Morgunblaðið - 29.07.1962, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.07.1962, Blaðsíða 2
2 MÖKGUNfíLAÐlÐ Sunnudagur 29. júlí 1962 Lánsfjárvandamál bænda leyst til frambúðar E I N S og kunnugt er voru búnaðarsjóðirnir, undir stjórn Framsóknarflokksins, komnir í gjaldþrot. Sjóðirnir hófðu á undanförnum árum gert mik- ið gagn í sveitum landsins, með því að lánað var til uppbyggingar og ræktunar á býlunum. Lán þessi voru að vísu alltof lág, vegna fjár- skorts lánasjóðanna. Heimilt var að lána allt að 75% af byggingarkostnaði, en síðustu árin voru lánin aðeins 25— 30%. — ★ Arið 1955 voru byggingar- lán í sveitum út á íbúðarhús hækkuð upp í 75 þúsund kr. á íbúðarhús. Arið 1958, þeg- ar vinstri stjórnin fór með völd og hækkaði allt verðlag í landinu að miklum mun með hinum frægu „bjargráð- um“ sínum og byggingar- kostnað um 40—50%, lét Framsóknarflokkurinn það ó- gert að hækka lánin til fram- kvæmda i sveitum landsins. Haustið 1960 voru lánin hækkuð til íbúðahúsabygg- inga upp í 90 þús. kr. Arið 1961 voru lánin hækkuð upp í 100 þús. kr. Jafnframt voru lán hækkuð til útihúsabygg- inga samsvarandi. Þetta var gert með nýjum lántökum, sem ríkisstjórnin útvegaði hinum gjaldþrota búnaðarsjóðum. ★ Með hinni merku löggjöf frá síðasta Alþingi um stofn- lánadeild landbúnaðarins eru skapaðir nýir möguleikar til útlána í þágu framkvæmda í sveitum landsins. Ibúðahúsa- lán munu verða hækkuð upp í 150 þúsund kr. á íbúðar- hús. Auk þess hefur núver- andi ríkisstjórn beitt sér fyr- ir því að illa stæðum bænd- um, sem þurfa að byggja, verði veittur allt að 40 þús. kr. styrkur til byggingar í- búðarhúss á jörð sinni. Þess ber einnig að geta, að nú verða í fyrsta sinni veitt lán til kaupa á dráttarvélum. Einnig verða bændum veitt lán til súgþurrkunartækja, sem nauðsynlegt er að sem flestir bændur eignist og tryggi sig þannig gegn ó- þurrkatíð. Lán út á útihús og aðrar framkvæmdir verða einnig aukin í samræmi við það sem áður er sagt. ★ Þessar staðreyndir sýna, að núverandi ríkisstjóm hefur haft farsæla forystu um að leysa lánsf járvandamál bænda á raunhæfan hátt og til fram búðar. Er það allt annað en sagt verður um Framsóknar- menn, sem létu lánasjóði land búnaðarins verða gjaldþrota undir stjórn sinni og ómegn- uga þess að rækja hlutverk sitt í þágu sveitanna. Viðrœðurnar í Briissel: Bretar reyna að tryggja hag samvetdistandanna Allgóbar horfur taldar á samkomulagi Brussél, 25. júlt — (NTB-AP) VIÐRÆÐUR um eitt allra erfiðasta vandamál í sam- bandi við inngöngu Breta í Efnahagsbandalag Evrópu, innflutning landbúnaðaraf- urða frá ríkjum brezka sam- veldisins, hófust fyrir alvöru í Brússel á miðvikudag. Voru ráðherrar nær allra landanna viðstaddir. Síðdegis gætti nokkurrar bjartsýni meðal Breta á því að samkomulag næðist, þótt þeir teldu að allr ar varfærni bæri að gæta í spám um slíkt, m. a. þar sem bandalagsríkin halda enn fast við það skilyrði sitt, að fullkomið jafnrétti í viðskipt um verði komið á innan bandalagsins árið 1970. Samveldislönd Breta, þau sem umræðurnar snúast nú um, eru fyrst og fremst Astralía, Kan- ada og Nýja-Sjáland. Fundur samveldisleiðtoga f aðalatriðum mun afstaða samningsaðila lítið hafa breytzt upp á síðkastið, en þrátt fyrir það eru menn bjartsýnir á, að um síðir muni fást niðurstaða, sem unnt sé að leggja fyrir ráð- NA /5 hnúiar S V SOhnútar SnjHoma t Úii HM0 V Skúrir K Þrumur WSs, VV II H.Hat L&Lma» stefnu forsætisráðherra brezka samveldisins, en hún á að fara fram í Bretland snemma í sept. Enginn af þeim, sem hlut eiga að yfirstandandi viðræðum, er þeirrar skoðunar, að þær muni fara út um þúfur. Slakað í 2 atriðum