Morgunblaðið - 26.06.1962, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 26. júní 1962
MORGVNBL AÐIÐ
3
;Xí;W:kv;v.:.x«w:.xwj>»'.:í
SIGLUFIRÐI, 25 júní — Tvö
rússnesk skip, norska rann-
sóknarskipið Johan Hjort og
Ægir lágu hér inni á laugar-
dag og sunnudag, en þau hafa
verið í síldarrannsóknarleið-
angri að undanförnu. Sátu
fiskifræðingar á fundum í
Gagnfræðaskólanum og báru
saman bækur sínar.
Ýmsir lö>bbuðu niður á
bryggju og virtu fyrir sér
rannsóknarskipin. Kafarakúla
Rússanna vakti mikla at-
(hygli (sjá mynd). Inn í hana
setja þeir mann með kvik-
myndavél og ljóskastara og
filma þannig sjávarlíf og gróð
ur.
Þeir sem voru á bryggjun-
um sáu hvar Rússarnir misstu
mynd af Gagarín milli skips
og bryggju. Hlupu þeir til
með miklum látum, krókstjök
sést kortið komið úr sjó. —
Rússneska, norska og is-
lenzka síldarrannsóknarfólk-
ið sat á sunnudagskvöld boð
bæjarstjórnar Siglufjarðar að
Hótel Hvanneyri. Bæjarstjóri,,
Sigurjón Sæmundsson og for-
seti bæjarstjórnar, Baldur
Eiríksson ávörpuðu gesti síld
arbæjarins. Bæjarstjóri kvað
spámenn nútímans vera vís-
indamennina og störf leið-
angursins hefðu mikla þýð-
ingu fyrir þjóðarbúið. —
Stefán.
STAKSTtlMR
Unnið að „björgun" Gagarin s.
„Gagarin-veiðum“
um og ýmsum tólum og tókst
að veiða sitt Gagarínkort upp
úr sjó. Á meðfylgjandi mynd
sjást Rússarnir að „Gagarín- Gagarinsspjaldið sem týnd-
veiðum.“ Á minni myndinni ist.
230-240 bátar
norður á síld
Streyma nú úr sjávarplássunum
Kafarakúlan.
10 manns í sjúkra
hús eftir bílslys
S.L. laugardag var óvenjumikið
annríki hjá lögreglu og lækni á
Selfossi. Þann dag urðu þrjú all-
mikil umferðasiys og urðu marg-
ir fyrir áverkum, þó enginn lífs-
þættulegum.
44 fóstrur frá ýmsum barna-
heimilum í Reykjavík voru á
íkemmtiferðalagi í langferðabif-
reið og var m. a. ekið um Búr-
fellsveg í Grímsnesi. Vegur þessi
er nýlegur, laus á köflum og ekki
fjölfarinn. Við bugðu á veginum,
skrikaði vegarbrúnin undan bíln-
um, þannig að bílstjórinn missti
stjórn á honum og valt hann á
hliðina. Sjö af fóstrunum þurfti
að flytja til læknis og var ein
með slæman heilahristing, en
tvær hlutu áverka á fótum. Allar
fengu þó að fara heim til sín að
læknisaðgerð lokinni, en tvær
þurfti að flytja í sjúkrabíl til
Reykjavíkur.
Tveir piltar voru á ferð í bif-
reið norðan úr Þingeyjarsýslu.
Er þeir komu að bugðu á veg-
inum rétt við Selfoss, missti öku
maðurinn stjórn á bílnum, þannig
að hann valt og rann alllangan
spöl eftir veginum. Er hann mjög
mikið skemmdur. Bílstjórinn
hlaut töluverðan áverka á höfði
og farþeginn kvartaði um verk
í kviðarholi. Voru þeir báðir flutt
ir til Reykjavíkur að læknisað-
gerð lokinni.
Loks valt sendibifreið út af
veginum í Flóanum. Stúlka
skarst illa á fæti og var hún flutt
til læknis á Selfossi.
