Morgunblaðið - 29.07.1962, Blaðsíða 24
Fréttasímar Mbl
— eftir lokun —
Erlendar Iréttir: 2-24-85
Innlendar fréttir: 2-24-84
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 13
171. tbl. — Sunnudagur 29. júlí 1962
Samningar þjdna
til ársloka 1964
I GÆRMORGUN náðist sam-
komulag milli Sambands veit-
inga- og gistibúsaeigenda og Fé-
lags framreiðslumanna eftir stanz
lausa fundi frá kl. 2 í fyrradag.
Samkomulag þetta verður borið
undir fundi í féiögunum, en þeir
fundir höfðu ekki verið haldnir,
þegar blaðið fór í prentun í gær.
Helztu breytingar frá fyrri
samningi eru þær, að þjónar fá
20% þjónustugjald í stað 15%
eftir kl. 4 á aðfangadag jóla ag
einnig þegar uppbúið er borð
fyrir 75 manns í stað 90 áður.
Ákvæði er um það, að einkenn-
isbúning skuli leggja til á minnst
18 mánaða fresti, en ekíki var
óður á'kvæði um, hve oft skipt
skyldi um búininga. t>eir fram-
reiðslumenn, sem unnið hafa
samfellt í fimm ár hjá sama
veitingamanni, fá nú 7% orlof
í stað 6% áður.
Þá var einnig gert eftirfarandi
samkomulag:
„Framreiðslumienn og veitinga
Guniilaugui
GUNNLAUGUR BLÖNDAL, list-
málari, lézt á heimili sínu að-
faranótt laugardags, en hann
hafði átt við langvarandi veik-
indi að stríða. Gunnlaugur var
fæddur á Sævarlandi á Mel-
rakkasléttu 1893. Hann fór utan
til náms í myndlist árið 1915,
fyrst í Kaupmannahöfn, og síð-
an í Osló, þar sem hann stund-
aði nám hjá Christian Krogih.
Árið 1923 hélt hann til Parísar
og dvaldist þar og á Ítalíu í 4
ár, og aftur í París 1932-33. Hafði
hann siðan lengstum búsetu á
Islandi, en var tíðförult til suð-
iægari landa til að halda sýn-
ingar og viða að sér yrkisefni.
Gunnláugur Blöndal var einn
kunnasti listamaður þjóðarinnar,
Hann málaði eins og kunnugt er
mikinn fjölda mynda, sem eru í
eigu einstaklinga og listasafna.
Árið 1961 efndi Menntamálaráð
tii yfirlitssýningar á verkum
Ihans. Gunnlaugur lætur eftir sig
eiginkonu, Elísabetu Jónsdóttur
og son frá fyrra hjónabandi,
Björn, sem e • læknir í Dan-
mörku.
menn koma sér saman um að
vinna að bættri þjónustu á veit-
ingahúsum með því að kjósa
fjögra manna nefnd, tvo frá
hvorum aðila, til að komið verði
á fót fræðslukvöldium í ýmsum
nýjum framreiðsluiháttum, kynn-
ingu á vínum og meðferð þeirra,
allt með það fyrir augum að
gestum veitingahúsa verði veitt
sem bezt þjónusta við sem bezt
skilyrði."
Samninganefnd S.N.G. lofaði
að stuðla að því að ekki yrðu
gerðar bótakröfur á hendur fram-
reiðslumiönnum vegna tjóns þess,
sem hlauzt af verkfalli þeirra.
Samningur þessi skal gilda frú
undirskriftardegi til 31. desem-
ber 1964.
Dauft yfir síldveiðinni
I GÆR og fýrrinótt var dauft I eystra í fyrrinótt, allt að Rifs-
yfir síldveiðinni. Bræla var | tanga, og virtist hún vera heldur
Togarar
farnir á veiðar
í FYRRAKVÖLD fór fyrsti tog-
arinn úr Reykjavíkunhöfn á veið-
ar eftir verkfallið. Var það tog-
arinn Narfi, sem ætlaði að vera
a heimamiðum. Aðrir togarar
eru að búa sig á veiðar, en nokk
uð erfiðlega gengur að fá mann-
skap.
Þrír af togurum Bæjarútgerð-
arinnar áttu að fara út í gær,
Þormóður goði, Ingólfur Arnar-
son og Þorkell máni. Tveir af
togurum útgerðarinnar eru í
síldarflutningum og. einn, Hall-
veig Fróðadóttir, á síldveiðum.
Þorsteinn Ingólfsson var í gœr á
ieiðinni með síldarfarm frá
Seyðisfirði til Reykjavíkur og
Pétur HalldórssOn er í síldar-
flutningum til Síldarverksmiðja
ríkisins á Siglufirði. Jón Þorláks-
son og Skúli Magnússon liggja
enn í höfn í Reykjavík.
