Morgunblaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 23
. S Sunnudagur 20. maí 1962
MORGVNBLÁÐIÐ
£3
- Gjaldeyrisstaðan
r' Framhald af bls. 24.
hundraði. Kunnugt er, hver við-
Ibrögðin urðu við hækkunum
þessum.
Hvað hefði gerzt, af genigið
hefði ekki verið fellt?
Afleiðingar kauphækkunarinn-
hefðu aðallega orðið tvenns
-konar, ef ekki hefði verði grip-
ið til gengislækkunar.
Aðalútflutningsatvinnuvegirn-
ir hefðu skyndilega orðið fyrir
miklum kostnaði, án þess að fa
nokkuð í staðinn. Hækkanir þær,
sem fengust, voru meiri en svo,
að atvinnuvegirnir hefðu ekki
beðið tjón, ef ekkert hefði verið
að gert.
Einu ráðstafanirnar, sem at-
vinnufyrirtækin hefðu sjálf get-
að gert, var að draga saman
seglin, smám saman, þvi að nú
var ekki til að dreifa uppbótum
eða styrkjum. Atvinna við þau
fyrirtæki, sem hér áttu hlut að
máli, hefði minnkað, er frá leið,
vegna þess, að kostnaðaraukn
ingu hefði ekki verið hægt að
mæta á annan hátt en með því
að fækka starfsmönnum. Hefði
þá svipuð heildarlaunagreiðsla
farið til færri manna sem hver
um sig hefði fengið fleiri en
minni krónur til umráða, en áð
ur.
Framleiðslan hefði dregizt
saman, bæði vegna takmarkaðra
möguleika á því að hækka verð
á erlendum markaði, án þess, að
það segði til sín í minni eftir-
spurn, og einnig vegna minni af-
kasta.
Tvær aðrar meginleiðir hefðu
komið til greina, aðrar en geng-
isfelling. önnur var sú, að grípa
aftur til uppbóta- og styrkjakerf-
isins, auka innflutningsgjöld og
feoma á gjaldeyrisskatti.
Hin hefði verið að setja höml-
ur við fjárfestingu og reyna að
draga úr eyðslu fólks.
HvOrug þessara leiða hefur
reynzt happasæl á undanförnum
árum.
Hefði ekkert verið að gert,
hefði fyrst um sinn, áður en til
samdráttar hefði bomið, kaup-
geta innanJands aukizt, vegna
hærra kaups. Hins vegar hefði,
innan skamms, verið búið að
kaupa upp allan tiltækan gjald-
eyri, og þá hefði verið komið í
sama horfið og áður fyrr, að
grípa hefði orðið til skömmtun-
ar á gjaldeyri og takmörkunar
innflutnings. Bein afleiðing af
þessu hefði orðið verðbólga,
vöruskortur og ólögleg verzlun
með erlendan gjaldeyri.
Þýðing gjaldeyrisvarasjóða
fyrir sjálfstæði þjóðarinnar
Þannig myndaðist á sínum
tíma, sá vítahringur, sem svo
erfitt hefur verið að rjúfa, og
þar liggur aðalmein efnahags-
ker.fisins á undanförnum árum.
Ef þvi öngþveiti, sem ríkti hér
fram til ársins 1960, hefði verið
mætt fyrr, eða hefði aldrei verið
leyft að myndast, þá hefði fyrr
verið tekin stefna í rétta átt, á
þann hátt, sem gert hefur verið
undanfarin tvö ár.
Á það hefur verið bent, oftar
en einu sinni, af þeim hagfræð-
ingum, sem kunnugastir eru
efnahagsmálum okkar, að á það
skorti, að þjóðin ætti nægilega
gjaldeyrisvárasjóði til þess að
geta, um hríð mætt erfiðleik-
um, sem ófyrirsjáanlegir eru, svo
sem óvæntum markaðsbreyting-
um erlendis sem tefja eða hindra
sölu, eða brestum í framleiðsl-
unnj innanlands, sem draga úr
gj aldeyristekj unúm.
Það er almennt álit ráðamanna
á vesturlöndum að hver þjóð
þurfi að eiga gjaldeyri sem nægi
til a. m. k. þriggja mánaða inn-
flutnings. Séu sjóðir minni, þurfi
að viðhafa gætni, og kappkosta
að vinna að því að auka þá, svo
eðlilegt ástand komizt á.