BLAÐIÐ fékk þær upplýsingar
hjá Kristjáni Ragnarssyni hjá
LÍÚ í gær, að 230—240 skip yrðu
við síldveiðar við Norðaustur-
landið í sumar, þó gæti sú taia
hækkað. Eru það talsvert fleiri
bátar en I fyrra. Ekki virðist
skortur á mannskap á bátana,
og hefur LÍÚ frekar fengið
beiðnir um að útvega skipsrúm
en um að útvega menn á bát-
ana.
Eftir að bráðabirgðalögin voru
sett urn helgina fóru bátarnir að
streyma af stað, enda höfðu
fjölmargir beðið ferðbúnir.
Fréttaritarar blaðsins á nokkr-
um stöðum skýrðu svo frá:
AKUREYRI.
Akureyri, 25. júní — Hér var
mikið um að vera þegar frétt-
ist um lausn á deilu útgerðar-
manna og síldarsjómanna. Á-
hafnir og verkamenn streymdu
um borð í skipin eftir hádegi
og var unnið sleitulaust að því
að koma þeim út. Tvö skip fóru
út fyrir miðnætti í gærkvöldi.
Voru það Súlan og Snæfell.
í dag hefur verið unnið að
því að koma út til síldveiða
mörgum skipum, sem liggja hér
í höfninni. Það er ekki ein-
göngu um Akureyrarskip að
ræða, heldur einnig mörg skip
frá öðrum höfnum, sem hafa
legið hér til viðgerða og eftirlits.
Eitthvað af skipum mun fara út
í nótt, en sum verða tæpast til-
búin fyrr en síðar í vikunni. —
St. E. Sig.
VESTMANNAEYJUM.
VeSJtmannaeyjum, 25 júní. Af
þeim 19 bátum, sem fara munu
norður, er aðeins einn farinri,
mb. Gjafar. Nú í kvöld fara svo
tveir og hinir fara brátt að tín-
ast af stað. Helzta ástæðan fyrir
því, að ekki eru fleiri farnir, er
sú, að þeir hafa verið að bíða
eftir mannskap, auk þess, sem
undirbúningi er ekki að fullu
lokið. f sumar er t.d. verið að
setja nýja tiegund af dýptar-
mælum. Annars hefur einn bát-
ur verið að fá síld hér rétt við
Eyjarnar, mb. Reynir. Hefur
ihann komið þrisvar inn með
8—900 tunnur í hvert skipti,
og má því gera ráð fyrir því,
að bátarnir leiti eitthvað fyrir
sér, áður en þeir fara norður.
Bj. Guðm.
AKRANESI.
Akranesi, 25. júní. — Bátarnir
sem norður fóru á síld á Jóns-
messukvöld, voru 9: Keilir,
Sveinn Guðmundsson, Reynir
Anna, Sigurvon Höfrungur II,
Skírnir, Farsæll og Fiskaskagi.
En 8 fara í dag: Haraldur, Höfr-
ungur I, Sigurður AK, Skipa-
skagi, Heimaskagi, Sæfari, Sig-
urfari og Ólafur Magnússon.
Tveir humai’bátar lönduðu í
dag. Hafði Ásmundur tæpar 6
lestir. — Oddur.
ÓLAFSVÍK.
Ólafsvík 25. júní. — Tveir
bátar eru farnir héðan og fóru
þeir í gærkvöldi. Valafell er
nýkomið úr slipp. Er það á leið
hingað og fer sennilega á morg-
un, en þá fara einnig Halldór
Jónsson, Sæfell, Jökull og Jón
á Stapa.
Fimm bátar róa héðan með
dragnóf og hófu þeir veiðar 15
júní. Reitingsafli hefur verið
hjá þeim.
SEYÐISFIRÐI.
Seyðisfirði, 25. júní — Tveir
bátar héðan verða gerðir út á
síld. Var annar farinn, en hinn
Gullver fó; í íiótt, — S einn.
