Morgunblaðið - 20.06.1962, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.06.1962, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 20. júnl 1962 MORGVNBLAÐIÐ 17 Þaun 14. júní var Mennta- skólanum á Laugarvatni sagt upp og útskrifaðir 21 stúdent, þar af 6 stúlkur. Hæsta eink- unn hafði Jósef Skaftason frá Hveragerði 8.54, næst var Winston Jóhannsdóttir frá Laugarvatni 8.47 og þriðji Halldór Baldvinsson með 8.23. Mynd þessa tók Gestur i —~-m—mrim <ii nun fiini Stefánsson af Laugarvatnsstú- dentum. Þeir eru talið frá vinstri fremri röð: Elín Guð- mundsdóttir, Stefania Magnús dóttir, Svanhildur Elentínus- dóttir, Jóhann Hannesson, skólameistari, Winston Jó- hannsdóttir, Ingibjörg Sveins- dóttir, Guðrún Þórarinsdóttir. Aftari röð: Sigurður Símonar- son, Halldór Baldursson, Árni Pétursson, Hörður Bergsteins son, Skúli Skúlason, Jósef Skaftason, Guðjón T. Guð- mundsson, Rögnvaldur Jóns- son, Einar Hjaltested, Þórhall- ur Hróðmarsson, Magnús Jóns son, Guðni Alfreðsson, Stefán Bergman, Sigurjón Jónsson, Þorgils Kristmanns. Fundur Sjálfstæðis- manna á Blönduósi HIN N 16. júní var fundur í „Verði“, félagi Sjálfstæðis- manna í Austur-Húnavatnssýslu. Fundurinn var haldinn í sam- komuhúsinu á Blönduósi. Formaður félagsins, Halldór Jónsson á Leysingjastöðum, setti fundinn og stjórnaði hon- um. FundarriTari var Leifur Sveinb j örnsson. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, ' framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins, flutti erindi um skipulag og stárfsemi Sjálf- stæðisflokksins. Séra Gunnar Gíslason, alþm., ræddi um stjórnmálaviðhorfið. Miklar umræður urðu á fund- inum og tóku þessir til máls: Guðbrandur fsberg, Þorfinnur Bjarnason, , Jón Pálmason, Jón Benediktsson, Steinþór ólafsson, Jón fsberg, Halldór Jónsson, Hermann Þórarinsson og Axel Jónsson. MMuMh iMk Aherzla Iðgð á útgáfu vandaðrar Biblíu á afmæli Biblíufélagsins Mun kosta fulla milljón kr. — Endurskoð- un a íslenzku þýðingunni — Tímamót í Biblíuútgdfu hér 1 YFIRLITSRÆÐU sinni við setningu prestastefnunnar í gær skýrði biskupinn yfir Islandi, herra Sigurbjörn Einarsson, frá því að stjórn Biblíufélagsins væri einhuga um að halda upp á 150 ára afmæli sitt með því að gefa út Biblíuna af því tilefni á veglegan hátt. Hafi þriggja manna nefnd unnið að endur- skoðun á íslenzku þýðingunni á Gamla Testamentinu og hefði nefndin skilað tillögum í hend- nr stjórnar Biblíufélagsins. Sagði biskup að setning, prentun og pappir nýrrar Biblíu kostaði út- af fyrir sig hálfa milljón króna og taldi að vart væri fjarri lagi að álykta að þáð mundi kosta eina milljón króna að gefa þjóð- inni sæmilega vandaða biblíu. Orðrétt sagði biskup: (Letur- breyting og millifyrirsagnir Mbl.) „Þá er á döfinni annað endur- skoðunarmiál, ennþá yfirgrips- meira. í því samibandi vil ég að þessu sinni geta um starf Hins fcl. Biblíufélags. Á sl. ári gaf félagið Biblíuna út í litlu broti og á þunnum pappír, þ.e. vasaút- gáfu, hina fyrstu slíka, sem gefin hefur verið út hér á landi. Að vísu er hún prentuð eftir þeim leturplötum, sem félagið keypti fyrir nokkrum árum af Brezka og erl. Biblíufélaginu, og þess vegna er þessi útgáfa um