Morgunblaðið - 30.06.1962, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 30.06.1962, Blaðsíða 20
20 MORGVyBLAÐlÐ Laugardagur 30. júní 1962 Alexander Fullerton j GuEi Fordinn fullt af stoppuðum stólum, nokkr ar hræðilegar myndir, flöskur i glerkassa og flauelsdúkur á borð inu — þetta átti heldur illa við loftslagið þarna. Ef gestgjafa- konan hefði komið inn með blúndukappa á höfði og heyrnar- pípu úr horni í öðru eyranu, hefði hún farið vel við húsgögnin þarna inni. En ef þarna hefur verið ein- (hver húsmóðir, sá ég hana að minnsta kosti ekki. Innlendur maður bar mér bjórinn á bakka, sem á var letrað merki brugg- (hússins. Ég hafði beðið um einn bjór og eina flösku af engiferöli Og stórt glas, af því að einn bjór hefði ekki nægt til að slökkva þorstann í mér, en tveir hefðu svæft mig við stýrið. Ég átti enn langa leið fyrir höndum — einar þrjú hundruð mílur, Það var of snemmt að éta há- degisverð, en mér fannst ég vel geta étið brauðsneiðarnar, sem ég hafði haft með mér. Ég hall- aði mér því aftur í stól og át brauðið og drakk ískalt ölið rneð.. Þegar stóllinn var orðinn jafn- heitur mér, flutti ég mig á ann- an. Þarna var ég beint á móti glugganum og ef einhver bíll kæmi þarna framhjá, þurfti ég ekki annað en standa upp til að sjá alla leið niður á veginn. Lessing var þá á eftir mér, úr því að hann stóð ekki í tollgæzlu bókinni. Mér þótti miður að hafa þurft að spyrja náungann um hann í stað þess að gægjast bara í bókina sjálfur, en hann, leit nú ekki út fyrir að vera skrafhreyf- inn, svo að það var ólíklegt, að hann færi að segja frá forvitni minni þegar þau kæmu. Sjálf- sagt mundi Lessing búast við, að ég hefði gætur á ferðum hans, en samt sem áður kærði ég mig ekki um að láta um of í ljós álhuga minn á ferðum hans. Þegar ég hafði lokið við brauð- ið, stillti ég mig um að fá mér annan bjór. í stað þess fór ég að bílnum og ók honum að benzín- dælunni. Ég átti að hafa nóg foenzín til Tete, en það er aldrei að treysta á, að ekkert óvænt geti komið fyrir á langferðum í Afriku. Það er svo algengt, að þeir séu benzínlausir á stöðvun- um, þangað til næsti olíubíll kemur, og þá situr maður fastur þar sem maður er kominn, og getur oft komið sér illa. Reyndar var mér óhætt af því að ég var með fjögurra gallóna brúsa með mér, en það er samt betra að veira viss. Á langleiðum er ekki óalgengt að finna ferðamanna- foíl, sem er strandaður og þegar maður hefur hjálpað honum, er úti um manns eigið öryggi. Þegar ég var að skrötta eftir ósléttum veginum, tók ég aftur að hugsa um Jane — kulda henn ar og næstum hræðslu, þegar við hittumst, og seinna þessar aug- ljósu tilraunir hennar til að votta Lessing nærgætni sína og holl- ustu, og svo....allt í einu.... þama á dansgólfinu.... Ég þekkti Jane það vel, að mér fannst þetta aills ekki koma heim og saman. Það hefði verið vel skiljanlegt hjá einhverri ann arri konu, en Jane var svo hrein- skilin og heiðarleg, að ég gat varla hugsað mér hana leika tveim skjöldum. Klukkustund eftir að ég fór frá Mtoko, var ég kominn í portúgalskt land. Prá landamær- unum vom þrjátíu mílur til Changara, Og þegar þangað kom, var sólin svo að segja beint uppi yfir höfðinu á mér. Ég var feg- inn að hafa étið brauðið mitt snemma, því að hvert sem litið var þarna var ekki hægt að finna nokkurn blett með svo mikilli forsælu, að viðlit væri að stanza þar. Portúgalski tollvörðurinn, sem átti heima í tollskýlinu, var stutt ur og feitur með vingjamlegt brös á vör, og við kinkuðum kolli og brostum hvor framan í annan, því að hvoruigur skildi hinn. Ég var þyrstur, og þegar hann hafði stimplað skjölin mín, spurði ég hann, hvort hægt væri að fá glas af vatni, en hann bara forosti og hristi