í tveim atriðum, sem snerta innflutning landbúnaðarafurða frá 3 áðurnefndum samveldis- löndum, hafa bandalagsríkin breytt afstöðu sinni. Þau eru nú reiðúbúin til að gera samveldislöndunum kost á sérstökum viðskiptasamn- ingum varðandi tilteknar vörutegundir sem falla utan samninga um viðskipti á heimsmarkaði. — Ennfremur hafa þau fallizt á, að þegar verði teknar upp umræður innan Efnahagsbandalagsins, ef í ljós kemur, að tollaá- kvæði bandalagsins leiði til rýrari innflutnings um- ræddra landa til Bretlands. Framth. á bls 23 Ein af myndum Haye W. Hansens af íslenzka upphlutnum. Þýzkur listamaður kynnir norræna þfóðbúninga SÝNINGARGLUGGI Morgun- blaðsíhs sýnir um þessar mundir málverk af norrænum þjóðbún- ingum eftir Haye W. Hansen, málara og fomleifafræðing. Eru þetta myndiraf þjóðbúningum ís- lendinga, Færeyinga, Norðmanna Finna og Frísa. Haye W. Hansen er þýzkur að ættemi. Hefur hann dvalið lang- dvölum hér á landi og vinnur nú að bók um ísland. 1800 sjóliðnr kollaðir heim Washington, 28. júlí — Tilkynnt hefur verSð að nú verði kallaðir heitn. þeir 1800 sjóliðar sem enn eru í Thailandi — af þeim sem þangað voru send ir fyrir tveim mánuðum vegna ástandsins í Laos. Enn eru þó eftir i landinu rúmlega þrjú þús und bandarískir hermenn úr landhernum og flughernum. Tillaga Home lávarðar: Fastanefnd fjórveldanna fjalli um Berlínar-vanda- málið LÆGÐIN fyrir suðvestan land var að grynnast í gær- morgun, en lægðin við Labra dor fór vaxandi og nálgaðist með heldur auknum hraða. Er því ekki að búast við löngu hléi milli lægða Kl. 9 í gærmorgun var hlýjast á Raufarhöfn 15°, en kaldast á Kambanesi (milli Breiðdals- víkur og Stöðvarfjarðar), 8°. 1 fyrrinótt rigndi 16 mm á Þingvöllum, en búizt var við batnandi veðri þar. Veðurspáin á hádegi í gær: SV-land, Faxaflói og miðin: Sunnan kaldi og skúrir, Iéttir til með vestan átt í kvöld. Breiðafjörður, Vestfirðir og miðin: SA gola, skúrir. Norðurland, NA-land og mið in: Sunnan gola, sums staðar léttskýjað. Austfirðir, SA-land og mið- in: Sunnan gola eða kaldi, skúrir. LONDON, 26. júlí (NTB) — l BREZKI utanríkisráóherrann, Home lávarður, hefur gert það að tillögu sinni við Gromyko, ut anríkisráðherra Sovétveldisins, að stórveldin fjögur — Banda- ríkin, Sovétrikin, Bretland og Frakkland — setji á fót sérstaka fastanefnd, til þess að fjalla um Berlínar-vandamálið. Var frá þessu sikýrt eftir áreið anlegum heimildi’m •' London á fimmt.iiHapy í ræðu, sem Home lávarður hélt í neðri málstofunni á mið- vikudag, skýrði hann sjálfur frá því, að hann hefði lýst yfir þeirri skoðun sinni við Gromyko, að leggja þyrfti grundvöll að sam felldum viðræðum stórveldanna um Berlín og önnur sameigin- leg vandamál þeirra. Samkvæmt áðumefndum heim ildum mun Gromyko ekki hafa tekið undir tillöguna á þessu stigi málsins; en þó ekkj iWdur vísað ifcæoni á bug. Uniboðsmenn S.H. í Ameríku komnir f DAG kl. 11 koma með Loft- leiðavél frá Bandaríkjunum 12 umboðsmenn og sölustjórar, sem vinna hjá Coldwater Sea- food Corp., sem er dótturfyrir- tæki Sölumiðstöðvar hraðfrystj- húsanna. Munu þeir dvela hér 1 vikutíma og kynna sér hrað- frystiiðnaðinn á fslandi, auk þess sem þeir ræða við forráða- menn SH. Norðmenn styðja vanþróaða PARÍS, 25. júlí (NTB/AFP). — Noregur gerðist í dag 12. aðilinn að nefnd þeirri, sem skipuleggur á vegum Efnahags- og framfara- stofnunar Evrópu (OECD) aðstoð við vanþróuð ríki. Allir meðlimir nefndarinnar höfðu áður lýst sig fylgjandi aðild Norðmanna. Full- trúi þeirra í nefndinni verður Jens Boyesen, sendiherra, en hann er fastafulltrúi Norðmanna hjá OECD.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.