Morgunblaðið - 25.07.1962, Page 1
20 siðu*
®íl’jMUll*íí#Ííí
49 árgangur
167. tbl. — Miðvikudagur 25. júlí 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rússar einir gegn
liti með að banni sé hlítt
Telja sig þá greiða samkomulag um
hann við kjamorkutilraunum
of dýru verði
Genf, 24. júlí. — (NTB)
S V O virðist nú, sem frekari samningaumleitanir um bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn, á afvopnunarráðstefnunni í Genf,
ætli að stranda á þeirri afstöðu Rússa, að ekki komi til mála að
leyfa eftirlit á rússneskri grund með því að slíkt bann verði haldið.
Til snarpra orðahnippinga kom á fundi ráðstefnunnar í dag
fnilli Gromyko, utanríkisráðherra Rússa, og Rusk, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. Gagnrýndu þeir hvor annan fyrir yfir-
btandandi og væntanlegar tilraunir með kjarnorkuvopn.
Viðstaddir fundi ráðstefnunnar eru utanríkisráðherrar Rúss-
lands, Bandaríkjanna og Bretlands, er enn dvelja í Genf, en þang-
að komu þeir tii að vera viðstaddir undirritun samkomulagsins
um Laos. —
Gromyko hélt fast framþeirri
ekoðun Rússa, að þeir sæju sig
Veröfall
í London
London, 24. júlí NTB
Hlutabréf í gullnámnm
féllu í kauphöllinni í London
í dag. Er talið að tapið í þess
um eina degi hafi numið millj
ónum punda.
Fjöldamargir hafa keypt
slík hlutabréf undanfarið og
verð því farið hækkandi. Aðal
orsök fyrir því er talin
hræðsla iranna við, að gengi
dollarans, og þá e.t.v. annarra
gjaldmiðla, yrði fellt.
Yfirlýsing Kennedys, forseta
á blaðamannafundinum i gær
þess efnis. að gengi dollarans
verði ekki fellt hefur haft þau
áhrif, að menn sækjast nú
ekki lengur eftir að tryggja
fé sitt með því að leggja þau
í slík hlutabréf.
Verðfallsins gættl elnnlg í
París, Brussel og Jóhannesar
borg.
neydda til að hefja á nýjan' leik
kjarnorkuvopnatilraunir á þessu
hausti, og væri það gert til þess
að tryggja öryggi rússnesku þjóð
arinnar.
Hann sagði Vesturveldin ekki
leggja annað til málanna nú en
það, sem gerði vígbúnaðarkapp-
hlaupið enn æðisgengnara. Hins
vegar væru Rússar reiðubúnir
til að reyna að finna einhvern
þann samningsgrundvöll, sem
báðir aðilar gætu sætt sig við.
Lagði Gromyko mikla á-
áherzlu á, að krafa Banda-
ríkjamanna og annarra Vest-
urvelda um eftirlit á rúss-
neskri grund, væri aðeins
fram komin í þeim tilgangi
að auðvelda þessum ríkjum
njósnir í Rússlandi.
„Á okkar dögum er ekki
um að ræða neinn gullinn
meðalveg milli stríðs og frið-
ar, né lífs og dauða“, sagði
ráðherrann að lokum.
Dean Rusk, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, svaraði ræðu
Gromykos. Hann réðst mjög á
Rússa fyrir afstöðu þeirra tdl
eftirlits á rússneskri grund. —
Hann kvað Bandaríkin ekki leita
eftir því að koma fram með til-
lögur, er væru þannig, að ekki
leyndist í þeim möguleiki til
misnotkunar á þeim réttindúm,
er í þeim felast. Hins vegar
kvað hann hættuna á slíkri mis-
Málshöfðun vegna
kjarnorkutilrauna
94 Bandarikjamenn og 92 aðrir frá
um 20 þjóðum stefna kjarnorku-
yfirvöldum USA og USSR
notkun minni en þá hættu, sem
leiddi af áframhaldandi tilraun-
um með kjarnorkuvopn. Benti
hann á, að það svæði, sem eftir-
lit kæmi til með að fara fram á,
skv. framkomnum tillögum
næmi tæplega tveimur þúsund-
ustu hlutum af landsvæði Rúss-
lands. Gengju Rússar hins vegar
að þeim tillögum um eftirlit,
sem settar hefðu verið fram,
myndi endir vera bundinn á
kj arnorkuvopnatilr aunir.
