Morgunblaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 4
4 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 20. maí 1962 Volkswagen Er kaupandi að góðum bíl, árg. ’58—’60, milliliðalaust. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir fimmtudag, merkt: „Staðgreiðsla 465“. Ökukennsla Kennt er á nýja Volkswag- en bifreið. Simi 18158. Til leigu er 100 ferm. hæð í Laugar- nesi. íbúðin leigist í 4 mán. júní, júlí, ágúst, september. Uppl. í síma 33934. Bandsög til sölu. Trésmiðja . Gissurar Símonarsonar við Miklatorg. Sími 14380. íbúð óskast til leigu í Heimahverfi eða nágrenni þess. Uppl. í síma 32858. Sveitastaður óskast fyrir hraustan 11 ára dreng. Uppl. 1 síma 10549. Til sölu Opel Caravan ’55, Zim ’55, Volkswagen sendif.bíll ’55. Bifreiðasaia Stefáns Grettisgötu 80. Símj 12640. Lítið iðnaðarpláss í Norðurmýrinni til leigu. Upplýsingar-í síma 12640. Góð íbúð óskast fyrir tvennt reglu- saiht fullorðið fólk. — Uppl. í síma 37440 f. h. eða eftir kl. 6. Fordson Selst ódýrt. Uppl. á Suður- götu 28, Hafnarf. eða í síma 51428. Tvær hásingar í International vörubíl, til sölu. Tvöfalt drif og einfalt drif. Uppl. í síma 50936. íbúð til leigu ný 3—4 herbergi. Fámenn fjölskylda gengur fyrir. — Uppl. í síma 2-28-14, milli kl. 8-10. Kvenreiðhjól til sölu. Upplýsingar í sima 35036. Ketill 2,5—3 ferm. brennari og olíutankur til sölu. Uppl. í síma 35972. Báðskona óskast í sveit á Suðurlandi. Má hafa með sér barn. — Upplýsingar í síma 35998. f dag er sunnudagurinn 20. mai. 140. dagur ársins. Árdegisflæði kl. 5:44. Síðdegisflæði kl. 18:04, Slysavarðstofan er opin allan sólar- hringinn. — L.æknavörður L,.R. uynr vitjanir) er á sama stað frá kl. 18—8. Sími 15030. Næturvörður vikuna 19.—26. maí er í Ingólfs Apóteki. Kópavogsapótek er opiO alla vlrka daga kl. 9,15—8, laugardaga frá kl. 9:15—4. helgid. frá 1—4 e.h. Sími 23100. Sjúkrabifreið Hafnarfjarðar síml: 51336. Holtsapótek, Garðsapótek og Apó- tek Keflavíkur eru opin alla virka daga kl. 9—7, laugardag frá kl. 9—4 og helgidaga frá kl. 1—4. Næturlæknir í Hafnarfirði 19..—26. maí er Páll Garðar Ólaísson, sími: 50 1 26. Ljósastofa Hvítabandsins, Pornhaga 8. Ljósböð fyrir börn og fullorðna. Upplýsingar 1 síma 16699. IOOF 3 = 1445218 = 8Jé l IOOF 10 == 1445218% = Barnaheimilið Vorboðinn tekur á móti umsóknum fyrir börn til sumar- dvalar á barnaheimilinu í Rauðhólum, laugardaginn 19. maí og sunnud. 20. maí kl. 2—6 e.h. báða dagana í skrií- stofu Verkakvennafélagsins Fram- sóknar, Alþýðuhúsinu. Tekin verða börn á aldrinum 4 til 6 ára. VORHIJGUR Reyklausa Reykjavík, birtunnar bær, Himinn þinn hvelfist blár, heiður og tær. Heilnæm er loftsins lid lifandi og hrein. Vormergið bjarta ber bramið á grein. Vakandi úr viðjum ris vorhugur minn. Seiðandi sigurmátt sólar ég finn. Heyri, sem hvísli blær himninum frá. Vakir og verndar þjóð vorhugans þrá. Hiutverkið Guð þér gaf gróanáans borg. Lífstraumar landsins alls liggja um þín torg. Þínum í barmi býr blessun vors lands: sigur þess eigin elds, undraverk hans. Opnast mér sögusvið, sigrar og töp, leitandans langa för, leiðsögn og glöp. Rís yfir rökkurvöld reynslunnar biys. Hættum oss forða frá fortíðar slys. KFUM og K, Hafnarfirðí: Á almennu samkomunni í kvöld, sem hefst kl. theol. Kvenfélag Kópavogs: Munið fundinn í félagsheimilinu annað kvöld. Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavik heldur fund mánudaginn 21. maí kl. 8:30 í Slysavarafélagshús- inu á Grandagarði. Til skemmtunar kvikmynd oil. — Stjómin. Sýning á myndum Collingwoods í Bogasal Þjóðminjasafnsins er opin daglega frá kl. 2 e.h.— 10 e.h. Leiðrétting: í viðtali við frú Matt hildi Kjartansdóttur, fyrir skömmu misritaðis nafn Sigurðar gentlemanns, en hann var Einarsson Sæmundsen. - M E SS U R - Langholtsprestakall: Messa kl. 11 f.h. Skólalúðrasveit Reykjavíkur und ir stjórn Karls Ó. Runólfssonar leikur úti áður en messan hefst. Séra Árelí us Níelsson. Sjötíu ára er í dag frú Sigríð ur Jónsdóttir, Kvíum, Þverár- hlíð, Mýrarsýslu. ÍReynslan þér réttir hönd rísandi borg. Framtak hins frjálsa manns fegrar þín torg. Æskunnar eilíft vor yngir þitt blóð. Víkkandi sjónarsvið sameinar þjóð. Maríus Óiafsson. Laugardaginn 12. b.m. voru gefin saman i hjónaband í Ár- bæjarkirkju, stud. phil. Kol- brún Rögn Valtýsdóttir (Valtýs- sonar, læknis) og stud. oecon. Pétur Jónsson. Faðir brúðgunv ans séra Jón Pétursson, prófast ur frá Kálfafelisstað, gaf brúð hjónin saman. (Ljósm.: Studio Guðmundar, Garðastræti 8). Sigurvegarar í píanóleik j Fyrir skömimu var haldin í Moskvu keppni í píanóleik, sem kennd er við Tdhaikovski. í þessari keppni tóku þátt pí anóleikarar frá mörgum lönd um heims allir yn.gri en 32 ára. Tveir píanóleikarar skiptu með sér fyrstu verð- laununum. Annar þeirra var Rússonn Vladimir Ashkenazy eiginmaður Þórunnar Jó- hennsdlóttir, pianóleikara, en hitt var Bretinn John Og- don. Við birtum hér myndir af sigurvegurunum, Ashkenazy er á efri myndinni, en Ogdon á þeirri neðri. Þetta er í annað sinn, sem slík keppni í píanóleik er hald in í Moskvu, sú fyrri var hald in 1958 og þá bar bandaríski píanóleikarinn Van Cliburn sigur úr býtum. Mikil aðsókn var að keppn- inni, sem haldin var á dögun um og voru miðarnir, sem voru mjög dýrir, uppseldir löngu fyrirfram. Gömul kona, sem dó í vetur í Rússlandi, hafði keypt sér miða, og í erðaskná sinni ánafnaði hún frænku sinni hann. JÚMBÖ og SPORI - K~ — -)<■— Teiknari: J. MORA H Þriðja daginn leit út fyrir að Trölii hefði lokið starfi sínu. Hann korn með tvö glös, sem hann sýndi Júmbó og Spora og lýsti því yfir áherzluþrunginni röddu, að þessi efni gætu frelsað fangana. — Hvað er þetta og hvernig á að nota það? spurði Júmbó. — Þetta er nokkurskonar lyf, sem gerir menn eins sterka og fíla, út- skýrði hann, sjáið þið, nú gef ég einum gullfiskinum mínum það.... Hann tók upp lítinn fisk og setti örlítinn dropa upp í hann. Þá varð Júmbó skvndilega hugsað til Úlfs, sem var niðri í þorpinu. Á meðan prófessorinn var að ljúka við tilraun sína, hljóp hann upp stigann. Var ennþá tími til að hjálpa föngunum, ef hann og Spori vrðu eins sterkir og fílar?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.