Morgunblaðið - 18.05.1962, Qupperneq 17
Föstudagur 18. maí 1962
MORCVNBLAÐIB
17
Ingibjörg Guðmunds-
dóttir — Minning
' HÚN LÉZT að Elliheimilinu
Grund 10. þ.m., 88 ára að aldri.
Ingibjörg var fsedd 5. febrúar
1874 að Fannardal í Norðfirði.
Foreldrar hennar voru Guðmund
ur Magnússon, bóndi þar, og kona
ihans Sigurbjörg Sigfúsdóttir.
Hún var mjög ung, þegar hún
missti móður sína, enda yngst af
sex systkinum. Síðar giftist faðir
Ihennar Helgu Marteinsdóítur og
étti með henni þrjú börn. Eru
nú öll systkinin látin.
i Ingibjörg fór snemma að heim-
an til að vinna fyrlr sér og dvaldi
á ýmsum stöðum, en lengst af í
ÍNorðfirði. í Reykjavíik dvaldi
hún um skeið og lærði karl
mannafatasaum. Eftir það stund
aði hún saumaskap á Norðfirði
um tíma. Árið 1919 gekk hún
uhdir uppskurð í Reykjavík
vegna meinsemdar, sem hún
hafði gengið með um skeið, og
1932 var hún skorin upp á Akur
eyri við sama sjúkdómi. Fékk
hún mikla bót meina sinna, þó
hún næði sér aldrei til fulils. Um
haustið 1923 fluttist hún til for-
eldra minna, Magnúsar Gísla-
sonar og Sigríðar Jónsdóttur, á
Eskifirði og dvaldist eftir það
é heimili þeirra um 30 ára skeið.
Síðustu tíu ár æfi sinnar var
Ingibjörg oftast sjúk, og lá þá á
ýmsum sjúkrahúsum, lengi af á
sjúkradeild Elliheimilisins. Var
hún oft mikið þjáð, en bar á
vallt þjáningar sínar með still-
ingu.
Ingibjörg var framúrskarandi
harngóð og tók miklu ástfústri
við Okkur systkinin, vakti yfir
hverju okkar fótmáli, og síðar
tók hún eins miklu ástfóstri við
ckkar börn og bar umhyggju
fyrir velferð þeirra fram í and-
lótið. Hún var mjög trygglynd
og vinföst og skyldurækin svo
af bar. Hún var trúhneigð og
hélt fast við sína barnatrú,
kunni langa kafla úr kverinu
eínu, því hún var stálminnug.
Nú, þegar hún er horifin sjón-
um, minnumst vér systkinin
með þakklæti alls hennar mikla
og óeigingjarna starfs í okkar
þágu, og munum við jafnan
geyma ljúfar endurminningar
um hana.
Þorhjörg Magnúsdóttir.
ÞEGAR ég nú við burtför
Ingibjargar Guðmundsdóttur
rifja upp gamlar og góðar minn-
ingar frá æsku minni á Eski-
firði, þá er það margt sem sækir
é hugann, mörg spor átti ég þá
í sýsluimannshúsið sem var mér
ógleymanlegur staður, sökum
þeirrar reisnar og höfðingsskap-
ar sem þar bjó. Ingibjörg var
þar þjónn húsbændanna og var
ekki hægt annað en taka eftir
hvernig hún rækti skyildurnar.
Ég held ég haifi þar og hjá
henni kynnzt þjónustuhlutverk-
inu í sinni hreinustu og sönn-
ustu mynd. Kannski þá hef ég
lært hve þetta hlutverk er dá-
eamlegt í lífinu. Aldrei spurt
um hvað fáist í aðra hönd, en
gleði og ánægja yfir að véra til
gagns. Þetta er sá skóli sem
mér hefur orðið til gagns og
góðs síðar á lífsleiðinni.
