Morgunblaðið - 20.06.1962, Síða 15
Miðvikudagur 20. júhx 1962
MORGVNBLAÐIÐ
15
Kungalv í maí.
t>AÐ hefur vorað óvenju seint
í Svíþjóð í ár. Þó var blíðskap-
arveður á sumardaginn fyrsta,
er að þessu sinni bar upp á
skírdag. — Sá dagur er virkur
dagur hérlendis. 1 Danmörku og
Noregi er skírdagur aftur á
xnóti helgur dagur. En aðeins
við íslendingar viðhöldum þeirri
fornu venju að halda sumar-
daginn fyrsta hátíðlegan. —
Þann dag komst hitinn hér í
Kungalv upp í 19 gráður. En
síðan kom öldudalur. í maí-
byrjun var hitinn aðeins 2—3
siig.
En nú er vorið gengið í garð.
Dagarnir bjartir og langir.
Loftið fullt af ilmi og yl. Allt
glitrar og grær. Laufskógarnir
urðu skrúðgrænir á örfáum
sólskinsdögum.
Kaupstefna í Gautaborg
Ég hitti einn ágætan kunn-
irigja minn á kaupstefnunni í
Gautaborg í gær. — Sú vöru-
Sining stóð frá 5.—13. maí sl.
— Hann var nýkominn að
heiman og kvað allt gott þaðan
að frétta. Vorið væri síður en
svo seinna á férð þar en hér.
Sauðburðurinn hefði gengið á-
gætlega. Yfirleitt ærnar bornar
og margt tvílembt.
Þau góðæristeikn glöddu
vissulega þann, er hugsar gott
til búsafurða að afliðnu sumri
í kraumandi kjötkatli eða slát-
urpotti.
Einnig skal þess vel minnzt,
að fátt vakti meiri athygli í ís-
lenzku deild sænsku kaupstefn-
unnar í Gautaborg en einmitt
gæruskinnin. Bæði hinar snögg-
klipptu, dúnmjúku stólsetur og
hinir togmiklu skrautfeldir í ó-
sviknum sauðalitum, ej- festir
voru til sýnis á óplægð þil ís-
lenzku sýningarbaðstofunnar.
íslandsdeildin var staðsett
við annan hliðarvegg aðalsýn-
ingarskálans. Réttara væri að
kalla salarkynnin kauphöll, því
mikil áherzla var lögð á að
miMa verzlunarsamböndum. —
Sagt er, að aldrei hafi fjöldi
hinna nýju verzlunarsambanda
or'iið meiri en einmitt að þessu
sinni.
Frá 41 landi voru óskir um
slíka miðlun bornar fram. Þar
af voru 17 lönd utan Evrópu,
m.a. komu óskir frá Rhodesíu,
Arabíska sambandslýðveldinu
og ríkjum í Suður-Amerxku.
Auk þess frá nokkrum ríkjum
Austur-Evrópu. Þau stóðu einn-
ig að þessari yfirgripsmiklu
vörusýningu. — Sýningargestir
voru alls um 160 þúsund.
íslandsdeildin vakti athygli
þótt hún væri hvorki yfirgrips-
mikil né léti mikið yfir sér.
Ferðaskrifstofa rílcisins og ís-
lenzku flugfélögin, Flugfélag fs-
lands og Loftleiðir, stóðu að
þeirri snotru landkynningu, sem
þarna átti sér stað. Þarna voru
auk ljósmynda og prentaðs
máls, m.a. leirmunir, ullarvör-
ur og skinn.
öllu var smekkl^ga fyrir
komið, enda var það hinn mesti
smekkmaður og áhugamaður
lim Islands-kynningu hér um
slóðir, sem bar hita og þunga
af öllum undirbúningi. Það var
Bengt D. Silverstrand, vel-
þekktur Loftleiðamaður og
„skattmeistari" í Sænsk-íslenzka
félaginu í Gautaborg. Helga
Brekkan annaðist kynningu í
islenzku deildinni. Hún bar is-
lenzkan þjóðbúning.
Spor í rétta átt
Það er mikilvægt að aukin sé
verulega landkynning af okkar
hálfu erlendis og að notuð séu
betur en gert hefur verið þau
tækifæri, sem gefast til kynn
ingar, m.a. á íslenzkum afurð
um og vörum, sem hægt er að
selja til útlanda. Þá er ekki
síður nauðsynlegt að færa sér í
nyt þá reynslu, sem slíkar kynn
ingar gefa. Svíar fara t.d.
hæstlaunuðu yfirmennirnir geti
einnig fengið hliðstæðar launa-
hækkanir, þar sem margir
starfsmannahópar verða fluttir
í hærri launaflokka.
Nýlega var þáttur sýndur í
sænska skólasjónvarpinu um
ráðdeild og hagsýni — um
hvað hlutirnir kosta og hverju
meðalfjölskylda eyðir.
