Morgunblaðið - 25.07.1962, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.07.1962, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 25. júlí 1962 MORGVNBLAÐIÐ 3 I ☆ LANDSMÓT SKÁTA verður sett á Þingvöllum um næstu helgi og eins og getið hefur verið í frétt- um munu sækja það um 260 erlendir skátar, auk gestgjafa þeirra hér hcima. Fyrsti hópur hinna erlendu skáta kom til landsins í gærmorgun og er þar um að ræða 86 manna norskan hóp, pilta og stúlkur, víðs vegar að úr Noregi, sem hingað kom með leiguflugvél frá Osló. Fréttamenn Mbl. litu upp í Gagnfræðaskóla Austurbæjar í gær og náðu tali af nokkrum blómarósanna í hópnum, Norsku stúlkurnar kvörtuðu undan kuldanum á fslandi við fréttamenn Mbl. En þegar Ijós- myndarinn tók fram myndavélina var ekki hugsað miklu lengur um gjóluna, heldur brostu þær eins og þær gerðu, að eigin sögn, í hlýjunni í Osló. Stúlkurnar eru Kari Seeberg, Sigrun Kaupang, Kirsten Romstad og Karen Myrer. Kossar í skipapósti Rabbað við norska skáta, sem sækja munu landsmótið á Þingvöllum auk fararstjórans norska, Odd Hopp, sem er ritari bandalags norskra skáta. Þegar við gengum inn á skólalóðina hittum við fyrir fjórar aðlaðandi stúlkur í blágráum búningum og það var auðsjáanlegt að þær háðu hetjulega en máske vonlausa baráttu við íslenzku veður- guðina enda skulfu þær eins og lauf í vindi. — Mikil lifandis ósköp er kalt 'hérna á íslandi, sagði Kari Seeberg frá Gjövik. — Það var 16 stiga hiti í Oslo í gær. — Hvenær ákváðuð þið að koma hingað? — Ja — það var í marz. — Svo þið hafið haft nægan tíma til að prjóna á ykkur flíkux? — Já. Ég hugsaði nú ekkert út í það, sagði Karin. Satt að segja bjóst ég bara alls ekki við þessum næðingi. í landa- fræðibókinni leggur svo mikla (hlýju frá Islandskortinu. — Finnst yfckur ég vera háfleyg? — Nei, nei. Okkur finnst þeta mjög vel mælt. — Eg hefi verið að undir- búa mig síðan í marz; lesið um ísland í bæklingum sem okkur voru sendir. Þar kynnt ist ég fyrst íslandi nútímans. svo hefi ég kynnzt gamla tím- anum og yfirborði landsins við lestur íslendingasagnanna. — Fáið þið þá tækifæri til að heimsækja einhverja sögu- staði? — Já, já, svarar Sigrún Kaupang, sem er frá Asker. Hún hefur fylgzt með samtal- inu við Kari af miklum áhuga og vill fá að leggja orð í belg. — Við eigum að fara í bílum upp í BorgarfjÖrð á morgun, í landnám Skalla-Gríms. — Seinna í vikunni förum við austur á bóginn, inn í Fljóts- hldð og á aðra staði, sem við höfum lesið um í Njálu. — Urðuð þið ekki að spara við ykkur hvern eyri til að komast hingað? — .Við urðum eðlilega að fara hóflega í sakirnar. Ann- ars er þetta ferðalag ótrúlega ódýrt. Það kostar 750 norskar krónur, og þar er allt innifal- ið. — Við verðum að gera hlé á samtalinu. Þrír stórir áætl- unar vagnar aka í hlaðið, því nú stendur til að fara í öku- ferð um borgina. Skátahópur- inn kemur út úr skólanum og staldrar við á tröppunum, svo að ljósmyndarinn geti tekið mynd. Fremst í hópnum stend ur Odd Hopp, fararstjóri Norð mannanna og þegar allir hafa brosað sínu breiðasta og Ólaf- ur smellt af gefst okkur kost- ur á að ræða Mtillega við far- arstjórann. — Þetta er fjórða