höfuðið og sagði eitthvað óskiljanlegt. Ég lét eins og ég lyfti glasi að vömnum, og þá skildi hánn, hvað ég var að fara. Það voru engir bílar á undan mér, þegar ég seint og um síðir kom að Zamfoesi-:ánni, enda var ferjan alveg nýfarin. Áin er sem næst sjö hundruð metrar þama og rann með hörðum straumi frá vinstir til hægri, það ér að segja í suðvesturátt. Dráttarbáturinn, sem dregur ferjuna, verður að stýra upp í móti straumnum góð- an spöl, til þess að geta lent í Benga, sem er á norðurbakkan- um. Mér datt í hug, að ef straum- urinn væri ofurlitið harðari, þyrfti sterkari dráttarbát til að komast yfir. Ég kom bílnum fyrir uppi á brekkunni og fór út til að rétta svolítið úr mér. Hópur af krakka snáðum kom hlaupandi til mín og æptu í kór: Penny, penrny! Ég átti fáeina pennypeninga og gaf þeim, en það nægðd þeim ekki, svo að g varð að lokum að snúa við vösunum til að sýna þeim, að þeir væru tómir. _ Skrítið er þetta. Maður getur ekið tvö hundruð mílur án þess að sjá nokkurn bíl, en svo bíður maður í tiu mínútur og þá er samstundis komin heil þvaga af þeim aftan á mann. Éyrstd bíll- inn var Volkswagen með tveim ungum mönnum, hvítum, en samt mjög rjóðum af sólarhit- anum, Og þeir töluðu saman á sænsku — ef til vill hefur það verið danska, en ég þóttist nú viss um, að þeir væru Svíar. Þeir stöðvuðu bílinn rétt fyrir aftan mig og stukku út úr hon- um með fagnaðarópum, báðir voru með kvikmyndavélar og nú hlupu þeir út og mynduðu allt, sem fyrir varð, aðallega ána, en líka hvor annan og bílana og svörtu krakkana, sem voru að betla af þeim. Svíarnir gáfu þeim appelsínur í peninga stað og krakkarnir hámuðu þær í sig með ógeðslegri græðgi; bitu í ávöxtinn fog hræktu svo út úr sér berkinum. Svíarnir tóku nær- myndir af þessu öllu. Það var auðséð á ánægjusvipnum á þeim, að nú þóttust þeir hafa náð myndum af sjálfri þjóðarsál Afríku. Einn bíllinn til bættist í hóp- inn. Það var skrautlegur, tví- litur Buick með númerum frá Belgísku Kongó. Ökumaðurinn var stuttur og feitlaginn maður með hvítt, rakt andlit og þunnt yfirskegg. Hann var í marglitri skyrtu og reykti vindil. Við hlið (hönum sat konan hans, stór kona, dökk yfirlitum og ferlega máluð, í einhverskonar sumar- kjól. í aftursætinu sátu tvær lag- legar stúlkur, líklega innan við tvítugt. Þær voru dökkar á brún og brá, eins og mamma þeirra Og þegar þær voru orðnar full- orðnar mundu þær líklega verða feitar eins og hún, en eins og var, voru þær geðslegar í útliti Og framkomu. Það fannst Sví- unum að minnsta kosti, því að iþeir fóru strax að gefa bílnum auga og mjaka sér nær honum, tvístígandi og með vandræðabros á vörum. Nú var ferjan að koma aftur. Svíarnir og myndavélarnar þeirra minntu mig á það, að ég var þarna til að taka myndir og mér fannst ég þá eins vel geta tekið mynd af ferjunni, þegar hún var að köma að, en mig lang aði til að fá stúlkumar tvær í forgrunninn, svo að mynddn yrði eitbhvað fyrir ferðamenn. Ég gekk því að bílnum þeim megin, sem móðir þeirra sat, og spurði hana á frönsku, hvort henni væri það nokkuð móti skapi. En hafi svo verið, komst hún að minnsta kosti ekki að með það, ’því að stúlkurnar gripu hug- myndina á lofti með miklum feg- inleik og hlupu strax niður á bakkann og settu sig í þær stell- ingar, sem þeim fannst mest viðeigandi. Ég náði í myndavél- ina í snatri, kom stúlkunum fyrir eins og ég vildi hafa þær og beið svo þess, að ferjan kæmi Svíarnir á ferð og flugi allf kring inn í myndina, en á meðan voru um okkur og tóku rnyndir af fyr- irmyndura mínum frá öllum híið um, og héldu sig í drjúgri fjar- lægð, rétt eins og þeir væru að mynda villidýr, sem kynnu að fælast og hlaupa leiðar sinnar. Svo dragnaðist ferjan að og ég tók