Morgunblaðið - 16.06.1962, Síða 1

Morgunblaðið - 16.06.1962, Síða 1
24 siður Hinir nýbökuðu stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík í garði Alþingishússins í gær. — Sjá nánar á bls. 6. — (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Hræðist svipaða samninga um Berlín og gerðir voru um Laos New York, 15. júní. — (AP) — LANDVARNARAÐHERRA V.- Þýzkalands, Franz Josef Strauss, Bkýrði frá því í gær á blaða- mannafundi, að hann væri Kenn edy, Bandaríkjaforseta, algjör- lega sammála í því, að ekki væri hægt að beita sömu samn- ingaaðferð við Berlínardeiluna, og gert hefði verið í Laos. — „Slík lausn myndi þýða enda- iok Markaðsbandalagsins og hrun Atlantshafsbandalagsins“, sagði ráðherrann. Hann lagði áherzlu á það, að lausn, sem fengizt hefði á svipaðan hátt og nú hefði orðið í Laos, væri oft aðeins undanfari útbreiðslu kommúnismans. Aðspurður vék Strauss að því, hvort hann teldi fært að leysa Berlínardeiluna, og komast að eamkomulagi við austur-þýzku etjórnina, með því að veita henni fjárhagslegan stuðning í formi lána. Sagði ráðherrann, að sérstak- lega þyrfti að taka til greina þrjú atriði, er þessi leið væri rædd: • f fyrsta lagi þyrfti að á- kveða, hvort koma ætti austur-þýzku stjórninni til hjálpar við að bæta úr mat- arskorti þeim, sem ríkir í landinu. • í öðru lagi þyrfti að gefa gaum að þeim kjörum sem almenningur þar byggi við. • f þriðja lagi þyrfti að taka til rækilegrar athugunar, hvort ekki leyndist sú hætta í því að veita austur- þýzkum stjórnarvöldum fjár hagsaðstoð, til þess að auð- velda samkomulag, að kommúnistar notuðu það til fjárkúgunar í framtíðinni. Þá vék ráðherrann að atóm- vopnum. Hann sagði bæði stjórnina og stjórnarandstöðuna í Þýzkalandi vera á móti því, að Þýzkaland yrði gert að kjarn orkuveldi. Aðspurður sagði Strauss enn fremur, að hann teldi fullkomna einingu Evrópu vera langt und- an. Hún næðist e.t.v. ekki fyrr en eftir 20 ár. Hins vegar sagði Framih. á bls. 9. SALAN fyrir rétt Hér standa verkfræðlngarnlr þrfr fyrlr framan op jarðganganna, sem verða 800 m. löng inn í Sámstaðamúla. Frá yinstri: Svante Hjertberg, Rögnvaldur Þorláksson og Svavar Jónatansson. — Sjá nánar grein á 8. síðu. á ný PARÍS, 15. júní — AP—NTB. Saksóknari franska ríkisins krafðist þess í dag, að höfðað yrði nýtt mál á hendur Raoul Salan, fyrrum yfirmanni OAS-samtakanna. Jafnframt krafðist saksóknarinn þess, að Georges Bidault, fyrrum for- sætisráðherra, yrði sviptur þinghelgi. Hann er nú sagður yfirmaður þjóðernislegu and- spyrnuhreyfingarinnar, deild ar í OAS. Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, var Salan dæmdur í lífstíðarfangelsi 24. maí sl., fyrir þátttöku sína í hryðjuverkum OAS samtak anna, en hann stjórnaði að- gerðum félagsskaparins. Dóm urinn yfir Salan var kveð- inn upp af sama dómstól, sem dæmdi Edmond Jouhaud til dauða, en hann var undirmað ur Salans. I ljós kom síðar, að Salan stjórnaði aðgerðum OAS, úr fangelsisklefa sínum. Mun krafa saksóknarans fram kominn vegna hlutdeildar Sal ans í stjórn samtakanna, þann tíma, er hann sat í fangelsinu. Þá var þess einnig krafizt af saksóknaranum, að Bid- ault, fyrrum forsætisráðherra, yrði sviptur þinghelgi. Bid- ault er nú sagður fara huldu Framih. á bls. 9.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.