Xslands- ferðin mín, segir Odd Hopp, svo að mér finnst ég vera orð inn kunnugur þjóðinni frá gamalli tíð. Það er mér þess vegna sérstök ánægja og að vera kominn hingað einu sinni enn með þennan glaðlega hóp. — Var eftirspurn mikil með- al norskra skáta um að komast hingað á landsmótið? — Jú, við gátum ekki orðið við allra óskum, því miður. Við gerðum ráðstafanir strax í fyrrahaust um að leigja flug vél, og svo urðum við að miða Viðsjár i Perú Odd IIopp, skátanna. fararstjóri norsku LIMA, 23. júlí — AP. Alþýðu- sambandið í Perú, sem nær öll verkalýðsfélög landsins eiga aðild að, boðaði í dag til allsherjarverkfalls. Er síðast fréttist, virtist, sem verkfallið myndi ekki ná fram að ganga, því að herstjóm sú, er tók völdin fyrir um viku síðan, sendi hermenn á vettvang. Hafði stjórnin þá lýst verk- fallið ólöglegt. Flestar verksmiðjur héldu þvi áfram störfum í dag, þótt ekki mættu allir til vinnu. Vopnaðir hermenn héldu vörð um flestar verksmiðjanna. Orðrómur er á kreiki, þess efnis, að hópur þingmanna sé að undirbúa gagnbyltingu og ætli sér að koma Manuel Odria að sem forseta landsins. Odria varð annar í forseta- kosningunum 18. júní, en þær kosningar lýsti herstjórnin nýja ólöglegar. Efstur var Torre, en hann hefur dregið sig til baka. — (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.' tölu þátttakenda. við sætaf jöló ann í vélinni. Síðan skrifuðum við um ferð ina í tímariti okkar og auglýst um eftir umsóiknum. Urðum við svo að velja í ferðina með tilliti til meðmæla og umsagna skátaforingja víðs vegar um Noreg. Ahuginn, sem nörskú skátarnir sýndu á þessari ferð, er að mínum dómi einn vottur um aukinn almennan áhuga Norðmanna á íslandi. — Hvað eru margir starf- andi Skátar í Noregi? — Starfandi skátar í Nor- egi eru um 55 þús. Eg hefi unnið með þeim síðan ég var 24 ára, en síðastliðin 16 ái hef ég verið ritari norska skátasamlbandsins og starfað eingöngu á vegum þess, með aðsetri í Osló. — Um leið og við kveðjum Odd Hopp kemur vinkona Okkar Sigrún hlaup- andi og spyr hvort það sé sjónvarp á íslandi. — Nei, við höfum ekki feng ið sjónvarp — ekki enn þá minnsta kosti. — Eg var að horfa á sjón varp í Osló í gær. Eg si Kennedy á fundi rneð blaða- mönnum, Honum var sjónvarj að í gegnum Telstar. — Segið mér annars: Hvað kostar að senda póstkort til Noregs? — Ætli það kosti ekki um fimm krónur. Annars vitum við það ekki nákvæmlega. Ætlarðu að skrifa til kærast- ans? — Eg var að hugsa um það, ef það er ekki of dýrt. Kannski ég æitti að senda það í skipa- pósti. Burðargjaldið yrði áreið anlega allt of hátt í flugi, því að mér finnst ég verði að senda honum að minnsta kosti fimm kossa. Eg fæ nefnilega ekki að sjá hann aftur fyrr en 7. ágúst, segir Sigrún dálít- ið stríðnislega um leið og hún kveður. Þjónaverkfallið rir Félagsdómi fy í GÆR var mál Samfoands veit- inga-og gistihúsaeiganda gegn A. S. í. f.h. Pélags framleiðslu- manna þingfest í Félagsdómi, en veitingamenn telja verkfall þjóna ólöglegt, eins og áður hefur ver ið skýrt frá í fréttum. í dag fer málflutningur fram, en síðan feli ir dómurinn úrskurð í málinu. Jón Magnússon hdl. flytur mál- ið fyrir hönd veitingamanna,. en Bgill Sigurgeirsson hrrl. fyrir hönd alþýðusambandsins. SMSTIINAR Leggja lýðræði og kommúnisma að jöfnu Ritstjómargrein Tímans í gær fjallar um ,4haldsstefnu og komuiúnisma." Þar segir m. a. „Hann (þ. e. Framsóknarflokk- urinn) er bæði andvígur íhaldi og kommúndsma, enda lítur hann ekki á þetta tvennt sem raunverulegar andstæður, held- ur sem systkin.