Morgunblaðið - 25.07.1962, Síða 8
8
rMORGlNBLAÐIÐ
Laugardagur 21. júH 1962
Arni Jónsson
frá Lágafelli
Ol’T á dag erum við minnt á, að
inilli akikar og dauðans er aðeins
•itt fótrnál. Á ö-ldum ljósvakans
berast okfkur diánarfregnir. Þegar
ég heyrði, fyrir nakkrum dögum
að Árni frá Lá.gafelli hefði þann
16. þ.m. horfið ba’k við tjaldið
mikla, liðu um huga mér ótal
margar hugljúfar mdnningar frá
veru minni í Stykkishólmi.
Árni Jónsson var fæddur að
Hörgaholti í Mifelalholtshreppi 27.
apríl, 1895. Foreldrar hans voru
hjónin Kj-istín Hannesdóttir og
Jón Þórðarson.
Ungur missti Árni föður sinn.
Var hann þá tekinn í fóstur af
hjónunum Vigdisi Jónsdóttur og
Kristjáni Elíassyni á Lágafelli.
Reyndust þau þessum föðurlausa
dreng hinir ágsetustu foreldrar,
gerðu í engu upp á milli hans
og sinna eigin barna. Hefur vin-
átta og kærleikur alla tíð ríikt
milli fósítursystkinanna. Á Lága-
felli dvaldi Árni til fullorðins
ára. Þá fluttist hann til Stykkis-
hólms. Þar stundaði hann alla.
vinnu, er til féll. Árni var af-
burða þrifinn og vel verki far-
inn. Þegar Kaupfélag Stykkis-
hólms setti upp kjötbúð, tclk
h&nn að sér matargerð fyrir verzl
unina og starfaði við það í mörg
ár.
Til Reykjavíkur fluttist hann
með fjölskyldu sína 1947 og vann
áfram sem kjötiðnaðarmaður, þó
hann hefði ekki lært þessa iðn.
Hann leysti öll störfin af hendi
með hinni mestu snilld. Síðast
vann hann hjá Sláturfélagi Suð-
urlands.
Yfirmönnum Árna og samstarfs
fóliki var innilega vel við hann,
bíeði fyrir dugnað hans og prúð
mennsku. Að eðlisfari var hann
hlédrægur og fáskiptinn í um-
gengni, en vinir hans gleyima
etoki hlýja brosinu hans eða
þétta, trausta handtakinu. Árni
las ekki nema góðar bækur, var
prýðilega skynsamur og minn-
ugur á allt, sem hann las og
heyrði. Hann var mikill dýra-
vinur, hlynnti að öllum skepnum,
sem hann sinnti, og vildi lóta
þeim líða vel.
30. okt. 1926 kvæntist Árni eftir
lifandi konu sinni, Guðbjörgu
Guðmundsdóttur. Þaup stofnuðu
heimili í Hólminum. Ekki byrj-
uðu þessi ungu hjón búskapinn
með miklum veraldarauði, en
áttu það, sem meira er virði, trú
og ást á lífið og skilning á hlut-
verki sínu. Lengi bjuggu þau í
lítlu húsi, sem stóð á grýttri jörð.
Árni var blómelskur maður. í
þessum ófrjóa jarðvegi tókst hon
um að rækta bæði tré og margar
tegundir blórna. Litli faliegi
blómagarðurinn við hús þessara
hjóna, sýndi, hvað iðjusamar
hendur fá áorkað, þegar þeim
er sjórnað af sál, sem elskar og
þráir að hlú að því, sem fagurt
er. Hér í Reykjavík áttu þau
líka blóma- og trjágarð, og ræfct-
uðu auk þess matjurtir — þetta
var tómstundavinna húsbóndans.
Heimili þeirra Guðbjargar og
Árna var svo hreint og fínt að
undrun sætti, þegar á það er
litið, að oftast nær vann hún
líka utan þess. Þar ríkti andi
friðar og gleði hamingjusamrar
fjölskyldu.
Þessi prýðilegu hjón eignuðust
fjögur börn: Steinunni, Jón, Kat-
rínu og Kristínu, sem öll eru
hinir ágætustu starfsmenn í þjóð
félaginu. í vöggugjöf hafa þau
fengið ágæta greind og mann-
kosti góða, og veganestið úr for-
eldrahúsunum var ósvikið og vel
útilátið.