Ingibjörg var ábyggilega sátt
við lífið. Hún var andlega stór,
vissi vel hvaða verðmæti duga
bezt þegar þessari fjarvist lýk-
ur. Gleði hennar stærst þegar
einhverju góðu var þokað á-
leiðis. Þess vegna er hugur minn
hlýr af þakklæti nú, þegar ég
minniist liðinnar vegferðar og
samleiðar. Ég er fullviss, sé við
nokkurn hægt að segja að leið-
arlokum: „Yfir litlu varstu trú,“
þá er það við þessa góðu vin-
konu mína sem nú kveður. Bless
uð og sönn hamingja fylgi henni
í upphafi og yfirgaf hana aldrei.
Slík hamingja verður aldrei met
in til fjár. Þökk fyrir góð kynni
og órofa vináttu.
Ámi Helgason.
Skrifstofcimaður
óskast í stórt fyrirtæki í Reykjavík nú þegar eða um
næstu mánaðamót. Gott skólapróf eða reynsla æski-
leg. — Umsóknir sendist afgr. Mbl. merkt:
„Framtíðarstarf 1962 — 4800“.
Nýkomnir vatteraðir
Nylon sloppar
og sundbolir
Hattbúð Reykjavíkur
Laugavegi 10
24%sZ‘
Burma-teak
— Mikil verölækkun
NÝKOMIÐ:
Burma teak, 2“x5“—6“,
254 “x3“—6”
Þýzk eik 1”,—114”,—l’ú”—2”,
Danskt brenni 1”,—154“,
—-154“,—2“—254”, 3”.
Álmur 154“ ,—154”,—2”.
Væratanlegt næstu daga
Finnskur birkikrossviður 3, 4 og 5 mm.
Þýzkur eikarspónn o. fl.
— Tökum á móti pöntunum. —
l e e
KÆLIBORÐ
Sýningarborð — Kælir — Aígreiðsluborð.
Hillurými 20,1 ferfet
LEC kæliborðin útvegum við með stuttum
fyrirvara frá Englandi.
Áætlað verð kr. 36.900,—
Sýnishorn fyririiggjandi
RAFTÆKJADEILD
E
. JOHNSON & KAABER %
Hafnarstræti 1 — Sími 24000
Húsnæði
Roskin ekkja sem býr í eigin húsi á rólegum stað
nálægt Miðbænum vill leigja þriggja herb. íbúð roskn-
um hjónum eða roskinni konu, sem dvelzt heima á
daginn. íbúðin er laus nú þegar. — Umsækjendur leggi
nöfn sín, ásamt upplýsingum um stöðu Og stétt inn á
afgr. Mbl. fyrir 22. þ.m. merkt: „Hólatorg — 2345“.
VÉLBÁTUR
16 smál. með dýptarmæli og fullkomnum
dragnótaútbúnaði, allt í all-góðu ástandi
til sölu. Nánari upplýsingar veitir ftr. vor,
Björn Ólafsson hdl.
LANDSBANKI ÍSLANDS
Reykjavík
Fró barnaskólum og gagn-
fræðaskólum Reykjavíkur
Vegna 100 ára afmælis samfeUdrar barnafræðslu í
Reykjavík vorða sýningar á skólavinnu nemenda í
barna- og gagnfræðaskólum borgarinnar 19. og 20.
þ.m. Sýnmgarnar verða opnar á þessum tima:
Laugardag 19. maí kl. 4—8 síðdegis.
Sunnudag 20. maí kl. 10—12 árdegis og 2—7 síðdegis
Fræðslustjórinn í Reykjavík
SPEGLAR — SPEGLAR
Speglar í teakrömmum
Fyrirliggjandi — Margar stærðir
Baðspeglar — Handspeglar — Rakspeglar
og alls konar smærri speglar í miklu og
fjölbreyttu úrvaii
SPEGLABIJOIN
Laugavegi 15
Blóm á mceðradaginn
POTTA BLÓM — AFSKORIN BLÓM
Hjá okkur eí úrval blóma úr Hveragerði, Mosfells-
sveit og víðar að.
Seljum ávallt það bezta frá öllum garðyrkjumönnum
á hagkvæmasta verði. \
v
ATHUGIB: — Það bezta frá öllum á einum stað.
Óþatji að leita langt yfir skamrnt.
Gróðrastöðin v/Miklatorg.
Símar 22822 og 19775.
Gróðrastöðin við Miklatorg. — Símar 22822 og 19775