Gæti þá sparað
sér ferðirnar
Fjálgleg ritstjórnargrein birt«
ist í Moskvumálgagninu s.l.
sunnudag. Þar segir m. a.:
„Þetta land er hluti af okkur
öllum, töfrar þess og galdur hafa
mótað tilfinningar okkar og
skapgerð, þessu landi má aldrei
farga".
Höfundur Þessarar
/ % greinar er Magnús
. Kjartansson, ritstjóri
' blaðsins. Eins og kunn
ugt er gerir sá ir.aður tíðum ferð
ir austur fyrir tjaid og lofsyng-
ur mjög stjórnarfar í leppríkjun
um, þar sem þjóðirnar eru
hnepptar í nýlenduþrælkun
Rússa. Ilingað til hafa menn
haldið að erindi hans í þessum
ferðum væri að fá fyrirmæli um
það hvernig hann gæti bezt unn
ið að því að sama stjórnarfar
kæmist á hérlenðis. Ef ísland á
nú allt í einu að vera fyriT fs-
lendinga virðist hann því geta
sparað sér þessar ferðir.
Sama ,,vitfirringin“
Annar spekingur, Guðmundur
nokkur Böðvarsson, lætur líka
ljós sitt skína í kommúnistamál
gagninu. Hann segir alla þá ís-
lendinga, sem ekki aðhyllast
sjónarmið hins korr.múníska fyr
irtækis sem nefnt er „Samtök
hernámsandstæðinga" „ýmist af
skapgerðarveikleika og undir-
lægjuhætti við erlend stórveldi
eða sinni eigin heimskulegri
gróðafíkn leggja lóð sitt á voga-
skál stríðsæsinga og stríðsundir
búning-s.“
Síðan segir hann um dvöl hers
bandamanna í Hvalfirði á styrj
aldarárunum:
„Her tók sér bólfestu á jörð
þeirra. Túni þeirra var gjöreytt,
nágrannabær þeirra, sem stóð
þeim samtýnis þurrkaðist út af
yfirborði jarðar og enginn kost
ur annars en flýja staðinn. . Víst
höfum við heyrt því fleygt að
ekki sé í frásögur færandi þó
nokkur bændabýli á fslandi fari
í eyði af völdum hers og her-
virkjagerðar og ég veit að það er
það ekki í augum. þeirra manna,
sem felia sig við það að láta
starfsorku sína þjóna eyðilegg-
ingunni og vit sitt vitfirring-
unni.“
Þessum manni finnst eins og
skoðanabræðrum hans fannst
framan af heimsstyrjöldinni sið
ari að það væri „vitfirring" að
verjast yfirgangi nazismans.
Slíkt leggur Guðmundur Böð-
varsson síðan að jöfnu við við-
leitni lýðræðisþjóðanna til þess
að stemrna stigu við áframhald
andi útþenslu heimskommúnis-
n-.ans og er sú ályktun skarp-
legri og skynsamlegri en annað
það, sem hann og skoðanabræð-
ur hans rita um varnarmál.
En sjálfan sig dæmir Guðmund
ur Böðvarsson endanlega úr leik
ir.?ð eftirfarandi orðum:
„Hluturinn er sá, að það sem
í okkar ungdæmi, sem nú erum
gamlir orðnir, var kallað human
ismi, það heitir kommúnismi i
dag á tungu þeirrar helstefnu
sem æ má af máli þekkja.“
Eysteinn gegn Eysteini
f ritstjórnargrein Alþýðublaðs
ins s.l. sunnudag segir m.a.:
„ Og Eysteinn Jónsson, sem et
varaformaður stjórnar sam-
bandsins, gerir enga athugasemd
við umsögn SÍS um s.l. ár. Ey-
steinn skrifar í Tímann að ríkis
stjórnin sé ailt að drepa með við
reisninni og það sé samdráttur
í atvinnulífinu, en í stjórn SÍS
samþykkir Eysteinn að ástandið
hafi aldrei verið betra.“