu og upplýsingum
um menntun, sendist sveitarstjóranum í Garðaæreppi
fyrir 1. júní n.k.
Sveitarstjórinn í Garðahreppi 16. maí 1962
Mabeiðolukona
eða kona vön matargerð óskast í gistihús út á landi.
Upplýsingar í síma 10039.
Býlið Bali
vestan við Hafnanfjörð er til sölu. íbúðarhús og góð
útihús. Nánari upplýsingar gefur
GUÐJÓN STEINGRÍMS SON. hrl.
Reykjavíkurvegi 3 — Hafnarfirði
Sími 50960
E inangrunarkork
1“, 1%“ og 2“ þykktir
KORKMULNINGUR, bakaður
MÚRHÚÐUNARNET
KALK, til múrhúðunar
SNOWCREM, margir l;x:-
fyrirliggjandi
Þ. Þorgrímsson & Co.
Borgartúni 7
Sími 22235 (2 línur)