Morgunblaðið - 26.06.1962, Síða 17
Þriðjudagur 26. júní 196z
MORGVISBL AÐ1Ð
17
77/ mirmingar um
Jón Á. Hallgrímsson
Yfir vori,
veröld bjartri,
skein sól af skserum himni,
fuglar sungu,
fyrðar hlógu,
hið unga átti þrá.
Af hvarmi tár
hrynja móður,
skaut er rofið skildi.
Föður hugur
fyllist reiði,
hví er hann í moldu?
Vinir harma,
hryggjast systkin,
gráta brár glaðan bróður.
En hann er sæll
er saklaus deyr,
ei bergir hin beizku vín.
Líða ár
líða dagar,
eyðast æskublóm.
Minning lifir
langa ævi
um vor og vetur dimma.
Fyrir hönd skólafélaga í Haga
skóla,
Jón Örn Marinósson.
Dr. Stefán Einarsson.
Voru dreggjar
daggar morguns
yndistár á ástdegi.
Fjallasvanur
flaug um víða,
söng við sumareld.
Þá við lifðum,
lékum strengi,
á hörpu hlátra, gleði.
Ungu vori
öllu hjarta
við bergðum bikar lífs.
Skjótri stundu
skýin ýfðust,
þá hvarf dagur og dimmdi.
Yfir himni
hrannir risu,
myrkvuðust mold og sjór.
Blómin gráta,
blöðin drúpa
og augum aftur ljúka.
Heiðasvanur
hryggur flýgur,
þoku er þrungið loft.
Dr. Stefáni Einarssyni
vottuð virðing sextugum
HINN 9. júní sl. átti dr. Stefán
Einarsson, prófessor við Johns
Hopkins-háskólann í Baltimore,
sextugsafmæli. Vinir hans og
nemendur efndu í því tilefni til
efni til veizlufagnaðar fyrir
hann og minntust þá jafnframt
35 ára starfa hans við háskólann.
Voru afmælisbarninu fluttar
margar kveðjur og árnaðarósk-
ir, en meðal ræðumanna í veizl
unni voru þeir Kemp Malone
prófessor, William F. Albrigtih
prófessor og Thor Thors sendi-
herra.
Einn af nemendum dr. Stefáns,
Alan Orrick, færði honum af-
mælisrit í handriti, og verður það
gefið út af forlaginu „Rosenkilde
og Bagger“ í Kaupmannahöfn.
Að afmælisritinu stóðu engir
íslendingar, heldur bandarískir
vinir og nemendur prófessorsins.
í vor var dr. Stefáni Einarssyni
veittur sérstakur styrkur frá
Guggenheim-stofnuninni í því
skyni að rannsaka ,,Primitivism“
og kristin áhrif í íslenzkum bók-
menntum. Mun hann væntanlega
koma til landsins í lok júlí og
hefjast handa um rannsóknir sín
ar.
Flutt inn fyrir
375 millj. í mní
SÚ PRENTVILLA varð í frétt
Mbl. á sunnudag um það, hve
viðsikiptajöfnuðurinn væri hag
stæður nú í maí og fyrstu fimm
mánuði ársins í heild, að sagt
var, að inn hefðu verið fluttar
vörur í maí fyrir 274,7 millj. kr.
Hið rétta var, að innflutningur-
inn nam 374,7 millj. kr. Hitt er
svo aftur rétt, að viðskiptajöfn-
uðurinn var hagstæður um 19,4
millj. kr., og fyrstu fimm mán-
uði ársins um 167 millj. kr.
* KVIKMYNDIR ★ KVIKMYNDIR ★ KVIKMYNDIR ★
ítí
O
★ KVIKMYNDIR ★ SKRIFAR IIM: ★ KVIKMYNDIR ★
HÁSKÓLABÍÓ hefur sýnt þessa
ensku Rank-kvikmynd alllengi
undanfarið við ágæta aðsókn,
enda er hér um mjög sérstæða
og áhrifamikla mynd að ræða.
