Morgunblaðið - 29.07.1962, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.07.1962, Blaðsíða 17
r Sunnudagur 29. júlí 1962 MORCTnSBL AÐ1Ð 17 Fólk ítalska kvikmyndastjarnan Sil- vana Pampanini varð 70 sterlings pundum ríkari í vikunni sem leið. Henni var dæmd sú upp- hæð í skaðabætur vegna þess að hundur beit hana í kálfann. Pampanini, sem er 36 ára gömul, stefndi eiganda hundsins, Um- berta Visconti Modrone greifa- yngju, og krafð- ist sex þúsund punda. Skaða- bótakröfu sína byggði hún á því, að hun™missti atvinnu -við tízkusýningar í Róm, og auk þess varð hún að ganga undir plast- íska skurðaðgerð, sem kostaði £3.000. Pampanini var á gangi framhjá húsi greifaynjunnar, þegar hund- urinn kom hlaupandi út um hliðið og beit hana. Varð hún að liggja í 10 daga á sjúkrahúsi til að jafna sig eftir hundsbitið. Greifaynjan lýsti því yfir að hún væri ekki eigandi hundsins, heldur hefði hann verið staddur hjá henni af tilviljun. Af þeim sökum voru Pampanini ekki dæmdar hærri skaðabætur en raun bar vitni. ★ ’ Þegar hinn mikli snillingur Vehudi Menuhin stóð fyrir fram- an hátalarann í BBC á dögunum, var hann ekki með Strandivarius- fiðluna sína eins og venjulega — heldur fiðlu sem búin var til úr Vindlakassa, sem Sir Winston ► -)< SUNNUDAGSKROSSGÁTA ,-)d Churchill hafði gefið honum. Öllum bar saman um, að tón- arnir hefðu hljómað yndislega. ★ Jayne Mansfield og Maurice Chevalier leika aðalhlutverkin í kvikmyndinni „Hætta á ferðum“, en upptaka þeirrar myndar stend- ur nú yfir. Hápunktur kvikmynd arinnar er tvistdans aðalleikar- anna. Þegar þau voru að æfa tvist- ctriði, varð hin ljósihærða feg- urðardís lafmóð af áreynslunni og þurfti að taka sér hvíld, en Maurice munaði ekkert um strit- ið, þó kominn sé á áttræðisaldur. Jayne komst þarna að því, að það er enginn leikur að tvista við gamla herramenn. Það vakti athygli á sínum tíma, þegar Ástríður prinsessa, yngri dóttii Ólafs Noregskonungs, giftist óaðalbornum norskum verzlunarmanni. Fram til þess ^jtíma hafði hún l;gegnt hlutverki jdrottningar þar jí landi, og ætíð jkomið fram opin berlega með föð- j ur sínum við jýms tækifæri. Nú hefur þeim [ Ferner-hjónun- [um (það er eftir nafn prinsessunnar nú) orðið barns auðið. Þau eignuðust dótt- ur nú í vikunni, og heilast þeim mæðgum prýðilega. í fréttunum Fótstærsti viðskiptavinur tízku tækið) er Farah Diba, keisara- skósmiðsins Viviers (sem teiknar og smíðar skó fyrir Dior-fyrir- _ . *T< I _. ■: zm; m mmm EGYPZK yfirvöld hafa tilkynnt Foxkvikmyndafélaginu, að þau óski ekki eftir að Elizabeth Taylor komi til Egyptalands og ljúki við að leika í nokkrum óloknum atriðum kvikmyndarinn ar um Kleopötru. Að öðru leyti sé kvikmyndafélaginu heimilt að hafa alla sína hentisemi þar í landi. Yfirvöldin segja ástæðurnar þær: að Lis Taylor hafi tekið gyðingatrú, þegar hún giftist Eddie Fischer (þau eru nú skil- in, eins og kunnugt er), og auk þess hafi hún tekið þátt í áróð- ursherferð fyrir að ísrael yrði veit ríkislán. Liz Taylor hefur ekki viljað ræða um ákvörðun egypzku stjórnarvaldanna, en sagt er að forstjóri Fox-félagsins hafi dreg- ið andann léttar, þegar honum barst fregnin, og sagt að þeir spjöruðu sig miklu betur, ef Liz kæmi ekki. drottning af Persíu. Upplýst hef- ur verið að hún noti skó númer 42. Vivier sér um að smíða 90 þúsund skópör á ári samkvæmt máli, og eru viðskiptavinirnir hans aðallega furstafrúr og kvik- myndastjörnur. Vivier hefur nú alla tízkuskóframleiðendur í hendi sér í París, þar sem aðal- keppinautar hans, ítalarnir Ferr- agamo og Perguia eru báðir látn- ir, og búið að loka fyrirtækjum iþeirra. í vaxmyndasafni frú Tussaud: í London er fátt frægra rithöf- unda. Síðasti rithöfundurinn, serr gerð var vaxmynd af, var Bern- ard Shaw. Nú hefur verií samþykkt ac gera vaxmynd a: * Somerset Maug ham. Hr. Bern- ard Tussaud barnabarnabarn stofnanda safns ins, frú Tuss auds, heimsótt 1 skáldið nýlegí og Ijósmyndaði hann frá öllun hliðum. Einnig kom hann mec kassa sem innihélt 600 mismun andi gerðir af gleraugum, og vald þau úr oem líktust mest augun skáldsins. - Ég er svo hreykinn, er haf: eftir Maugham, og yrði ekk hreyknari þó ég fengi Nóbelsverc launin. Næst þegar ég skrepj til London ætla ég að heimsækjí safnið og beilsa upp á sjálfar mig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.