letur, Btafsetningu, uppsetningu og alla éferð mjög með sama svip og þær útgáfur Biblíunnar í litlu broti, sem vér höfum haft langa hríð. Þessi útgáfa er lokaskrefið é þeirri braut, sem íslenaka Biblíufélagið hefur verið að feta sig fram undanfarin ár, lokaskref í tvennum skilningi. í fyrsta lagi er nú því manki náð að flytja útgáfu Biblíunnar inn í landið, vér höfum gefið hana út í öllum þeim gerðum, sem hið erlenda félag hefur látið í té, að auiki eina útgáfu Nýja testamentisins í stóru broti. f öðru lagi er sýnt, nð ekki verður unnt að nota leturplöturnar frá brezka biblíu fólaginu oftar. Þær eru orðnar ,það slitnar, að enn ein prentun eftir þeim kemur ekki til greina. Það er ekki að öllu leyti eftirsjá að þvi, því að uppsetning text- ans er engan veginn svo smekk- leg sem vera mætti, enda hafa engra breytingar eða umbætur verið gerðar á henni áratugum saman. Útgáfa íslenzku Biblíunn ar hefur ekki aðeins hvað þýð- ingu snertir og málfar setið í sama fari í hálfa öld, heldur og um alía áferð. Og stafsetningin er úr gildi fallin fyrir 30 árum. Allt þetta ^>arf umibóta við og er stjórn Biblíufélagsins ráðin í því að beita sér fyrir verulegum breytingum til batnaðar um leið og setja þarf textann að nýju hvort eð er. Þessar ytri aðstæður knýja á um átak á næstunni." AFMÆLISBIBLfA. „Þá er þess að minnast að Biblíufélagið á stórt afmæli fram undan. Eftir þrjú ár er liðin hálf önnur öld frá stofnun þess og eftir 4 ár er rétt öld síðan útgáfa Biblíunnar hvarf úr landi og Brezka og erlenda Biblíufé- lagið tök hana að sér. Vér hljót- um að halda til þessara afmæla, einkum þess, er fyrr var nefnt, og stjórn Biblíufélagsins er ein huga um að vinna að því, að fé- lagið haldi upp á 150 ára afmæli sitt með því að gefa Biblíuna út af því tilefni á veglegan hátt. Tillögur um breytingar á BIBLÍUNNI. En ótalið er það atriði þessa máls, sem er mest, en það er sjálf íslenzka þýðingin. Mönnum hefur lengi verið ljóst, að þar er ýmsu ábótavant. Snemma árs 1961 fór stjórn Biblíufélagsins þess á leit við 3 tiltekna menn, að þeir tækju að sér endurskoð un á Gamla testamentinu. Þeir eru þessir: Dr. Ásmundur Guð- mundsson, biskup, séra Guð- mundur Sveinsson, skólastjóri og dr. Þórir Kr. Þórðarson, próf- essor. Nefndin hefur með bréfi 21. febr. sl. skilað tillögum í hendur stjórnarinnar. sem eru á þessa leið: „Undir nauðsynlega endur- prentun Biblíunnar hið fyrsta verði hafinn undirbúningur hand rita Gamla Testamentis. 1. Grein armerkjasetning verði leiðrétt eftir því sem þörf kann að ger- ast, svo og málfræðilegar skekkj ur, ef þær verða fundnar. 2. Ja- hve sé breytt í Drottin. 3. Manna nöfn séu færð til samræmis við íslenzka málvenju. 4. Efnisfyrir- sagnir skuli samdar fyrir hverj- um kapitula. 5. Á sínum tíma verði leitað aðstoðar sérmennt- aðs íslenzkufræðings við verkið. 6. Manni, sem hefur sérþekkingu á uppsetningu bóka, verði falið af Biblíufélaginu að sjá um upp sctningu og útlit Biblíunnar. 7. áætlun sé gerð um verkið.