íslendingar hafa, lengst af,
ekki átt neina slika sjóði, og
hafa þurft að treysta á önnur
lönd, til að hlaupa undir bagga,
þegar að hefur sorfið. Hins veg
ar ætti hver og einn að geta
skilið, af eigin reynzlu, hvers
virði það er, að geta staðið sjálf-
stætt, í slíkum tilfellum, og þurfa
ekki að vera upp á neinn kom-
inn.
Hvers vegna hefur gjaldeyris-
staðan batnað?
Gjaldeyrisstaðan hefur batn-
að, á undanförnum tveimur ár-
um, vegna þess, að þess hefur
gætt, að eftirspurnin eftir gjald
eyri verði ekki of mikil. Sam-
bandið á milli eftirspurnar eftir
erlendum gjaldeyri er nátengd
kaupgreiðslum. Aukizt þær,
eykst eyðslan á erlendum gjald-
eyri. >ótt við höfum ökkar eig-
in gjaldeyri, þá þýðir það ekki,
að við getum skammtað okkur
hann eftir vild. Peningarnir eiga
að svara til framleiðslunnar, og
þeir geta aldrei orðið meira virði
en hún. Ef til framkvæmdh koma
kauphækkanir, sem ekki svara
til framleiðsluaukningar, þá
gengur erlendur gjaldeyrir til
þurrðar, og er svo er komið,
verður að taka erlend lán.
Sú leið var farin áður. Erlend
lán voru tekin, þegar þau fengust
— og þau gengu til þurrðar jafn-
óðum. Flestir, sem minnast þess
ástands, geta ekki sameinað það
hugsuninni um bætt lífskjör og
heilþrigt ástand.
>að mun sennilega flestir sam
mála um það, hvers virði það er
að eiga hlútfalltlega jafngilda
varasjóði í gjaldeyri og önnur
lönd, sem standa traustum fótum
efnáhagslega. >ví ætti það að
vera næsta takmark okkar að
koma upp slíkum sjóðum og við-
halda þeim.
Samhengið
Gengisfellingar eru aldrei vin-
sælar ráðstafanir, vegna þess, að
álhrifa þeirra gætir mjög snögg-
lega, næstum á einum degi. Yerð-
bólga er hins vegar oftast hæg-
fara, áhrif hennar dreifast yfir
lengri tíma, menn taka jafnvel
vart eftir breytingunni, frá degi
til dags. Hins vegar er verðbólg-
an undanfari gengisfellingarinn-
ar, sem venjulega er eina úr-
ræðið, sem hægt er að grípa til,
til að vega á móti.
>að er einkum tvennt, sem
veldur verðbólgu, annars vegar
verðhækkanir, hins vegar hærri
kaupgreiðslur. Hækki vöruverð
erlendis, er ekkert við því að
gera, en sennilega má gera ráð
fyrir, að verð á útflutningsvörum
hækki í staðinn, svo að bilið
megi brátt brúa.
Hins vegar kann vöruverð
einnig að hækka vegna kaup-
Blóm á mœðradaginn
POTTA BLÓM — AFSKORIN BLÓM
Hjá okkur ei úrval blóma úr Hveragerði, Mosfells-
sveit og víðar að.
Seljum ávallt það bezta frá öllum garðyrkjumönnum
á hagkvæmasta verði.
ATHUGIB: — Það bezta frá nllum á einum stað.
Óþarfi að leita langt yfir skammt.
Gróðrastöðin v/Miklatorg.
Símar 22822 og 19775.
Gróðrastöðin við Miklatorg. — Símar 22822 og 19775
r*’
Utboð
Þeir sem gera vilja tilboð um að byggja og fullgera
barnaskóla í Álftaisiýri (1. áfanga hér í borg, vitji
útboðsgagna í skrifstofu vorá Tjarnargötu 12 HI.
hæð, gegn 2000 króna skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR.
hækkana innanlands, og hækki
kaupgjald innanlands, má ætíð
reikna með hærra vöruverði —
annað er venjulega ekki eðli-
legt. Séu menn óánægðir með
þær hækkanir á vöruverði, sem
verða eftir gengisfellingu, líkt og
gerzt hefur tvívegis á tveimur
árum, hjá okkur, þá er ekki
hægt að sigrast á þeim hækkun-
um með því að fá skyndilega
hærri kaupgreiðslur. Hins vegar
væri þá að gera sér grein fyrir,
hvers vegna gengisfellingin var
gerð — og hafi hún verið gerð,
vegna þess, að nýhækkað kaup
ógnaði gjaldeyrisforða þjóðar-
innar — þá verður ekki sigrast
á verðhækkunum með enn hærra
kaupL
30% á 10 árum
Menn furða sig á því, hve vel
hefur gengið víða erlendis að
byggja upp framleiðslukerfi
þjóða, og hve líískjörin hafa
sums staðar batnað mikið, á
skömmum tíma.
