Morgunblaðið - 30.06.1962, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 30.06.1962, Qupperneq 2
MORCUNBLAÐIÐ Laugarda'gur 30. júní 1962 Fremur léleg veiöi í gær Torfur undan VópnafLði SíðdarBegt á SSglufirði f GÆR var fremur léleg veiði á miðunum, bæði fyr- ir austan og vestan, enða bræía framan af. Engin síld barst til Raufarhafnar, en skip voru enn að koma til Siglufjarðar frá vestursvæðinu. Lóðað var á síld 50—60 míl- ur út af Sléttu og Þistilfirði í fyrrinótt, en í gærkvöldi varð hennar ekki vart. Hins vegar sáust 3 torfur úr flugvél 6V4 mílu út af Bjarnarey um há- degi í gær, og fóru nokkrir bátar þegar áleiðis þangað. Kl. 23 í gærkv. tilkynnti síldarleitin f VAGNA- og bílasmiðju Kristins Jónssonar á Grettis- götu 21 er nú unnið að nokk uð nýstárlegri innréttingu í bíl. Þetta er stór Mercedes Benz sendiferðabifreið og ut- an á honum stendur Lands- banki íslands og merki bank ans á hurðum. Inni í honum að aftan er svo peningaskápur og skjalaskápur. Mun ætlun in að nota bíl þennan til að flytja fé til útibúa bankans og hafa þar aðstöðu til að bankamenn geti afgreitt beint úr bílntim. Er þetta fyrsti bíll inn, sem sérstaklega er gerð- ur hér til að flytja fé. Þórir Kristinsson, sagði að verkstæði sitt væri að ganga frá klæðningu inn í bilnum, festa peningaskápinn þannig að ekki geti komizt að honum aðrir en þeir sem eiga með það. Settar væru sérstakar læs ingar á afturhurð og hurðina fram í bílstjóraklefann og yf irleitt gengið eins örugglega frá og nauðsynlegt væri — nei, billinn væri ekki skot- heldur! Meðfylgjandi myndir tók Ijósmyndari Mbl. i gær. Á annarri sést maður vera að ganga frá peningaskápnum og á hinni myndinni má sjá xnerki bankans á hurð bílsins. íslenzkur sjórnað- ur rændur í Gautaborg ÍSLENZKUR sjómaður var bar- inn og rændur í Gautaborg fyrir nokkrum dögum. Hann er nú út- skrifaður af sjúkrahúsi. Hilaut hann alvarlegan áverka á hljóð- himnu og var rænd'ur 400 krón- um sænskum. Árásarmennimir, sem voru þrir danskir unglingar, hafa náðst, og koma þeir fyrir rétt í Gautaborg. á Seyðisfirði, að margar smá- torfur hefðu sézt á allstóru svæði 39 sjómílur 118 gráður misvísandi frá Bjarnarey, og Gullfaxi lenti I síld 8 sjómílur ASA af Bjarnarey. A Strandagrunni fékkst lítils háttar síld í gærkvöldi. Skipin voru þá að kosta, en með litl- um árangri. Þá var ágætt veð- ur um allt. Líf og fjör í Siglufirði Siglufirði, 29. júní. — Hér var mjög líflegt um að litast í dag. Skipin koma hingað hlað- in síld, verksmiðjur í fullum gangi, og bærinn að klæðast þeirri gömlu og góðu síldar- stemmningu, sem gefur honum sinn sérstæða svip. Frá kl. 20 í gærkvöldi til kl. 8 í morgun fengu rúmlega 50 skip nærri 37.000 mál á vest ursvæðinu, og koma flest með aflann til Siglufjarðar. Á þessu svæði var smákul í morgun, en er nú að lygna. Á austursvæð- inu munu tvö skip hafa fengið afla norður