Morgunblaðið - 26.06.1962, Síða 1
24 síður
Bráðabirgðalog um lausn síldveiðideilunnar:
Gerðardómur ef aöiljar
semja ekki fyrir 10. jiílí
Komið í veg fyrir stórtjóri
Ráðstófun sem óll þjóðin fagnar
RÍKISSTJÓRNIN leysti um helgina síldveiðideiluna með
skjótum og öruggum hætti. Forseti íslands gaf sL sunnu-
dag út bráðabirgðalög samkvæmt tillögu sjávarútvegs-
málaráðherra um lausn deilunnar. Með þeim er ákveðið að
cheimilt skuli að hindra skráningu skipverja á síldveiði-
skip á sumarsíldveiðum 1962 upp á væntanlega kjara-
samninga, eða hindra á nokkurn hátt afgreiðslu síldveiði-
skipanna.
Ef samningar hafa ekki tekizt milli sjómanna og út-
vegsmanna fyrir 10. júlí nk. um kaup og kjör á síldveið-
um þá skuli þau ákveðin af gerðardómi, sem hæstiréttur
og deiluaðilar skipa. Skal hæstiréttur skipa formann
dómsins.
Með þessari ráðstöfun ríkisstjómarinnar er komið í
veg fyrir stórfellt tjón af völdum frekari tafar á síldveið-
unum fyrir Norðurlandi. Er óhætt að fullyrða að almennt
er þessum sjálfsögðu aðgerðum fagnað. Fjöldi síldveiði-
skipa lagði þegar úr höfn og önnur eru á förum.
Bráðabirgðalögin fara hér á eftir í heild:
BRAÐABIRGÐALÖGIN
Forseti Islands hefur í dag,
24. júní, undirritað bráðabirgða
lög til lausnar á síldveiðideil-
nnni sumarið 1962, og eru
bráðabirgðalögin svohljóðandi:
Sjávarútvegsmálaráðherra hef
ur tjáð mér að þrátt fyrir
margra vikna samningsumleit-
anir milli Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna annars
vegar og stéttarfélags sjó-
manna innan Alþýðusambands
Islands og Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands hins
vegar, um kaup og kjör sjó-
manna á síldveiðum á þessu
Jorðskjólfti frá
*■
Oskjusvæðinu
ÞRIÐJUDAGINN 12. júní
sýndu jarðskjólftamælar veð
urstofunnar allmiiklar jarð-
hræringar í tæplega 300 km
fjarlægð frá Reykjavík. Ey-
steinn Tryggvason, jarð-
sjálftafræðingur tjáði blað-
inu að nú hefði tekizt að á-
kvarða upptök þessara jarð-
hræringa og reyndust þeir
vera í Dyngjufjöllum. Tveir
mestu kippirnir komu kl. 01:27
og 09:47 og voru þeir talsvert
meiri en jarðskjálftarnir sem
mældust við upphaf gossins í '
haust. Alls mældust um 30
jarðskjálftakippir þennan dag.
Allir með upptök í Dyngju-
fjöllum.
Það má gera ráð fyrir að
jarðskjálftakippir þessir hafi
fundist um uppsveitir Norð-
austurlands, en engar upplýs
ingar hafa borizt um það.
Bkki er vitað i»m meiri elds
umbrot í öskju, en Eysteinn
sagði að algengt væri að jarð
skjálftar yrðu nokkurn tíma
eftir gos.
sumri, hafi samningar ekki tek-
izt. Þetta muni hafa í för með
sér stöðvun flestallra síldveiði-
skipa og mundi valda óbætan-
legu tjóni. •
Það beri því brýna nauðsyn
til að koma 1 veg fyrir slíka
stöðvun síldveiðiskipanna án
tafar og gefa út bráðabirgðalög,
sem geri veiðiskipunum mögu-
legt að hefja veiðar nú þegar
og að kjör síldveiðisjómanna
verði ákveðin síðar.
Fyrir því eru hér með sett
bráðabirgðalög samkvæmt 28.
gr. stjórnarskrárinnar, á þessa
leið:
1. gr.
óheimilt skal að hindra lög-
skráningu skipverja á síld-
veiðiskip á sumarsíldveiðum
1962 upp á væntanlega kjara-
samninga eða hindra á nokk-
Frentsmiðja Morgunblaðsins
um hátt afgreiðslu síldveiðii
skipanna.
2. gr.
Nú takast ekki samningar
milli Landssambands íslenzkra
útvegsmanna annars vegar og
stéttarfélags sjómanna innan
Alþýðusambands fslands og
Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands hins vegar um
kaup og kjör skipverja á sum-
arsíldveiðum 1962 fyrir 10. júll
1962, eða sáttasemjari ríkisins
lýsi því yfir fyrir þann tíma
að áframhcddandi viðræður séu
þýðingarlausar, þá skulu þau á-
kveðin af gerðardómi.
3. gr.
Gerðardóminn skipa formað-
ur og fjórir meðdómendur.
Hæstiréttur skipar formann
dómsins og tvo meðdómendur,
Landssamband íslenzkra útvegs-
Framhald á bls. 23.
Samskonar taugaveiki-
bróðir hér og í Svíþjóð
MORGUNBLAÐIÐ aflaði
sér í gær upplýsinga um
það frá fréttaritara sínum í
Svíþjóð, hvernig taugaveiki-
bróðurfaraldurinn í Smá-
löndxun hefur verið. Kom
þá í ljós, að hér er um að
ræða sömu tegund og vart
hefur orðið við í Reykjavík
undanfarið, þ. e. músatyfus,
eða „nurium“, eins og veik-
in er nefnd á fagmáli. Hef-
ur Arinbjörn Kolbeinsson
læknir staðfest, að svo sé.
Svíar gerðu miklar og skjót-
ar varúðarráðstafanir eins og
sérst af fréttinni hér á eftir.
Þar lá grunur á, að mjólkin
dreifði sýklinum, en ekki er
Mbl. kunnugt um, að grunur
hafi fallið á mjólkina hér. —
Möguleikar eru að sjálfsögðu á
því að sjúkdómurinn geti bor-
izt með öðrum matvælum og
jafnvel drykkjarvatni. — Hér
fara nú fram umfangsmiklar
rannsóknir á því, hvar sýkl-
anna er að leita, en Jón Sig-
urðsson, borgarlæknir, skýrði
blaðinu frá því í gærkvöldi, að
um 15 manns hafi verið lagðir
í sjúkrahús í Reykjavík vegna
sjúkdómsins.
Nú halda bátarnir sem óðast
á miðin fyrir norðan til síld-
veiðanna. ' t gær tók ljós-
myndari blaðsins Ól. K. M.
þessa mynd við höfnina
þegar skipshöfnin á Þor-
birni frá Grindavík var að
setja nótina um borð. Það
lá vel á körlunum og verkið
gekk fjörugt. í dag verða
flestir síldarbátarnir komnir
á leið norður.
Þess má geta, að ólíklegt er
að veikin hafi borizt hingað
Framh. á bls. 23
Stofnfundur Kjördæmis-
ráðs Sjálfstæðisf lokksins
í SuðuiZandskjördæmi
STOFNFUNDUR Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurlandskjördæmi verður haldinn nk. laug-
ardag, 30. júní 1962, að Hellu í Rangárvallasýslu og
hefst kl. 2 e.h.
Kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisfélaga og fulltrúa-
ráða eru hér með boðnir til fundarins.
Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.