Éig er innilega þakklát fyrir að
hafa um árabil átt samleið með
þessum látna vini og fjölskyldu
hans. Ámi átti hreina og fölskva-
lausa trú á kærleiksríkan Guð. í
þeim anda vann hann öll sín
störf. Dyggð hans og trúmennska
«r öðrum sönn og góð fyrir-
mynd. Hann gróf ekki pund sitt
í jörðu, heldur ávaxtaði það.
Þess vegna trúi óg, að á landi
ódauðleikans bíði hans fyrir-
heitið mik-la:
„Þú góði og trúi þjónn, yfir
litlu varstu trúr, yfir mikið mun
ég setja þig, gakk inn til fagn-
aðar herra þíns.“
Sesselja Konráðsdóttir.
ÞÓTT lífið sé daglega að sýna
manni fram á hversu allt mann-
legt sé fallvalt og að skjótt geti
sól brugðið sumri, fór sa-m-t svo
að þegar óg frétti lát Árna Jóns-
sonar frá Lágafelli að ég þurfti
tíma til að átta mig á fregninni,
svo ólíkleg fannst mér hún. Það
voru ekki margir mánuðir frá
því að ég hitti hann glaðan og
reifan, sama brosið og svo oft
hafði laðað mig að þessum ágæta
manni, lék um varir hans og
spaugsyrðin til reiðu. Margt rifj-
að upp frá liðnum árum. Svo
fjarri var umihugsunin um skiln-
að.
Nú þegar þessi ágæti vinur
minn hefir kvatt, langar mig til
að rifja upp örlítið ok-kar kynni
og um leið þakika ágæta sam-fylgd
sem aldrei bar á nofckurn skugga.
Kynni okkar hófust fyrir 20 ár-
um. Þá var hann búsettur í Styikk
ishólmi. Þangað kom ég þá öllum
ókunnugur og datt síst í hug
fyrstu dagana sem ég dvaldi þar
að sú vera mín þar yrði svo
löng sem raunin er á orðin.
Stykfcishól-mur hefir jafnan ver-
ið heppinn með að eiga góða
borgara. Einn af þeim var Árni
frá Lágafelli. Honum gat hver
maður treyst.
Árni var gæfumaður. Hann
ei-gnaðist góða og ástríka eigin-
konu, mannvænleg böm og
heimili hans var slífct að eftir
því var tekið. Það var til fyrir-
myndar. Það var Árna sá fjár-
sjóður sem hann gat aldrei full-
þakkað og það lán sem öUu var
meira á hans mælifcvarða. Hann
fcunni líka vel að meta það og
gerði sitt til að gefa því sem mest
gildi. Ég man vel eftir snyrti-
lega garðinum í kringum heimili
þeirra hjóna í Styfckishólmi.
Hann bar þeim fagurt vitni og
gott var að dvelja þar og njóta
ilmsins og gróðursins. Þau nutu
þess í rífcum mæli.
Ég minnist þess eklki að hafa
séð Árna öðruvísi en í góðu skapi,
sá hann aldrei breytast þótt eitt-
hvað óvænt bæri að höndum.
Þó var hann skapmaður mifcill,
fylgdi fast fram því sem hann
vissi sannast og réttast en aldrei
þó á kostnað annarra. Það kom
ekfci til mála.
Hann var þéttur á velli og þétt
ur í lund, tryggðatröl-1, snyrti-
menni og trúmennska einkenndi
öll hans störf.
Þau hjón áttu heima í Stykkis-
hólmi til ársins 1947, en þá fluttu
þau til Reýkjavíkur þar sem Árni
vann æ síðan við kjötiðnað.
Á hei-mili hans var jafnan gaim
an að koma. Sá Ijóm-i og sú
snyrtimennska, sem þar var yfir
öllu laðaði hvern þar að garði.
Þar átti ég manga góða stund og
eins eftir að þau fluttu til Reykja
víkur. Öllum stóð þar opið hús.
Hin gamla og góða íslenzka gest-
risni var þeim hjónum svo í blóð
borin að betur var hún ekki
neinsstaðar túlkuð.
Heimili þeirra var eitt af þei-m
sem ég kom oft á í Stykkishólmi
hina fyrstu daga og ár mín þar.
Það var mér ómetanlegt og slíkt
þakkarefni að seint verður full-
þafc-kað.