litmyndina mína. Ég þakkaði stúlkunum, en þær virtust eitt- hvað vonsviknar. Sú í ljósrauðu síðbuxunum spurði mig í rellu- tón: Er það búið? Á ekki að taka nema eina? Ég sagði þeim, að ég þyrfti ekki meira og þakkaði þeim fyrir aðstoðina, og þær sneni aftur til bílsins og virtust reiðar. Svíarnir tóku myndir af þeim alla leiðina þangað. Jæja, þá var ég foúinn að ná í fyrstu litmyndina fyrir ferða- mannabókina hans Jimmy Town- send. Ég efaðist ekki um, að hann yrði hrifinn af henni, Þegar ég steig upp í bílinn minn, tók ég eftir því, að hala- rófan hafði lengzt um einn bíl til og tvo vörubíla, og ég vonaði foara, að þeir yrðu skildir eftir, því að ef þeim yrði troðið á ferjuna, mundi hún sökkva. Síð- asti bídlinn á vesturleið var að sniglast Upp brekkuna og einn afríski ferjumaðurinn benti mér að aka um borð. Ég gerði það með ítrustu varkámi og hálfum huga, en huggaði mig við það, að margir hefðu gert þetta á undan mér og allt farið vel, en hræddur var ég við þessa óstöð- ugu planka, sem ég ók út á. Alla leiðina yfir ána voru Sví- arnir með vélarnar sínar í full- um gangi og tóku myndir af stúikunum frá öllum hliðum. Rétt áður en við lentum við norðurbakkann, sneri annar þeirra sér að þeirri stúlkunni, sem var í leirgulu buxunum — hún starði á hann og sneri síðan að, systur sinni. En svo ypptu þær báðar öxlum Og gengu til mömmu sinnar og litu ekki á Svíann þegar þær fóru framhjá honum. Nú átti ég enn eftir sjötíu og átta mílur af portúgölsku landi yfir að fara, og þessi spölur var verulega slæmur yfirferðar, ein- tómar holur og hryggir. Ég var meira en tvær klukkustundir að komast þetta, en reyndar þurfti ég að stanza til að setja nýja viftureim í bílinn. Ég var búinn að sfcrölta þetta all-lengi og stýr- ið var viðkomu lífcast loftbor, en þá tók ég allt í einu eftir því, að hitinn á kælivatninu var kominn upp fyrir hættumerkið. Ég stanz- aði og opnaði vélamar og sá þá, að viftureimin var horfin þaðan sem hún átti að vera. Ég hafði aðrá til vara og eins skrúflykil, en ég var lengi að finna það, því að ég hafði gengið vandlega frá öllu, sem ég hafði með mér, aft- an til í bílnum, og bundið það rammfoyggilega, svo að það skrölti efckd. Vegurinn var mjór og þétt kjarr óx alveg upp að honum tii beggja hliða. En það sem ég tók mest eftir, var einhver óþægileg- ur þefur, eins og af rotnandi hræjum, og ég hélt, að eitthvert dautt dýr lægi þarna skammt frá. Það var ekki nokkur andvari og í hitanum, hékk þessi óþefur fast ur í loftinu, eins og einhver ó- hreinindi. Það kom í ljós, að ég hafði getið rétt til, því að þegar ég færði mig frá bílnum til þess að þurrka svitann úr augunum og leit inn í rykugt kjarrið, sá ég gamm koma fljúgandi að staðnum og skella sér niður og hverfa sjónum mínum, svO sem í fjörutíu^ skrefa fjarlægð frá veginum. Líklega voru þarna margir fyrir. Ég lauk við að ganga frá verkfærunum. í Zobwe fann ég portúgölsku tollstöðina til vinstri við veginn og maðurinn, sem þar réð hús'- um, leit varla á vegabréfið, held- ur stimplaði það í snatri og sagði: Allt í lagi! Ég ók áfram upp bratta, grýtta brekkuna og fór framhjá spjaldi til vinstri, sem á stóð: „Landamæri Njassa- Iands“, og á því var einnig mynd af pardusdýri, sem er skjpldar- merki þessa verndarsvæðis. Við tollstöðina þarna gekk afgreiðsl- an ekki eins fljótt, enda voru þar eintómir innlendir menn. Nú var kominn sá tími dags, sem í siðmenningunni er kallað- ur tetími, og ég var þyrstur. Svo sem mílu vegar innan landamær- anna var gistihús, og þar ætlaði ég að stanza og fá mér einhverja hressingu. Einhver þjónn eða vinnumað- ur kom og spurði, hvort ég vildi Coca Cola eða bjór, Bjór, þakka þér fyrir. Er hægt að fá nofckrar smurðar