Skýrt var frá því, hvernig
mánaðarleg fjárhagsáætlun
venjulegrar fjögurra manna
fjölskyldu lítur út. — Heimilis-
faðirinn er skrifstofumaður,
húsmóðirin vinnur ekki utan
heimilisins, börnin eru tvær
stúlkur, önnur 9 ára og hin 15
ára.
Launin eru 1600 kr. á mán-
uði. Hér er miðað við sænskar
krónur. Útgjöldin voru þannig
áætluð:
Skattar: 350 kr., húsaleiga:
300 kr., til heimilisþarfa (mat-
vörur o. fl.): 500 kr., fatnaður:
130 kr., bíllinn: 140 kr., orlof
Ölvun við aksfur
Bengt D. Silfverstrand, framkvæmdastjóri, var hrókur alls
fagnaðar á þorrablóti Sænsk-íslenzka félagsins i vetur. Þar
var m.a. harðfiskur og smjör, hangikjöt og flatbrauð á borð-
um. Silfverstrand stjórnaði þar skyndihappdrætti og fjörugri
danskeppni af mikilli kunnáttu. Verðlaunin voru íslenzkar
sjávarafurðir. — A myndinni bragðar Bengt Silfverstrand
íslenzkan veizlumat í augsýn tveggja íslenzkra húsmæðra, sem
búsettar eru í Gautaborg.
mörgum fögrum orðum um ís-
lenzkar ullarvörur, en að
margra dómi eru íslenzku ull-
arteppin of þung.
Þátttakan í áðurnefndri vöru-
sýningu var okkur tvímælálaus
ávinningur. — Ýmislegt fleira
mætti nefna, sem vel hefur tek-
izt á sviði landkynningar.
íslenzka listsýningin í Louisi-
ana-safninu í Danmörku, sem
haldin var í vetur, vakti t.d.
mikla athygli um öll Norður-
lönd. Ég minnist þess, að ég
hitti kennara við menntaskól-
ann hér í Kungálv skömmu eft-
ir að sýningunni lauk. Þeir
höfðu dvalizt í Danmörku í
vetrarleyfi skólanna. — Það er
vikuleyfi. í ár var það 17.—25.
febrúar í Gautaborg og Vestur-
Svíþjóð, en viku síðar í Stokk-
hólmi og austixr hluta Svíþjóð-
ar. — Kennararnir notuðu tæki-
færið til að heimsækja íslenzku
listsýninguna og luku á hana
miklu lofsorði. Sænsk blöð
fóru einnig fögrum orðum um
sýninguna og birtu myndir af
henni. Sérstaklega var vakin
athygli á þjóðlegu listamunun-
um og höggmyndunum. Það var
harmað, að ekki var kleift að
fá þá sýningu setta upp víðar
á Norðurlöndum.
Launin hækka —
dýrtíðin vex
Á þessu ári hækka laun
sænskra ríkisstarfsmanna yfir-
leitt um 6% samkvæmt tveggja
ára samningi. Lægst launuðu
kennararnir (smáskollárare) —
sem kenna yngstu aldursflokk-
unum — fá þó meiri launa-
hækkun. Þeir verða fluttir upp
um þrjá launaflokka. Mánaðar-
laun þeiri-a hækka úr 1.077 s.
kr. í 1.348 s. kr. Ýmsir hópar
ríkisstarfsmanna fá launahækk-
un sem svarar 6,5% 1962 og
3,5% 1963. Gert er ráð fyrir að
bætá einum launaflokki ofan á
það kerfi, sem nú gildir, svo
(sxímarleyfispeningar): 40 kr.,
útvarp og sjónvarp: 40 kr., leik-
hús, blöð, tímarit e. fl.: 30 kr.,
tannlæknir: 15 kr., varasjóður:
55 kr.
Alls eru þetta 1545 kr. út-
gjöld, en húsmóðirin kvað of
lítið að áætla 500 kr. til heim-
ilisins, þar sem allt verðlag og
þó sérstaklega verð á matvör-
um færi ört hækkandi.
Sjónvarpið er mjög vinsælt
tæki hér í Svíþjóð. Það eru
rösklega 5 ár síðan sænska
sjónvarpið hóf starfsemi sína
og tækjafjöldinn er nú rúm-
lega hálf önnur milljón. Svíar
hafa starfrækt skólaútvarp síð-
an vorið 1960. Það hefur þegar
áunnið sér mjög gott álit meðal
skólamanna, og má tvimæla-
laust telja dagskrá skólasjón-
varpsins meðal vinsælasta sjón-
varpsefnisins hér í Svíþjóð.
Gróðri fer hægt
fram á Austur-
landi
SKRIÐUKLAUSTRI, 18. júní. —
Það var versta illviðrahrina, sem
gekk hér yfir fyrir helgina, mik
il rigning og kalsaveður. Gróðri
fer nú mjög hægt fram, og hefur
sjaldan verið svona seint á ferð
inni. Fé er enn að mestu í heima
högum og hefur lítið leitað til
heiða. Kal er ekki mikið í túnum
í Fljótsdal, en mjög mikið um
Úthérað. Horfur eru á, að slátt
ur hefjist með allra síðasta móti
að þessu sinni. Nú er tilrauna-
land hér á Skriðuklaustri að
verða allvel sprottið, og sláttur
að hefjast á því. — Þótt dumb-
ungur sé enn í lofti, er útlit fyrir,
að hann fari að létta til. — J.P.
