Morgunblaðið - 26.06.1962, Qupperneq 24
Fiéttasímar Mbl
— eftir iokun —
Erler.dar fréttir: 2-24-85
Inniendar fréttir: 2-24-84
SVEFN LYFIÐ
Sjá blaðsíðu 13.
141. tbl.
udagur 2ijúní 1962
Banaslys í Dýrafirði
Drengur datt af steini
Þingeyri, 26. júní.
ÞAÐ slys varð hér í gær að 11
ára gamall drengur úr Kópa-
vogi, ólafur Gíslason, sem var
í sveit hjá ættingjum á Núpi í
Dýrafirði, féll af steini og beið
bana á leið til læknis.
Börnin voru að reka kýrnar
um morguninn fram Núpsdal-
inn. Er þau voru komin að
eyðibýlinu Kotnúpur, fóru þau
að leika sér við stóran stein,
sem stendur við troðninginn og
börn hafa leikið sér við í alda-
raðir. Klifraði ólafur upp á
steininn, en datt niður af hon-
um. Hann kom ekki á höfuðið
niður, en mun hafa slegið
höfðinu við steininn í fallinu.
Sá lítið á honum, var hann að-
eins hruflaður. Gekk drengur-
inn heim á leið. Er hann kom
að skrúðgarðinum Skrúði, var
einn kennarinn frá Núpi að
vinnu í garðinum. Bað dreng-
urinn hann um áð aka sér
heim.
Er heim kom, var drengur-
inn háttaður ofan í rúm. Hús-
móðirin náði sambandi við
læknirinn í Súgandafirði, því
þessa stundina er læknislaust "á
Flateyri og Þingeyri. Taláðist
þeim svo til, að ekki væri
þetta alvarlegt og óþarfi að
Árckstur á Akur-
AKUREYRI, 25. júní — Seint í
gærkvöldi kom jeppabifreið neð
an Tryggvagötu, en stór bifreið
norðan að. Skár.ust leiðir þeirra.
Jeppabifreiðin vallt við árekst-
urinn og skemmdist allmikið.
Enn maður var í bifreiðinni,
'bfreiðastjórinn og meiddist hann
furðu Mtið, marðist og skarst
smévegis. — st.a.sig.
Fyrirlestur í
Háskólanum
Dr. JOSEPH CREMONA, kenn-
ari við Cambridgeháskóla^ flytur
fyrirlestur í boði Háskóla íslands
miðvikudaginn 27. júní kl. 17.30.
í I. kennslustofu háskólans. Dr.
Cremona er málfræðingur og
faefir sérstaklega fengizt við
rannsóknir í rómönskum mólum.
Fyrirlestur sá, er Dr. Cremona
flytur nefnist „Britisih Universit
ies bo-day.“ Verður hann fluttur
á enáku, og er öllum heimill að-
gangur.
hann kæmi. En er konan kom
niður aftur, hafði drengnum
versnað og var að missa með-
vitund. Reyndi hún þá að ná í
lækninn aftur, en tókst ekki.
Hringdi hún til ísafjarðar og
læknirinn þar vildi að komið
yrði strax með drenginn í bíl
og lagði sjálfur af stað á mótd
þeim. Er þetta 1—1% tíma
akstur.
Er komið var fram í Breiða-
dal, mætti læknirinn fólkinu
með sjúklinginn. Var ólafur
þá örendur í bílnum. — Mun
hafa blætt inn á heilann.
Ólafur heitinn var sonur Val-
borgar ólafsdóttur og Gísla
Guðmundssonar að Kópavogs-
braut 37 í Kópavogi. — Frétta-
ritari.
Viggó Bjerg í Lanðakots-
spítala í gær.
(Ljósm.: Ól. K. M.)
Víxlar Helga Ben
fil innheimtu
Sendi báta sína á síld
BIAÐINU hefur borizt frá Helga
Benediktssyni í Vestmannaeyjum
afrit af bréfi, er hann hef-
ur sent Landssamib. ísl. útvegs-
manna, en það er svar við skeyti
til hanum um að vixlar að upp-
hæð sex hundruð þús. krónur séu
fallnir í gjalddaga og óskist
greiddir.
