Morgunblaðið - 26.06.1962, Síða 2
2
MORGVNBLAÐ1Ð
Þriðjudagur 26. júnl 1962
183 þúsund tunnur
saltsíldar seldar
Uttdirritaðir hafa verið samning
#r um fyrirframsölu á ca. 165
þús. tunnum af saltsíld til Finn-
lands og Svíþjóðar. Verðið er
nokkru hærra en á s.L ári. Samn
ingana í þessum löndum önnuð-
ust þeir Erlendur Þorsteinsson,
formaður Síldarútvegsnefndar og
Jón L. Þórðarson.
í V-Þýzkalandi hafa farið fram
samningaumleitanir um fyrir-
framsöiu á Norðurlands- og Suð-
urlandssaltsíld og standa vonir
til þess að þangað seljist 7 þús.
tunnur af Norðurlandssísld, en
samningaumleitanir um sölu Suð
urlandssíldar halda enn áfram.
Samningana í V-Þýzkalandi hafa
annazt, auk formanns og varafor
manns þeir Hannibal Valdimars-
son, alþm., og Gunnar Flóventz,
framkvæmdastjóri Síldarútvegs-
nefndar.
í Danmörku hefir tekizt sam
komulag um verð saltsíldarinn
ar, en samningsmagn er ekki á-
kveðið ennþá. í samningaviðræð
um þar tóku þátt þeir Erlendur
Þorsteinsson, Jón L. Þórðarson
og Hannibal Valdimarsson, alþm.
Til Bandaríkjanna hafa þegar
verið seldar 11 þús. tunnur, sem
er allmiklu meira magn, en þang
að hefir tekizt að selja af Norður
landssísldundanfarin ár. Samn-
ingagjörð þar annaðist Hannes
Kjartansson. aðalræðismaður.
Samningaumleitanir hafa enn-
þá ekki hafizt við Sovétríkin, en
munu byrja á næstunni.
Frá síldarútvegsnefnd.
Nýr botn settnr
í Kyndil
OLfUFÉLÖGIN B. P. og Shell
hafa tekið á leigu norskt olíu-
flutningaskip: Ruslh, sem er 700
tonn og er skipið komið hingað
til lands, fór það síðdegis í gær
sína fyrstu ferð norður á Siglu-
fjörð með farm tiil stöðva B. P.
Og Shell þar í bænum. .
Skip félaganna Kyndill
skemmddst mikið er hann strand-
aði fyrir nokkru. Varð að senda
skipið til viðgerðar í Skotlandi.
Kom í ljós að setja þarf nýjan
botn í Kyndil, en það verk tekur
a. m. k. 6—8 vikur.
Fyrsta síldin að ganga austur af
Stendur djúpt, en næst á næturnar
MIKILL f jöldi báta streymir nú
vestur og norður um á stldar-
miðin frá höfnunum sunnan-
lands. f fyrrinótt héldu þeir fáu
bátar, sem komnir eru á miðin
og erlendu skipin, áfram að fá
síld 60—80 mílur út af Þistilfirði,
þar sem síldin stendur þó djúpt
Þær gengu um beina í Dillonshúsi við Árbæ. Talið frá vinstr
i: Ólafía, Kristín og Valgerður Lárusdætur, Guðrún Gísladótt
ir, Guðrún Lárusdóttir og Jenny Ágústsdóttir. Á myndina
vantar Sólveigu Hannam.
og komu 3 bátar með síld til
Raufarhafnar í gær. Jakob Jakobs
son telur að fyrsta síldargang-
an sé að ganga austur af og komi
flotinn 3 vikum of seint á miðin
fyrir hana. En mjög góð átuskil-
yrði eru við Kolbeinsey, svo að
ef ný ganga kemur þangað, ætti
hún að verða þar róleg.
Seley inn í 3. sinn
í gær kom Seley til Raufar-
hafnar með 800 tunnur af síld, og
-er þetta þriðji dagurinn í röð
sem hún kemur inn með síld, að
því er fréttaritarinn á Raufar-
höfn símar. í gær komu einnig
Birkir frá Eskifirði og Hringver
úr Vestmannaeyjum með 500
tunnur hvor. Síldin fer í bræðslu
og frystingu en söltun er ekki
hafin.
Þessa síld fengu skipin 60—80
mílur út af Þistilfirði og voru
10 tíma í land með hana. Síldin
stóð djúpt og erfitt að ná henni.
En undanfarnar nætur hefur hún
lyft sér í sjónum á tímabilinu
frá miðnætti og til kl. 5. Eru bát-
arnir, sem hafa fylgzt með henn
í asdictækjunum, þá tilbúnir að
ná henni. Bátarnir láta mjög af
því hve mörg útlend skip eru á
síldarmiðunum.
Fyrsta síldin kom til Siglufjarð
ar kl. 4.20 sl. laugardag. Kom
Helgi Helgason þá inn með feita
og fallega síld 15—22% feita.
Áta á miðsvæðinu
Er Jakob Jakobsson, fiskifræð-
ingur var staddur á Siglufirði
um helgina, skýrði hann frá
helztu atnðum í sambandi við
síldarrannsóknirnar, sem hann
hefur verið í ásamt fleiri skipum.
Kom þar fram, að út af Siglufirði
á svokölluðum Vestur og mið-
svæði væru öll skilyrði fyrir
hendi til síldveiða, mikið af rauð-
átu, en hins vegar lítil síld.