af Digranesflakinu, Víðir 300 tunnur og Gullfaxi 900 tunnur. Mun Gullfaxi hafa farið þangað til hjálpar Norð- manni, sem var með nót sína fulla af hvimleiðum gesti, kol- munna. Þá mun Ægir hafa orð ið var síldar um 50 mílur norð ur af Rauðanúpi, og voru þar smátorfur, en þar eru engin síldveiðiskip. Töluvert af aðkomufólki er komið hingað til vinnu, og eru áætlunarbílar þéttsetnir dag hvern. Þá er hér nokkuð af ferðafólki, sem ver sumar- leyfum sínum hér í vaxandi mæli, ýmist til tekjuöflunar í síldinni, eða til að komast í snertingu við síldarævintýrið. — Stefán. Síld til Skagastrandar Skagaströnd, 29. júní. Eftir- Ltvarpsskák Svart: Svein Johannessen, ósló ABCDEFGH ■ ■ ■íB.i • JHS ‘í'Mkí Wm. B-. ■ &■ m ■„%■ 1 w» ABCDEFGH Hvítt: Ingi R. Jóhannsson. 36. Dff4-f4 Stofnað SjálfstæðisféL „Dranguru í Eyjafirði FÖSTUDAGINN 22. júní var haldinn á Akureyri stofnfund- ur Sjálfstæðisfélagsins „Drang- ur“ og er félagssvæði þess Glæsibæjar-, Öxnadals-, Skriðu- og Arnarnesshreppar í Eyja- fjarðarsýslu. Stofendur voru 51 að tölu. Jónas G. Rafnar, alþingis- maður, setti fundinn og stjórn- aði honum og skýrði frá undir- búningi og tildrögum hans. — Fundarritari var Vésteinn Guð- mundsson, verksmiðjustj., Hjalt- eyri. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, framkvæmdastjóri Sjálf- stæðisflokksins, ræddi skipu- lagsmál Sjálfstæðisflokksins og lagði fram frumvarp að lögum fyrir félagið, sem síðan voru samþykkt. Hlaut félagið nafnið „Drangur". f stjórn félagsins voru kjörn- ir: Vésteinn Guðmundsson, verksmiðjustjóri, formaður; Ei- ríkur Sigfússon, bóndi, Einars-, stöðum; Ari Heiðmann, bóndi, Auðnum; Þorsteinn Jónsson, bóndi, Brakanda, og Magnús Stefánsson, bóndi, Fagraskógi. f varastjórn voru kjörnir: Ól- afur ólafsson, bóndi, Garðs- homi; Jónas Aðalsteinsson, bóndi, Grjótgarði; Hreinn Heið- mann, Auðnum; Jón M. Jóns- son, bóndi, Dunhaga, og Gunn- ar Jósavinsson, bóndi, Búða- nesi. Endurskoðendúr félagsins voru kosnir Einar Jónasson, bóndi, Laugalandi, og Ævar Þórhallsson, Hjalteyri. — Enn- freinur voru kosnir fulltrúar félagsins í Fulltrúaráð Sjálf- stæðisfélaganna í Eyjafjarðar- sýslu og fulltrúar í Kjördæmis- ráð Norðurlandskjördæmis eystra. Að loknum stofnfundarstörf- um hélt Magnús Jónsson, bankastjóri, ræðu um stjórn- málaviðhorfið. Bátur týndur og fundinn SLYSAVARNAFÉLAG íslands auglýsti í útvarpinu í gærkvöldi ki. 22 eftir báti. Hann er nú kominn fram. Hér var um að ræða. Gullskó GK 270, sem farið hafði í róður fná Reykjavík á miðnætti sl. miðvikudag, en ekk ert hafði heyrzt til síðan, þótt hann hefði talstöð. Skömimu eftir að auglýsingin hafði verið lesin í útvarpinu til- kynnti vb Guðmundur Þórðar- son GK 75, að vb Gullskór hefði sézt kl. 18 út af Stafnesi á leið til Reykjavíkur. Mun báturinn m. a. hafa vetrið í Sandgerði þenn am tóma. UM hádegi í gær var hæð fyrir sunnan landið en