NÝLEGA hefur verið kveðinn
upp í Hæstarétti dómur í máli,
er ákæruvaldið höfðaði gegn
Friðriki Þórhallssyni, afgreiðslu-
manni, Reykjavík fyrir að hafa
ekið bifreið undir áhrifum áfeng-
ist þrisvar sinnum.
Málsatvik eru á þessa leið:
Aðfaranótt föstudagsins 18.
nóv. 1960 kl. 2.15 stöðvaði lög-
reglan ákærðan við akstur bif-
reiðarinnar R-11775. Ákærður ját
aði fyrir dómi að hafa drukkið
um kl. 20 30 eina eða eina og
hálfa flösku af erlendum bjór
auk tveggja glasa af líkjör
nokkru áður en hann hóf akstur.
Lögreglumönnum virtist ákærður
bera þess merki, að hann væri
með áhrifum áfengis og blóðsýnis
horn úr ákærða sýndi „reducer-
andi“ efni, er samsvara 1.35%
af alkóhóli. Samkvæmt þessu var
talið sannað, að ákærður hefði
í umrætt sinn gerzt sekur um
ölvun við akstur.
Þriðjudaginn 6. júní 1961 kl.
04.15 stöðvaði lögreglan á Kefla-
víkurflugvelli ákærðan við akst-
ur bifreiðarinnar R-11775. Töldu
lögreglumennirnir hann bera
einkenni áfengisáhrifa.
' Fyrir dómi játaði ákærður að
hafa ekið bifreiðinni umrætt sinn
nokkuð um á Keflavíkurflugvelli
og var föiinni síðan heitið til
Reykjavíkur. Ákærður kvaðst
hafa verið að áfengisneyzlu um
kvöldið og gerzt ölvaður. Hann
sofnaði um kl. 2.00 um nóttina
og svaf þar til skömmu áður en
lögreglan stöðvaði hann.' Ekki
neitti hann áfengis, er hann vakn
aði. Ákærður taldi sig hafa verið
lausan við áfengisáhrif, er hann
tók til að aka, en verið svefnvana
og ekki fyllilega eins og hann
átti að sér.
Tekið var sýnishorn úr blóði
ákærðs og reyndust vera í því
„reducerandi" efni, sem sam-
svara 1.67% af alkóhóli.
Talið var sannað, að ákærður
hefði í umrætt sinn gerzt sekur
um að aka bifreið, þótt hann sök
um áfengisneyzlu væri óhæfur
til stjórnar vélknúins ökutækis.
Aðfaranótt fimmtudagsins 20.
júlí 1961 kl. 01.45 var ákærður
stöðvaður við akstur bifreiðarinn
ar J-149 í hliði Keflavíkurflug-
vallar, þar sem lögreglumenn
grunuðu hann um ölvun við
akstur.
Ákærður játaði fyrir dómi að
hafa ekið bifreiðinni um á Kefla-
víkurflugvelli umrætt sinn áleið-
is til Reykjavíkur. Hann kvaðst
hafa drukkið einn áfengan bjór
kl. 22.00 — 23.00 um kvöldið, en
neitaði að hafa fundið til áfengis-
áhrifa við aksturinn.
í blóðsýnishorni, sem tekið var
úr ákæi'ðum, fundust „reducer-
andi“ efni, er samsvara 0.94% af
alkóhóli.
Talið var sannað, að ákærði
hefði ekið bifreiðinni umrætt
sinn, þótt sökum áfengisneyzlu
hefði ekki getað stjórnað ökutæki
örugglega;
Dómar sakadóms Reykjavíkur
og Hæstaréttar urðu samhljóða.
Var ákærður d&mdur til að
sitja í varðhaldi í 20 daga auk
þess sem hann var sviptur öku-
réttindum ævilangt. Hann var og
dæmdur til að greiða allan sakax-
kostnað fyrir báðum réttum.
RENAULT
er bifreiðin sem öll Evrópa hefir þekkt um
áraraðir fyrir gæði.
• Renault Dauphine er 5 manna.
0 Renault Dauphine er 4ra dyra og með sérstök-
um öryggislæsingum á afturhux'ðum.
0 Renault Dauphine er sparneytinn 5,9 1. pr.
100 Km.
0 Renaull Dauphine er með öflugri vatnsmiðstöð.
0 Renault Dauphine er ryðvarinn
0 Renault Dauphine varahltxtir eru ódýrir: svo
sem frambretti kr: 552.— framhurðir kr: 1065.—
framstuðari compl. kr. 1250,—
0 Renault Dauphixie varahlutir eru fyrirliggjandi.
0 Renault Dauphine kostar aðeins 119 þúsúrid.
0 Renaulí Dauphxne er fyrirliggjandi.
Columbtis h.f.
Brautarholti 20 — Símar 22116 — 22118