Myndin, sem byggð er á sögunni
„Top of the World“ eftir Hans
Ruesch, gerist í Grænlandi í hin
um stórbrotnu ísauðnum þar
sem Eskimóarnir búa í snjóhús
um og stunda sela- og rostungs-
veiðar. Gefur myndin glögga
Ihugmynd um hið frumstæða líf
á þessum norðurhjara heims, sið
ferðishugmyndir þeirra og þær
venjur og umgangshætti, sem
ríkja meðal þessa fólks og skap
ast hafa aí erfiðri lífsbaráttu
þess.
í myndinni segir frá veiði-
manninum Inuk, sem enn hefur
ekki tekið sér eiginkonu. Það
kemur að vísu ekki að sök því
að þarna um sóðir lána menn
j öðrum mönnum eiginkonur sín-
ar af einskærri gestrisni. — En
j Iunk finnst nú kominn tími til
! að hann taki sér konu til þess
I að annast heimilisstörfin, sauma
honum fatnað úr hreindýraskinn
um og tyggja stígvél hans svo
I að þau haldist mjúk. Asiak dótt
Kæling — Lofiræsting — Hitun
Heimsþekkt, leiðandi bandarískt fyrirtæki sem framleiðir
kæli-, loftræstingar- og hitaútbúnað, óskar að ráða einka-
sala á íslandi. Fyrirtæki, sem hefur góðan fjárhagsgrund-
völl og tæknilega reynslu á sölu, uppsetningum^ raflögnum
og þjónustu eru beðin að senda nákvæmar upplýsingar um
fyrirtækið og fenga reynslu til Mbl. fyrir 1. júlí n.k. merkt:
„Einkasali 7069“.
Reglusamur maður
óskast tíl starfa við afgreiðslu í bygginga-
vöruverzlun. — Uppl. hjá
I*. Þorgrímsson & Co.
Borgartúni 7 sími 22235.
Stúlka í bókabúð
Viljum raða röska stúlku til starfa í Bókabúðinni
Norðra í Hafnarstræti.
Nánari upplýsingar gefur Starfsmannahald S.Í.S.
Sambandshúsinu.
ir gamallar Eskimóakonu verður
fyrir valinu. — En nú gerist
það að trúboði nokkur heimsæk
ir Inuk. Tekur Inuk á móti trú
boðanum af mikilli gestrisni býð
ur honum það, sem hann á bezt
af matföngum, sem trúboðinn
treystir sér þó eklri til að leggja
kér til munns, og loks býður
Inuk gestinum konu sína. En
þegar trúboðinn hafnar þessum
vinsemdarvotti, reiðist Inuk á-
kaflega, ræðst á trúboðann og
verður honum óvart að bana. Á
næsta misseri, þegar Inuk er á
veiðúm finna tveir lögreglu-
menn hann, en þeir hafa verið
að leita hans, vegna morðsins á
trúboðanum. Þeir taka Inuk
höndum og halda á brott með
hann. ísinn brestur undan sleða
þeirra og annar lögregluþjóninn
frýs þarna í hel og hendur hins
lögregluþjónsins byrja þegar að
kala. Inu'k kemst með hann við
illan leik heim til sín og bjarg-
ar þannig lífi lögregluþjónsins
enda þótt hann viti að lögreglu
þjónninn muni, þegar er hann
hjarnar við, afhenda hann rétt-
vísi hinna hivítu manna. — En
þakklætiskennd lögregluþjöns-
ins verður skyldunni yfirsterk-
ari og honum tekst með erfiðis-
munum að fá Inuk og konu hans
að hverfa aftur heim til sín —
og þar með skilja leiðir þeirra.
Eins og áður er sagt, er þetta
mjög óvenjuleg mynd og atíhygi
isverð enda er hún prýðilega
gerð og vel leikin. Einkum er
afbragðsgóður leikur Anflhony s
Quinn's er fer með hlutverk
Inuk's og Yok'o Tani‘s er leikur
Asiak. Aðrir leikendur fara einn
ig mjög vel með hlutverk sín —
Það er vissulega óihætt að mæla
með þessari mynd.
ALMENNAR
Pósthússtræti 9. Sími 1-77-00.
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu