Morgunblaðið - 25.07.1962, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 25. Júlí 1962
MORGUNBLAÐIÐ
19
Herstjórnm í Peru
eykur enn völd sín
Godey hefur fekið viö embætti forseta
Lima, 24. júlá NTB.
ÞAÐ vax tilkynnt í Lima í
dag, að herstjóm sú, sem
tók völdin í Perú í sínar
henidur fyrir nokkrum dög-
um, hafi á dag tekið í sínar
hendur allt löggjafar- og
framkvæmdavald.
Þá fylgdi tilkynningunni,
að eeðsti rnaður herstjómar-
innar, Bicardo Perez Godoy,
hafi tekið' við forsetaembætt-
inu, og muni hann gegna því
, framvegis.
— Trésmiðir
Framh. af bls. 13.
tnga á síðasta ári lýsti Meistara-
félag húsasmiða yfir því við Tré-
smiðafélagið. að stefna beri að
því, að allsstaðar, þar sem því
verði við komið, skuli uppmæl-
ingavinna vera við höfð í stað
tímavinnu. Þann 24. maxzmán-
aðar var undirritaður milli félag-
anna málefnasamningur, sem Tré
smiðafélagið taldi sig geta unað
við, þar sem í honum voru
ákvæði um, að eingöngu ákvæðis-
vinna skyldi leyfð í öllum ný-
byggingum. Nú hefur Meistara-
félagið fellt að samþykkja þann
samning, og með því gengið á
fyrri yfirlýsingar".
Samþykktinni mótmælti að
vísu stjórn Meistarafélagsins, en
meistarar og aðrir hafa þrátt
fyrir það virt hana nær undan-
tekningarlaust. og hvergi komið
til árekstra. Rétt er að upplýsa,
að Meistarafélagið hefur í sam-
starfi við Trésmiðafélagið samið
og auglýst gildistöku verðskrár
yfir ákvæðisvinnu, en síðan neit-
að að mæta á fundum í taxta-'
nefnd til að leiðrétta skekkjur,
sem Ijós hafa komið, bæði til
hækkunar og lækkunar.
Krafa okkar trésmiða er ekki
að vera hærra launaðir en aðrar
hliðstæðar stéttir, eins og eftir-
farandi tölur sýna, sem Meistar-
ar hafa fengið sem boð um samn-
inga af ukkar hálfu.
Vikukaup Kr. 1.440.00
| Eftir 3 ár — 1.510.00
!f Eftir 5 ár — 1.545.00
Lífeyrissjóður reiknaður með í
öllum tölum. Frá 1. júní til 1.
okt. verði vinnuvikan í dagv.
43% klst Verkfæragjald kr.
61.09 á viku. Frádráttarkaup sé
vikukaupið deilt með meðal
vinnustundafjölda -f- 3.56%.
Reikningstala ákvæðisvinnu kr.
29.39 í dagv. (í auglýsingu er
sambærileg tala kr. 28.95).
Lífeyrissjóður af ákvæðis-
vinnu verði í klst. sama krónu-
tala og af 1. taxta.
Hækkun kaupsins í prósentum
sýnir hinsvegar eingöngu hversu
lagt tímakaup okkar trésmiða er
í raun.
Til samanburðar skal þess
getið, að trésmiðir búsettir ann-
arsstaðar á landinu hafa í kaup
og verkfæragjald kr. 32.54 á klst.
að viðbættu orlofi og sjúkra-
6jóði, og er það jafnframt reikn-
istala ákvæðisvinnu. Það sýndist
því ráð fyrir fyrir trésmiði að
flytja t. d. til Hafnarfjarðar og
stunda iðnina þaðan. Einnig má
geta þess, að Vinnuveibendafélag
Vestfjarða samdi í vor við ófag-
lærða menn, sem vinna við tré-
smíði um kr. 29.00 á klst.
Þótt trésmiðir deili um margt,
standa þeir sem órofa heild í
þessu máli. Um |það vitna einróma
samþykktir tveggja fjölmennra
félagsfunda, en fróðlegt væri að
stjórn Meistarafélagsins upplýsti
um stuðning meistara við það,
sem hún nefnir fulla sanngirni í
samningum við trésmiði, og lýst
hefur verið hér að framan í
hverju birtist.