Kveðst Helgi ekiki skulda LÍÚ
neitt. Hann hafi sagt upp þvi
umboði, er hann gaf LÍÚ til sam
stöðu um uppsögn síldarsamn-
inga til breytinga á síldveiði-
kjörum á þeim skipum, sem nota
til veiðanna fyllstu nútíma tæki
í búnaði og veiðarfærum, og þar
með átt að fá til baka þá trygg
ingarvígsla er hann gaf. Ástæð-
una fyrir uppsögninni telur hann
rangar forsendur eða upplýsing-
ar um samningsgerðina fyrir-
fram, þar eð ekiki hafi öll út-
gerðarsamtök um land allt stað
ið að þessu þegar til kom. Sendi
hann uppsagnarbréfið 6. þ.m. til
LÍÚ.
Umboðið óafturkallanlegt.
Blaðið fékk þær upplýsingar
hjá LÍÚ, að umboðið hafi verið
fullt og óafturkallanlegt. Hafi
samtökin sent Helga Benedikts-
syni skeyti þar að lútandi, er
þeim barst bréfið fró 6. þ.m., en
hann hafi neitað að taka við
þvL Væri það því brot á skuld-
bindingum er Helgi sendi skip
sín á síldveiðar meðan samning
ar stóðu yfir, og væri víxillinn
í innheimtu, ásamt víxlum
fleiri sem brotið hefðu skuldibind
ingu sína.
„Það varð már til lífs, að ég
fleygði stólnum I rúðuna“
MBL. ÁTTI í gær tal við
Viggó Bjerg, sem vopnaður
maður rændi sl. föstudags-
kvöld. Viggó er enn í Landa-
kostsspítala, þar sem hann er
að ná sér eftir árásina.
Viggó býr í kjallaraherbergi
að Njálsgötu 49. Herbergið
snýr út „ð garði, og er gengið
í það eftir gangi, sem liggur
frá götudyrum.
Kunningi Viggós hafði ver-
ið í heimsókn, og fór hann um
kl. hálfníu. Fylgdi Viggó hon
um til dyra. Þegar hann var
á leið aftur til herbergis síns,
kemur maður skyndilega aft-
an að honum. Otar hnífi að
baki hans og segir honum að
láta sig hafa alla peninga, sem
hann eigi, annars verði hann
drepinn.
„Við gengum að dyrunum",
segir Viggó, en í sama mund
heyri ég, að maður sem býr
uppi, gengur niður og að úti-
dyrunum. Eg kallaði á hjálp,
en því miður heyrði maður-
inn það ekki. Árásarmaður-
inn rak hnífinn þá fast í
brjóst mér, skipaði mér að
þegja og flýta mér inn. Ann-
ars yrði ég drepinn á stund-
inni. Gekk hann síðan á eftir
mér inn og hafði hnífsoddinn
á bringu mér.
Eg sagðist fyrst enga pen-
inga eiga, en hann særði mig
þá með hnífnum og hótaði
mér enn lífláti. Greip ég þá
til veskisins, en í því munu
hafa verið um 800 krónur. —
Hirti hann peningana, en
heimtaði síðan meira. Mér
fannst árásarmaðurinn til alls
vís, enda hélt hann áfram að
rispa mig með hnífnum. Sagð
ist ég e.t.v. eiga eitthvað í
skrifborðsskúffu, og hirti hann
þar 35 krónur.
Enn heimtaði ræninginn
meira fé, en ég sagðist alls
ekki eiga meira. Sló hann þá
til mín, svo að bæði augun
eru sokkin í bólgu, og særði
mig með hnífsbakinu á ann-
ari augabrún. Einnig tók hann
með annarri hendi fyrir
kverkar mér, meðan hann rak
hnífinn í bringuna með hinni,
hótaði mér lífláti og heimt-
aði meiri peninga. Að lyktum
tók hann flösku og braut hana
á höfðinu á mér. Þá greip ég
stól með vinstri hendi og kast
aði honum í gluggarúðu, sem
brotnaði, í þeirri von, að ein
hverjir heyrðu hávaðann og
kæmu mér til hjálpar. Síðan
man ég ekki meira.
Eg er viss um, að það varð
mér til lífs, að ég skýldi
fleygja stólnum í rúðuna, þvi
að við það mun árásanmaður-
inn hafa orðið skelkaður og
lagt á flótta. Eg mun svo hafa
legið þarna meðvitundarlaus
í rúman klukkutíma. Á ellefta
tímanum rankaði ég eittfavað
við mér, komst út og náði í
lögregluna, en var þá enn
mjög ringlaður eftir höfuð-
höggið og þessa atburði.
