Morgunblaðið - 09.08.1962, Blaðsíða 1
20 síftur
49 árgangur
179. tbl. — Fimmtudagur 9. ágúst 1962
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Eftirlitsstöðvarnar
verði 80 í stað 180
Miklar tilslakanir Bandaríkjamanna
á ráðstefnunni í Genf um bann við
kjarnorkuvopnatilraunum
wv
T&enf, 8. ágúst. (NTB-Reuter)
AÐALFULLTEÚl Brndaríkj
anna á afvopnunarrúðstefn-
unni í Genf, Arthur Dean,
skýrði frá því í dag, að Banda
ríkjamenn væru fúsir að
lækka verulega tölu þeirra
eftirlitsstöðva, sem þeir telja
nauðsynlegar til þess að
tryggja, að bann við kjarn-
orkuvopnatilraunum sé í
heiðri haldið. í stað þess, að
eftirlitsstöðvar séu 180 tals-
ins, fallast Bandaríkjamenn
á, að þær verði 80.
Dean kvaðst mundu gera nán-
ari grein fyrir hinum nýju til-
iögum, er hann hefur meðferðis
frá Washington, þegar þrívelda-
nefndin innan afvopnunarráð-
stefnunnar kæmi saman til fund
ar á fimmtudag. Hann hefði fyrr
í þessari viku rætt þær við Val-
erian Zorin, aðstoðar-utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, sem er
formaður rússnesku nefndarinn-
ar í Genf — en undirtektir Sovét
stjórnarinnar og samkomulags-
vilji réði nokkru um, hve langt
Bandaríkjamenn gengju til sam
komulags.
Sagt er, að Bandaríkja-
menn muni einnig falla frá
Sovézkir
hermenn
til Kúbu?
Miami, Florida, 8. ágúst.
— (NTB — Reuter) —
FLÓTTAMENN, sem kom
ið hafa síðustu daga til
Miami frá Kúbu herma, að
í lok júlímánaðar hafi á
fimmta þúsund sovézkir
hermenn komið til Kúbu.
— 29. júlí sl. hafi 2.500
manna rússnesku liði ver-
ið skipað á land í hérað-
inu Pinar del Mar og
næstu tvo daga á eftir hafi
1800 rússneskir hermenn
komið í land í Havana.
Talsmaður bandaríska utan
ríiksráðuneytisins sagði í við
tali við fréttamenn í dag, að
Bandaríkjastjórn tæki orðum
flóttafólksins með nokkurri
varúð. Stjórnin væri fremur
þeirrar skoðunar að Rússar
væru einungis að senda tækni
sérfræðinga og e.t.v. hernað-
arlega ráðunauta en ekkd
hermenn.
þeirri meginkröfu þeirra, að
eftirlitsstöðvar séu allar und-
ir alþjóðlegri stjórn — og
fallast á, að hver þjóð fyrir
sig leggi menn til þeirra eft-
irlitsstöðva, sem innan landa-
merkja hennar séu. Hins veg-
ar verði allt eftirlitskerfið
undir alþjóðlegri yfirstjórn.
Þetta hefur ekki fengizt stað-
fest, en veldur mikilli eftir-
væntingu, því að sé þessi orð-
rómur á rökum reistur er um
stórkostlega tilslökun að
ræða af hendi Bandaríkja-
manna.
I Ánægðir, hvað litið,
sem vinnst —
Dean og Zorin hafa komizt að
Frarnh. á bls. 20.
Kona tekin af lífi
í San Quentin
San Quentin, 8. ágúst. —
NTB - Reuter.
I DAG var tekin af lífi í San
Quentin fangelsinu við San Fran-
sisco 58 ára kona, Elisabeth
Ann Duncan að nafni. Hún var
dæmd til dauða fyrir að greiða
tveim mönnum fyrir að myrða
barnshafandi tengdadóttur sína.
Frú Duncan er fyrsta kona sem
líflátin er í þessu fangelsi síðan
árið 1956. Síðustu náðunarbeiðni
ihennar var synjað fimm mínút-
um áður en aftakan fór fram, í
gasklefa.
Fyrjrthugað var að morðingj-
amir, sem vOru 23 og 28 ára
skyldu einnig teknir af lífi í
dag, með sama hætti. —
• ★ •
Það var í nóvemlber árið 1948,
að Elisabetlh Duncan fékk menn-
ina tvo til þess að myrða tengda-
Rockwell
fundinn
London, 8 ágúst.
NTB — Reuter.
SEINT í kvöld fannst loks
nazistaforinginn bandariski,
Lincoln Rockwell, sem leitað
hefur verið að í Bretlandi.
