Morgunblaðið - 29.07.1962, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.07.1962, Blaðsíða 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Sunnudagur 29. júlí 1962 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands. f lausasölu kr. 3.00 eintakið. STYÐJA MÁLSTAÐ RÚSSA rins og fyrri daginn styðja •®-i kornmúnistar máistað Rússa. Þeir ráðast nú dag hvem á ríkisstjómina og síld arútvegsnefnd fyrir það að ekki hafa náðst samningar um sölu saltsíldar til Ráð- stj órnarríkj anna. Á þessu stigi málsins skal Morgunblaðið ekki leggja dóm á þær samningaviðræð- ur, sem frarn hafa farið milli íslenzkra og rússneskra aðila, enda vill blaðið í lengstu lög treysta því að heilbrigðir samningar náist, þar sem við skiptasjónarmið ein séu lát- in ráða. En afstaða kommúnista- málgagnsins ,,íslenzka“ er fordæmanleg. Það heldur því fram að öll sök sé hjá ís- lenzkum aðilum, og hefur beitt svo stórfelldum fölsun- um í málflutningi sínum, að bæði síldarútvegsnefnd, og meira að segja fuiltrúi komm únista í henni hafa orðið að krefjast leiðréttinga af blað- inu. Þegar þetta er ritað er ekki vitað hvort og þá hvenær samningar nást við Rússa, en vonandi verður það bráðlega, þótt skrif „íslenzkra“ komm- únista benai til þess að þeir eeski þess að fá notið aðstoð- ar Rússa til að fá árásarefni á íslenzk stjórnarvöld. Fer ekki á milli mála að þeir mundu óska þess að Rússar keyptu ekkert að þessu sinni til þess að íslenzku ríkis- stjórninni yrði gert erfiðara fyrir og henni kennt um. BEN BELLA OG HANNIBAL Tj'lest bendir til þess að Ben * Bella muni verða ofan á í togstreitunni um völdin í Alsír. Af því leiðir að frem- ur er ólíklegt að hið nýja ríki og þjóð þess muni a.m.k. fyrst í stað njóta lýðræðis í stjórnarháttum. Ben Bella hefur lýst því yfir, að hann telji, að í hinu nýja, sjálf- stæða Alsír eigi aðeins að vera einn stjómmálaflokkur, sem öllu ráði. Eins flokks skipulagið er eitt af megin einkennum þess sjómarfars, sem komm- únistar hafa komið á í þeim löndum, er þeir ráða. Þar er aðeins leyfður einn stjórn- málaflokkur, sem á að hafa menn í kjöri við svokallað- ar „kosningar11, sem látnar eru fram fara og fólkið er skyldað til að taka þátt í. Vitanlega er hér um hreinan skrípaleik að ræða. Það fólk, sem gengur að kjörborði, þar sem slíkt skipulag ríkir, á ekki neinna kosta völ. Það verður að kjósa þann eina frambjóðanda eða framboðs- lista, sem í kjöri er. Það get- ur ekki einu sinni skilað auð- um seðli, þar sem eftirlits- menn fylgjast með því, hvort kjósandinn greiðir raunveru- lega atkvæði eða ekki. Það vakti töluverða at- hygli, þegar einn af aðal- leiðtogum íslenzkra komm- únista, Hannibal Valdimars- son, kom úr heimsókn frá Tékkóslóvakíu, að hann lýsti þvi yfir að kosningar þar i landi undir stjórn kommún- ista færu fram með mjög svipuðum hætti og hér ger- ist. Hann taldi að lýðræði eins flokks skipulagsins stæði í engu að baki vestrænu lýð- ræði, sem gefur kjósendum kost á að velja á milli margra stjórnmálaflokka og ákveða þannig í raun og veru með atkvæði sínu, hverjir skuli stjóma landinu á hverjum tíma. Hannibal Valdimarsson virðist því vera á mjög svip- uðu lýðræðislegu þroskastigi og Ben Bella, sem vill tryggja Alsírbúum eins flokks skipu- lagið, þegar þeir hafa öðlazt sjálfstæði sitt! BÖRNIN í SVEITINNI Í hverju sumri halda þús- undir barna úr kaup- stöðum landsins' út í sveit- irnar og dvelja þar sumar- langt hjá vinum og venzla- mönnum. Kaupstaðafólkið veit, að böm þeirra hafa af fáu betra en sumardvöl á góðu sveitaheimili. Þar læra þau algengustu störf, njóta hollrar útivistar og kynnast dýmnum og verða félagar þeirra og vinir. Þessi dvöl bama og ungl- inga í sveitinni hefur ómet- anlegt uppeldislegt gildi. En þar að auki á hún áreiðan- lega ríkan þátt í að auka samúð og skilning