lægð- arsvæði fyrir norðan og vest an. Má því búast við stopul um þurrki og sólarlitlu veðri vestanlands, en yfirgnæfandi þurrviðri norðanlands og aust an. Hiti var 18 stig á A'kur- eyri og Egilsstöðum, en á sama tíma var aðeins 15 st. hiti í Lundúnum og 17 st. í Kaupmannalhöfn. taldir bátar hafa komið með síld í nótt og dag til Skagastrandar: Þorbjörn GK 540 með 850 mál, Guðbjörg ÍS 14 m-eð 900 mál, Sigurður AK 107 með 1100 mál, Gísli lóðs GK 130 með 800 mál, Hafþór RE 95 með 900 mál, Rán ÍS 15 með 200 mál, Einar Hálf- dáns ÍS 3 með 300 mál, Gnýfari SH 8 með 500 mál, Sólrún ÍS 399 með 600 mál og Helga Björg HtJ 7 með 100 turnnur. Síldin er enn mjög misjöfn að gæðum. Tvæc söltunarstöðvar hér eru tilbúnar að hefja söltun um leið og söltunarhæf síld berst. Undainfarið hefur venð unnið að því að koma fyrir soð- kjarnatækjum í síldarverksmiðj- unni, og mun bræðsla hefjast á mánudag. — Þ.J. Krossanes I Krossanesi var landað í vik- unni um 2500 málum, þar af 1270 mál úr Ólafi Magnússyni AK og 1100 úr Súlunni AK. Norðmenn veiða vel Norska eftirlitsskipið „Draug“ .tilkynnti í gær, að sl. tvo sólar- hringa hefði verið góð veiði og jöfn á íslandsmiðum. Skipin hefðu fengið 500—1000 og allt upp í 2.500 hektólítra á sólar- hring. Innbrots- þjófar at- haínasaniií ÍINNBROTSÞJÓFAR voru at- haánasamir í Austurbænum aðfaranótt föstudags. Brotizt var inn í hjólbarðaverkstæð- ið Mylluna við Rauðarárstíg, Pipuverksmiðjuna við Rauð- arárstíg, bílaverkstæði Mjólk ursamsölunnar að Brautar- 'holti 8, og í Skipholti 1 var brotizt inn í fjögur fyrirtæki, Cellopoka, radíóverkstæði Ge- y orgs Ámundasonar, Efnalaug Austurbæjar og Efnag. Ilma. Munu sömu mennirnir hafa verið hér að verki, en höfðu aðeins um 900 krónur upp úr öllum innbrotunum, enda fyrir tækjum farið að lærast að skilja ekki eftir peninga að næturlagi. Nokkrar skemmdir voru unnar í sambandi við þessi innbrot, einkum í Skip- holti 1, en þar urðu hurðir fyrir barðinu á þjófunum. Lömb hverf a í Hvalfirði VALDASTÖÐUM í Kjós, 24. júní. Töluverðra vanhalda hefur orðið vart á unglömbum, aðallega hér inn með Hvalfirði. Sterkur grun ur er um, að þessi vanhöld séu af völdum umferðarinnar, þó að lítið finnist. Eitt dæmi má nefna frá Fossá. Þar hurfu tvö lömb skyndilega, en bóndinn fann að» eins eitt lanmbshorn á veginum, Fyrir fáum dögum var ekið á tvö lömib, sitt frá hvorum bæ, Laxárnesi og Grímsstöðum, en þeir, sem urðu fyrir því óláni að aka á þau, voru svo heiðarlegir að segja til þess. Heyannir að hefjast. Bkki veit ég tíl, að sláttur sé enn hafinn nema á einum bæ, þegar þetta er skrifað, þ.e. á Neðra-Hálsi. Líklega hefja fleiri slátt, þegar kemur fram í þessa viku, ef vel viðrar. Þó býst ég ekki við, að sláttur hefjist al- mennt, fyrr en um næstu mári- aðamót eða upp úr þeim, enda er spretta ekki góð. — St G,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.