Stjóm
^ Trésmiðafélags Reykjavíkur.
Nioolas Lindley, herslhöfðingi,
ihefur tekið við embætti forsæt-
isráðlherra, en hinir tveir meðlim
ir herstjórnarinnar, Juan Fran-
cisco Torres, áður yfirmaður sjó-
hersins og Pedro Vargas Prada,
fyrrum yfirmaður flugfhersins,
hafa tekið við ráðherraemibætt-
um.
Gengir Torres nú embætti ráð-
herra þess, er fer með mál sjó-
hersins, en Prada gerist ráðlherra
flugmála.
Allt er nú með kyrrum kjör-
um í Perú í. dag, eftir tilraun al-
þýðusambands landsins til þess
að boða allsherjarvenkifall í gær.
Sú tilraun mistókst.
Panama hefur bætzt í hóip
iþeirra landa, sem slitið hafa
stjórnmálasambandi við Perú.
Blöðin í Lima réðust í dag á
Kennedy, BandarikjafOTseta, fyr-
ir þá ákvörðun að svipta landið
allri hernaðaraðstoð.
— Héraðskólinn
i Reykjanesi
Framh. af bls. 2.
steypa upp neðri hæðina. Hefur
það verk gengið vel. f þessum
hluta verða ibúðir nemenda, á-
samt fleiri salarkynnum.
Ráðgert er að halda áfram
endurbyggingu skólans næsta ár
ásamt kennaraíbúðum. Bætir
þessi áfangi mikið úr brýnni þörf
Smiðir úr Reykjavík hafa yfir-
umsjón með byggingu þessari og
vinna að henni, raflagnir annast
rafvirki frá ísafirði. Standa von
ir til að þessum áfanga verði lok
ið í sumar enda hefur þessi stór
bygging gengið vel, það sem af
ef. Verður imnið af kappi áfram
að þessum byggingum — PP
— Málshöfðun
Framhald af bls. 1.
Tilgangur þessara manna er að
fá úr því skorið fyrir dómstól-
um, hvort það brjóti ekiki í bága
við lög, að gera slíkar tilraunir,
og jafnframt að fá úr því skorið,
hvort ekki verði hægt að fá endi
bundinn á frekari tilraunir.
í hópi þeirra manna, sem að
þessari málshöfðun standa, eru
m.a. Dr. Linus Payling, Nóbels-
verðlaunamaður, er nú starfar
við Tækniíháskólann í Kaliforn-
íu, brezku rithöfundarnir J.B.
Pristley og John Osborne, Dr.
Martin Niemöller, Harald Werge
land o.fl.
Einn fslendingur er í hópi
þeirra manna, sem að málshöfð-
uninni standa, og er það Jón
Árnason, fyrrv. bankastjóri.
— ben Bella
Framihald af bls. 1.
ráð þjóðfrelsishersins gerði í
Tripolis í júní. Ekki vék Yazid
nánar að því, á hvern veg það
samkomulag yrði, sem hann taldi
að nú myndi nást.
Varaforsætisráðlherra Ben
Kedda, Belkacem Krim, tók í
dag í sama streng, og taldi, að
þessi væri nú ekki langt að bíða,
að eining kæmist á á stjórnmála
sviðinu í Alsír.
Lýsti hann því yfir, að það
hefði ætíð verið tilgangur bráða
birgðastjórnarinnar að vinna að
því að kioma á friði og einingu í
landinu.
Nokkrir menn voru. vegnir í
Algeirsborg í gær, þeirra á meðal
4 Evrópumenn. Hefur lögreglan
í borginni lýst sök á hendur OAiS
-samtökunum.
Erlendar
fréttir
100 ára í dag
Vilfoorg Einarsdótfir
Tíræð er í dag frú Viliborg
Einarsdóttir frá Hvammi í Mýr-
dal. Hún er fædd í Þykkvaibæ í
Landibroti, dóttir hjónanna Ein
ars Einarssonar og Rannveigar
N.K. föstudagskvöld kl. 7 leggur
Heimdallur upp í veiðiferð í
Langavatn í Borgarfirði. Komið
verður til baka á sunnudagskvöld.