Ég lýk því þessum minningar-
orðum með því að minnast orð-
anna fornu: „Páum er Kóri lík-
ur“. Vissulega var Árni fáum
líkur að tryggð manndómi og
göfgi í hugsun. Slíkra mann er
jafnan gott að minnast. Eigin-
konu hans frú Guðbjörgu Guð-
mundsdöttur svo og börnum
hans og vandamönnum sendi óg
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Árni Helgason.
*
Útför Árna Jónssonar verður
gerð frá Fossvogskapellu kl. 3. í
dag.
Verðfall á hvallýsi
MIKID verfffall hefur að undan-
förnu verið á lýsi, bæffi hvallýsi
og síldarlýsi, vegna hins mikla
framboffs af hálfu Perúmanna.
Nú nýveriff hafa norsk, brezk,
hollenzk og japönsk hvalveiði-
félög selt Unilever, sem er affal-
lýsiskaupandinn á heimsmarkað-
inum, 55 þúsund tonn af hval-
lýsi fyrir 45 sterlingspund hvert
tonn. Félögunum tókst ekki aff
selja Unálever meira magn, þótt
þau hafi aff auki yfir 100 þús.
tonna birgðir.
Til sama-nbuírðar má geta þess,
að verðið sl. ár var 73 pund og
10 shillingar á bvert tonn, en
hæst hefur það komizt 1951 þeg-
ar það var 170 sterlingspumd.
Verðið hefur aldrei verið lægra
en nú, þegar árið 1945 er und-an-
skilið. Þá var það 44 pund.
í Noregi er fullyrt, að n-úver-
París, 23. júlí — NTB.
GEORGES Pompidou, forsætis
ráðherra Frakka, hefur ákveð
ið að krefjast trausitsyfirlýs-
ingar af þinginu nk. mánudag.
Ástæðan er aukafjárlög, sem
rætt var um í fyrri viku. Þau
voru þá samþykkt af neðri
deildinni, en öldungadeildin
felldi það.
andi verð, 45 pund á tonn, nægi
ekki fyrir f ram lei ðslukostn að i
iþair. Er þvd Ijóst, að norsk hval-
veiðafyri-rtæki a. un. k. verða
fyriir töluverðu tjóni. 24 þús.
tonn af þeim 55 þús., sem Unil-
eveir keypti voru frá Noregi.
Mlbl. hafði tal af Lofti Bjarna-
syni útgerðarmanni vegna þess-
arar frétta-r, sem að nokk-ru er
höfð eftir „Fi-slhi-ng News“. Sagði
hann, að þetta væri rétt, og nú
væri erfi-tt að selja hval-lýsd.
Framboðið frá Perú hefði haft
áhrif á allt lýsi-srverð.
Hvalveiðivertíðin hér nú er
orðin mun betri en i fyrra.
Þess er hi-ns vegar að gæta, að
sú vertíð var einh-ver hin allra
versta, og oft haf-a fleiri hvali-r
verið komnir á land um þetta
leyti á<rs en nú. Þetta fer eftir
því hvort hvalurinn
gengur nálægt landi. 1 ár hefur
verið sæmilegt veður, og hval-
urinn kom nærri um tíma, en
hefur nú aftur lagzt frá. Er því
engu hægt að spá enn um úrslit
þessara-r vertíðar.
Auk lýsis er unnið úr hvöl-
unum mjöl, kjöt og rengi, en
verð á þessum vörum nef ur verið
nokkuð stöðugt að uiid-anfömu.
Engin sala hefur verið á hval-
skíðum um nokkur ár.
Stúlkurnar, sem vinna að því aff fegra bæinn og prýða eru
vinsælar fyrirsætur ljósmyndaranna. Hér er ein þeirra á
Austurvelli. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
1312 nemendur
voru í Vogaskóla
LOKIÐ er þriðja starfsári Voga-
skóla. Landsprófsdeildum skól-
ans v-ar sagt upp 14. júní, en öðr
um gagnfræðadeildum og barna-
deildum 30. maí.
í skólanum voru alls 1312 nem
endur í 58 bekkjardeildum, 878
í 33 barnadeildum, 25 í 11 ungl-
ingadeildum og 109 í 3. bekk
gagnfræðastigs, en hann skiptist
í alm. bóknámsdeild, verzlunar-
deild og tvær landsprófsdeildir.