brauð- sneiðar hjá yfckur? Því miður. Eldhúsið er lokað. Frúin sefur. .Kökur? Ég hló. Gott og vel. Bjór og kökur. Hvar er baðherbergið? Hann vís- aði mér þangað; þetta var eins og venjulegt herbergi og gengið inn í það utan af svölunum, en þó var þarna sápustykki og hand klæði. Ég nefni þetta eingöngu vegna þess, að slíkt er sjaldnast fyrir hendi í gistihúsum í Afríku. Þegar ég hafði lokið baðinu, fann ég, að þjónninn hafði lagt á borð fyrir mig úti á svölunum. Á borðinu var ískældur bjþr og stórt stykki af ávaxtaköku. Það 'kann nú að þykja skrítin máltíð en ég kláraði hvorttveggja og bað um meira. Nú var kömin of- urlítil gola ofan úr fjöllunum, og ég sat þarna í skugganum og þurfti við engan að tala, svo að mér leið vel. Ég hafði næstum lokið við seinni skammtinn þegar ég heyrði bíl köma stynjandi upp eftir brekkunni, og er hann fór framhjá, þekkti ég, að þar var kominn Buickinn frá Belgísku Kongó. Rykið eftir hann var varla rokið, er ég heyrði í öðr- um, og ég hugsaði: Þetta eru 'sjálfsagt Svíar’nir, og ég var svo viss með sjálfum mér, að þetta væri Völfcswagen, að mér hafði næstum svelgzt á kökubitanum þegar ég sá, að svo var ekki. Það var einhverskonar amerískur bill, og gegn um rykmökkinn Sýndist mér liturinn á honum vera einhvernveginn gulur. Og frammi í honum sat Jane. Ég sá ekki Lessing, því að hún skyggði á hann. Ég hafði borgað veitingarnar jafnharðan og mér vóru bornar þær. Nú stafck ég kökubitanum, sem eftir var, upp i mig, og flýtti mér að sköla honum niður með því, sem eftir var af ölinu. Síðan Stifcaði ég að bílnum mínum i rykinu og hitanum og lagði af stað, þó ekki of hratt, í áttina til Blantyre. Ég hafði sömu suðuna fyrir eyrunum og þegar ég gekfc inn í „Bláa salinn“, fyrir minna en sólarhring, en mér fannst foara komiim að minnsta kosti vika síðan ég hafði séð hana. SHlItvarpiö Laugardagur 30. júní. 8.00 Morgunútvarp (Bæn. — Tón- leikar. — 8.30 Fréttir. «— 8.35 Tónleikar. — 10.10 Veðurfregnir) 12.00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12.25 Fréttir og tilkynningar), 12.5-5 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sig urjónsdóttir). 14.30 Laugardagslögin. — (15.00 FréU ir). 15.20 Skákþáttur (Guðmundur Am« laugsson). 16.00 Framhald laugardagslaganna. 16.30 Vfr. — Fjör í kringum fóninni Úlfar Sveinbjörnsson kynnir nýjustu dans- og dægurlögin. 17.00 Fréttir. — Þetta vil ég heyrai Úlfar Þórðarson læknir velur sér hljómplötur. 1800 Söngvar í léttum tón. 18.56 Tilkynningar. — 19.20 Veður« fregnir. 19.30 Fréttir. 20.00 Upplestur: „Falskar gersemar**, smásaga eftir Guy de Maupass* ant, þýdd af Baldri Pálmasynl (Lárus Pálsson leikari). 20.20 ,,I>egar söngurinn nær til hjart* ans“: Þorsteinn Hannesson fyi« ir hljómplötum úr hlaði. 21.10 Leikrit: „Notaður bíll til sölu'* eftir Lewis John _ Carlino, f þýðingu t>orsteins Ö. Stephen^ sen. — Leikstjóri: Baldvin Hall dórsson. Leikendur t>orsteinn Ö. Stephensen, Gísli Alifreðs-* son, Róbert Arnfinnsson etf Margrét Guðmundsdóttir. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Danslög. — 24.00 Dagsknárlofc, >f X- X- GEISLI GEIMFARI X- X- X- & VDU CANfBEA SATELUTE PiQNEER WITHOUTABAP6E! TO 6ET tt)UR FREÉ SATELLITE PIONEER BAD6E, JUST TEAR OUT THIS COUPON A.ND MAiL IT . TOGETHER WITH A STAMPED, RETURH ENVELOPE BUCK R06ERS %THIS MEWSPAPER 'Aðvörunarmerki er gefið frá ör- yggiseftirlitinu.... — Það hefur verið brotizt inn í læknisfræðisýningu jarðar, Geisli. Þú verður að flýta þér þangað. Á læknisfræðisýningunni.... — Hvað er um að vera, dr. Hjalti? — Það er hræðilegt, Geisli. Tveir verðir hafa verið drepnir! Og morð- ingjarnir hafa stolið Raf-heila-mynd- sjánni!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.