milli fólks ins í sveit og við sjó. Milli heimilanna í kaupstöðunum og sveitaheimilanna skapast oft traust tengsl vináttu og gagnkvæms trausts. Sveita- dvöl barnanna er þess vegna • Eisenhower og frú fyrir framan skjöldinn í hallar- kirkjunni í Frederiksborg Gáfu ekki þver- fótað í TÍVOLÍ EISENHOWER, fyrrverandi Bandaríkjaiforseti, frú ihans og tvö barnaibörn eru um þessar mundir á ferðálagi um Evrópu. Þetta er í fyrsta skipti. sem Eisenihower hef- ur komið til Evrópu í einka- erindum síðan 1928. Þau fóru með lest eftir endilangri Evrópu og komu til Danmerkur s.l. þriðjudag. Eisenihower sýndi barna- börnum sínum Barbara Ann og David, ýmsa fræga staði úr síðasta stríði og rifjaði upp gamlar minningar í sam bandi við þá. í Danmöriku var vel tekið á móti forsetabjónunum og barnabörnum þeirra. Er það í frásögur færandi, að þegar iþau ætluðu að skemmta sér kvöldstund í Tívolígarðin- um, gátu þau ekki þverfót- að fyrir mannfjölda, sem safnazt hafði saman í garð- inum til að hylla þau. Urðu iþau að yifirgefa staðinn við svo 'búið — börnunum til mikilla leiðinda. Þau höfðu annars skemmt sér konung- lega í ferðinni, fengu m.a. að stýra ferjunni á Stóra- Belti og margt fleira sér til gamans gert. Einnig fóru Eisenhower og fylgdarlið hans til Norður- Sjálands, og skoðuðu þau þar þrjár hallir og snæddu skrínukost í skóginum. M.a. komu þau við í hallarkirkj- unni í Frederiiksborg, þar sem riddaraskjöldur fíla- beinsorðunnar, sem Eisen- hower var á sínum tíma sæmidur, hangir. Á skildin- um stendur: „Peace through understanding.“ Franskur her á Bizerta árið brott frá 1964 Stórhýsi í smíðum TÚNIS, 25. júlí (AP/NTB). — Habib Bourgiba, forseti Túnis, lýsti því yfir í ræðu hér í Túnis í dag, að ðeilan við Frakka um flotaflugstöðina í Bizerta væri nú úr sögunni. Munu Frakkar ljúka við að flvtja her sinn á brott það- an einhverntíma árs 1964. ekki aðeins gagnleg fyrir hina ungu og uppvaxandi borgara, sem hennar njóta. Hún er þjóðfélagslegur á- vinningur, sem á sinn þátt í því að samstilla krafta þjóð- arinnar og stuðla að nauð- synlegum skilningi og þekk- ingu á högum og aðstöðu ein- stakra stétta hennar. Þess vegna er æskilegt að sveita- dvöl barna og unglinga sé sem almennust, og að reynt sé að stuðla að henni eftir fresmta megni. Það ár hyggst Neo-Destour flokkur Bourgiba halda sing sitt í Bizerta, og verður herinn þá far- inn. Bourgiba skýrði frá þessu í ræðu, sem hann hélt í tilefni 5 ára afmælis túníska lýðveldis- ins. Frakkar fluttu aðal her sinn á brott frá Túnis árið 1958, en héldu þá eftir Bizerta-herstöð- inni. Fyrir ári kom til blóðugra bardaga milli franskra og tún- ískra hermanna, er þeir síðar- nefndu reyndu að hrekja Frakka á brott frá Bizerta með vopna- valdi. Það tókst ekki. — Frakkar hafa hins vegar alltaf lýst því yfir, að þeir væru fúsir til að verða á brott, strax og þeir teldu slíkt unnt af hernaðar- og örygg- isástæðum. í síðustu viku áttu sér enn stað viðræður milli franskra og túnískra ráðamanna um brott- flutning hersins og mun niður- staða þeirra hafa 'H'ðið sú, sem að ofan greinir. AKRANESI, 26. júlí — Verið er að Ijúka við að slá upp mótum að neðstu hæð að 3ja hæða stór hýsi, sem er að rísa á Kirkjubraufc 54—56. Bygging þessi stendur á •550 ferm. grunni, á jarðhæð verða kjörbúðir og nýtísku verzl anir, á miðhæð verða 2 íbúðir og Oddfellowstúkan Egill á Akra- nesi ætlar að byggja 3. hæð húss ins og eiga þar sína framtíðar- bækistöð. Einn aðaleigandi er Ólafur E. Sigurðsson útgerðar- maður. Yfirsmiður er Jóhann Pétursson. Vb. Svanur kom inn af veiðum í morgun og landaði 1,5 lestum af bumar. Tveir dragnótabátar, þeir einu sem úti voru í nótt, lönd uðu í morgun, Björg 400 kg af kola og 220 kg, af þorski, Flosi hafði 600 kg, — Oddur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.