“ Þá hefur félagsstjórnin einnig ■ kjörið endurskoðunarnefnd fyrir Nýja testamentið, en í henni eiga sæti allir fjórir prófessorar Guðfræðideildar, auk þeirra sr. Guðmundur Sveinsson, skóla- stjóri, kandidat Jon Sveinbjörns- son og biskup. __ Það er mönnum kunnugt að Ásmundur biskup hefur um skeið unnið að endurskoðun á þýðingu Nýja testamentisins og mun verk hans senn fullbúið. Með tilliti til þess var svo að orði kveðið í ályktun Biblíufélagsstjórnar, að hún skyldi hafa sérstaka hlið- sjón af þýðingu hans. Vönduð biblía kostar heila milljón. Auðsætt er, að tíminn er skammur, ef miðað er við fyrr- nefnt ártal, og kemur í hlut nefndarinnar að gera sér grein fyrir því hvað fært er, fram- kvæmanlegt eða æskilegt varð- andi endurskoðun á textanum fyrir næstu prentun, á hliðstæð- an hátt og hin önnur endurskoð- unarnefnd hefur gert. En því hefi ég varið þessum mínútum til þess að gera grein fyrir þessu máli, að hér er í fyrsta lagi um verkefni að ræða, sem mjög varðar kirkjuna og alla kirkjunnar menn, og í öðru lagi vildi ég skírskota til presta og annara um það, að Biblíufélagið veldur ekki þeirri ábyrgð, sem það hefur á sig tekið í þágu kristn innar í landinu nema það njóti aukins stuðnings og brautar- gengis með þjóðinni. Það á nú 200.000 kr. í sjóði, en setnin.g og prentun og pappír nýrrar Biblíu kostar út af fyrir sig hálfa milljón, eins og verðlag er í dag. Mun vart fjarri lagi að álykta að það kosti fulla milljón að gefa þjóðinni sæmilega vandaða Biblíu. Það fé verður Biblíufélag ið að hafa til umráða, það er þjóðlegt, menningarlegt metnað armál, það er kristið nauðsynja- mál, kristin skylda," sagði bisk- up að lokum. Á fundinum fór fram kosning fulltrúa í Fulltrúaráð Sjálf- stæðisfélaganna í Austur-Húna- vatnssýslu og í Kjördæmisráð Sjáfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi vestra. Aukasýnmg á Kviksandi und- ir miðnætti HÚSAVÍK, 19. júní — Leikfélag Reykjavíkur, sem nú er á sýning arferð um landið með sjónleik- inn Kviksand, hefur nú lokið ferð sinni um Austurland og alls staðar fengið mikla aðsókn og góða dóma. í gær sýndi flokkur inn á Húsavík og hafði hér að- eins verið ákveðin ein sýning en aðsókn var svo mikil að uppselt var á stuttri stundu, svo að á- kveðin var önnur sýning kl. 11,30 í gærkvöldi. Var sú sýning jafn fjölsótt þeirri fyrri eða eins margt og húsið tekur. Þó að hér sé ekki gamanleikur á ferðinni, vilja flestir ekki af því missa að hafa séð Kviksand, og gott er fyrir æskuna að sjá í svo vel fíuttu leikriti, sem hún getur varzt í veruleikanum. t — Áburðarverk smibjan Framh. af bls. 11. liðnu ár, vegna þess að kryst- allaframleiðslan var valin. Og það sem nú er kostað til korna- stækkunar í viðbótartækjum kostar ef til vill ekki meira en hvað perluaðferðartækin hefðu orðið dýrari í upphafi. Þetta hvorttveggja mættu þeir hafa í huga, sem nú tala hæst um mistök í þessu sam- bandi. Að lokum skal svo það tekið sérstaklega fram, að stjórnin hefur haft fulla samstöðu um alla samningsgerð við hina bandarísku verkfræðinga, þar með talið einnig lokauppgjörð við þá. Allt þessu viðkomandí hefur verið samþykkt sam- hljóða af öllum stjórnarmönn- um. — . Útvegum leyfishöfum barnaleikföng frá verksmiðjum í Japan.. Sýnishorn og upplýsingar um verð. Bngólfishvoll” Laugavegi 18a — Sími: 1 42 02.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.