Morgunblaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.05.1962, Blaðsíða 24
 Fréttasimar Mbl — eftir lokun — Erleudar fréttir: 2-24-85 Innlendat fréttir: 2-24-84 Reykjavíkurbréf Sjá blaðsíðu 13. 114. tbl. — Sunnudagur 20. maí 1962 0|aldéyrisstaðan hefur batnað um 1117 síðan viðreisnin byrjaði RÚM TVö ÁR eru nú liðin, síðan hafizt var handa um þær ráð- stafanir, sem svo mjög hafa sett svip sinn á viðskipta- og efna- hagslíf landsmanna. — Ráðstafanir þessar hafa valdið miklum hreytingum, til hins betra. Eitt hið athyglisverðasta, sem af þeim hefur leitt, er gerbreyting á gjaldeyrisafstöðu þjóðarinnar. Því hefur verið lýst, hér í Morgunblaðinu, að frá sl. áramótum, hefur gjaldeyrisstaða bankanna batnað um 375 milljónir króna. Ef litið er aftur til þess tíma, er viðreisnin í efnahagsmálum hófst, febrú- ar 1960, kemur í ljós, að gjaldeyrisstaðan hefur batnað um rúm- lega milljarð, þ.e. um 1117 milljónir ísl. króna, miðað við núver- andi gengi. Ef, hins vegar er miðað við það gengi, er var, áður en gengisfellingin 1960 var gerð, nemur breytingin tæpum milij- arð. — A þessu tímabili hafa orðið margvíslegar breytingar á öðrum sviðum viðskiptalífsins. Innflutningur hefur, að mestu leyti, verið gefinn frjáls, þannig, að viðskipti við vöruskipta- lönd hafa minnkað, en önnur viðskipti aukizt. Hafta- og upp- hótakerfið hvarf og með þessum ráðstöfunum. Birgðir útflutn- ingsvara við sl. áramót, voru meiri en lengi hefur verið. aðila í landinu, hefur árangurinn orðið meiri en flestir hefðu búizt við. Þrátt fyrir verðlækkun ytra • og kauphækkanir innanlands Á árinu 1960 bar skugga á þró- unina, sem var mikil verðlækk- un á nökkrum afurðum, svo sem mjöli Og lýsi, sem eru mikilvæg- ir þættir í útflutningnum. Við það bættist léleg afkoma, sérstak lega hjá síldveiðiflotanum. 1961 komu til framkvæmda hækkanir á .kaupgreiðslum, er nómu almennt milli 13 og 17 af Framh. á bls. 23 Því verður ekki neitað, með neinni sanngirni, að mikilsvert spor hefur verið stigið í þó átt, að koma á öruggari efnahags- kerfi, meira jafnvægi á viðskipt- um, bæði innanlands og utan. Hér er urn að ræða áfanga á þeirri leið, að gera þjóðina hæf- ari til að standa án stuðnings, þrótt fyrir misjöfn aflabrögð og Frunsókn sýnir völdin yfir SÍS FRAMSÓKNARMENN opin- beruðu í gær einu sinni enn misnotkun sina á völdunum innan samvinnuhreyfingarinn ar og þjónustuhlutverk henn- ar við flokkshagsmuni Fram- sóknar. Það vakti mikla at- hygli vegfarenda í Miðbænum í gærkvöldi, að einn fram- bjóðenda flokksiiis við borgar stjómarkosningarnar, Hörður ’ Helgason, var að bjástra við að festa upp slagorðaborða frá Framsóknarflokknum á verzlun Sambandsins í Austur stræti. Eitthvað munu hinir klókari menn í Framsóknar- flokknum hafa verið hikandi við að afhjúpa svo greinilega misnotkun Framsóknarflokks ins á samvinnuhreyfingunni rétt fyrir kosningar, því að í gærmorgun var borðinn tek inn burtu. árferði, með myndun varasjóða í erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir ýmsar torfærur, bæði ófyrirsjó- anlegar og af völdum einstakra Fyrsti laxinn i kistunn við EUiðnúr H FYRRINÓTT kom fyrsti laxinn í kistuna við Elliða- ár. Er þetta fallegur lax, um 10 pund að þyngd. Verið er að ganga frá efri hluta ár- innar til þess að taka á móti göngulaxinum. Þetta þykir lofa góðu um veiði í ánum í sumar. Viðræður um knup og kjör VIÐRÆÐUR fulltrúa frá Vinnuveitendasambandi íslands og verkamanna- félaginu Dagsbrún um kaup og kjör, sem farið hafa fram að .undanförnu, standa enn yfir og eru fundir haldnir sem næst daglega, stundum fleiri ení einn fundur á dag. í gærl var t.d. gert ráð fyrirí a.m.k. 2 fundum. — Rætt er um kaupgjaldsmál í Reykjavíkurbréfi Mbl. í dag. Brenndist um og AKRANESI, 19. maí. — Það slys varð niðri á Langasandi um hádegi í gær að 8 ára drengur brenndist mikið srvo að flytja varð hann á sjúkrahúsið. Dreng urinn heitir Jóhannes Sigurðsson Skagabraut 40. Með Jóhannesi vöru tveir drengir á líku reki, Friðþjófur og Jón. Eldri strákar höfðu keypt benz in í fötu fyrir 8 kr og fóru of an á Langasand. Þar höfðu þeir byggt sér skýli undir bakkanum og var strompur á. Hugmyndin var. að hita upp skýlið. Taka þeir nú benzínfötuna og hella á hönd- andlni niður um stromiipinn. Þremenn- ingarnir, Friðþjófur, Jóhannes og Jón voru í húsinu með eld- spýturnar. Skeður nú allt í senn. Þeir tendra eld og loginn læsir sig upp eftir benzínbununni og inni haldið í fötunni blossar upp. Ofsahrœðsla greip strákinn, semi á henni hélt, svo hann hendir föt unni í dauðans ofboði upp á bakk ann. Drengirnir þrír ryðjast út úr diyrunum og í því veltur fat- an að fótum þeirra og logandi benzínið spýtist á þá. Jóhannes brenndist mikið á andliti og höndum en Friðþjófur brenndist á höndum. — Oddur. . Vormót IR Fyrsta frjálsíþróttamót sumars ins, verður haldið á Melavellin- um í dag kl. 2. — Þetta er Vor- mót ÍR, sem árlega er ,haldið í maímánuði. Á mótinu verður keppt í 10 greinum og keppendur eru 30 talsins, flestir frá ÍR eða 13. Garðahreppur Almennur félagsfundur verður haldinn í Sjálfstæðisfélagi Garða hrepps að Garðaholti í dag, sunnudaginn 20. maí kl. 14.00. Fundarefni: Væntanlegar sveitarstjórnarkosningar. Félagar f jölmennið. ' Stjórnin Síldarsamningar hjá Sáttasemjara Viðræðufundir hafa farið fram milli sjómannafélaganna og útvegsmanna um kjör á síldveiðum í sumar. Hafa þeir ekki borið árangur og hefir málinu verið vísað til Sátta- semjara ríkisins, sem boðaði fyrsta sáttafundinn kl. 9 i gærkvöldi. Hér er um að ræða samn- inga fyrir öll sjómannafélög landsins að frátöldu Sjó mannafélagi Vestmannaeyja. Lenti heilu höldnu DARMSTAT, 19 maí (AP) — Brezkur flugstjóri á stórri flutn ingavél frá Líbanon nauðlenti •heilu og höldnu á lítilli flug- braut hersins hér í morgun. Bæði loftskeytatæki og rúðu- þurrkarar flugvélarinnar voru í ólagi. Flugvélin, sem er af York gerð, fjögurra hreyfla, hafði í morgunsárið lagt upp frá Frank furt áleiðis til Brindisi á Ítalíu og Beirut í Líbanon með um 9 smálestir af ýmsum varningi. Síðasti sýningar- dagur í Ásgríms- safni f DAG lýkur sýningu þeirri á vatnslitamyndum sem staðið hefur yfir í Ásgrímssafni und- anfarnar vikur. Á sýningunni eru, auk landslagsmynda, mynd ir af atburðum úr þjóðsögum og íslendingasögum. Safnið verður lokað í % mán- uð, en opnað að nýju sunnu- daginn 3. júní með sumarsýn- ingu, sem verður yfirlitssýning með lí'ku sniði og síðastliðið sumar. Snell vann PETER SNELL Nýja Sjálandi hefir hlaupið míluna hraðar en nokkur annar hefur gert í Bandaríkjunum. Á móti í Los Angeles hljóp hann á 3.54,4. í hlaupinu varð Bandaríkjamað urinn Burleson annar á 3:57,9. Heita vatnið sti'bymir eftir leiðslunum í stokknum — og borgarbúar þurfa ekki annað en skrúfa frá krananum heima hjá sér. Svona á það að vera —■ og svona verður1 það í stöðugt ríkari mæli, þar til alMir Reykvíkingar hafa heitt vatn að 4 árum liðnum. En fyrir börnin gegna hita- veitustokkarnir enn víðtækara hlutverki, eins og sjá má á þessari mynd (Ljósm. Mbl.: Ól. K. Mag.). Útvarpsumræður Hafnarfirði r 1 ANNAÐ KVÖLD, mánudags- kvöld, verður útvarpað almenn um umræðum um bæjarmál Hafn arfiarðar. Verður útvarpað á mið bylgjum (1010 kmz eða 198,7 m) og verður byrjað að útvarpa hljómlist kl. 7 s.d., en umræð urnar hefjast kl. 20. Ræðutími hvers ílokks er 60 mín., sem* skiptast í 4 umferðir (20, 15, 15, 10 mín), og er röð flokkanna þessi: Alþýðuibanda- lag, Aliþýðuflokkur, Framsóknar flokkur, Sjáltfstæðisfflokkur. Síams-tvíburarn- ir hressir LONDON, 19. maí (AP) — Lælknaskýrsla á laugardag upp- lýsti að líðan Síams-tvíburanna frá Nigeríu, Jennifer og Joan, væri góð. Annar tvíburanna, sem eru stúlkuböm, kvefaðist á fimmtudaginn, tveimiur dögum eftir að fram hafði farið undir- búningsaðgerð til að skilja þó 1 sundur, en hefur nú náð sér aft ur og andar eðlilega. Tvítourarn ir verða senn 5 mánaða gamlir. Þeir eru samvaxnir neðst á hryggnum. Stórhríð á Fagradal I FYRRADAG sneru 3 bilar við á Fagradal á leið sinnl upp á Fljótsdalshérað vegna blintdhríðar, sem þar var. Var þá vonzkuveður á Reyðar- firði. Óttast er að þetta valdi því að umferðatálmun verði á Fagradal og þá sambands- laust niður á Firði. Veðrið var lítið eitt skárra i gær fyrir austan. s

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.