Slíkur árangur hefði ekki
náðst, ef þeirri aðferð hefði verið
beitt að greiða hærra kaup, en
svaraði til framleiðslu, eða með
Féll niður í
þýðingu
DR. H. W. HANSEN hefur kom-
ið að máli við Morguniblaðið og
beðið um leiðréttingu á grein,
sem hann skrifaði í blaðið um
vorsýningu Myndlistafélagsins.
Segir hann að í þýðingu á um-
sögn sinni hafi fallið niður nöfn
tveggja málara, Eyjólfs Eyfells
og Guðmundar Karls ÁsbjöAis-
sonar. Um myndir Eyjólfs átti
að standa: „Hann hefir þrjár
góðar myndir á sýningunni, tvær
þeirra líká mér sérlega vel,
Eyjafjallajökull og Vífilsfell.“
Um Guðmund átti þess að vera
getið að hann stundar nám
á Ítalíu og „hefir sent þrjéu-
myndir á sýninguna, Vor á Ítalíu,
Með blómstrandi ávaxtatré, og
hreinlega máluð mynd, Uppstill-
ing, gera þær það skiljanlegt
að hinum unga manni hefir ver-
ið boðið að sýna á vorsýningu
Parísarborgar. Vafalaust mun
hann ná meiri þroska með veru
sinni á „Academía di Belle Arti“,
Er þessu hér með komið á
framfæri, en þess skal getið, að
greinin barst blaðinu þýdd.
töku nýrra lána, erlendis frá.
Þjóðfélög, á svipuðu stigi og
við, með svipuð efnahagskerfi og
framleiðsluihætti, hafa komizt að
þvi, að framleiðsluaukning, ár
hvert nemur um 3 af hundraði.
>ví hefur verið reynt að haga
því svo til að kaupgreiðslur
hækki ekki um meira, en sem
nemur 3 af hundraði árlega.
Þannig hafa menn notið ávaxta
vinnu sinnar.
3% á ári er ek'ki mikil upphæð,
kann mörgum að finnast. Hins
vegar ber að hafa það í huga,
að 3% á ári'eru 30% á 10 árum
og 45% á 15 árum. 17 ár eru
nú liðin, síðan heimsstyrjöldinni
síðari lauk, Og þar kann að liggja
skýringin á því, hve mikil breyt-
ing hefur orðið á högum sumra
þjóða síðan.
>ó að við séum nær því marki,
að eiga lágmarks varasjóði nú,
en rvokkru sinni fyrr, á undan-
förnum árum, þá er það skylda
okkar að haga málum okkar
þannig, að ekki verði að nýju
farið inn á þær leiðir, sem óum-
flýjanlega leiða til verðbólgu og
rýrnunar gjaldeyrisforðans.
SVAR við gátu dagsins: VALUR.
SILFURTUNGLIÐ
Sunnudagur
Cömlu dansarnir
Stjórnandi: Baldur Gunnarsson
Randrup og félagar sjá um f jörið.
Söngvari með hljómsveitinni
Gunnar Einarsson
Húsið opnað kl. 7 — Sími 19611.
Mánudagur kl. 9
Jaxx — Jamuán þ vbgk
Jazz — Jazz — Jazz
Quartett Péturs Östlunds með
Gunnari Ormslev
Kristjáni Magnússyni og
Edvin Kaber
Cadillac‘54
til sölu nú þegar. Bifreiðin verður til sýnis frá kl. 1—7
í dag og næstu daga á Hverfisgötu 46 upp í portinu.
STULKA
helzt vön, óskast til starfa í nýtízku þvottahúsi, góð vinnuskil-
yrði. frí laugardaga og sunnudaga, hátt kaup. Upplýsingar virka
daga milli kl. 9 og 6 á staðnum og ekki svarað í síma.
KOIM4
Þvottahúsið FÖNN Fjólugötu 19 b.
SI-SLETT P0PLIN
( N0-IR0N)
NINEHVAg/£*~«*>*
STRAUNING
ÓÞÖRF