Eg hef hlotið nokkur sár
á höfði, mikla bólgu við aug
un, og skrámur á baki og
bringu, en tel mig þó eftir at
vikum hafa sloppið vel miðað
við ofsa mannsins. Fötin eru
alblóðug og gegnumstungin af
hrjíflögum.
Maðurinn gætti þess að láta
mig sem minnst sjá framan í
sig, stóð ýmist fyrir aftan mig
eða á hlið við mig og hélt
mér bognum. Þó held ég, að
hann hafi verið 35—40 ára
gamall, ríflega meðalmaður á
hæð, grannur, dökkhærður,
skegglaus og fremur fríður
en ófríður, en annars á ég bágt
með að fullyrða nokkuð um
þetta. Ekki gat ég merkt vín
á honum“.
-- XXX ----
Rannsóknarlögreglan vann
að rannsókn málsins í gær.
Eldhaf i Oran
Átta olíugeymar sprengdir i loft upp
— fleiri i hættu
Oran og Algeirsborg, 25. júnL
(NTB og Associated Press)
ÁTTA stórir olíugeymar með
milljónum lítra af olíu og
benzíni sprungu í loft upp
við höfnina í Oran síðdegis
á mánudag. Er borgin í mik-
illi hættu vegna brennandi
olíunnar og flýja íbúarnir
hópum saman óttaslegnir. —
Talið er að eldsúlurnar nái
400 metra upp í loftið. Tólf
olíugeymar í nágrenninu
eyðilögðust ekki í fyrstu
sprengingunum, en slökkvi-
lið borgarinnar, sem skipað
er aðeins 40 mönnum, stend-
ur máttvana í viðureigninni
við eldinn — og eru því allt
eins Iíkur á að eldurinn ber-
ist til geyma þessara líka.
— Það voru skemmdar-
verkamenn OAS-hreyfingar-
innar, sem komu sprenging-
unum af stað.
Skip, sem lágu við festar í
höfninni í Oran, nálægt olíu-
geymunum, lögðu þegar frá
landi, þar á meðal frönsku far-
þegaskipin „Jean Labordegs"
og „E1 Mensour“, sem biðu
þess ekki einu sinni, að drátt-
arbátar kæmu til að aðstoða
þau. — Allt starfsfólk í suð-
austurhluta hafnarinnar var
flutt á brott í miklum flýti. Er
ekki kunnugt um að manntjón
hafi orðið. — Svo hagar til, að
borgin stendur ofar en höfnin
og breytir það miklu.
Hótanir Dufour
OAS-leiðtoginn Paul Dufour
krafðist þess í útvarpssendingu
□--------------------□
, í nótt
Samkvæmt útvarpsfréttum kl.
2 í nótt, hafði eldurinn þá náð
til 10 olíugeyma í Oran. Gfur-
legur eldur logaði enn í borg-
inni. Einn fréttamanna komst
svo að orði, að eldurinn í gas-
stöðinni, sem sprend var í loft
upp skammt fyrir utan Oran á
dögunum, hefði verið eins og
kertaljós — í samanburði við eld
hafið nú.
□--------------------□
um leynistöð samtakanna á
sunnudagskvöld, að allt ev-
rópskt fólk í Oran yrði á brott
Framhald á bLs. 23.
Sáttafundur í tog-
aradeilunni
í GÆRKVÖLDI boðaði Torfi
Hjartarson, sáttasemjarL deilu-
aðila í togaradeilunni á sátta-
fund. Hófst fundiurinn kl. 9. Var
skipuð undirnefnd til að atfauga
deiluatriði. Eru í henni tveir
fulltrúar frá hvorum aðila.
Tryggvi Helgason og Hilmar
Jónsson frá sjómönnum og Ingi
mar Einarsson og Kristinn Gunn
arsson frá útgerðarmönnum. —
Fundinum lauk kl. rúmlega 11.
í bændaför austur
um land
HOFSÓSI, 23. júní — í dag lögðu
120 Skagfirðingar upp í bænda-
för austur um land til Horna-
fjarðar. Áætluð er 8 daga ferð.
— Björn Bæ.