Morgunblaðið - 20.06.1962, Page 10

Morgunblaðið - 20.06.1962, Page 10
 10 MORGl ISBLAÐIB Miðvikudagur 20. júní 1962 kM heimsókn ú prestasteb.ii ] Rætt við Kaupmanna- hafnarbiskup Westargárd-Madsen, Kaupmannahafnarbiskup. Á PRESTASTEFNUNNI 1962, sem haldin er hér í Reykja- vík um þessar mundir, er m.a. staddur Kaupmanna- hafnarbiskup, Westergárd- Madsen. Við hittum hann andartak að máli í kaffihléi á þriðjudag, og var þá með- fylgjandi mynd tekin. — Hafið þér komið hingað til Islands áður? — Ég get varla sagt það, aðeins komið hér snöggvast við á leið milli Evrópu og Ameríku, þegar ég sat heims þing lútherstrúarmanna í Minneapolis. — Svo að þér eruð þá e.t.v. ekki reiðubúinn að svara því, hvort þér teljið nokkurn sérstakan mun á dönsku og íslenzku kirkjunni, og í hverju hann væri þá fólg- inn? — Nei, því miður, ekki enn. Þó tel ég, að hann sé ekki mikill, og enn eru viss tengsl milli íslenzkrar og danskrar kirkju. Margir prestar í þessum tveimur kirkjum eru kunnugir, og hef ég t.d. verið beðinn fyr- ir margar kveðjur hingað. U23 — Þér ætlið að flytja hér erindi um mannúðarstarf- semi í söfnuðum. — Já, það hefur lengi ver- ið sérstakt áhugamál mitt, og kannske það, sem kirkjan þarfnast einna mest á vorum dögum. Hvers konar félags- legt starf innan kirkjunnar er mjög mikilvægt. — Svo að ég víki að. öðru. Hafið þér eitthvað sérstakt að segja um Skálholtsmál- ið? — Ekki enn þá, til þess er ég of ókunnugur málum hér. Ég kem hingað með augun opin, ekki með fyrirfram á- kveðnar skoðanir, og það er hið eina sem gildir i sam- starfi þjóða á milli. Annars vonast ég til að eiga eftir að sjá Skálholtsstað. Kirkjubygging fyrir- huguð í Hveragerði FRÉTTAMAÐUR Mbl. hitti séra Helga Sveinsson í Hvera gerðj í Háskólanum í gær og ræddi við hann um stund um prestasteÆnuna og fleira. m Aðspurður um hvaða mál 'honum væri hugleiknast á flB — Hv-að er að segja um kirkjulíf í Hveragerði? — Nú er að færast nýtt líf í kirkjustarfið þar, því að verið ér að undirbúa byggingu nýrr ar kirkju í þorpinu. Eru það ekki sizt konurnar, sem sýnt hafa máli þessu á'huga, og hafa þær þegar hafið fjársöfn un til kirkjubyggingarinnar. Þann 16. þ.m. var kosin kirkjubyggingarnefnd og er formaður hennar Gísli Sig- urbjörnsson, forstjóri, sem sýnt hefur máli þessu mikinn áhuga frá upphafi. — Hvernig gtðjast yður að prestsstarfinu? —Það er ágætt, og að mörgu leyti fjölbreytt. Þar gefast fjölmörg tækifæri til að kynnast Jólki persónulega, kjörum þess og vandamálum. Margt í prestsstarfinu er mjög áinægjulegt, ekki sízt fermingarnar á vorin, þegar hinn hvítkiæddi barnahópur stendur í sveig umhverfis alt arið til þess að heita því að hafa Krist að leiðtoga lífs síns. Rætt við ungan prest um starfið úti á landi VIÐ HITTUM snöggvast að máli séra Kristján Búason, prest í Ólafsfirði. Hann er ungixr maður, tæplega þrítug ur að aldri, varð stúdent fra Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1952, guðfræðingur frá Háskóla íslands 1958, og sturíd aði síðan framhaldsnám er» lendis, bæði í Evrópu og Ame ríku. — Hvað hefurðu verið lengi prestur í Ólafsfirði? — Fjögur ár nú í vor. ffifó — Hvernig hefur þér líkað starfið? — Ágætlega Það er goi.t að starfa fyrir kirkjuna í ólafs- firði, því að söfnuðurinn tók mér vel þegar í upphafi og fólkið hefur komið til ffióts við mig í starfi og vill Viiina Sumarbúðir fyrir æsku- fólk rísa í Aðaldal ER HLÉ varð á prestastefn- unni í Háskólanum um stund í gær hitti fréttamaður Mbl. sr. Pétur Sigurgeirsson á Akur eyri að máli, en sem kunnugt er hefur séra Pétur unnið þar Séra Helgi Sveinsson í prestastefnunni sagði séra Helgi: — Það mun vera kristin lýð menntun, sem hér er til um- i »ðu í dag. Um þetta efni tala tveir kunnir skólamenn, séra Eiríkur J. Eirí'ksson, áður skólastjóri Núpsskóla í Dýra firði og Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri á Eiðum. Hér er um það fjallað hvaða .ráð kirkjan getur notað til þess að koma á framfæri áhrifum sínum á uppvaxandi æskulýð landsins. — Eg hefi kynnzt þessu, í kennslu, en ég kenndi við þrjá skóla í vetur, Miðskól- ann í Hveragerði, Garðyrkju- skólann að Reykjum og Hhð ardalsskóla, sem aðventistar reka. Einmitt við þann skóla 'kynntist ég því hversu mikil vægt 'það er