“ Af þessari ritstjórnargrein verður ekki dregin önnur álykt- un en sú, að Tíminn telji vest- ræmt lýðræði engu betra en kommúniskt einræði. Slíkur sam anburður er ekki einungis til þess fallinn að rýra traust manna á starfsemi lýðræðis- flokka hér innanlands, heldur er þetta beinlinis stuðnimgur við heimskommúnismann, því að ekkert meta kommúnistar meira en það, þegar stjómarstefnu austan tjalds er af öðrum líkt við stjómarfarið í lýðræðisríkj- um. I voldugustu lýðræðisríkjun um eru það „íhaldsmenn“, sem móta stefnuiiia, og er þá ekki ónýtt fyrir kommúnista að fá yfir lýsingu um það, að stefna þeirra sé engu betri en ráðamanna i KranL Virðist hér vera um að ræða eimn liðinn í baráttu Tímans fyrir því að sannfæra landsmenn um, að kommúnisminn sé hreint ekki svo slæmur, heldur bara venju- leg stjórnmálastefna, sem sjálf- sagt sé að hafa samneyti við. Hver fær of mikið Framsóknarmenn tönnlast á því, að tekjuskiptingin sé svo ranglát ' íslenzka þjóðfélaginu, að fyrst og fremst þess vegna sé Viðreisnarstjómin óalandi og óferjandi. Gefur þaö tilefni til að spyrja Tímann þeirrar spurn- ingar, hverja hann telji bera of mikið úr býtum, í þjóðfélagimu, hvaða einstaklingar hafi of háar tekjur borið saman við aðra og hvaða greinar atvinnulífsins það séu, sem hagnist um of á annarra kostnað. Það er ekki hægt að tala um rangláta tekjuskiptingu án þess að benda á, af hverjum eigi að taka f jármumi til þess að af- henda þeim sem sagðir eru beitt ir órétti. Þess vegna leyfir Morg- unblaðið sér, að skora á Tímann að svara þessum spurningum undanbragðalaust. Erlent fjármagn Kommúnistar halda því fram, að fslendingar eigi að byggja stórvirkjanir og stóriðjuver fyrir erlent lánsfé, en ekki að hafa neitt samstarf við erlenda fjár- magnseigendur. Við þessar full- yrðingar er það fyrst og fremst athugavert, að næsta óliklegt er, að fslendingar gætu fengið að láni til eins fyrirtækis tvö eða þrjú þúsund milljónir króna, en jafnvel þótt það tækizt er að I sjálfsögðu miklu meiri áhætta því samfara en samvinnu við traust og heiðarlegt erlent fyrirtæki. Ef t.d. erlendur einkaaðili byggir hér alúminiumverksmiðju, þá er rekstur hennar á hans ábyrgð og íslendingar gætu aldrei anai- að en hagnast af þeirri fram- kvæmd, jafnvel þótt tæknifram- kvæmdir eða breyttar markaðs- venjur torvelduðu þann rekstur. Þar að auki myndi langur samn- ingur gerður við slíkan aðila um orkusölu, sem stæði að mestu eða öllu leyti undir stórlánd tH að byggja orkuver þannig að ekki væri heldur um neina verulega áhættu okkar að ræða af slíkri framkvæmd. Þetta er svo augljóst mál, að það ætti ekki að þurfa að ræða, enda eru þær raddir orðn- ar hjáróma, sem af misskildum þjóðarmetnaði vUja hindra mestu framfarir í sögu landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.