Upplýsingar veittar á skrifstofu
Heimdallar í Valhöll, sími 17102
— Örfá sæti laus.
Stjórnin.
— Undirrita
Framhald af bls. 1.
um falið að ákveða um sam-
göngur við V-Berlín, og réttar-
stöðu borgarinnar.
Þó svo færi, að umræddur
friðarsamningur verði gerður,
þá hafa Vesturveldin lýst því
yfir, að þau muni ekki draga
herlið sitt í V-Berlín til baka.
Jafnframt muni þau halda til
streitu kröfu sinni um frjálsar
samgöngur við borgina.
Rusk, utanríkisráðherra,
hefur lýst því fyrir Grom-
yko, að Vesturveldin séu
reiðubúin að ganga til samn
inga um Berlín, ef trygging
verði gefin fyrir því að rétt
indi Vesturveldanna á þrem
ur sviðum verði virt.
Þau skilyrði eru: 1) að
herir Vesturveldanna verði
áfram í Berlín, 2) að sam-
göngur við borgina verði al-
gerlega frjálsar og 3) að
efnahagur borgarinnar verð-
ur tryggður.
Fram til þessa hefur Gromyko
einungis viljað ræða um þá
kröfu Rússa, að herir Vestur-
veldanna verði á brottu úr
borginni.
Schröder, utanríkisráðherra
V-Þýzkalands, sagði í gær, að
hann teldi nú fullvíst, að Sovét
stjórninni væri nú ljóst, eftir
samningaumleitanir þær, sem
fram hafa farið að undanförnu
um Berlín, hver væri endanleg
afstaða Vesturveldanna til mál-
efna borgarinnar.
Bandarísku hernaðaryfirvöld-
in í Berlín hafa lagt fram
kvörtun vegna flugs a-þýzkra
orustuflugvéla, er flogið hafa
innan við 20 metra frá farþega-
og flutningaflugvélum á leið til
V-Berlínar. Hefur það komið
fyrir tvívegis á fáum dögum.
Magnúsdóttur. Árið 1888 giftist
hún Sveini Ólafssyni frá Eystri-
Lyngum. Bjugigiu þau fyrst á
Lyngum í Meðallandi, síðar í
Hvammi í Mýrdal. Til Reykja-
víkur fluttust þau árið 1920, og
þar lézt Sveinn 1934. Synir þeirra
hjóna eru þrír: Karl rafmagns-
verkfræðingur, sem lézt í Þýzka
landi árið 1919, Gústaf hæstarétt
arlögmaður og dr. Einar Ólafur,
prófessor.
— Sildin
Framh. af bls. 20.
Raufarhöfn
24. júlí.
Hér lönduuðu í dag Vilborg
486, Tjaldur SH 458, Manni 174,
Vinur 432 og Heimir 220 mál
um. Söltuð var í allan dag mjög
feit síld. Sólarhrings löndunar-
bið er hér. — Einar.
Dalvík
Þangað komu fimm bátar í
gærdag með 3482 uppmældar
tunnur.
Sigluf jörður
Þar var saltað á flestum stöðv
um í gærdag. í fyrradag var þar
saltað í 5.187 tunnur.
Gífurleg atvinna á Skagaströnd
Hingað kom í gærkvöldi síld-
arflutningaskipið Lúðvík öðru
sinni og nú með rúm 4 þús. mál.
Löndun úr því var lokið kl. 19
í kvöld.
f dag komu Húni með 500
tunnur og Hafrún ÍS með 1200
tunnur. Nokkur af þessari síld
var saltað.
Kl. 19 í kvöld hafði síldar-
verksmiðjan tekið á móti 29.638
málum. Saltað hefur verið í
1430 tunnur og fryst í 1734 tn.
Geysimikil atvinna er hér í
sambandi við síldina, og hefur
öll önnur viima stöðvazt að
mestu. Hefur orðið að fá nokk-
urt vinnuafl úr sveitinni hér í
kring, þótt flestir unglingar, allt
niður í 11 ára aldur, vinni á
síldarplönunum og vaktavinnu í
verksmiðjunni. — Þ. J.