Helmilisi&naðarþingiö
sett í Háskólanum
í GÆRMORGUN var sett í há- . Aðalsteinsson talar um gæði og
trðasal Háskóla íslands 11. Nor- notkun íslenzku ullarinnar. Auk
ræna heimilisiðnaðarþingið. — þess flytja fulltrúar frá Noregi
Hófst sthöfnin með kórsöng kl. Finnlandi fyrirlestra um verk-
10 f. h. og síðan bauð forseíi! svið heimilisiðanðarráðunauta.
þingsins frú Arniheiður Jóns-
dóttir fulltrúa velkomna. Ávörp
fluttu forseti íslands, herra Ás-
geir Ásgeirsson og menntamála-
raðherra, Gylfi Þ. Gíslason, sem
setti þingið og Halldóra Bjarna-
dóttir ritstjóri minntist látinna
meðlima. Þá tóku til máls full-
trúar frá hinum NorðurlöndUn-
um og að lokum var kórsöngur.
Að afloknum hádegisverði í gær,
áttu þingfulltiúar að skoða heim
ilisiðnaðarsýninguna, sem haldin
erður í Iðnskólanum í tilefni
þingsins. Verður hún opnuð al-
menningi næstkomandi þriðju-
dag.
Heimilisiðnaðariþing þ e 11 a
stendur yfir í þrjá daga. Síðdeg-
is í gaer flutti frú Elsa E. Guð-
jónsson fyrirlestur um handa-
vinnu í Þjóðminjasafninu, og í
dag flytur frú Halldóra Bjarna-
dóttir fyrirlestur um íslenzka
togið og frú Hulda Stefánsdóttir
talar um „Uldskolen" og Stefán
I fyrramálið verða rædd ýmis
fefni, svo sem vinnutilihögun og
um eftirmiodaginn verður öllum
meðlimum boðið til Þingvalla.
að vaxa í gær. Á norðursvæðinu
vru- ágætt veður, en látil síld. í
gærmorgun fréttist aðeins af
einu skipi, Pálínu frá Keflavík,
sem hafði fengið 700 tunnur á
grunninu við Kolbeinsey.
í fyrrinótt var vitað um afla
16 skipa samtals með rúmlega 10
(þús. mál og tunnur. Síldin veidd-
ist aðallega við Bjarnarey og
Miðifj arðarboða.
□-
-□
Vinnudeilur
Á MORGUN kl. 5 hafa fulltrúar
vinnuveitenda og kjötiðnaðar-
manna verið boðaðir á samn-
ingafund. Ekki höfðu verið boð-
aðir sáttafundir í öðrum. vinnu-
deilum í gærmorgun.
Öll vinna trésmíðasveina
stöðvaðist í gærmorgun, en
meistarar vinna ásamt nemum.
□-
-□
I Sumarið með sól og bliðu, \
vo sjaldgæft sem slíkt er,
býður upp á margs konar |
andlit. Og eitt af þeim er
þessi hraustlegi svipur strák- '
anna í Iauginni.
(Ljósm. ól. K. M.)
Minnismerki
um Kópnvogs-
iund afhjúpnð
I GÆR var aflhjúpað í Kópa-
vogi minnismerki um Kópavogs-
fundinn, í tilefni þess að 300 ár
voru liðin síðan erfðaihyllingin
alræmda fór þar fram, en Lions-
klúbbur Kópavogs beitti sér
fyrir að minnisvarðiim yrði
reistur.
Kópavogskaupstaður etfndi til
samkomu af þessu tilefni á hin-
um forna þingthól, þar sem Kópa-
vogsfundurinn stóð, en hann er
skammt vestan og norðan við
Kópavogsbrú. Hjálmar Ólafsson,
bæjarstjóri flutti ávarp og Ein-
ar Laxness, sagnfræðingur,
ræðu. Brynjúlfur Dagsson af-
hjúpaði minnismerkið fyrir hönd
Lionsfélaga. Lúðrasveit • Kópa-
vogs lék milli atriða.
☆
SÍÐASTL. föstudag var brot-
izt inn í bústað kvikmynda-
hjónanna Audrey Hepburn
og Mel Ferrers í Búrgen-
Audrey Hepburn og Mel Ferrer.
Rœnd kvikmyndaverðlaunum
og málverki eftir Picasso
stock í Sviss. Húsið stóð autt,
þar sem frúin leikur í kvik-
mynd í París um þessar
mundir og Mel Ferrer er í
Suður-Ameríku. styttu sem Audrey Hepburn
Þjófurinn hafði á brott fékk fyrir leik sinn í kvik-
með sér verðmætt málverk myndinni „Prinsessan
eftir Picasso og verðlauna- skemmtir sérK árið 1953.