Og er blaðið hafði tal af Jakobi
í gærkvöld var Ægir staddur
sunnan vði • Kolbeinsey. Sagði
hann að þeir hefðu orðið varir
við smá torfur, ekki það magn
að tæki því að hefja veiðar þar,
en þetta gæti lagast og þyrfti að
fylgjast með því. Enginn bátur
af Austursvæðinu hefði tilkynnt
um veiði seinni hluta dagsins,
enda stæði síldin þar djúpt.
Næstu daga munu Fanney og
Pétur Thorsteinsson hefja síldar-
leit ásamt Ægi. Gert var ráð fyrir
að síldarleitin á Raufarhöfn tæki
til starfa í gærkvöldi.
Norskar verk-
smiðjur bræða
Islandssíld
AALESUND 25. júní (NTB).
Síldarverksmiðjurnar á Sunn
mæri fengu í dag fyrsta síld
arfarm sinn fm íslandi. Síld-
veiðiskipið Hargun kom með
3000 hektolítra í bræðslu. —
Nokkur önnur skip eru á leið
af Íslandsmiðum með síld til
norskra verksmiðja. Munu um
100.000 mál vera á leiðinni og
fyrsta verksmiðjan byrjaði,
bræðslu í dag. Næstum ödl
móðurskipin eni komin með
fullfermi og það verður til
þess að minni bátarnir, sem
höfðu reiknað með að geta
losað yfir í móðurskip, verða
sjálfir að sigla með afla sinn
til Noregs. En tvö móðurskip
eru á leið á miðin, svo ekki
er skortur á flutningaskiþum
eins og er.
Frá eftirlitsskipinu Draug
berast þær fréttir að síðustu
dægrin hafi veiði verið lítil
á miðunum. 2—3 2000 hektó-
lítra köst hafi fengizt, norðan
I Langaness, en annars aðeins
smáköst. Síld er á miðunum,
en erfiðleikar að ná henni. —
Veður er ágætt.
NA /S hnútar / SV 50 hnutar ¥: Sn/óicoma > 03 i V S/eúrir K Þrumur 'Wlz, KuUaaki/
H Hml |
Gleðskapur og fyllsta reglu-
semi á Jónsmessuvöku í Arbæ
FYRSTA jónsmessuvakan á Ár-
bæjartúni tókst mjög vel. Allt
fór fram með stökustu prýffi og
reglusemi, sást ekki vín á nokkr-
um manni, sagffi Lárus Sigur-
björnsson, safnvörður í viðtali
við blaðiff í gær. Þar var mikið
fjölmenni, á 5. þús. manns þegar
flest var um kvöldiff. Veffur var
einstaklega fagurt þetta kvöld.
Jónsmessuvakan hófst kl. 8, er
safnhúsin voru opnuð. Gátu
menn ýmist greitt 10 kr. og haft
aðgang að þeim eða farið frítt
inn á svæðið. Úti lék Lúðrasveit
in Svanur undir stjórn Jóns G.
Þórarinssonar íslenzk alþýðulög
og kl. 10 var byrjað að dansa á
palli. Lék hljómsveit Garðars Jó-
hannessonar eingöngu gömlu
dansana og var svo mikil aðsókn
að pallinum. að hann reyndist of
lítill, þó þetta sé sá stærsti sem
Reykjavíkurbær á.
Kl. 11 var kveikt jónsmessu-
bál neðarlega í túninu, þar sem
hlaðinn hafði verið köstur úr úr-
gangsdóti frá byggingarfram-
kvæmdum í vetur. Vakti mikla
ánægju að sjá logana bera við
himin meðan sól var lægst á
lofti og roðaði himininn. Kl. 12
var samkomunni slitið.
Brúðkaup á Jónsmessunótt
Um kvöldið voru kaffiveitingar
í Dillonshúsi og gengu þar um
beina dætur Lárusar Sigurbjörns
sonar, og bróðurdóttir, allar í ís-
lenzkum búningum. Verða kaffi-
veitingar í Dillonshúsi kl. 2—6
á daginn nema mánudaga. Tvisv-
ar í viku, á mánudögum og
fimmtudögum efnir Ferðaskrif-
stofan til ferðar um Reykjavík
með útlendinga og fara þeir í
Árbæ. Ekki þótti tiltækilegt að
messa í kirkjunni þetta kvöld, er
séð varð hve mikill fjöldi manns
kom. En brúðkaup fór þar fram.
Gaf sr. Jónas Gíslason í Vík sam
an brúðhjón.
Fór skemmtunin mjög vel
fram eins og áður er sagt og
var Reykvíkingum til sóma. Ein-
asta sem á skorti, voru bílastæði.
Stóðu bifreiðir niður eftir gamla
veginum svo langt sem hann nær
og strætisvagnar áttu erfitt með
að athafna sig.
KL. 12 í gær var norðanáttin
gengin niður og farið að
þykkna upp með hægri SV-
átt á Vestfjörðum. Nærri heið
skírt var með suðurströndinni
til Hornafjarðar og víða
annars staðar var léttskýjað.
veður í nótt, vlða skúrir á
morgun.
N-land og N-mið: V-gola og
síðan SV-kaldi, úrkomulaust
og víða léttskýjað.
NA-land til SA-land og NA-
mið til SA-miða: Hæg vestlæg
Veffurhorfur kl. 22 í gær- átt, bjartviðrL
kvöldi:
SV-land til Vestfjarðar, SV- Horfur á morgun:
mið til V-miða: SV-kaldi og Hægviðri um allt land, úr-
víða stinningskaldi, þurrt komulaust og víða léttskýjað.
i| q mi—iiji.i m rNii—■