að geta haft kristi leg álhrif á nemendurna. í skólanum er mikil rækt lögð við að hafa bænastundir með nemendunum og flytja þeim kristileg erindi. Eg hefi orðið var við að nemendur kunna vel að meta kristiiega fræðslu og eru þakklátir fyrir bæna- stundir, sem hafðar hafa ver ið með þeim. Það þarf að sjálf sögðu ekki að taka það fram að ég er ekki aðventisti en ég tel að þeir vinm mjög gott starf í Hlíðardalsskóla. Séra Pétur Sigurgeirsson (Ljósm. Mbl.: ól. K. M.) mikið og merkt starf í æsku- lýðsmálum innan kirkjunnar. — Æskulýðshreyfingin á Akureyri hefur nú starfað síð an 19. október 1947 en þá var stofnað Æskulýðsfélag á Akureyri með fermingarbörn um frá því ári, sagði séra Pét ur. — Félagið starfaði í kap- ellu Akureyrarkirkju og vofu þar fundir hálfsmánaðarlega á veturna. Á fundum þessum voru bæði hafðar helgistund- ir og efni til fræðslu og skemmtunar. — Þessari starfsemi hefur verið haldið áfram óslitið og er æskulýðsfélagið sterkur þáttur í hinu kirkjulega starfi á Akureyri. Hafa félagar m.a. stutt sunnudagaskólann og unnið ýmis störf í kirkjunni. með prestinum. í stuttu máli sagt hef ég mætt þarna ba ði velvild og skilning. UJS — Er æskulýðsstarfsenn' á vegum kirkjunnar í Ólafs- firði? —Já, nokkur. Hún er þrí- skipt. í fyrsta lagi er s'arf- Þá hefur verið lögð stund á kappróðra, málfundafélag hefur verið starfrækt svo og aðrir tómstundaklúbbar. — Þessi starfsemi er kix'kj- unni mikilsverð? — Starfsemin finnst mér verða til þess að æskan vakni til umhugsunar um að hún útskrifast ekki úr kirkjunni að fermingu lokinni heldur eigi hún að tilheyra henni áfram. Slík félagsstarfsemi innan kirkjunnar tíðkast alls staðar, og er ég var við fram- haldsnám erlendis varð ég fyrir áhrifum af slíkri starf- semi. Haustið 1959 var stofnað ÆSkulýðssamband Hólastiftis og innan þess vébanda eru nú átta æskulýðsfélög. Hið áttunda var nýlega stofnað á Grenivík af séra Jóni Bjar- man í Grenivík. í stjórn sam- bandsins eru séra Pétur Sigurgeirsson , fonm., séra Sigurður Guðmundsson, Grenjaðarstað, ritari og séra Árni Sigurðsson á 1 Hofsósi. Meðstjórnendur eru Magnús Aðalbjörnsson nemandi í MenntaSkólanum á Akureyri og Guðný Stefánsdóttir af- greiðslumær. — Merkasta mál, sem nú er á döfinni hjá samibandinu, er bygging sumarbúða við Vest- mannsvatn í Aðaldal. Þar verða búðir fyrir 30—40 ung- linga og er smíði þeirra þegar hafin. Er ætlunin að ljúika við aðalskálann í haust. Formað- ur byggingarnefndar er séra Sigurður Guðmundsson að Grenjaðarstað, en auk hans eru í nefndinni séra Sigurður Hau'kur Guðjónsson að Hálsi í Fnjóskadal og Gylfi Jóns- son, nemandi í Menntaskólan um á Akureyri. — Við prestarnir á Akur- eyri, séra Birgir Snæbjörns- son, sem mikið og gott starf hefur unnið í æskulýðsmál- um á staðnum^ höfum tekið upp sérstakar æskulýðsguðs- þjónustur einu sinni í mánuði og hafa þær staðið yfir vetrar mánuðina, sagði séra Pétur Sigurgeirsson að lofcum. infiiin r*>m—iiniV ~ —• — Séra Kristján Búason í Ólafsfirði. ræfctur sunnudagaskóli alla sunnudaga ársins fyrir börn frá þriggja til fjögurra ára aldri og allt upp í tólf ára aldur. Þá starfar Æskulýðs- deild Ólafsfjarðarkirkju í 2 deildum, yngri deild og eldri deild. Sú fyrri er ætluð ungl- iWgum 12—14 ára, en hin síð arnefnda 14 ára og eldri. Þess ar deildir koma saman viku lega að vetrinum. 923 — Hvað um aðra starfsemi á vegum kirkjunnar? — Þar er af ýmsu að taka. Nefna má t.d. það, að ég hef haldið biblíulestra einu sinni í viku á heimili mínu fyrir fullorðið fólk. Þá syngur við kirkjuna mjög áhugasamur kirkjukór og svokölluð Hail grímsnefnd, sem er eins kon ar safnaðarfélag kvenna, áð- stoðar kirkjuna á margan hátt.. 923 — Þú hlýtur að hafa ærið að staría, því ag auk þessa má ekki 'gleyma messunum. Hvað eru þær margar yfir ár ið? — Eg reyni að hafa þær a.m.k. hvern sunnudag. Sl. ár voru þær 56 hjá okkur í Ól- afsfirði, 1 utan prestakallsins og 47 barnaguðsþjónustur, eða alls 104. Að síðustu má nefna barnaspurningar, sem eru tvisvar í vibu um veturinn, kristinfræðikennslu í barna- skóla, sem er 7 tímar í viku, og fieira. — Við vonum, að lesendur fái af þessu einhiverja hug- mynd um starfsemi presta. 921 1 ! kMMMMUUhMi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.