Akranes
— 24. júlí. —
Bátarnir níu, sem Haraldur
Böðvarsson & Co. eiga á síld-
veiðum í sumar norðanlands og
austan, voru búnir að fiska sl.
laugardag rösklega 50 þús. mál
og tunnur. Einn þessara báta,
Höfrungur II, hafði þá fengið
jafn mikið og á síldveiðunum í
allt fyrrasumar. Á laugardag
voru 27 dagar liðnir frá því að
Höfrungur II leysti landfestar
hér og hélt norður.
— Oddur.
í STUTTU MÁLI
Edinborg, 24. júlí NTB.
TILKYNNT var í Edinborg
í dag, að ákveðið hefði verið
að gera Ólaf, Noregskonung,
að heiðursdoktor í lögum við
Edinborgarháskóla, er hann
kemur í opinbera heimsókn til
borgarinnar í okt. nk. Er það
í fyrsta skipti í sögu skólans,
að þjóðhöfðingi er saemdur
þessum titli.
Elizabethville, 24. júlí NTB
TSHOMBIE, forseti Katanga,
hélt í dag blaðamannafund í
Elizabetville, þar sem hann
skýrði frá því, að hann teldi
(það á engan hátt mundiu
nægja, þótt Katanga yrði
sameinað öðrum hlutum
Kongó. Fátækt Kongó væri
slík, að tekjur Katanga gaetu
ekki bætt það upp. Hann
kvað það hlutverk S.Þ. og
stórveldanna að bæta úr
ástandinu í Kongó, og væri
Katanga þá reiðubúið að
hjálpa til.
Nýja-Delili, 24. júlí NTB
INDVERSKA stjórnin sendi
kínversku stjórninni í dag orð
sendingu, þar sem Kínverjar
eru beðnir um að endurtaka
ekki árásir sínar í Ladak-hér-
aði. Legur stjórnin áherzlu á,
að indverskar hersveitir þar
séu aðeins til varnar.
Brússel, 24. júlí NTB.
BELGISKA flugfélagið Sa-
bena tapaði um 350 millj. (ísl.
kr.) á sl. ári. Heildartekjur
félagsins voru um 11% minni
en sl. ár. Félagið hefur fengið
lán hjá ríkirnu til að greiða
tapið af rekstrinum.
París, 24. júlí NTB.
FRUMVARP frönsku stjórn-
arinnar um aukafjárlög, var
samþykkt í annað sirm i
neðri deild í dag, en öldunga
deildin felldi það aftur. Fer
nú friunvarpið til neðri deild
ar í þriðja sinn.
Moskva 24. júlí NTB
FRANSKI sendiherrann kom
aftur hingað í dag, eftir 4
mánaða fjarveru. Rússneski
sendiherrann í Partís miun
bráðlega halda þangað aftur.
- Sendiherrarnir voru kvaidd
ir heim um tíma, vegna þess,
að Sovétstjórnin viðurkenndi
alsírsku stjórnina áður
en landið fékk frelsi sitt.
Töldu Frakkax það ekki við-
eigandi og kölluðu sendi-
herra sinn heim. Gerðu Rúss
ar þá slíkt hið sama.
— Rússar
Framhald af bls. 1.
orkuvopnatilraunum of háu
verði?
Krishna Menon, indverski
landvamaráðherrann, kom að
loknum þessum umræðum fram
með tillögu um, að stórveldin
kæmu sér saman um að veita
ekki öðrum löndum upplýsing-
ar um kjarnorkuvopn, né af-
hentu þeim slík vopn.
Eina samkomulagið, sem náð-
ist á ráðstefnunni í dag, var um
venjulega afvopnun. Þar sam-
þykktu fulltrúar Rússa og Banda
ríkjamenn, að á fyrsta stigi slíkr
ar afvopnunar bæri að skera
fjölda hermanna niður í 1.9
millj., bæði í Rússlandi og Banda
ríkjunum. Þá varð einnig sam-
komulag um, að heppilegast
væri að afvopnun færi fram á
5 árum, er samkomulag um fram
kvæmdaatriði næðist.