Það voru tveir leynilög-
reglumenn er komust á spor
Rockwells og fundu hann í
miðri Lundúnaborg. Hann var
þegar handtekinn og fluttur á
lögreglustöð, þar sem hann
verður i haldi í nótt.
dóttur sína Olgu, en hún var
ibarnshafandi. Eftir því sem fram
kom við réttarhöld í málinu þótti
ekki víst, að stúlkan hefði verið
látin, er morðingjarnir jarðsettu
hana. Ástæðan fyrir þessum
verknaði tengdamóðurinnar var
afbrýðisemi.
Lögreglan lagði
mötstiórninni lið
EINS og Morgunblaðið skýrði
frá i gær, tóku níu íslending-
ar, þeirra, er héðan sóttu
heimsmót æskunnar í Hels-
inki„ þátt í mótmælaaðgerð-
um gegn kjarnorkusprenging
um Austurs og Vesturs sl.
mánudag. Meðfylgjandi mynd
var tekin við það tækifæri,
en hún sýnir kröfuspjald ís-
lendinganna, þar sem það
liggur rifið á götunni, en
menn takast á að baki. Mynd-
in birtist á þriðjudag í danska
blaðinu Ekstrabladet ásamt
frásögn af því er fram fór í
Helsinki og fer hún hér á
eftir í lauslegri þýðingu.
— Um það bil eitc hundrað
þátttakendur í heimsmóti æsk
unnar reyndu í gær, undir for
ustu 19 ára Dana, að gera upp
reisn gegn fyrirskipunum
mótstjórnarinnar. Þeir ákváðu
að taka þátt í hópgöngu sem
fara átti um götur bæjarins í
lok mótsins — og bera þar
spjöld, þar sem mótmælt var
kjarnorkutilráunum Austurs
og Vesturs. Mótstjórnin fékk
bælt niður þessar aðgerðir
með aðstoð lögreglunnar.
Níu íslendinguim tókst þó
einum að ganga með spjöld
sín nokkur hundruð metra áð
ur en mótsstjórnin rak þá úr
göngunni og reif spjöldin.
Sem fyrr segir átti ganga
þessi að vera lokaatriði móts-
ins. Fulltrúar alls um 14.000
Marilyn jarðsett í gær
Hollywood-leikarar reiðir, sökum Jbess að
þeim var meinað að vera við útförina
Hollywood, 8. ágúst —
NTB — Reuter.
ÚTFÖR kvikmyndaleikkonunnar
Marilyn Monroe, er lézt á sunnu-
dagsnótt, fór fram i dag. Var hún
jarðsett við litla kapellu í út-
jaðri Hollywood. Lútherskur
prestur, A. J. Soldan, jarð-
söng, en kvinkmyndaleikstjór-
inn Lee Strassberg talaði yfir
líkbörum leikkonunnar og sagði,
að minningin um Marilyn myndi
ætíð lifa, sem tákn um þann
kvennleika, er ætíð væri varan-
legur.
Hann sagði Marilyn hafa verið
goðsögn í sjálfri sér. Hún hefði
vcrið tákn þess er fátæk stúlka
sem alin er upp við erfiðar að-
stæður gctur orðið. — Við, sem
hér erum samankomin, sagði
Strassberg, þekktum Marilyn að-
eins sem hlý ja konu, — mannlega
öra, feimna, næma konu, sem
haldin var sífelldum ugg um að
verða hrakin af þjóðfélaginu, en
var haldin sterkri lifsþrá. Hún
lifir áfram á meðal okkar, sem
mikill persónuleiki.
Strassberg sagði, að Marilyn
Framh. á bls 2
komu saman á tveim torgum
í borginni. Á Hagnæs-torgi
söfnuðust saman hundrað
ungimenna m.a. frá Dan-
mörku, Finnlandi, Vestur-
Þýzikalandi, Hollandi, Bret-
landi, Kanada, Bandarílkjun-
um og Brazilíu en fyrirliði
þeirra var nítján ára danskur
kennaraskólanemi Steffen
Larsen. Hann hefur ásamt
fleiri þátttakendum reynt
árangurslaust að fá mótsstjórn
ina til þess að saimiþykkja
mótmæli gegn kjarnorku-
vopnatilraunum „bæði í
Austri og Vestri“.
Rétt í þann veginn, er hóp-
gangan var að leggja af stað
Framhald á bls. 19.
Eldflaugastöðvar
undir stjórn SÞ
Nýju Delhi, 8. ágúst — NTB:
Reuter.
NEHRU, forsætisráðherra Ind
lands skýrði svo frá í dag,
að stjórn Indlands hefði fall-
izt á að reistar verði í Ind-
landi stöðvar til þess að skjóta
á loft eldflaugum undir stjóm
Sameinuðu þjóðanna. Munu
indverskir vísindamenn sjá
um daglegan rekstur þessara
stöðva, en þar eiga að fara
fram ýmsar tilraunir til gagns
fyrir allar aðildarþjóðir Sam-
einuðu bióðanna.