Home, lávarður, brezki utan-
ríkisráðherrann, tók því næst til
máls. Hann kvaðst ekki geta
skilið afstöðu Rússa í þessu
máli. — öll Vesturveldin væru
reiðubúin að taka á sig þá hættu,
sem falizt gæti í eftirliti á á Vest
urlöndum. Hví gætu Rússar það
ekki líka? Hvernig stæði á því,
að Rússar einir teldu sig, með
því að leyfa eftirlit, greiða sam-
komulagi um bann við kjarn-
Framhald á bls. 19.
Ben Khedda læt-
ur í minni pokann
Viðurkennir stjórn Ben Befla gegn
því að ráð jbjóðfrelsishersins verði
kallað saman
A L L A R líkur benda nú til
þess, að Ben Bella ætli að
ganga með sigur af hólmi í
baráttu sinni við Ben
Kliedda, um völdin í Alsír.
— Bráðabirgðastjórn Ben
Khedda hefur nú fallizt á að
viðurkenna stjórnarnefnd þá,
sem Ben Bella hefur sett á
laggirnar í Tlemcen, gegn
því, að ráð þjóðfrelsishersins
verði kallað saman. Said,
innanríkisráðherra í stjórn
Ben Khedda, hélt í dag til
Tlemcen, og þar mun hann
hafa lagt fram skilyrði for-
Þessi mynd var tekin við fi
Gljúfurá sl. sunnudag. SýnirJ
hún, þegar verið var að taka
eitt atriði kvikmyndarinnar,
sem verið er að gera eftir
skáldsögunni „79 af stöðinni“
eftir Indriða G. Þorsteinsson.
BíU með mannbrúðu undir
stýri var látin steypast niður
í gljúfrið. Honum var sleppt
í brekkunni og látinn renna
niður og fram af. Á leiðinni
lenti hann á steinnibbu og
kastaðist við það upp í loft.
Var myndin þá tekin.
(Ljðsm. B. Th.)
sætisráðherrans fyrir viður-
kenningunni.
Momed Yazid, fyrrverandi upp-
lýsingamálaráðherra er sagði sig
úr stjóm Ben KJhedda í gær, hélt
í dag fund með blaðamönnum.
Þar sagði hann, að allar líkur
bentiu nú til þess, að lausn myndi
fást á deilum þeim, sem staðið
hafa undanfarið.
Sagði Yazid, að nú vœri tími til
þess kominn, að einnig kæmist á
í Alsír, og tekið yrði að starfa í
anda samþyikktar þeirrar, sem
t FRÉTTUM ríkisútvarpsins
í gærkvöldi var frá því skýrt,
að í vændum væru óvenjuleg
málaferli í Bandaríkjunum
©g sennilega í Sovétríkjun-
um. —
Um 94 Bandaríkjamenn og
92 aðrir menn, flestir heims-
kunnir, frá um 20 þjóðum,
hafa stefnt McNamara, land-
varnaráðherra Bandaríkj-
anna fyrir tilraunir með
kjarnorkusprengingar í and-
rúmsloftinu.
Ætlunin er einnig að
stefna kjamorkuyfirvöldum
í Sovétríkjunum fyrir hið
sama. —
Frh. á bls. 19
Undirrifa Rússar friðar-
samning við A-Þjóðverja
Genf, 21f. júlí. — (AP-NTB) —
TALIÐ er, að á næstu dögum komi í ljós, hvort það er ætlun
sovézkra ráðamanna að undirrita sérstakan friðarsamning við
A-Þýzkaland. Dean Rusk, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hef-
ur átt tvo langa umræðufundi með Gromyko, utanríkisráðherra
Rússa. Þar kom fram sú stefna Rússa, að ef Vesturveldin komi
ekki fram með nýjar tillögur, sem Rússar geta gengið að, þá
verði friðarsamningurinn við A-Þjóðverja undirritaður.
Slíkt myndi e.t.v. þýða, að endir væri bundinn á réttindi
Vesturveldanna í Berlín.
Síðdegis í gær fréttist það, að Gromyko hefði beðið
Rusk að fresta för sinni frá Genf um nokkra daga, svo að betra
tækifæri gæfist til að ræða Berlínarmálið.
Gerhard Schröder, utanríkisráðherra V-Þýzkalands, hélt heim-
leiðis síðdegis í gær.
Fram kom í viðræðum Grom
ykos og Rusks að Rússar hafa
ekki ákveðið neinn sérstakan
tíma til undirritunar friðsamn-
ings við A-Þjóðverja. Hefur
þeirrar skoðunar og gætt með-
al vestrænna stjórnmálamanna í
Genf, að ekki sé víst, að það sé
raunverulega ætlun Rússa að
ganga frá slíkum samningum,
því að það myndi hafa í för
með sér, að Rússar myndu að
nokkru leyti missa Berlínar-
málið úr höndum sér, er a-
þýzkum yfirvöldum væri ein-
Framhald á bls. 19.