Kennarar skólans voru alls
47, þar af 38 fastir, en stunda-
kennarar 9.
Vogaskóli er fyrsti skólinn
Félag búsáhalda-
og járnvöra-
kaupmanna
AÐALFUNDUR Félags bús-
áhalda- Og járnvörukaupmanna
var 'hal-dinn 11. maí sl. Formaður
flutti skýrslu um starfsemi félags
ins á liðn-u ári. í stjórn félagsins
voru kosnir Björn Guðmundsson,
formaður, en meðstjórnendur
Páll Jóhannesson og Sigurð-ur
Sigurðsson. í varastjórn voru
kosnir Jón Þórðarson og Bjarni
Kristinsson. Pulltrúi í stjórn
Kaupmannasamtalkanna var kjör
inn Bjöm Guðmundsson en til
vara Guðm-undur Jónsson.
Bifvélavirkjar
semja
SAMIÐ var við Félag bifvéla-
virkja á föstudag um kaup og
kjör, Fá bifvélavinkjar alls um
9.7% launahækkun (4% inni-
falin) í lægsta launaflokiki, en
viðbótarhækkun er þeim til
handa, sem unnið hafa 3 eða 5
ár hjá sama fyrirtæ-ki. Smávæ-gi
legar breytingar verða á vinnu-
tíma.
Samningurinn gildir frá og
með 22. júní sl. og gildir til 15.
april 1964. Segja má honum upp
með mánaðarfyrirvara, ef visi-
tala hækkar um vissan stiga-
fjölda eða verðgildi isl. krónu
breytist.
hér á landi, sem byggður er og
þegar tekinn til nota fyrir allt
barna- og gagnfræðastigið Geta
nemendur skólans stundað þar
nám samfellt í 10 ár, og munu
fyrstu gagnfræðingar skól-ans
að forfallalaus-u útskrifast næsta
vor. Fyrstu barn-aprófsnemend-
umir luku prófi í vor. Þurfa
þeir ekki að skipta um skóla,
er þeir færast á gagnfræðastigið
en hins vegar er húsnæði skipt
í þrjár megin álmur: Fyrir
yngri deildir barnastigs, fyrir
eldri deildir bamastigs og fyr-
ir gagnfræðastigið. Lei-ksvæði
verða einnig aðskilin.
Barnaprófi luku 116 nemend-
ur. Þar af hlutu 15 ágætiseink-
unn. Hæst var Sólveig_ Jónsdótt-
ir (aðaleink. 9,69). í 1. bekk
gagnfræðastigs varð Baldur P.
Hafstað hæstur (9,51). Unglinga
prófi lauk 191 nemandi. Hlutu
tveir ágætiseinkunn: Guðrún
Zoega 9,40, og Steinunn P. Haf-
stað (9,20). í almennri bóknáms
deild 3. bekkjar varð Hafsteinn
S. Hafliðason hæstur (7,54), í
verzlunardeild varð Áslaug
Harðardóttir hæst (8,00). Af 27
nemendum landsprófsdeilda, er
hlutu framhaldseinkunn, fengu
tveir ágætiseinkunn: Þorsteinn
Helgason 9,47 og Viðar Ólafsson
9,32.
Við skólaslit afhenti skóla-
stjórinn, Helgi Þorláksson, ýms-
um nemendum verðlaun fyrir
námsafrek, frábæra ástundun,
háttvísi, og ýmis störf í þágu
skólans. Lýsti hann vetrarstarf-
inu, sem hefur verið mjög fjöl-
þætt og gengið vel, þrátt fyrir
mikil þrengsli. En nemendum
s-kól-ans fjölgar svo ört, að ætíð
skortir hú-snæði, þótt sífellt sé
að byggingum unnið. Að hausti
verður til-búin 3. álma skólans
og þá hægt að koma við að
mestu hinni aðskildu deildaskipt
ingu, sem fyrirhuguð er. Enn
skortir hins vegar allar eigin-
legar sérkennslustofur, sam-
komusal o. fl. Verður úr bvi
bætt svo fljótt, sem tök leyfa.
Getur skólinn þá orðið sú menn
ingar- og félagsmiðstöð, sem hon
um er ætlað.
Við skólalok kvaddi skóla-
stjóri nemendur og kennara með
árnaðar- og þakkarorðuna.